Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Side 26
„Þetta er rosalega flottur hópur og
félagsskapurinn er frábær. Félag-
arnir eru samrýndir og verulega
skemmtilegir, bæði strákar og
stelpur,“ segir Sigurjón Ander-
sen, smiður og formaður Gafl-
ara, mótorhjólaklúbbs Hafn-
arfjarðar.
Mótorhjólaklúbbur Hafn-
arfjarðar, Gaflarar, var form-
lega stofnaður árið 2006 og í
dag eru skráðir hundrað og tíu
meðlimir, þar af tugur kvenna.
Yngsti meðlimur klúbbsins
er tæplega þrítugur á meðan
sá elsti er ríflega sjötugur. Öll
þriðjudagskvöld hittast meðlim-
ir og þeysa um götur borgarinnar á
mótorhjólunum. Á vorin hittast þeir
á þartilgerðum smurdegi þar sem
hjólin eru öll yfirfarin fyrir komandi
hjólavertíð sumarsins. Þá er alltaf
farið í eina langferð út á landsbyggð-
ina þar sem félagarnir ferðast saman
í nokkra daga á mótorhjólunum.
Sjötugur heiðurSfélagi
Björn Hermannsson, gjarnan kall-
aður Húni innan klúbbsins, hlaut
heiðursnafnbót Gaflara á síðasta ári.
Hann er elsti meðlimur mótorhjóla-
klúbbsins, sjötíu og eins árs gam-
all í ár. Björn átti mótorhjól er hann
var tvítugur að aldri en tók margra
ára hlé. Það var ekki fyrr en fyrir ára-
tug sem hann fjárfesti í vespu og það
kveikti mótorhjólaáhugann á nýj-
an leik. Í dag ekur Björn um á Har-
ley Davidson og segir það æðislegt.
„Það er engin spurning að þetta er
mikill heiður. Að vera félagi í Göflu-
runum er alveg meiri háttar því þessi
félagsskapur er fínn. Ég fór hringinn,
ásamt félögum mínum, í sumar. Eft-
ir að ég eignaðist eldgamla vespu þá
kveikti það í mér aftur. Nú er ég kom-
inn á stærra hjól, keypti mér Harley
því það þýðir ekkert annað,“ segir
Björn.
„Ég er kallaður Húni því ég þyki
ekkert mjög hár í loftinu og félög-
unum fannst ég ekki nógu stór til
að vera kallaður Björn. Það er
frábært að hjóla á flottum hjól-
um. Að finna skítalyktina frá
sveitabæjunum er frábært.“
Kraftur á milli
fótanna
Sigurjón segir klúbbfélagana
hafa ferðast víða um Norð-
urland síðastliðið sumar. Að-
spurður segir hann fjölbreytta
flóru mótorhjóla að finna hjá
klúbbfélögum, hjóla af öllum
stærðum og gerðum. Sjálfur ekur
hann um á Suzuki Bandit 1200 og
hefur átt mótorhjól síðustu þrjá
áratugi. Gælunafn Sigurjóns innan
klúbbsins er Castro, sem er tilvísun
í einræðistilburði í stjórnarháttum.
„Ætli ég sé ekki kallaður Castro þar
sem ég er formaður? Ferðirnar okkar
hafa verið mjög skemmtilegar og vel
heppnaðar. Nokkrir tugir meðlima
taka þátt hverju sinni og góð stemn-
ing ríkir,“ segir Sigurjón.
„Ég er búinn að vera innviklaður
í sportið mjög lengi, enda hrikalega
skemmtilegt. Tilfinningin að þeysa
um göturnar er einfaldlega mesta
frelsi sem hægt er að upplifa. Maður
gleymir öllu öðru, það er mjög töff og
skemmtilegt að hafa mikinn kraft á
milli fótanna.“ trausti@dv.is
Miðvikudagur 28. október 200926 hafnarfjörður
Fjölmennur og flottur mótorhjólaklúbbur í Hafnarfirði:
frábær félagSSKapur
Á ferðalagi Tugur mótorhjóla-
kappa úr Hafnarfirði ferðaðist
um Norðurland í sumar.
Húni heiðursfélagi Björn var gerður að heiðursfélaga
Gaflaranna á sjötugsafmælinu í fyrra.
Lógóið Gaflarar, mótorhjólaklúbbur
Hafnarfjarðar, var stofnaður árið 2006.
Lið Hafnarfjarðar stóð sig vel í þætt-
inum Útsvar hjá Ríkisútvarpinu síð-
asta laugardagskvöld. Þar hafði lið
Hafnarfjarðar betur gegn Ísafjarð-
arbæ. Unnu Hafnfirðingar með 70
stigum gegn 45 stigum Ísfirðinga.
Lið Hafnarfjarðar er ansi skemmti-
leg blanda. Liðið skipar leikkonan
Erla Ruth Harðardóttir ásamt þeim
Steini Jóhannssyni og Gísla Ás-
geirssyni. Steinn er forstöðumaður
kennslusviðs Háskólans í Reykja-
vík og Gísli er barnakennari og þýð-
andi.
Steinn þótti standa sig vasklega
í hlaupunum enda reyndur íþrótta-
maður á ferð. Hann sagði frá því fyr-
ir stuttu í viðtali við Morgunblaðið
að hann hefði æft 1000 daga í röð.
Ekki sleppt úr degi síðan í desember
2006. Ef hann er veikur hjólar hann
inni á þrekhjóli.
Steinn og Gísli tóku báðir þátt í
járnkarlskeppni (Ironman) í Barce-
lona fyrir nokkrum vikum. Í járn-
karli synda menn 3,8 km, hjóla 180
km og hlaupa maraþon (42,2 km).
Steinn hafnaði í 61. sæti af um 1500
keppendum í karlaflokki og Gísli í
1245. sæti. Báðir voru þeir að ljúka
keppni í járnkarli í annað sinn. Ljóst
er að ekki vantar keppnisskapið í lið
Hafnarfjarðar með járnkarlana inn-
anborðs.
Lið Hafnarfjarðar stendur sig vel í Spurningakeppni sveitarfélaganna:
Járnkarlar í Útsvari
Keppendur Hér eru fulltrúar Hafn-
arfjarðar í Útsvari í vetur, þau Erla
Ruth Harðardóttir, Gísli Ásgeirsson
og Steinn Jóhannsson.