Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Page 24
Miðvikudagur 28. október 200924 hafnarfjörður
Handboltakempan og „sjoppukarlinn“ Jón Karl Björnsson dró skóna fram á nýjan leik síðsumars eftir að hafa
lagt þá á hilluna að loknu tímabilinu 2007–2008. Þá hafði hann unnið sex Íslandsmeistaratitla með Haukum
en Jón leikur nú með Gróttu sem félagi hans, Halldór Ingólfsson, þjálfar. Jón Karl hóf líka sjoppurekstur fyrir
skömmu og er Flensborgarinn vinsælasti rétturinn á matseðlinum.
„Þetta var aðallega vegna þess að
Halldór Ingólfsson, félagi minn, var
að þjálfa Gróttu og hann sóttist eft-
ir að fá mig,“ segir Jón Karl Björns-
son, handboltamaður hjá Gróttu á
Seltjarnarnesi, sem tók fram skóna
að nýju í haust eftir að hafa tekið
þá ákvörðun þarsíðasta sumar að
hætta handboltaiðkun. Jón Karl er
Hafnfirðingur mikill, spilaði með
Haukum allan sinn feril fram að
vistaskiptunum í ár fyrir utan tvö ár
sem hann lék með Fylki í Árbænum.
Alls hefur hann unnið sex Íslands-
meistaratitla.
„Hann þurfti ekkert að suða
rosalega. Bara eitthvað aðeins,“
segir Jón Karl, spurður hvort Hall-
dór hafi þurft að ganga mikið á eft-
ir honum til að Jón tæki fram skóna
að nýju. Jón var nokkuð harður á
því að hætta í fyrra sem sést til að
mynda á því að hann var búinn að
ná sér í dómararéttindi og byrjað-
ur að dæma hér og þar, meðal ann-
ars einn leik í efstu deild kvenna
í lok síðasta tímabils og einn leik
í 1. deild karla, áður en að úrslita-
keppninni kom. „Ég tek mér bara
pásu núna í dómgæslunni á með-
an ég klára þennan samning,“ segir
Jón sem gerði tveggja ára samning
við Gróttu.
Heldur í við ungu
strákana
Jón kveðst alveg halda í við ungu
strákana. „Jájá, og það er bara gam-
an. Ég er líka „bara“ 34 ára. Það er
ekkert svo hár aldur,“ segir Jón í létt-
um dúr.
Gróttu hefur gengið ágætlega það
sem af er tímabilinu. Vann Fram og
tapaði naumlega fyrir Val en síðar-
nefnda liðinu var spáð góðu gengi
í vetur. „Við töpuðum með einu
marki á móti Val. Það var mjög aula-
legt hjá okkur að tapa þeim leik.“
Jón segir móralinn hjá Gróttu
vera góðan. „Hann er mjög góður.
Það var fullt hús hjá okkur á móti
HK í síðasta heimaleik og við vonum
að það verði aftur í næsta heimaleik
á móti Akureyri 5. nóvember.“ Jón
játar því að það sé svolítið skrítið
að spila með öðru liði en Haukum
eftir öll þessi ár í Haukabúningn-
um. „En maður bara einbeitir sér að
því sem maður er að gera. Það verð-
ur kannski spes að mæta á Ásvelli,“
segir Jón.
Hann segist ekki kvíða því - hann
finni frekar fyrir tilhlökkun. Og Jón
á ekki von á að púað verði á hann
á gamla heimavellinum eins og Mi-
chael Owen þurfti að þola þegar
hann kom inn á í leik Liverpool og
Manchester United á Anfield um
liðna helgi, íklæddur búningi erki-
fjenda strákanna frá Bítlaborginni.
Leikur Gróttu og Hauka á Ásvöllum
er skráður 21. nóvember en líklega
verður þeirri dagsetningu breytt að
sögn Jóns því Haukar séu að keppa
í Evrópukeppninni þessa sömu
helgi.
Flensborgarinn
vinsælastur
Líf Jóns snýst þó ekki bara um
handbolta því hann tók yfir rekstur
á sjoppu nokkurri í Hafnarfirði í ág-
úst síðastliðnum ásamt konu sinni
og félaga sínum. „Systir félaga míns
rak þessa sjoppu en þurfti að hætta
því og við slógum þá bara til. Þetta
er bara ágætt. Fín tilbreyting. Rekst-
urinn gengur ágætlega. Þetta er
svona að skríða saman,“ segir Jón.
Hann segir vöktunum skipt þannig
að Jón og frú eru bak við borðið fyr-
ir hádegi en félaginn eftir hádegi.
„Það er svona fyrirkomulag á þessu
nánast alla daga, þó kannski ekki
alveg allar helgar,“ segir Jón. Eft-
ir hádegi fer hann svo í hina vinn-
una sína sem er fjölskyldufyrirtækið
Lyng ehf. sem sérhæfir sig í prentun
og ljósritun.
Hann er fjölbreyttur hópurinn
sem kemur í sjoppuna til Jóns en
ungt fólk er þó áberandi þar sem
sjoppan er staðsett við hliðina á
Flensborgarskóla. „Unglingarn-
ir eru skemmtilegir,“ segir Jón. En
fylgja ekki alltaf svolítil læti æsku
landsins? „Jújú, en bara svona eins
og gengur og gerist. Ekkert vesen,“
segir Jón yfirvegaður og kveðst ekki
hafa þurft að taka á unglingunum
líkt og hann sé í vörn í baráttuleik
á milli Hauka og FH í úrslitakeppn-
inni og stutt til leiksloka.
Þess má geta að vinsælasti borg-
arinn í sjoppunni er „Flensborgari“
sem inniheldur auk kjötsins osta-
sósu, salsasósu, ost, Doritos-snakk,
lauk og papriku. „Ég og frúin bjugg-
um okkur til svona í útilegur í sum-
ar þannig að við verðum að eigna
okkur heiðurinn af því að vera höf-
undar Flensborgarans,“ segir Jón
Karl brosmildur að lokum.
kristjan@dv.is
ekkert vesen á unglingunum
Í þá gömlu góðu Jón Karl í Haukabúningnum í einum af síðustu leikjum sínum með
liðinu. MYND StefáN KarlSSoN