Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Blaðsíða 30
„Það eru tvö ár síðan að þetta byrj-
aði og hefur gengið mjög vel,“ segir
Marta Dís Stefánsdóttir hjá Hafnar-
fjarðarbæ sem hefur haldið utan um
verkefnið þar sem ungir listamenn fá
tækifæri til að spreia á veggi í sátt við
bæjaryfirvöld.
Í sumar voru strákar í unglinga-
vinnunni í Hafnarfirði sem sáu um
að mála göngin þar sem má spreia og
settu þeir einnig verk eftir sig á vegg-
ina. Í lok sumars var síðan haldin stór
myndlistarsýning og tókst hún gríð-
arlega vel og vakti mikla lukku meðal
bæjarbúa. „Þetta litaði bæinn svolít-
ið í sumar,“ segir Marta og hlær.
Sá leiðinlegi stimpill hefur lengi
loðað við graffiti að það sé veggja-
krot. En graffiti getur verið mjög
misjafnt og er miklu meira en bara
krot. „Þetta sló ekkert í gegn í byrj-
un - kannski skiljanlega - en það hef-
ur orðið mikil breyting þar á. Fólk er
orðið mun jákvæðara fyrir þessu og
opnara þegar það sér að það er ár-
angur. Því miður er þó alltaf einhver
sem þarf að skemma en það fylgir vís,
því miður. En yfirhöfuð hafa krakk-
arnir verið að sýna þessu virðingu.“
Í heildina nær verkefnið yfir fimm
undirgöng og einn grunn þar sem
ungt fólk getur graffað. Athygli vek-
ur að fáar stelpur eru í þessum fé-
lagsskap en Marta segir samt að
þær séu velkomnar og séu síst lakari
listamenn. „Það er mjög fáar stelpur
í þessu en þær eru þó alveg til. Þær
hafa ekki verið hjá mér, því miður.“
Málað er yfir verkin með reglulegu
millibili en reynt er að láta flottari
verkin standa lengur. „Maður mál-
ar þar sem er búið að skemma eða
þar sem verkið er orðið gamalt. Þá er
hægt að byrja upp á nýtt. Við reynum
að halda svæðunum sem snyrtileg-
ustum. Svæðin verða subbuleg með
tímanum þegar búið er að graffa
mikið á sama staðnum. En mjög flott
verk fá að standa lengur.“
Fjölmargir hafa komið að verk-
efninu og eldri og reyndari graffarar
hafa verið duglegir að koma og kenna
þeim yngri réttu handtökin. „Mark-
miðið er náttúrlega að gera betri og
flottari verk. Þetta eru flottir strákar
sem eru að gera flott verk. Framtíðar-
listamenn.“ benni@dv.is
Miðvikudagur 28. október 200930 hafnarfjörður
Í fimm undirgöngum í Hafnarfirði hefur íþrótta- og tómstundanefnd bæjarins leyft ungu fólki að graffa. Hefur
verkefnið gengið vel í tvö ár þó að einstaka svartur sauður dúkki reglulega upp. Upprennandi listamenn geta
þar fengið útrás fyrir sköpunargleði sína í sátt og samlyndi við bæinn. Marta Dís Stefánsdóttir stendur fyrir
verkefninu.
Nokkrar teguNdir
veggjalistar / graffitis:
• Tagga: Er þannig að þú ert með
penna, oftast svera en einnig mjóa,
og taggar taggið með einhverjum
stíl.
• Bomba: Er þannig að þú tekur
taggið þitt og gerir stafina svera með
litum og útlínum. Oftast eru bombur
með kúlu-(kodda- eða bubble-) stíl.
• Döbb: Er eiginlega eins og bomba
nema bara aðeins meiri stíll í því,
vandaðra og fleiri litir.
• Verk: Þá málar maður oftast
bakgrunn og gerir þá stórt verk með
litum og
kannski í þrívídd, hefur jafnvel
einhvern sérstakan karakter.
• Skapalón (stensill): Þú tekur
einhverja mynd sem þú vinnur með
þannig að hún er hrein og fín til að
skera út. Svo er blaðið sett á vegginn
og spreiað á það og út kemur
myndin.
„Þetta litaði bæinn svo-
lítið í sumar.“
vaNtarstelpur
Flott verk Verkin eftir unga fólkið í Hafnarfirði eru svo sannarlega töff. Upprennandi
listamenn þar á ferðinni.
Eldri kenna þeim yngri Fjöldi aðila kemur að verkefninu. Meðal annars koma
reyndir graffarar og kenna þeim yngri réttu handtökin. MynD Eygló SchEVing