Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Síða 44
44 föstudagur 28. ágúst 2009 helgarblað Þær tónlistarstjörnur sem eiga nægt fé geta ráðið sér einkalækna sem eru innan seilingar allan sólar- hringinn. Í sumum tilfellum er poppstjörnum útvegaðir læknar af umboðsmönnum eða hljómplötuút- gáfum. Enn aðrir þurfa að hringja sérstaklega í svonefnda „rokk og ról-lækna“ til að fá bót sinna meina með litlum fyrirvara og góðum árangri. Lyf, lögleg og ólögleg, hafa löngum tengst tónlistariðnaðinum og þeg- ar lyf eru annars vegar eru læknar gjarna skammt undan. Í heimi tón- listar eru þessir læknar þekktir sem „rokk og ról-læknar“. Þjónusta þessara lækna hefur orðið umhugsunar- og umræðu- efni í kjölfar dauða poppgoðs- ins Michaels Jackson, enda bein- ast augu rannsóknaraðila einna helst að einkalækni hans, Conrad Murray. Einkennisklæðnaður „rokk og ról-lækna“ þarf alls ekki að draga dám af sloppum lækna á sjúkra- húsum og allt eins líklegt að þeir klæðist leðurjökkum og fatnaði sem skírskotar til þess iðnaðar sem þeir starfa í. 24 tímar á sólarhring Læknar tónlistariðnaðarins til- heyra einkageiranum og eru gjarna á sólarhringsvakt fyrir bandarísk hótel vegna „bráðatilfella“ gesta úr tónlistarheiminum sem geta komið til hvenær sem er sólarhrings. Læknarnir geta einnig ferðast á milli tónleikastaða og veita með- ferð við krankleika af öllum toga, allt frá særindum í hálsi til kyn- sjúkdóma. Þóknun læknanna kann að vera stjarnfræðilega há, en fyrir frægðarfólk með lyfjafíkn er þjón- ustan þess virði því hún er hvort tveggja snögg og góð. Ef stjarna þarf að ná sér niður eft- ir þriggja sólarhringa kókaínneyslu og allt sem henni fylgir er símtal við „rokk og ról-lækni“ svarið. Lyfjasjálfsali Hjá stjörnum eins og Michael Jack- son heitnum, sem hafa aðgang að nokkurn veginn ómældu fé, er al- gengt að ráðinn sé einkalæknir sem er innan seilingar sem nokk- urs konar einkalyfjasjálfsali. Aðrar stjörnur þurfa að reiða sig á sím- ann. Erfitt er að fullyrða um hvor leiðin sé hagkvæmari, en sennilega eru báðar fjárhagslega hagkvæmari en að versla á svarta markaðinum. Til að bæta um betur er þjónusta lækna allajafna fullkomlega lögleg. Hvort hún sé siðleg skal ekki full- yrt. Geta fengið skattafrádrátt Í sumum tilfellum geta stjörnur jafnvel talið fram lyfjakostnað sinn til skattafrádráttar. Þess ber þó að geta að í tilfelli Michaels Jackson þurfti hann ekki að láta lyfja- og lækniskostnað halda fyrir sér vöku því AEG-fyrirtækið, sem stóð að baki fyrirhugaðri tónleikaröð goðs- ins, stóð straum af þeim kostnaði. Í öðrum tilfellum kann sá háttur að vera hafður á að hljómplötufyr- irtæki eða umboðsmenn sjá um að útvega tónlistarstjörnunni lækni. Sumir dýrkeyptir læknar hafa jafnvel í boði hreyfanlegar „afeitr- unarstöðvar“ fyrir auðugustu við- skiptavini sína, sem nýttar eru til að takast á við ávanafíkn þeirra. Sú leið veitir læknunum ennfremur meira svigrúm þegar til þess kem- ur að skrifa upp á lyf. Geta sætt áminningu Hvað sem öllu öðru líður þurfa „rokk og ról-læknar“ að fylgja læknisfræðilegum og siðfræðileg- um reglum og þeir eru ekki undan- þegnir því að sæta áminningu þar til gerðra yfirvalda, ef vafi leikur á að þeir hafi stundað ærleg vinnu- brögð. Eðli málsins samkvæmt kann að vera erfitt að sanna á velmeg- andi lækna þá sök að þeir hafi ver- ið helst til örlátir á lyf fyrir skjól- stæðinga, eða koma í veg fyrir slíkt. Skjólstæðingar þeirra geta bæði gert sér upp sjúkdómseinkenni eða jafnvel valdið sér skaða af ein- hverjum toga. Róbert læknir Eitt þekktasta „læknislag“ popp- sögunnar er lag The Beatles, Dr. Robert. Lagið kom út á Revolv- er-plötu sveitarinnar í Bretlandi árið 1966 og Yesterday and Today- hljómplötunni í Bandaríkjunum og er án efa úr smiðju Johns Lennon. Texti lagsins er talinn innihalda þó nokkrar skírskotanir til fíkni- efna, þar á meðal að fíkniefnasalar eru gjarna kallaðir „læknar“. Haft var eftir John Lennon að dr. Robert væri í raun hann sjálfur. „Ég var sá sem var með allar pillurnar á tón- leikaferðalögum... á árum áður,“ sagði John Lennon. Staðhæfing Lennons hefur þó ekki komið í veg fyrir vangaveltur um hinn eina rétta dr. Robert og til sögunnar hafa verið nefndir dr. Robert Freymann, sem mun hafa verið ósínkur á amfetamín til skjól- stæðinga sinna, og dr. Charles Ro- berts, læknir í New York. Fjörutíu árum síðar Sem fyrr segir beinast augu rann- sóknaraðila dauða Michaels Jack- son að Conrad Murray einka- lækni. Fjörutíu árum eftir útgáfu Dr. Roberts Bítlanna hófust kynni Michaels og Murrays og um þrem- ur árum síðar er sá fyrrnefndi lið- ið lík. Ekki liggur ljóst fyrir hvort Murray skrifaði upp á öll þau lyf sem fundust á aðsetri Jacksons í Los Angeles, en af nógu var að taka í þeim efnum. Engan veginn er hægt að útiloka að einhver lyfin hafi verið fengin eftir öðrum leið- um. (Byggt á times.co.uk og wikipedia.org) kolbeinn@dv.is NaFN aLduR staRF dáNaRoRsök Dorothy Dandridge 42 leikkona/söngkona of stór skammtur af þunglyndislyfjum Tommy Dorsey 51 djasstónlistarmaður kafnaði í svefni, hafði tekið inn svefnlyf Brian Epstein 32 framkvæmdastjóri The Beatles of stór skammtur svefnlyfja, úrskurðað slys Rory Gallagher 47 rokktónlistarmaður lungnabólga og lifrarbilun vegna aukaverkana lyfja- notkunar að læknisráði Jimi Hendrix 27 rokktónlistarmaður öndunarstopp vegna áfengisneyslu og róandi lyfja, meðal annars Brian Jones 27 rokktónlistarmaður drukknaði, sennilega vegna áfengisneyslu og neyslu róandi lyfja Rory Storm 33 rokktónlistarmaður of stór skammtur svefnlyfja, úrskurðað sem sjálfsmorð Tommy Dorsey 51 djasstónlistarmaður kafnaði í svefni eftir neyslu svefnlyfja Ófáir tónlistarmenn hafa fallið í valinn vegna eiturlyfjanotkunar, en einnig hafa komið við sögu lögleg lyf sem notuð eru í baráttunni við þunglyndi og svefnleysi. Sum dauðsföll hafa verið úrskurðuð sem sjálfsvíg, en önnur sem slys. Hér getur að líta nöfn nokkurra tónlistarmanna sem létust, meðal annars, vegna lyfjanotkunar. „Rokk og Ról-læknaR“ Læknarnir geta einnig ferðast á milli tónleika- staða og veita meðferð við krankleika af öllum toga, allt frá særindum í hálsi til kynsjúkdóma. John Lennon Lagið Dr. Ro- bert var á meðal annars talið fjalla um „lækni“ rokkstjarna. Conrad Murray læknir Læknir Michaels Jackson var á vegum AEG- fyrirtækisins. keith Moon, trymbill the Who Of stór lyfjaskammtur varð honum að aldurtila.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.