Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Qupperneq 16
● Fyrsta lúterska kirkjan á Íslandi var
reist þar sem hét Háigrandi, gegnt
Óseyri, rétt við smábátahöfnina árið
1533.
● Sérstaklega góð hafnarskilyrði
gerðu Hafnarfjörð snemma að einni
helstu verslunarhöfn landsins og þar
var aðalhöfn þýskra kaupmanna á 16.
öld.
● Fyrsta tilraun til þilskipaútgerðar á
Íslandi var gerð í Hafnarfirði á vegum
Innréttinga Skúla Magnússonar á
árunum 1753 til 1759.
● Fyrsti togari Íslendinga, Coot, var
gerður út frá Hafnarfirði 1905 til 1908.
● Árið 1904 setti Jóhannes Reykdal
upp vatnsaflsrafstöð og bauð fólkinu
í bænum rafmagn til afnota. Það var
fyrsta almenningsrafveita á Íslandi.
● Ráðhúsið í Hafnarfirði, Strandgötu 6,
var hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
● FH vann bikarkeppni Frjálsí-
þróttasambands Íslands 15 ár
í röð á árunum 1994 til 2008.
● Karlalið FH í
knattspyrnu hefur verið
Íslandsmeistari fimm
sinnum á síðustu sex
árum.
● Karlalið Hauka í handknattleik hef-
ur orðið Íslandsmeistari sex sinnum á
síðustu níu árum.
● Landssvæði Hafnarfjarðar er
143 ferkílómetrar
● Árið 2008 náði Hafnarfjörður
íbúafjölda upp á 25.000 manns.
● Frá árinu 1910 hefur íbúafjöldi
bæjarins farið úr 1.547 í rúmlega 26
þúsund.
● Margar frægar hljómsveitir koma
úr Hafnarfirði svo sem Botnleðja, Jet
Black Joe, HAM, Kátir piltar, Sign,
Úlpa, Lada Sport og Jakobínarína.
Jóhanna Guðrún og Björgvin Hall-
dórsson eru einnig úr Hafnarfirði.
● Hafnarfjörður er þriðji stærsti
bær Íslands á eftir
Reykjavík og
Kópavogi.
Miðvikudagur 28. október 200916 hafnarfjörður
LAGERSALA
LAGERSALA
Opið hús að Dalshrauni 17, Hafnarfirði
fimmtudaga frá kl. 12-18 og
laugardaga frá kl. 12-15.
SKART - HÁRSKRAUT - TÖSKUR
HÚFUR - VETTLINGAR - SOKKAR
OG MARGT FLEIRA
KOMDU Í ÁSKRIFT
Hringdu í síma 515 5555
eða sendu tölvupóst á
askrift@birtingur.is eða
farðu inn á www.birtingur.is
auglýsingasíminn er
512
70
50
Hafnarfjörður á sér langa og merkilega
sögu. DV tók saman nokkra af hápunktum
þeirrar sögu.
Staðreyndir
um Hafnarfjörð