Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Page 48
48 föstudagur 28. ágúst 2009
Trúnó með
Sigmundi erni
Thelma Hafþórsdóttir er ung og upprennandi söngkona með
hljómsveitunum Trútón og Silfur. Hún er með æði fyrir Ed Hardy-
fötum og segist geta horft á myndina Throat invasion volume 3 aftur
og aftur. Thelma segir það mikilvægasta í lífinu vera fjölskylduna,
tónlistina og trú á eigin áhrifamátt.
nafn og aldur?
„Thelma Hafþórsdóttir, 23 ára.“
aTvinna?
„Söngkona í hljómsveitunum Trútón og Silfur ásamt
því að vera námsmaður.“
HjúSkaparSTaða?
„Einhleyp.“
fjöldi barna?
„Ég á einn fjórfættan sem heitir Bóbó.“
Hefur þú áTT gæludýr?
„Nei.“
Hvaða Tónleika fórST þú á SíðaST?
„Ætli það hafi ekki verið á Langa Sela á Rósenberg eða
útskriftartónleikana hennar Erlu Jónatans Garðarson-
ar úr FÍH. Æðisleg stelpa með enn betri föður.“
Hefur þú komiST í kaST við lögin?
„Nei svona varla.“
Hver er uppáHaldSflíkin þín og af Hverju?
„Núna er það allt merkt Ed Hardy sama hvort það eru
bolir, peysur eða skór. Töff en þægileg föt sem fást í
Reykjavík Ink.“
Hefur þú farið í megrun?
„Ætti ég að gera það?“
Hefur þú Tekið þáTT í Skipulögðum móTmælum?
„Nei það hefur aldrei neinn boðið mér.“
Trúir þú á framHaldSlíf?
„Ég trúi því að sálin okkar lifi áfram já.“
Hvaða lag SkammaST þú þín meST fyrir að Hafa
Haldið upp á?
„Ég ætti líklega að skammast mín fyrir öll Britney-
lögin...“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Komdu aftur til mín með Trútón og Lífið með Silfri.
Það er bara þannig, ekkert vesen.“
Til HverS Hlakkar þú núna?
„Spila með Silfri á Hressó í kvöld.“
Hvaða mynd geTur þú HorfT á afTur og afTur?
„Throat invasion volume 3.“
afrek vikunnar?
„Að sjá Lífið á vinsældalista Rásar 2“.
Hefur þú láTið Spá fyrir þér?
„Já Facebook var að því rétt í þessu. Það var bara rugl.“
Spilar þú á Hljóðfæri?
„Já en ég kann það ekki.“
vilTu að íSland gangi í evrópuSambandið?
„Nei, Gleðibankann eða Brunaliðið.“
Hvað er mikilvægaST í lífinu?
„Fjölskyldan, tónlistin og trú á eigin áhrifamátt.“
Hvaða íSlenSka ráðamann mundir þú vilja
Hella fullan og fara á Trúnó með?
„Spurningin er ekki flókin og ég svara henni einfald-
lega þannig að það væri Sigmundur Ernir.“
Hvaða fræga einSTakling myndir þú HelST vilja
HiTTa og af Hverju?
„Mick Jagger, Keith Richards eða einhvern úr Stones.
Það væri bara aðeins of töff.“
Hefur þú orT ljóð?
„Já kannastu til dæmis við Fyrr var oft í koti kátt,
krakkar léku saman...“
nýlegT prakkaraSTrik?
„Þau eru ekki prakkarastrik ef allir vita að þeim.“
Hvaða fræga einSTaklingi líkiST þú meST?
„Britney nema þegar hún ófríkkaði um stundarsakir“
erTu með einHverja leynda Hæfileika?
„Já get til dæmis látið aðra samvöxnu tásuna mína
vinka.“
á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Nei.“
Hver er uppáHaldSSTaðurinn þinn?
„Mér líður best á sviðinu.“
Hvað er það SíðaSTa Sem þú gerir áður en þú
ferð að Sofa?
„Biðja Guð um að vernda mig og mína.“
Hver er leið íSlandS úT úr kreppunni?
„Follow me.“
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið
... á Dalveg 16a
Sími: 554 3430
Erum fluttir...