Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Qupperneq 38
Andlegur leiðtogi
og lifandi goðsögn
38 föstudagur 28. ágúst 2009 helgarblað
1. sæti
ÓlAfur stefánsson
handboltamaður
„Einn besti handboltamaður í heimi þrátt fyrir aldur. Er enn að gera ótrúlega hluti.“„Ekki spurning, einn af okkar bestu íþróttamönnum fyrr og síðar. Hefur unnið allt sem handaboltamaður getur unnið.“„Ótrúlegur karakter sem hefur verið okkar besti íþróttamaður svo árum skiptir. Andlegur leiðtogi íslensks handbolta.“„Tvímælalaust okkar besti íþróttamaður. Eitt er að detta inn sem frábær íþróttamaður en hitt er að ná að halda sér á toppnum árum saman, það er eitthvað sem einungis íþróttamenn á heimsmælikvarða gera.“ „Helsti afreksmaður okkar. Markahæsti leikmaður í mörg ár. Einfaldlega Meistarinn.“„Metnaðarfullur harðhaus en samt svo breyskur og mannlegur alltaf hreint. Klassísk hetja.“„Táknmynd íslenskrar íþróttahetju. Einn af bestu handknattleiksmönnum heims. Kæmist í hvaða lið sem er og hefði geta valið fótboltann, þeir sem hafa séð hann spila segja hann meira að segja betri en margir leikmenn í Pepsídeildinni.“„Kann að sigra og ná árangri, smitar frá sér, leiðtogi. Ég væri klárlega til í að setjast niður með honum á kaffihúsi og spjalla um íþróttir.“
„Mikill karakter. Ávallt í lykilhlutverki.“
„Andlegur konungur íslenskra íþrótta. Allir geta litið upp til Óla. Fullkomin fyrirmynd. Ótrúlega hæfileikaríkur, lifandi goðsögn. Klárlega flottasti íþróttamaður sem Ísland hefur nokkurn tímann alið.“
„Betri með árunum, leggur alltaf hart að sér og er þekktur fyrir að æfa meira en aðrir. Dæmi um íþróttamann sem kemur fram einu sinni á 100 ára fresti. Við erum heppin að fá að fylgjast með honum.“
„Einfaldlega stórkostlegur íþróttamaður og frábær leiðtogi.“
„Ber höfuð og herðar yfir aðra íþróttamenn hér á landi og jafnvel einn besti íþróttamaður Íslandssögunnar. Án vafa besti handboltamaður heims í dag.“
„Ótrúlegur leiðtogi, innan og utan vallar og einn sá besti í heiminum í sinni grein. Leiddi lið sitt til silfurs á Ólympíuleikunum.“
2. sæti
MArgrét lárA ViðArsdÓttir
knattspyrnukona
„Ég væri til í að velja allt landsliðið en ég vel Margréti
Láru. Öflug og mikilvæg, algjör markaskorari.“
„Ótrúlegur knattspyrnumaður sem virðist skora mörk
eftir pöntun. Ef hún hefur andlega þáttinn í lagi gæti
hún slegið í gegn með góðu liði erlendis. Fremst
meðal jafningja.“
„Algjört undrabarn á vellinum.“
„Ótrúleg fyrirmynd, íþróttamaður sem gerir alltaf sitt
besta og á sjaldnast slæman dag. Velgengni íslenskrar
kvennaknattspyrnu á henni mikið að þakka.“
„Klárlega öflugasta og glæsilegasta knattspyrnukona
landsins og mjög góð fyrirmynd. Knattspyrnuáhugi
stúlkna hefur aukist til muna eftir velgengni kvenna-
landsliðsins.“
„Kvennaboltinn holdi klæddur. Frábær íþróttakona en
samt frekar litlaus utan vallar.“
„Hefur gert ótrúlega mikið fyrir íslenska kvennaknatt-
spyrnu og á bara allt gott skilið enda flott fyrirmynd
fyrir bæði stráka og stelpur.“
„Hefur staðið sig með miklum sóma og átti stóran
þátt í að Ísland fékk að keppa á EM.“
„Lykilmaður í liði sem tókst fyrst íslenskra fótboltaliða
að komast á stórmót. Mikill leiðtogi og vinnur vel fyrir
liðið og skorar mörk.“
3. sæti
eiður sMári guðjohnsen
knattspyrnumaður
„Englandsmeistari með Chelsea, keyptur til Barce-
lona sem er afrek út af fyrir sig. Evrópumeistari og
Spánarmeistari með Barca.“
„Fremsti fótboltamaður Íslands, liðið hans er
Evrópumeistari og geri aðrir betur. Flottur gaur
sem er landi sínu til sóma.“
„Ég verð að vera lame og segja Eiður Smári, það
er enginn sem hefur afrekað eins mikið og hann í
boltanum.“
„Í heimsklassa í útbreiddustu og vinsælustu íþrótt
í heimi. Er þó að verða miðlungsleikmaður. Verður
að skipta um félag ef hann á ekki að koðna niður á
varamannabekknum hjá Barcelona.“
„Að vera frá 300.000 manna þjóð og ná þeim
árangri að komast í besta félagslið í heimi segir
sitt. Væri til í að sjá þennan flotta leikmann spila af
meiri krafti með landsliðinu.“
„Okkar fremsti íþróttamaður ásamt Ólafi Stefáns.“
„Árangur hans verður seint toppaður af öðrum
íslenskum knattspyrnumanni. Að hafa leikið fyrir
Chelsea og Barcelona segir meira en mörg orð um
þennan frábæra knattspyrnumann.“
„Enginn vafi - besti knattspyrnumaður sem Ísland
hefur alið.“
álitsgjAfAr:
Valdimar Grímsson handboltamaður
Gunnbjörn Arnljótsson smiður
Hannes Steindórsson fasteignasali
Hallgrímur Indriðason blaðamaður
Hlynur Geir Hjartarson kylfingur
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir fegurðar-
drottning
Hannes Friðbjarnarson tónlistarmaður
Vernharð Þorleifsson júdókappi
Elsa Nielsen badmintonkona
Ingibjörg Reynisdóttir leikkona
Stefán Máni rithöfundur
Nana Alfreðs tónlistarkona
Sunna Gestsdóttir frjálsíþróttakona
Heiðrún Kristmundsdóttir körfuboltakona
Hans Bjarnason íþróttafréttamaður
Silja Úlfarsdóttir frjálsíþróttakona
Garðar Ásgeirsson knattspyrnuþjálfari
Soffía Sveinsdóttir veðurfréttakona
Vésteinn Gauti Hauksson markaðsstjóri
Sævar Pétursson framkvæmdastjóri Baðhússins
Jón Gunnar Geirdal markaðsstjóri
Guðrún H. Ólafsdóttir einkaþjálfari
Sölvi Fannar Viðarsson framkvæmdastjóri
Heilsuráðgjafar
Gunnar Jarl Jónsson knattspyrnudómari
Signý Hermannsdóttir körfuboltakona
Sonja Bergmann einkaþjálfari
Umsjón: Indíana Ása Hreinsdóttir