Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Síða 53
KOMDU Í ÁSKRIFT
:: hringdu í síma 515 5555 eða
:: sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is
:: farðu inn á www.birtingur.is
og komdu í áskrift
lífstíll 28. ágúst 2009 föstudagur 53
Micheal Jackson-stepptíMar fyrir alla
Fusion festival, stærsta alþjóðlega heilsu- og líkamsræktar-
hátíðin á Íslandi, verður haldin helgina 11.–12. september
í World Class í Laugum en þetta er sjöunda árið í röð sem
hátíðin er haldin. Tveir troðfullir dagar af fjöri, skemmtun
og heilsurækt fyrir alla fjölskylduna en í boði verður meðal
annars Michael Jackson-stepptími, meðgönguleikfimi og
herþjálfun. Frekari upplýsingar eru á www.fusion.is.
UMsJón: IndÍana Ása HreInsdóTTIr
Stjörnur í Smá-
kökumegrun
Nýjasta megr-
unaræðið í
Hollywood er
svokallaðar
megrunarsmá-
kökur. Stjörnur
á borð við Den-
ise Richards,
Jessicu Simpson,
Mandy Moore
og raunveruleikaþáttasysturnar
Kim og Khloe Kardashian hafa
allar sést fjárfesta í kökunum en
megrunin snýst um að borða
kökur á daginn en góða máltíð
að kvöldi. Hljómar ágætlega en
frekari upplýsingar eru á cookie-
diet.com.
Helga Ólafsdóttir stendur á bak við barnafatamerkið Ígló ásamt Lovísu Ólafsdóttur.
Helga er einnig hönnuður danska tískumerkisins Isay og ferðast um allan heiminn
vegna vinnunnar:
„Þetta var sameiginlegur draumur en okk-
ur fannst vanta skemmtileg og litrík föt
sem börnum þykja skemmtileg og vilja
fara í á morgnanna,“ segir Helga Ólafs-
dóttir hönnuður Ígló barnafatamerkisins
en Helga rekur fyrirtækið ásamt Lovísu Ól-
afsdóttur viðskiptafræðingi. Helga segir
viðbrögðin sem fötin hafa fengið mjög
góð en fötin eru seld á iglo.is og versl-
ununum Sirka á Akureyri, Snúðar og
Snældur á Selfossi, 3 Smárar í Reykjavík
og Sjöberg í Vestamannaeyjum auk þess
sem þau munu fljótlega verða til í tveim-
ur dönskum netverslunum. „Það eru
allir voðalega jákvæðir yfir þessu,“ seg-
ir Helga kát og bætir við að börn þeirra
Lovísu hafi hjálpað til við hugmynda-
vinnuna. Helga starfar einnig sem hönn-
uður hjá danska fyrirtækinu Isay þar sem
hún hannar föt á konur. Hún er því með
annan fótinn í Danmörku auk þess sem
hún ferðast mikið um heiminn á sýning-
ar og annað tengt vinnunni. Þrátt fyrir
annríki segir hún sér takast ágætlega að
sameina móðurhlutverkið við starfsfra-
mann. „Sem betur fer á ég góðan og dug-
legan eiginmann sem tekur við heimil-
inu á meðan ég er í burtu. Ég reyni samt
að eiga góðan tíma með börnunum. Það
er mér mjög mikilvægt og þau eru líka
dugleg að koma með mér í vinnuna en
við erum með leikherbergi hérna á skrif-
stofunni,“ segir hún brosandi. Hún og
Lovísa stofnuðu Ígló stuttu fyrir banka-
hrunið en Helga segir ástandið ekki hafa
dregið úr plönum þeirra. Þær fari sér ró-
lega enda gerist góðir hlutir hægt. „Okk-
ur liggur ekkert á. Við ætlum bara að
reyna festa rætur smám saman og gera
þetta hægt og rólega,“ segir hún og bætir
við að það sé aldrei að vita nema Íglóföt
verði í boði fyrir stærri hóp í framíðinni.
„Í dag eru þetta hlý flísföt á börn frá eins
árs aldri upp í átta ára og svo koma úlpur í
nóvember. Stefnan er sett á að auka vöru-
úrvalið, bolir, gallar, kjólar liggja á teikni-
borðinu fyrir vorið.“
Indíana Ása Hreinsdóttir
góðir hlutir
geraSt hægt
Helga Ólafsdóttir Hönnuður Ígló barnafatamerkisins.
mynd rÓbert reynisson
Þjónustuauglýsingar
goSSip girl-
tíSka í target
Bandaríska verslunarkeðjan Tar-
get hefur fengið
fatahönnuðinn
Önnu Sui til að
hanna nýja línu
fyrir verslanir
sínar en línan er
byggð á sjón-
varpsþáttunum
Gossip Girl. Þeir
sem hafa heillast
af fötum Blair,
Serenu, Jenny eða Vanessu ættu
ekki að láta línuna framhjá sér
fara.
Toyota Corolla 1.4 Wagon VVTI
05/2006 Ekinn 65þús. Bsk, Verð 1.790.000.-,
Áhvílandi lán 822.000.-
Nissan Qashqai XE Diesel
07/2007, Ekinn 24þús. Ssk, Filmur, Verð
3.890.000.- Áhvílandi lán 2.022.000.-
Nissan Micra Visia
09/2007 Ekinn 35þús, Ssk, Verð 1.590.000.-,
Allt að 100% lán
SSangYong Musso 2.9 Sport Diesel TDI
04/2004 Ekinn 154þús. Ssk, Pallhús,
dráttarkrókur, Verð 1.190.000.-