Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2009, Qupperneq 32
Vagga íslenskrar
kvikmyndasögu
Kvikmyndasafn Íslands stendur fyr-
ir sýningum á perlum úr íslenskri og
alþjóðlegri kvikmyndasögu tvisvar í
viku yfir vetrartímann. Sýningarnar,
sem fram fara í Bæjarbíói í Hafnar-
firði, hafa mælst afar vel fyrir og þótt
þær fái ekki mikla umfjöllun í fjöl-
miðlum er þjónustan afar þakklát.
En hvað er þetta Kvikmyndasafn og
hvað gerir starfsfólk þess?
Safnið er staðsett við Hvaleyrar-
braut í Hafnarfirði, sem áður hýsti
Fiskvinnsluskóla Íslands, en þar hef-
ur það verið síðan árið 2004. Fram að
því hafði það verið á nokkrum ver-
gangi síðan lög um safnið og Kvik-
myndasjóð voru samþykkt árið 1978.
Í grein um sögu safnsins eftir Eggert
Þór Bernharðsson sagnfræðing sem
finna má á heimasíðu þess kemur
fram að safnið hafi fyrst verið í 72 fer-
metra leiguhúsnæði í Skipholti 31.
Undir það síðasta áður en það flutti á
núverandi stað var það í gamla frysti-
húsinu á hafnarbakkanum í Hafnar-
firði.
Safnið er stofnun í eigu ríkisins
og sinnir kvikmyndamenningu ein-
göngu. Starfsmenn safnsins safna,
skrá og varðveita kvikmyndir og
prentefni sem tengist kvikmyndum
með einum eða öðrum hætti. Safn-
ið stundar einnig rannsóknir á kvik-
myndum og kvikmyndamenningu
og miðlar jafnframt þekkingu um
þennan menningararf.
Búið var að skrá stærstan hluta af
kvikmyndaefni safnsins í árslok 2007
en það samanstendur af filmuspól-
um og myndböndum af ýmsum
breiddum og gerðum sem og mynd-
diskum sem voru þá rúmlega 39 þús-
und eintök. Utan við þessa skráningu
eru fréttafilmur frá Sjónvarpinu sem
eru í varðveislu safnsins og voru alls
um 10.400 og sjónvarpsdagskrár lið-
lega 1.800. Safn tækja og tóla til kvik-
myndagerðar og kvikmyndasýn-
inga hafði vaxið mjög að umfangi en
skráningu miðað hægt. Gagnasafnið
hefur einnig vaxið hratt en þar er um
að ræða handrit, ljósmyndir, vegg-
spjöld og alls kyns annað prentefni
og heimildir sem varðar kvikmynda-
gerðina. Stöðugt er unnið að skrán-
ingu gagnasafnsins en mikið er þó
enn óskráð.
Kvikmyndasafn Íslands var í
nokkurn tíma undir sama hatti og
Kvikmyndasjóður en með nýjum
kvikmyndalögum sem tóku gildi 1.
janúar 2003 voru safnið og sjóður-
inn aðskilin. Kvikmyndasafnið varð
þannig sjálfstæð stofnun á nýjan leik
með forstöðumann sem ber ábyrgð
á rekstri þess og verksviði og nú var
ekki lengur sérstök stjórn fyrir safn-
ið.
Fimm starfsmenn starfa á safn-
inu. Núverandi forstöðumaður þess
er Þórarinn Guðnason sem tók við af
Sigurjóni Baldri Hafsteinssyni í árs-
lok 2001 en Þórarinn hefur starfað
hjá safninu frá árinu 1995.
Heimild: Greinin „Saga Kvik-
myndasafnsins“ eftir Eggert Þór
Bernharðsson sagnfræðing á kvik-
myndasafn.is.
Miðvikudagur 28. október 200932 hafnarfjörður
Tilboðsdagar fimmtud-sunnud.
15% afsláttur af barnafatnaði
Úlpur - Gallar - Buxur - Bolir - Peysur - Sundfatnaður
Reykjavíkurvegi 60 | 220 Hafnarfirði
Sími: 555-2887/ 555-4487
www.musikogsport.is
Match Attax 2010
Fótboltamyndir og möppur
Kvikmyndasafn Íslands hefur starfað í rúm þrjátíu ár á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Það fluttist
að Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði fyrir fimm árum og hýsir nú tugþúsundir filma, mynddiska, handrita og fleiri
ómetanlegra muna.
Í faðmi safnsins Þrándur Thoroddsen, þýðandi og kvikmyndagerðarmaður, í
Kvikmyndasafni Íslands fyrir nokkrum árum. MYND GuNNar GuNNarssoN
Bæjarbíó Þarna sýnir Kvikmyndasafnið
hinar ýmsu kvikmyndaperlur tvisvar í
viku yfir vetrartímann.
Hafið Einn af gullmolum íslenskrar kvikmyndasögu og var sýnd á vegum Kvik-
myndasafnsins fyrr í haust.