Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Blaðsíða 9
Dísilolía
Grafarvogi verð á lítra 191,8 kr. verð á lítra 188,6 kr.
Skeifunni verð á lítra 187,2 kr. verð á lítra 184,9 kr.
Akranesi verð á lítra 191,8 kr. verð á lítra 188,6 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 187,1 kr. verð á lítra 184,8 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 190,2 kr. verð á lítra 186,9 kr.
Skógarseli verð á lítra 191,8 kr. verð á lítra 188,6 kr.
Umsjón: BaldUr GUðmUndsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
neytenDur 28. október 2009 miðvikuDAGur 9
„Það þarf náttúrulega að passa upp á
að dekkin séu í lagi. Það er mikilvægt
að þau séu með góðu snjómynstri;
negld eða ónegld. Það er ekkert sem
kemur í staðinn fyrir naglana í ísingu
og hálku en aðalatriðið er að fólk noti
þá hjólbarða sem það treystir sér til.
Það er best fyrir alla sem eru í um-
ferðinni,“ segir Dagur Benónýsson,
rekstrarstjóri hjólbarða- og smurverk-
stæða hjá N1. Hann segir einnig afar
mikilvægt að réttur loftþrýstingur sé í
dekkjunum. Það stuðli að auknu veg-
gripi og minni eldsneytiseyðslu.
Frostlögur mikilvægur
Dagur segir einnig mikilvægt að öfl-
ugur frostlögur sé settur á bílinn fyr-
ir veturinn. „Frostþolið þarf að vera
nægjanlegt á kælivökvanum,“ seg-
ir Dagur. Spurður hvort nauðsynlegt
sé að setja ísvara út í eldsneyti bílsins
segir hann að allajafna sé slíkt ekki
nauðsynlegt, þótt það geti alltaf ver-
ið gott. „Sérstaklega er mikilvægt að
setja ísvara á bíla sem taka eldsneyti
af tönkum; til dæmis bændur sem
eru með eigin tanka við heimahús.
Ef það er vatn í bensíninu getur það
frosið með þeim afleiðingum að bíll-
inn fer ekki í gang,“ útskýrir Dagur.
Rúðuvökvi og síuskipti
Dagur segir að nú þegar von er á
frosthörkum sé mikilvægt að gæta að
rúðuþurrkum og rúðuvökva. Þurrk-
urnar séu mikilvægar til að auka út-
sýni við aksturinn og ekki megi vera
vatn á rúðupisskútnum, heldur frost-
þolið efni á borð við rúðuvökva. „Það
er líka mikilvægt að eiga rúðusköfu,
lásasprei og þessar hefðbundnu
græjur í bílunum,“ segir hann. Dag-
ur bendir einnig á að gott sé að fara
með bílinn í smurningu fyrir vetur-
inn. „Það er gott að láta skipta um
hráolíusíu, athuga hvort loftsían sé
nógu góð sem og frjókornasían, en
hún hreinsar loftið sem kemur að
utan og inn í miðstöðina. Ef hún er
illa farin getur komið móða á rúður
inni í bílnum og jafnvel ólykt,“ segir
hann og heldur áfram. „Við smyrj-
um líka alltaf lamir og læsingar þegar
fólk kemur með bílinn í smurningu á
veturna,“ segir hann.
Dagur bendir einnig á mikilvægi
þess að allar ljósaperur bílsins virki
til þess að bíllinn sé sýnilegri í um-
ferðinni. „Það skiptir líka máli að
halda ljósunum hreinum, svo þau
lýsi eins og til er ætlast,“ segir hann
og bætir því við að ljósaperur fá-
ist auðvitað á öllum smurstöðvum
N1. „Það er líka gott að láta mæla
rafgeyminn svo fólk verði síður raf-
magnslaust þegar kalt er í veðri,“
segir hann.
DV tók saman lista yfir atriði sem
gott er að hafa í huga í upphafi vetr-
ar í því skyni að auka umferðaröryggi
og stuðla að því að bíllinn virki eins
og hann á að gera. DV naut ráðgjaf-
ar bifvélavirkjans og Ólafsfirðings-
ins Svavars Guðna Gunnarssonar við
samantektina. Myndir eru af vörum
úr verslun N1, Ártúnshöfða.
Athugið að verðin á vörunum eru
til viðmiðunar.
Frostlögur og viðeigandi dekkjabúnaður eru á meðal mikilvægustu atriða sem huga þarf að þegar búa á bílinn
undir veturinn að mati Dags Benónýssonar hjá N1. Einnig má nefna að vélarstilling, síuskipti, silíkon á hurða-
þéttingar og góð rúðuskafa eru á meðal fjölmargra atriða sem þarf að athuga þegar kólnar í veðri.
Búðu
Bílinn
undir
veturinn
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
vélArStillinG
Tilgangur: að fyrirbyggja gangtruflanir og lengja
líftíma vélarinnar.
mælA hleðSlu oG AthuGA reimAr
Tilgangur: meðal annars að koma í veg fyrir að
bíllinn verði rafmagnslaus í kulda og forðast
skemmdir á vélinni.
hreinSA tenGi oG þvo rAFGeymi með vAtni
Tilgangur: að geymirinn haldi góðri hleðslu og
fari auðveldlega í gang.
SkiptA um DempArA eFtir þörFum
Tilgangur: Góð fjöðrun eykur veggrip bílsins og
þar með öryggi farþega.
StrAummælinG
á StArtArA
Tilgangur: segir til um ástand
hans. Ef hann er slitinn gæti
það leitt til þess að bíllinn fari
einn daginn ekki í gang. startkaplar eru nauðsyn-
legir ef bíllinn verður rafmagnslaus.
Startkaplar: 4.000 kr.
SkiptA um olíu, olíuSíur oG elDSneytiSSíur
Tilgangur: nauðsynlegt er að smyrja bílinn til að
vélin gangi betur, endist lengur og óhreinindi
skemmi hana ekki.
mælA FroStlöG
Tilgangur: Ef vatn frýs á vatnskassan-
um getur vélin ofhitnað. Frostlögur
kemur einnig í veg fyrir tæringu.
Frostlögur: 800 kr.
SmyrjA hurðAlAmir vélAr-
lok, læSinGAr oG benSínlok
Tilgangur: að öðrum kosti getur þú
orðið fyrir því að komast ekki inn
í bílinn eða geta ekki sett á hann
eldsneyti í miklu frosti.
Lásasprei: 500 kr.
SkiptA um þurrkublöð eF þArF
Tilgangur: Góðar rúðuþurrkur stuðla að góðu
útsýni og þar með öryggi í umferðinni.
Rúðuþurrkur: 1.500 kr. stk.
SetjA rúðuvökvA á bílinn
Tilgangur: Ef vatn er í rúðupissinu getur
frosið í lögnum þannig að það virkar
ekki þegar síst skyldi.
Rúðuvökvi: 700 kr.
Silíkon á þéttiliStA
Tilgangur: Í miklu frosti getur reynst
erfitt að opna bílhurðar vegna þess að
þéttilistar eru frosnir saman.
Silíkon á þéttilista: 800 kr.
móðuvörn á rúður oG
rúðuSkAFA
Tilgangur: Í snjó, slyddu eða
rigningu getur komið móða á
rúðurnar innan frá. Hægt er að
kaupa sérstaka vörn sem kemur í
veg fyrir það eða hafa góða sköfu
við höndina.
Móðuvörn: 1500 kr.
Rúðuskafa: Frá 200 kr.
þvo bílinn oG bónA
Tilgangur: snjór loðir frekar við
lakk sem ekki er bónað. auðveld-
ara verður að skafa af bílnum ef
hann er vel bónaður.
Bón: 800 kr.
AthuGA hjólbArðA, eiGA
DekkjAhreinSi
Tilgangur: Góð vetrardekk
auka veggrip og stuðla að
auknu öryggi í umferðinni.
negld dekk eru best í ísingu.
dekkjahreinsir getur aukið
veggrip verulega.
Dekkjahreinsir: 800 kr.
réttur loFtþrýStinGur
Tilgangur: mikilvægt er að réttur
lofþrýstingur sé í dekkjunum. að
öðrum kosti eykst bensíneyðsla og
öryggi minnkar.
Loftmælir: Frá 900 kr.
AthuGA öll ljóS
Tilgangur: Í skamm-
deginu og þegar
skyggni er slæmt er
mikilvægt að öll ljós
virki. að öðrum kosti sést
bíllinn síður.
Ljósaperur: 200 kr.
SAnDur í FlöSku
Tilgangur: Ef þú festir þig getur verið gott að hafa
svolítinn sand meðferðis til að auka grip.
SkoðA GólFmottur
Tilgangur: Ef gólfmottur eru götóttar eða slitnar
getur vatn, sem áður var snjór, lekið í gegn og gert
það að verkum að teppin í bílnum blotna. slíkt
getur skapað fúkkalykt.
DráttArtóG oG SkóFlA
Tilgangur: Ef þú hefur kaðal og skóflu í bílnum er
líklegra að þú getir losað bílinn ef hann festist í
skafli. Þú getur einnig frekar orðið öðrum að liði.
Dráttartóg: 2000 kr.
breiDDu yFir bílinn
Tilgangur: Þeir sem eiga ekki bílskúr geta keypt
þunnar yfirbreiðslur sem hægt er að setja yfir
bílinn ef von er á snjó. Þá sleppurðu við að skafa!
„Það skiptir líka máli að halda ljósunum
hreinum, svo þau lýsi eins og til er ætlast.“
Veturinn er kominn Góð rúðuskafa,
frostlögur og vetrardekk eru á meðal
þeirra atriða sem nauðsynlegt er
að huga að fyrir veturinn.
MyND phOtOS.cOM