Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Síða 2
Úrsmiðir saka Frank og Róbert Michelsen um að
selja erlend úr sem íslensk. Um er að ræða aldarafmælisúr feðg-
anna. Meðal ósáttra samkeppnisaðila er Gilbert Ó. Guðjónsson.
Róbert vísar gagnrýninni á bug.
HITT MÁLIÐ
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
MISSTI TRÚ Á SAMFÉLAGIÐ
„Ég vil bara gefa börnunum
mínum betri tækifæri en þeim
býðst hér.“ Arnaldur Bárðarson,
prestur í Glerárkirkju á Akur-
eyri, hefur fengið sig fullsadd-
an á ástandinu í þjóðfélaginu og
hefur sagt upp stöðu sinni. Hann tekur
við prestakalli í bæjarfélaginu Hemne
í nágrenni Þrándheims um áramótin.
„Mér var boðið að fara í norsku kirkjuna
og þess vegna fer ég í hana. Hefði það
verið kanadíska kirkjan hefði ég alveg
eins viljað prófa hana,“ segir Arnaldur
og bætir við: „Hrunið og það sem hefur
komið á daginn gerði að verkum að ég
missti trúna á íslenskt samfélag. Mér fannst hafa átt sér stað slík svik
við þjóðina að ég tók ákvörðunina að fara. Fyrst ætlaði ég meira að
segja að sækja um erlendan ríkisborgararétt. Mér var svo misboðið og
er það enn.“
ÚTRÁS TIL BRETLANDS
Vafningur fjárfesti
fyrir 10,6 millj-
arða króna sama
dag og Bjarni
Benediktsson
veðsetti hlutabréf
félagsins í fyrra. Félagið
keypti breskan fjárfestinga-
sjóð, KCAJ, og fasteigna-
verkefni í Makaó. Bjarni
veðsetti bréf Vafnings út af
tveimur lánum frá Glitni
sem veitt voru í febrúarlok. Bjarni segist ekki hafa vitað um fjárfest-
ingu Vafnings í KCAJ frekar en í turninum í Makaó. Sjóvá veitti Vafn-
ingi 10,6 milljarða lán í lok febrúar í fyrra. Fjárfestingasjóðurinn KCAJ
var stofnaður af Jóni Scheving Thorsteinsson, fyrrverandi starfsmanni
Baugs, árið 2006. Á þeim tíma var sagt að sjóðurinn ætti að verða ein-
hvers konar Míní-Baugur. Sjóðurinn fjárfesti í ýmsum verslunum á
Bretlandseyjum, meðal annars Cruise, Duchamp, Aspinal of Lond-
on, Jones Bootmaker og útivistarversluninni Mountain Warehouse.
Milestone keypti sig svo inn í sjóðinn og átti rúm 82 prósent í honum
þegar Vafningsviðskiptin áttu sér stað í fyrra.
BJARGAÐ ÚR
LÍFSHÁSKA
„Ég er auðvitað bara dauðfeginn að
við séum allir á lífi enda leit þetta nú
ekki vel út á tímabili,“ segir Ólafur
Hjartarson sem er einn þeirra þriggja
manna sem bjargað var af þaki bíls í
Steinholtsá á laugardagskvöldið um
síðustu helgi. Tíu Akurnesingar voru
á leið í Þórsmörk á laugardagskvöld
á þremur jeppum og ætluðu að gista
eina nótt á Básum í Goðalandi. Þær
áætlanir enduðu með skelfilegum
afleiðingum þegar vel útbúinn Nis-
san Patrol-fjallajeppi, öflugasti bíll ferðarinnar sem fór fyrir
leiðangrinum, gaf undan straumþunga Steinholtsár í desembermyr-
krinu, en mikill vöxtur var í henni. Horfðu félagarnir skelfingu lostnir
á þremenningana sem héldu dauðataki um boga og bita á þaki jepp-
ans næstu tvær klukkustundirnar.
2
3
1
10 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 FRÉTTIR
„Ég vil bara gefa börnunum mínum
betri tækifæri en þeim býðst hér.“
Arnaldur Bárðarson, prestur í Gler-
árkirkju á Akureyri, hefur fengið sig
fullsaddan á ástandinu í þjóðfélag-
inu og hefur sagt upp stöðu sinni.
Hann tekur við prestakalli í bæjar-
félaginu Hemne í nágrenni Þránd-
heims um áramótin. „Mér var boð-
ið að fara í norsku kirkjuna og þess
vegna fer ég í hana. Hefði það verið
kanadíska kirkjan hefði ég alveg eins
viljað prófa hana.“
„Hrunið og það sem hefur kom-
ið á daginn gerði að verkum að
ég missti trúna á íslenskt samfé-
lag. Mér fannst hafa átt sér stað
slík svik við þjóðina að ég tók
ákvörðunina að fara. Fyrst ætlaði
ég meira að segja að sækja um er-
lendan ríkisborgararétt. Mér var
svo misboðið og er það enn. Og
ég finn á samfélaginu hvað reiðin
er svakaleg út í stjórnvöld að hafa
leyft þessu að gerast. Ábyrgðin er
þeirra. Útrásarmenn eru alltaf út-
rásarmenn og þeir leita allra leiða.
En stjórnmálamennirnir áttu að
vernda okkur.“
Vill leiða starf
Arnaldur hefur gegnt stöðu prests í
Glerárkirkju undanfarin ár. „Ég var
hér í fastri stöðu, en ekki sem sókn-
arprestur. Ég verð sóknarprestur í
Hemne. Það er munur þar á. Sóknar-
presturinn er sá sem ræður og stýr-
ir starfinu en presturinn er aukahjól
undir vagninum. Ég vil náttúrlega
leiða starf og stýra því. Ég fæ betri
stöðu í Noregi, það er ekkert laun-
ungarmál.
Starfskjörin í Noregi eru miklu
betri. Þar er boðið upp á mjög gott
prestssetur gegn vægu gjaldi. Launa-
kjörin eru auðvitað betri þarna en
hjá okkur og vinnutíminn skilgreind-
ari og afmarkaðri,“ segir presturinn
sem hlakkar mikið til að kynnast
starfsháttum norsku þjóðkirkjunnar.
Norski prófasturinn bannar of
mikla vinnu
Norðmenn eru mun lengra komnir
í vinnurétti en Íslendingar, að mati
Arnaldar. Hér vinnur fólk alltof mikið
en ytra er meiri áhersla lögð á hvíld
og fjölskyldulíf.
„Prófasturinn minn í Noregi sagði
við mig að hans hlutverk væri að
passa upp á að ég ynni ekki of mikið.
„Hér er fimm daga vinnuvika,“ sagði
hann mér. Hann ætlar að fylgjast
grannt með mér til að ég vinni ekki of
mikið! Hvar hefur maður heyrt slíkt
hér á Íslandi? Hér vinnur fólk eins og
það sé vitlaust. Og sumir bera samt
ekkert úr býtum.“
Eins og aðrir þjónar kirkjunn-
ar hefur Arnaldur starfað við Hjálp-
arstarf kirkjunnar í aðdraganda
jólanna. „Ástandið er hrikalegt. Ég
sit hér og tek á móti stórum hópi sem
kominn er á vonarvöl. Fólkinu er all-
ar bjargir bannaðar og á enga mögu-
leika hér. Ég rétti fólkinu einhverjar
örfáar krónur í gegnum Hjálparstarf-
ið sem litlu skipta. Þetta finnst mér
hryllilega erfitt að horfa upp á.“
Þjóðkirkjan smituð af klíku-
skapnum
„Ég held að þjóðkirkjan hafi gert
það sem hún gat til að vara við lát-
unum og bruðlinu í samfélaginu
sem leiddi til hrunsins,“ segir séra
Arnaldur. „Það vilja allir hafa kirkj-
una hér á Íslandi og við leggjum
áherslu á þessar kristnu hátíðir og
flöggum því að við séum kristin, en
svo er aftur spurning hversu mikið
kristna siðferðið mótar okkur? Til
dæmis í viðskiptum og starfi?“
Arnaldur telur að ófagmannleg
frændhygli hafi verið ein stærsta
ástæðan fyrir hruninu. „Okkar
versta samfélagsmein eru tengsl-
in, klíkuskapurinn, flokkadrætt-
irnir og þar er kirkjan ekki und-
anskilin. Það hefur stýrt öllu á
Íslandi, hvort sem það er kirkjan,
stofnanir eða bankar. Fagmennsk-
an hverfur þegar vinatengsl ráða
för. Þetta er íslenski veruleikinn.
Og ég á erfitt með að sætta mig við
hann.“
Íslendingar siðvæðist
Arnaldur Bárðarson hlaut æviráðn-
ingu með sóknarprestsstöðunni í
Noregi. Hann segist því ekki koma
heim í bráð. „En mér mun auðvit-
að hugnast að koma heim ef við tök-
um upp einhvers konar siðvæðingu
á Íslandi.“ Presturinn telur þó að við
eigum nokkuð langt í land. Honum
hugnist vel að starfa á næstunni í
öðru samfélagi þar sem önnur lög-
mál ríki. Arnaldur telur sig ekki ein-
an um þá löngun. „Flestir sem ég
hitti segja annaðhvort að þeir séu að
íhuga að fara eða að þeir færu ef þeir
væru tíu árum yngri. Ég þekki all-
nokkra presta og guðfræðinga sem
hafa hug á að starfa í útlöndum. Við
eigum margt fólk sem hefur þekk-
ingu, reynslu og getu til að starfa í
kirkjum.“
Stjórnmálamennirnir brugðust Arnaldur Bárðarson telur íslenskan veruleika gegnsýrðan af klíkuskap og vinatengslum.
MYND: ÞÓRHALLUR/PEDROMYNDIR
Séra Arnaldur Bárðarson, prestur í Glerárkirkju á Akureyri, tekur við prestsstöðu í Noregi í janúar. Honum hugnast vel að hefja nýtt líf með fjölskyldunni í Noregi. Hér segist hann vilja ekki búa nema Íslendingar siðvæðist og ráði bug á samfélagsmeinunum.
„ÉG MISSTI TRÚNA Á
ÍSLENSKT SAMFÉLAG“
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
„Ef við tökum upp ein-
hvers konar siðvæð-
ingu á Íslandi, þá mun
mér auðvitað hugnast
að snúa aftur heim.“
2975
3042
3395
3294
4021
2005
2006
2007
2008
2009
BROTTFLUTTIR
ÍSLENSKIR
RÍKISBORGARAR
1307 til Noregs
1146 til Danmerkur
554 til SvíþjóðarJan. -
sept.
Íbúum á Íslandi fækkar
í fyrsta sinn frá 1889
Þann 1. júlí síðastliðinn hafði Íslendingum fækkað um hundrað manns frá sama degi árið 2008 þegar landsmenn voru 319.300. Þetta er í fyrsta skipti í 120 ár sem íbúum á Íslandi fækkar.
Árið 1889 voru fólksflutningar Íslendinga til Vesturheims enn í algleymingi. Fjór-tán árum fyrr hafði Öskjugos valdið miklum hamförum á Norðausturlandi sem var ein helsta ástæðan fyrir því að landsmenn ákváðu að hverfa til nýrra landa. Alls fluttu 15-20 þúsund Íslendingar til Norður-Ameríku, aðallega til Kanada.Um 8.500 manns fluttu frá Íslandi frá áramótum til loka nóvember. Staðreyndin er hins vegar sú að hlutfallslega flytja mun fleiri Íslendingar úr landi en áður. Helmingur þeirra sem flytja úr landi hefur íslenskt ríkisfang. Þeir fara flestir til hinna Norðurlandanna. Meirihluti brottfluttra með erlent ríkisfang fer til Póllands.
Á vef Hagstofunnar kemur fram að 4.027 íslenskir ríkisborgarar hafi flutt úr landi á tímabilinu janúar til september 2009. Flestir flytja til Noregs. Norðmenn lentu í miklum landflótta á níundu öld þegar þúsundir manna flykktust til Íslands. Nú skila afkomendur þeirra sér heim. Margir fara einnig til Danmerkur og Svíþjóðar.Á undanförnum áratugum hafa þó fleiri en þrír fjórðu brottfluttra Íslendinga
flutt aftur heim síðar á ævinni. helgihrafn@dv.is
fréttir 14. desember 2009 mánudagur 9
„Ég er auðvitað bara dauðfeginn að
við séum allir á lífi enda leit þetta nú
ekki vel út á tímabili,“ segir Ólafur
Hjartarson sem er einn þeirra þriggja
manna sem bjargað var af þaki bíls í
Steinholtsá á laugardagskvöldið.
Tíu Akurnesingar voru á leið í
Þórsmörk á laugardagskvöld á þrem-
ur jeppum og ætluðu að gista eina
nótt á Básum í Goðalandi. Þær áætl-
anir enduðu með skelfilegum af-
leiðingum þegar vel útbúinn Nissan
Patrol-fjallajeppi, öflugasti bíll ferð-
arinnar sem fór fyrir leiðangrinum,
gaf undan straumþunga Steinholtsár
í desembermyrkrinu, en mikill vöxt-
ur er í henni. Horfðu félagarnir skelf-
ingu lostnir á þremenningana sem
héldu dauðataki um boga og bita
á þaki jeppans næstu tvær klukku-
stundirnar.
Menn frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörgu komu á staðinn á Benz
Unimog-pallbíl og náðu að bjarga
lífi Ólafs og félaga hans. Mátti þar
ekki miklu muna og augljóst að þre-
menningarnir hefðu ekki lifað af ef
björgunarsveitir hefðu ekki komið á
staðinn í tíma. Einn þeirra var mjög
illa útbúinn – klæddur í gallabux-
ur og þunna peysu. Hinir tveir náðu
hins vegar bakpoka úr bílnum með
hlýjum fötum og náðu að klæða og
hlýja hinum ólánsama gallabuxna-
klædda félaga.
Afar þakklátur fyrir að fá að lifa
Þremenningarnir voru kaldir og
hraktir eftir átökin við náttúruöfl-
in. En hvað flýgur í gegnum hugann
þegar þeir eru staddir uppi á þaki í
miðri straumharðri á í fullkominni
sjálfheldu? „Maður hugsar fyrst og
fremst um það að halda lífi,“ segir Ól-
afur. „Ég er þakklátur fyrir að vera á
lífi,“ bætir Ólafur við og þakkar björg-
unarsveitarmönnum lífsbjörgina.
„Ég var þeim afar þakklátur enda
tók ég oft í höndina á þeim öllum. Ég
þakkaði vel fyrir mig.“ Ólafur segir
að þeir félagar hafi farið í gær og sótt
jeppann í Steinholtsá. Hann segir
það hafa verið lítið mál og voru þeir á
heimleið, aftur upp á Akranes, þegar
DV náði tali af honum í gærdag.
Erfitt að horfa upp á félagana
Félagi Ólafs, Sigurður Axel Axelsson
rafvirki, segir að allir sjónarvottar
hafi verið nokkuð rólegir á meðan
ósköpin dundu yfir þrátt fyrir að mikil
skelfing hefði gripið um sig. Þeir séu
allir gamalreyndir jeppamenn. „Við
vorum nokkrum metrum fyrir aftan.
Hann var að finna leið á jeppanum,
fer fram af bakka og ákveður að dóla
og var tilbúinn að bakka ef hann ræk-
ist á meira dýpi. En straumurinn var
of harður til þess. Það var rigning og
rok og aðstæðurnar mjög vondar.“
Sigurður nefnir að ekki sé auð-
velt að horfa á félaga sína í lífshættu
og geta ekkert gert. „Við hefðum ekki
náð þeim ef þeir hefðu farið í ána.
Þeir hefðu hugsanlega getað krafl-
að sig í land. Ég vil nú ekki afskrifa
þá alveg. En straumurinn var feiki-
lega mikill. Menn eru auðvitað ekki
til stórræðanna svona kaldir, eftir tvo
klukkutíma uppi á þaki. Náttúruöfl-
in voru svo sterk að við gátum ekkert
gert. Við þurftum bara að horfa á þá
og bíða. Ef bíllinn hefði oltið á hlið-
ina með strákana hefðum við ekki
náð þeim.“
Enginn hugsaði um jeppann
Sigurður var staddur við Steinholtsá
þegar DV ræddi við hann. Hann tel-
ur að Nissan Patrol-jeppinn sé ónýt-
ur. „Við vorum mjög ákveðnir að ná
þeim og báðum um allar möguleg-
ar bjargir – þyrlu og stóra trukka.
Þetta var bara lífsbjörgun og enginn
að hugsa um jeppann. Hann náð-
ist reyndar upp úr, en er væntanlega
ónýtur.“
Félagarnir eru sammála um að
þeir hafi vanmetið aðstæður og nátt-
úruöflin. „Við tökum ekki áhættuna
við svona aðstæður aftur, snúum
frekar við. Við vorum búnir að finna
góð vöð þarna yfir og þetta var sein-
asta haftið. Við héldum að þetta yrði
allt í lagi – en greinilega ekki.“
Akurnesingurinn Ólafur Hjartarson hélt dauðataki um þakboga á jeppanum sínum í tvær klukkustundir við afleitar aðstæður í Steinholtsá í Þórsmörk um helgina. Hann var einn þriggja sem þurftu að halda sér á þaki jeppa sem fór á kaf í straumharðri ánni. Ferðafélagar þremenninganna horfðu á af árbakkanum en gátu ekki komið þeim til hjálpar vegna straumþungans.
„Þakklátur fyrir
að vera á lífi“
HElgi HrAfn guðmundsson og
sigurður mikAEl JÓnsson
blaðamenn skrifa: helgihrafn@dv.is og mikael@dv.is
„Náttúruöflin voru svo
sterk að við gátum ekk-
ert gert. Við þurftum
bara að horfa á þá og
bíða.“
Tveir tímar á þakinu Þre-
menningarnir voru í fullkominni
sjálfheldu á þakinu á bílnum.
myndir JÓn HErmAnnsson
Vanmátu aðstæður „Við tökum
ekki áhættuna við svona aðstæður
aftur,“ segir Sigurður Axel Axels-
son, einn jeppamannanna.
skelfilegar aðstæður Mikil mildi þykir að þremenn-
ingarnir komust lífs af.
Bjargað upp á pall Björgunarsveitarmenn komu
mönnunum til bjargar á pallbíl.
Þjakaðir Þremenningarnir voru kaldir og þjakaðir
eftir vistina á þakinu.
2 mánudagur 14. desember 2009 fréttir
Sama dag og eignarhaldsfélagið
Vafningur keypti fasteignafélag sem
hélt utan um byggingu lúxusíbúða-
turnar í Makaó í Asíu fyrir rúma fimm
milljarða króna í febrúar í fyrra festi
félagið kaup á rúmlega 82 prósenta
hlut í breska fjárfestingasjóðnum
KCAJ LLP fyrir 5,4 milljarða króna.
Í báðum tilfellum seldu dótturfélag
Sjóvár, sem var í eigu Milestone, fé-
lögin til Vafnings. Forstjóri Vafnings,
Guðmundur Ólason, skrifaði undir
kaupsaminginn um viðskiptin með
KCAJ fyrir hönd dótturfélags Sjóvár,
SJ2, sem og fyrir hönd Vafnings.
Milestone var jafnframt meiri-
hlutaeigandi í Vafningi áfram í gegn-
um dótturfélag Sjóvár en næststærstu
hluthafarnir voru eigendur N1, Einar
og Benedikt Sveinssynir. Vafningur
fjárfesti því fyrir 10,6 milljarða sama
daginn.
Fjárfestingasjóðurinn KCAJ var
stofnaður af Jóni Scheving Thor-
steinssyni, fyrrverandi starfsmanni
Baugs, árið 2006. Á þeim tíma var
sagt að sjóðurinn ætti að verða ein-
hvers konar mini-Baugur. Sjóðurinn
fjárfesti í ýmsum verslunum á Bret-
landseyjum, meðal annars Cruise,
Duchamp, Aspinal of London, Jones
Bootmaker og útivistarversluninni
Mountain Warehouse. Milestone
keypti sig svo inn í sjóðinn og átti
rúm 82 prósent í honum þegar Vafn-
ingsviðskiptin áttu sér stað í fyrra.
Kaupin á félögunum tveimur
voru að öllum líkindum fjármögnuð
með láni frá tryggingafélaginu Sjó-
vá Almennum upp á 10,6 milljarða
króna. Vafningur skrifaði upp á lána-
samning við Sjóvá í lok febrúar 2008,
þremur vikum eftir að félagið hafði
keypt fasteignaverkefnið í Makaó og
breska fjárfestingasjóðinn. Ástæðan
fyrir því að þetta er líklegt er meðal
annars sú að lánsupphæðin frá Sjó-
vá er nákvæmlega jafnhá og kaup-
verð Makaó-fasteignaverkefnisins og
breska fjárfestingasjóðsins. Eigendur
Milestone og Sjóvár á þessum tíma
voru bræðurnir Karl og Steingrímur
Wernerssynir.
Bjarni veðsetti vegna
tveggja Glitnislána
Líkt og DV greindi frá í síðustu viku
veðsetti Bjarni Benediktsson, þáver-
andi stjórnarformaður eins hluthafa
í Vafningi, BNT, og núverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins, hluta-
bréf BNT, Hrómundar og Hafsilfurs í
Vafningi sama dag og félagið fjárfesti
í fasteignaverkefninu í Makaó. Við
þetta bætist nú að Vafningur fjárfesti
einnig í breska fjárfestingasjóðnum
þennan sama dag.
Heimildir DV herma að Bjarni
hafi veðsett bréfin í Vafningi vegna
lánafyrirgreiðslu frá Glitni sem geng-
ið var frá 29. febrúar 2008, sama dag
og félagið fékk 10,6 milljarðana að
láni frá Sjóvá. Um var að ræða tvö
lán frá Glitni til Vafnings, samkvæmt
heimildum DV.
Tók engar ákvarðanir
Aðspurður segir Bjarni, um hvort
hann hafi vitað að Vafningur fjárfesti
í breska fjárfestingasjóðnum þann
sama dag og hann fékk umboð til að
veðsetja hlutabréf félagsins, að svo
hafi ekki verið. „Ég tók engar ákvarð-
anir fyrir hönd þessa félags. Ég kom
ekkert nálægt þeim ákvörðunum
sem áttu sér stað þennan dag,“ seg-
ir Bjarni. Aðspurður hvort hann hafi
sem sagt ekki vitað að félag sem hon-
um tengdist hafi fjárfest fyrir meira
en 10 milljarða króna sama dag seg-
ir Bjarni: „Að sjálfsögðu ekki. Ég kom
ekkert nálægt þeirri ákvarðanatöku
um þá endurfjármögnun sem var
að eiga sér stað á þessum tíma. Þess
vegna vissi ég ekki hvaða gerningar
lágu þarna að baki. Ég kom einungis
að þeim gerningi að veðsetja hluta-
bréfin fyrir hönd þeirra sem á þeim
héldu. Aðrir voru að vinna í end-
urfjármögnuninni í samvinnu við
bankann,“ segir Bjarni.
Hvorki Bjarni né faðir hans
segjast hafa vitað neitt
Staðan á málinu er því sú að hvorki
Bjarni né faðir hans, Benedikt
Sveinsson, segjast hafa komið að
því að ákveða þátttöku félaga þeim
tengdum í Vafningi þrátt fyrir að
hafa verið stór- ir hluthafar
í félaginu. Benedikt
segist heldur
ekkert kann-
ast við félag-
ið, enda benda
heimildir DV ekki
til þess að
hans
aðkoma að félaginu og viðskiptum
þess hafi verið bein. „Ég bara man
þetta ekki, ég kem þessu ekki fyr-
ir mig. Ég er hættur í viðskiptum, ég
er búinn að draga mig út úr hlutum,“
segir Benedikt. Aðspurður hvort
hans aðkoma að félaginu hafi ver-
ið einhver segir Benedikt að svo hafi
ekki verið.
Því virðist það vera svo, sam-
kvæmt því sem þeir feðgar segja, að
hvorki Bjarni né faðir hans hafi tekið
ákvörðun um það fyrir hönd Hafsilf-
urs að taka þátt í Vafningi jafnvel þó
félagið hafi verið stór hluthafi í Vafn-
ingi í gegnum Skeggja og Mátt og
þó Bjarni hafi veðsett bréf Vafnings
sama daga og viðskipti þess upp á
10,6 milljarða áttu sér stað.
Vantaði 10 milljarða í
eignasafn Sjóvár
Líkt og Morgunblaðið greindi frá í
maí á þessu ári veðsettu eigendur
Sjóvár bótasjóð tryggingafélagsins og
vantaði að minnsta kosti 10 milljarða
króna í eignasafn félagsins til að eig-
infjárhlutafall félagsins teldist vera
jákvætt. Í frétt Morgunblaðsins kom
fram að Sjóvá hefði því ekki uppfyllt
þær lágmarkskröfur um gjaldþol til
að geta starfað sem tryggingafélag
lögum samkvæmt. Jafnframt kom
fram í fréttinni að bótasjóður Sjó-
vár hefði verið 23 milljarðar í lok árs
2007.
Í júlí í sumar kom svo fram að ís-
lenska ríkið hefði þurft að leggja Sjó-
vá til 12 milljarða króna til að bjarga
félaginu frá gjaldþroti en ástæðuna
fyrir slælegri stöðu félagsins má hvað
helst rekja til fjárfestinga þess er-
lendis. Tekið skal fram að um lán var
að ræða sem á að greiðast aftur inn-
an 18 mánaða eða þegar tryggingafé-
lagið verður selt.
Viðskipti Sjóvar, Milestone og
Vafnings voru að öllum líkindum
hluti af þeim fjárfestingum sem knés-
ettu Sjóvá enda munar um minna
þegar nærri 11 milljarðar króna eru
lánaðir frá félaginu til að fjármagna
fjárfestingar erlendis. Einn af heim-
ildarmönnum DV segir að nær úti-
lokað annað en að „peningarnir sem
Sjóvá lánaði inn í Vafning hafi verið
komnir beint eða óbeint úr bótasjóði
félagsins“.
Sérstakur saksóknari efnahags-
hrunsins, Ólafur Hauksson, hefur
rannsakað viðskipti Sjóvár og Mil-
estone síðustu mánuði. Meðal þess
sem er til skoðunar eru veðsetning-
in á bótasjóðnum og ástæðurnar fyr-
ir gríðarlegu tapi Milestone á síðasta
ári.
Vafningur keyptur degi áður
Annað sem er áhugavert í Vafn-
ingsmálinu er að Milestone selur
væntanlegum hluthöfum Vafnings,
SJ2, Skeggja og Mætti, hluti í félag-
inu 7. febrúar í fyrra, degi áður
en viðskiptin með turninn í
Makaó og breska fjárfestingasjóðinn
fara fram og degi áður en Bjarni fær
umboðið til að veðsetja bréfin í fé-
laginu.
Því er ljóst að aðdragandinn að
stofnun Vafnings og þeirra viðskipta
sem félagið átti í hefur ekki verið
langur. Vafningur átti svo ekki í öðr-
um félögum og virðist hafa verið
stofnað gagngert til að eiga í viðskipt-
um með turninn í Makaó og breska
fjárfestingasjóðinn.
Bjarni Benediktsson sagði í viðtali
við DV á föstudaginn að Vafningur
hefði verið stofnað í þeim tilgangi
að endurfjár- magna lán.
Blaðið hefur ekki áttað sig almenni-
lega á því af hverju félagið var sett á
laggirnar til að kaupa þessar eignir af
dótturfélagi Sjóvár og af hverju eig-
endur N1 tóku þátt í því. Þó herma
heimildir DV að líklegt sé að þeir hafi
gerst hluthafar í Vafningi því þeir hafi
viljað græða á fjárfestingum félags-
ins.
Vafningur fjárfesti fyrir 10,6 milljarða króna sama dag og Bjarni
Benediktsson veðsetti hlutabréf félagsins í fyrra. Félagið keypti
breskan fjárfestingasjóð, KCAJ, og fasteignaverkefni í Makaó.
Bjarni veðsetti bréf Vafnings út af tveimur lánum frá Glitni sem
veitt voru í febrúarlok. Bjarni segist ekki hafa vitað um fjárfest-
ingu Vafnings í KCAJ frekar en í turninum í Makaó. Sjóvá veitti
Vafningi 10,6 milljarða lán í lok febrúar í fyrra.
VAFNINGUR Í BRESKRI ÚTRÁS
InGI F. VIlHjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Ég tók engar ákvarð-
anir fyrir hönd þessa
félags. Ég kom ekkert
nálægt þeim ákvörð-
unum sem áttu sér stað
þennan dag.“
Eignarhald á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
- 48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
- 39,10 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur) - 12,1 prósent
Bjarni kjörinn í stjórn máttar:
Bjarni Benediktsson var kjörinn í
stjórn fjárfestingafélagsins Máttar á
stjórnarfundi hjá félaginu sem hald-
inn var í höfuðstöðvum Milestone
á Suðurlandsbraut 12 22. ágúst árið
2007. Aðrir sem kjörnir voru í stjórn
félagsins voru þeir Einar Sveinsson,
föðurbróðir Bjarna, Karl Wernersson
og Guðmundur Ólason. Faðir Bjarna
átti 16 prósenta hlut í félaginu
þegar þetta var. Tæpu hálfu ári síðar
fjárfesti Máttur í fasteignaverkefni
í Makaó og fjárfestingasjóði í
Bretlandi fyrir 10,6 milljarða króna.
10,6 milljarða viðskipti
Eignarhaldsfélagið Vafningur
fjárfesti í lúxusturni í Makaó sem
og í breskum fjárfestingasjóði í
febrúar í fyrra fyrir 10,6 milljarða
króna. Bjarni Benediktsson segist
ekki hafa vitað um fjárfestingar
félagsins þrátt fyrir að hafa
veðsett hlutabréf Vafnings sama
dag og þær áttu sér stað.
Skrifaði undir fyrir báða
Guðmundur Ólason, forstjóri
Milestone og stjórnarmaður í
Vafningi, skrifaði undir
kaupsamninginn að KACJ
fyrir hönd dótturfélags
Sjóvár, SJ2, sem og
Vafnings.
Bræðurnir í Vafningi Karl og
Steingrímur Wernerssynir og Einar og
Benedikt Sveinssynir voru eigendur
Vafnings sem fékk 10,6 milljarða lán frá
tryggingafélaginu Sjóvá og fjárfesti í
Makaó í Asíu sem og í
Bretlandi.
fréttir 14. desember 2009 mánu
dagur 3
Vissi Bjarni ekkert um viðskiptin í
Makaó eða með KCAJ?:
n Stjórnarformaður BNT sem var
hluthafi í Skeggja
n Hluthafi í BNT sem var hluthafi í
Skeggja
n Stjórnarmaður í Mætti sem var
hluthafi í Vafningi
n Sonur hluthafa í Skeggja, BNT
og Mætti sem voru hluthafar í
Vafningi
n Veðsetti hlutabréf BNT, Hrómund-
ar og Hafsilfurs í Vafningi
Tímaás um viðskipti tengd
Vafningi í febúar 2008:
7. febrúar Milestone selur
væntanlegum hluthöfum
í Vafningi hluti í félaginu
8. febrúar Eignarhaldsfélagið
Vafningur kaupir
fasteignafélag í Makaó af
dótturfélagi Sjóvár fyrir
5,2 milljarða
8. febrúar Eignarhaldsfélagið
Vafningur kaupir breskan
fjárfestingasjóð, KCAJ, af
dótturfélagi Sjóvár fyrir
5,4 milljarða
8. febrúar Bjarni Benediktsson fær
umboð frá föður sínum
og frænda til að veðsetja
hlutabréf BNT, Hafsilfurs
og Hrómundar í Vafningi
29. febrúar Vafningur gerir lána-
samning við Sjóvá upp á
10,6 milljarða króna
29. febrúar Vafningur gerir tvo
lánasamninga við Glitni-
banka. Líklegt að Bjarni
hafi veðsett Vafningsbréf-
in út af þessum lánum
Jan-Feb. Vafningur fær tæpa
5 milljarða að láni frá
eignarhaldsfélaginu sem
var í eigu föður Karls og
Steingríms Wernerssona
Peningar ríkisins ekki tapaðir:
DV greindi frá því á föstudaginn að
turninn í Makaó kosti hvern skatt-
greiðanda á Íslandi um 10.000 krónur
þar sem tap Sjóvár í Makaó hafi verið
um 3,2 milljarðar króna. Íslenska
ríkið lagði 12 milljarða króna inn í
Sjóvá í sumar til að bjarga félaginu
frá þroti þar sem minnst 10 milljarða
króna vantaði í eignasafn þess. Lán
ríkisins er til 18 mánaða og á Sjóvá að
greiða lánið til baka innan þess tíma,
hugsanlega eftir að félagið verður
selt á næstunni. Þá mun ríkissjóður
væntanlega fá peningana til baka
og ríkið og íslenskir skattgreiðendur
munu ekki tapa á björgunaraðgerð-
inni á Sjóvá. Því er fremur líklegt að
ríkissjóður fái fjármunina sem lánaðir
voru til baka.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, fór fram á það í gær
við Hrein Loftsson, aðaleiganda DV,
að hann hefði afskipti af fréttaflutn-
ingi DV af hans málum. DV hefur
undanfarna daga fjallað ítarlega um
fjárfestingar í lúxusturni í Makaó
sem Bjarni tengist.
Hreinn segir að Bjarni hafi hringt
í hann og lýst yfir óánægju sinni með
fréttaflutning DV. „Hann sagði frétt-
ir blaðsins byggjast á ósannindum.
Hann hélt áfram og sagði það vera
óþolandi, að ég stæði á hliðarlínunni
og léti þetta viðgangast. Fréttaflutn-
ingurinn hefði leitt til þess að an-
arkistar sætu um hús hans og vildu
valda honum tjóni. Ég spurði hann
til hvers hann ætlaðist af mér. Hann
var ekkert að skafa af því, hann ætl-
aðist til þess að ég stöðvaði þenn-
an fréttaflutning. Ég sagði honum,
að ég lyti ekki boðvaldi hans. Hann
skyldi snúa sér til ritstjórnar DV með
athugasemdir sínar og leiðréttingar,
en ég hefði ekkert meira við hann að
tala,“ sagði Hreinn.
Yfirlýsing frá Bjarna
Bjarni segir í yfirlýsingu, sem hann
sendi öðrum fjölmiðlum en DV, að
blaðið hafi ekki áhuga á að birta
leiðréttingu á þeim rangfærslum
sem það hefur farið með. Hann út-
skýrir ekki í hverju hinar meintu
rangfærslur felast. Því segist hann
hafa haft samband við eiganda
blaðsins og lýst því yfir að hann
teldi blaðamennsku blaðsins óvið-
unandi. „Áður en ég hafði haft tök á
að fara yfir samskipti mín við blað-
ið æsti Hreinn sig, sagðist ekki lúta
mínu boðvaldi og sagði mér að eiga
samskipti um þetta við ritstjórn
blaðsins. Að svo búnu skellti hann
á,“ segir Bjarni, sem hafnar því einn-
ig í yfirslýsingunni að hann hafi farið
fram á að fréttaflutningur DV af mál-
inu verði stöðvaður.
Stendur við orð sín
Hreinn segir að Bjarni fari með
ósannindi í yfirlýsingu sinni og
stendur við fyrri ummæli sín.
„Bjarni Benediktsson er ómerk-
ingur og ætti ekki að koma nálægt
stjórnmálum. Hann lýgur því að
Pressunni að ég hafi ekki borið upp
þá spurningu við hann, hvers hann
ætlaðist til af mér í framhaldi af at-
hugasemdum hans við fréttaflutn-
ing DV í símtali fyrr í dag (gær).
Þessa spurningu bar ég fram og
hann svaraði því til að ég ætti að
stöðva þennan fréttaflutning. Þetta
var ekki langt samtal, það er rétt
hjá Bjarna, því ég sagðist ekki lúta
boðvaldi hans og hann skyldi gera
athugasemdir við ritstjórn DV ef
hann teldi ekki rétt með farið varð-
andi þessar fréttir. Þá er það einnig
rétt hjá Bjarna að ég skellti á hann,
enda er ég ekki vanur að eiga löng
samtöl við símadóna af þessu tagi,“
segir Hreinn.
Bjarni Benediktsson hringdi í Hrein Loftsson:
Vildi að eigandinn stöðvaði umfjöllun
Bjarni Benediktsson, núverand
i for-
maður Sjálfstæðisflokksins og þ
áver-
andi stjórnarformaður eignarh
alds-
félagsins BNT, tók þátt í viðskip
tum
einkahlutafélagsins Vafnings
með
eignir dótturfélags tryggingafé
lags-
ins Sjóvár í Makaó í nágrenni H
ong
Kong í Asíu í febrúar 2008,
sam-
kvæmt heimildum DV. Félög í
eigu
fjölskyldu Bjarna voru stórir hlu
thaf-
ar í Vafningi.
Fjárfestingarverkefnið sneri
st
um kaup á 68 lúxusíbúðum í tu
rni í
hjarta Makaó og kallaðist það
One
Central. SJ-fasteignir, sem var í
eigu
bræðranna Karls og Steing
ríms
Wernerssona í gegnum Sjóvá,
fjár-
festi í verkefninu fyrir tæpa sjö m
illj-
arða króna árið 2006. Turninn,
sem
kallast Tower 4, er hannaður af
arki-
tektastofunni Kohn Pedersen
Fox
Associates og átti að vera 41 h
æð-
ar. Ljúka átti við byggingu hans
árið
2010 og ætlaði Sjóvá sér að græ
ða á
áttunda milljarð á viðskiptunum
.
Skilanefnd Glitnis, sem var stærs
ti
kröfuhafi eignarhaldsfélagsins M
iles-
tone, sem átti Sjóvá, losaði Sjóvá
út úr
fasteignaverkefninu í Makaó í su
mar
með samningum við fasteigna
- og
fjárfestingarfyrirtækin Shun Ta
k og
Hongkong Land sem sáu um að
reisa
turninn fyrir hönd Vafnings. M
iles-
tone hefur verið tekið til gjaldþ
rota-
skipta og stjórnar bankinn nú tr
ygg-
ingafélaginu þar til það verður
selt.
Greiða þurfti fyrirtækjunum tve
imur
um 1,5 milljarða króna í skaðab
ætur
vegna riftunarinnar og hefur H
örð-
ur Arnarson, sem ráðinn var fors
tjóri
Sjóvár eftir að félagið var yfirtek
ið af
skilanefnd Glitnis, sagt að tap fé
lags-
ins í heildina vegna þessara viðs
kipta
sé um 3,2 milljarðar króna.
Milestone skildi Sjóvá eftir
á
barmi gjaldþrots og þurfti ísle
nska
ríkið að leggja félaginu til 12 m
illj-
arða króna fyrr á árinu til að b
jarga
því frá gjaldþroti. Á sama tíma l
ögðu
Glitnir og Íslandsbanki samtals
fjóra
milljarða króna inn í félagið. Hlu
ta af
þessu tapi og ástæðunni fyrir b
jörg-
unaraðgerðum ríkisins má rek
ja til
fjárfestinga Sjóvár í Makaó.
Fjölskylda Bjarna átti á mót
i
Sjóvá
Vafningur keypti einkahlutafélag
ið SJ
Properties MacauOneCentral Ho
ldCo
ehf. af SJ-fasteignum fyrir 5,2 mill
jarða
króna þann 8. febrúar árið 2008,
sam-
kvæmt heimildum DV. Nýtt félag
, SJ2,
sem var í eigu Sjóvár líkt og SJ
-fast-
eignir, átti tæplega 50 prósenta
hlut í
Vafningi en tvö önnur eignarha
ldsfé-
lög, Skeggi og Máttur, skiptu me
ð sér
rúmlega 50 prósenta eignarhluta
. Mil-
estone hafði selt Vafning til Sk
eggja
einungis degi áður, eða þann 7. f
ebrú-
ar, og var félagið skráð til heim
ilis í
höfuðstöðvum Milestone á S
uður-
landsbraut 12.
Félag Sjóvár, SJ2, átti sömuleið
is
tæplega 50 prósenta hlut í Skegg
ja en
BNT, móðurfélag olíufélagsins N1
sem
Bjarni stýrði, átti tæp 24 prósent.
Eign-
arhaldsfélögin Hrómundur og H
afsilf-
ur áttu svo rúmlega 17 prósen
ta og
tæplega 8,5 prósenta hlut. Hróm
und-
ur er í eigu föðurbróður Bjarna
, Ein-
ars Sveinssonar, á meðan Hafsilfu
r er í
eigu föður hans, Benedikts Svein
sson-
ar. Þeir bræður eru sömuleiðis eig
end-
ur N1 og var Bjarni stjórnarform
aður
þess og BNT þar til í desember í
fyrra
þegar hann ákvað að hætta til að
ein-
beita sér alfarið að stjórnmálu
num.
Bjarni hefur sömuleiðis upplý
st að
um tíma hafi hann átt 1
pró-
sents hlut í B
NT.
SJ2 átti sömuleiðis tæplega helm
-
ingshlut í Mætti en félög Einar
s og
Benedikts Sveinssona áttu tæp
lega
helmingshlut á móti því. Því má
segja
að Wernersbræður og þeir Sv
eins-
synir og Bjarni hafi eftir kaup
in af
Sjóvá átt fasteignaverkefnið í Ma
kaó.
SJ Properties MacauOneCentr
al
HoldCo ehf. átti fasteignaverk
efnið
í Makaó jafnframt í gegnum ei
nka-
hlutafélagið Drakensberg In
vest-
ment Ltd. sem skráð er á Bresku
Jóm-
frúareyjum.
Sjóvá lánaði Vafningi 10
milljarða
Heimildir DV herma að sama
dag
og Vafningur skrifaði undir k
aup-
samning við SJ-fasteignir um ka
upin
á Makaó-félaginu hafi Bjarni B
ene-
diktsson fengið fullt og óskorað
um-
boð frá Hafsilfri, Hrómundi og
BNT
til að veðsetja eignarhluti fjölsky
ldu-
félaganna þriggja í Vafningi hjá G
litni
banka. Ekki er vitað hvort Bjarni
nýtti
sér þetta umboð eða ekki en þó
má
áætla að það hafi ekki verið vei
tt að
ástæðulausu heldur vegna viðs
kipt-
anna með eignirnir í Makaó.
Um svipað leyti, í lok febrú
ar
2008, lánaði Sjóvá Vafningi 10 m
illj-
arða króna með víkjandi láni. Ás
tæð-
an fyrir því að lánið var víkjandi
er sú
hversu stóran þátt Sjóvá og eige
ndur
félagsins, þeir Karl og Steingrí
mur,
áttu í félaginu. Nánast má fullyrð
a að
nota átti lánið til að greiða fyrir
kaup
Vafnings á félaginu í Makaó sem
hélt
utan um eignina á lúxusturnin
um.
Ástæðan fyrir því er sú að Vafni
ngur
var stofnaður til þess eins, að þ
ví er
virðist, að kaupa fasteignaverkef
nið í
Makaó af SJ-fasteignum.
Önnur tengsl Vafnings við eign
-
arhaldsfélög tengd þeim bræð
rum
Steingrími og Karli eru meðal an
nars
að á eina stjórnarfundi eignarh
alds-
félagsins Svartháfs, sem DV h
efur
greint ítarlega frá upp á síðkas
tið, í
ársbyrjun 2008, var ákveðið að
lána
50 milljónir evra til Vafnings
ehf.,
eða sem nemur tæpum 5 milljör
ð-
um króna. Hugsanlegt er að
Bjarni hafi fengið umboðið frá
BNT,
Hrómundi og Hafsilfri til að veð
setja
hlutabréfin í Vafningi vegna lán
sins
sem veitt var til félagsins í geg
num
Svartháf.
Vafningur hefur því fengið sam
-
tals að minnsta kosti um 15 mill
jarða
króna að láni frá Sjóvá og Glitn
i um
þetta leyti og notaði félagið rúm
lega
5 milljarða til að fjárfesta í faste
igna-
verkefninu sem dótturfélag S
jóvár
hafði átt eitt fram að því. Afar líkle
gt er
að afskrifa þurfi meirihluta þeirra
fjár-
muna sem Vafningur fékk að lán
i þar
sem Milestone skilur eftir sig sku
lda-
slóð upp á marga tugi milljarða
auk
þess sem engar eignir eru inni í S
vart-
háfi svo vitað sé en skuldir þess f
élags
nema um 45 milljörðum króna.
2 miðvikudagur 9. desember 2009
fréttir
Tengsl Wernersbræðra og Eng
eyinga
Bræðurnir Karl og Steingrímur Wern
erssynir og Einar og Benedikt Svein
ssynir
hafa átt mikil viðskipti sín á milli á u
ndanförnum árum. Einar Sveinsson
var
forstjóri Sjóvár og Benedikt bróðir h
ans var stjórnarformaður trygginga
félagsins.
Árið 2003 keyptu bræðurnir hina sv
okölluðu H. Ben. fjölskyldu út úr Sjó
vá en
fjölskyldurnar tilheyra báðar hinni fr
ægu Engeyjarætt. Íslandsbanki var h
ins
vegar stærsti hluthafinn. Næsta nót
t varð síðan fræg sem „Nótt hinna lö
ngu
bréfahnífa“. Þá gerðu stærstu fjármá
lafyrirtæki landsins með sér samkom
ulag
sem breytti landslaginu í íslensku vi
ðskiptalífi. Eitt af því sem samið var
um var
að Íslandsbanki eignaðist ellefu pró
senta hlut Burðaráss í Sjóvá. Bankin
n gerði
í kjölfarið yfirtökutilboð í Sjóvá. Seld
u Einar og Benedikt Sveinssynir hlut
sinn í
Sjóvá og eignuðust í staðinn hlut í Ís
landsbanka. Hætti Einar Sveinsson fl
jótlega
sem forstjóri Sjóvár og tók Þorgils Ó
ttar Mathiesen við af honum.
Árið 2005 keypti félagið Þáttur, í eig
u Karls, Steingríms og Ingunnar Wer
ners-
barna, 66,6 prósenta hlut í Sjóvá af Í
slandsbanka. Var Þór Sigfússon þá g
erður að
forstjóra Sjóvár. Einar Sveinsson og
Karl Wernersson sátu í stjórn Íslands
banka og
síðar Glitnis þar til FL Group undir fo
rystu Hannesar Smárasonar og Jóns
Ásgeirs
Jóhannessonar náði yfirtökunum í G
litni. Var Einar stjórnarformaður ban
kans.
Svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum
og sama stjórnarfundinum í eignar
halds-
félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008
að sækja um tæplega 200 milljóna
evra lán
frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35
milljörðum króna á núverandi geng
i, og
endurlána það svo til félaga í eigu K
arls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endurlánaði s
trax til eignarhaldsfélaga í þeirra eig
u var
svo notað til að greiða hluta skuldar
við fjárfestingabankann Morgan St
anley
upp á 300 milljónir evra, sem nemu
r um 55 milljörðum króna á núveran
di gengi.
Morgan Stanley var einn helsti erlen
di lánveitandi Milestone og fjármag
naði
hluta útrásar fyrirtækisins til annarra
landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður þeir
ra bræðra, Werners Rasmusson, er e
inn af
stærri skuldurum Glitnis með skuldi
r upp á um 45 milljarða króna og er
ljóst að
skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa dr
júgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitni
r veitti
Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en n
ákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á
sama
stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrju
n 2008 var ákveðið að lána 50 milljó
nir evra
til félagsins Vafnings ehf., eða sem n
emur tæpum 5 milljörðum króna. Ei
gendur
Vafnings voru þeir bræður Einar og
Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonu
r
Benedikts og formaður Sjálfstæðisfl
okksins. Það skýtur skökku við að W
erners-
bræður sem ekki gátu greitt af eigin
lánum hafi séð sér fært að lána féla
gi í eigu
Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljar
ða króna.
BJARNI MEÐ Í KAUPUM
Á LÚXUSTURNI Í MAKAÓfréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 11
Tekin var ákvörðun um það á ein-um og sama stjórnarfundinum í eignarhaldsfélaginu Svartháfi í fyrra að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og end-urlána það svo aftur til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endur-lánaði strax aftur til eignarhalds-félaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjár-festingabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nem-ur um 55 milljörðum króna á nú-verandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Mil-estone og fjármagnaði hluta útrás-ar fyrirtækisins til annarra landa.Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmus-sonar, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skila-nefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúg-an hluta þeirrar fjárhæðar. Glitn-ir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt.
Sótt um lán og endurlánaðHeimildir DV herma að á stjórn-arfundinum í Svartháfi, sem hald-inn var í höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12, hafi verið gerður lánasamningur við Glitni sem nam um 200 milljónum evra. Einnig var ákveðið að lána ætti tæp-lega 140 milljónir evra til sænska félagsins Racon Holding AB, sem var dótturfélag Milestone og lán-takandi Morgan Stanley. Veðið fyr-ir láni Svartháfs til Racon Holding AB var í hlutabréfum í sænska fjár-málafyrirtækinu Invik & Co., síðar Moderna AB. Racon notaði lánið svo til að borga Morgan Stanley.Jafnframt var ákveðið á stjórn-arfundinum að lána 50 milljónir evra til félags sem heitir Vafning-
ur ehf., sem einnig var í eigu þeirra bræðra og til húsa á Suðurlands-braut 12. Ekki er vitað til að aðrir stjórnar-fundir hafi verið haldn-ir í Svartháfi.
Lán upp í skuld MilestoneVeðið fyrir láninu frá Glitni til Svartháfs var í eignarhaldsfélaginu Moderna AB en eignir Milestone voru seld-ar inn í það félag um áramótin 2007-2008. Glitnir hefur nú leyst til sín eignir Mod-erna, meðal annars Sjóvá og Askar Capi-tal, og fékk bank-inn þar eitthvað upp í kröfuna á hendur Svartháfi en ljóst er að afskrifa þarf stóran hluta henn-ar. Milestone stofnaði til lánsins, sem Racon borgaði síðar upp með láninu frá Svartháfi, við Morgan Stanley sumarið 2007 og var það notað til að festa kaup á sænska fjármálafyrirtækinu Invik & Co, sem síðar var endurskírt Moderna Finance AB. Lánið frá Glitni sem rann inn í Svartháf var því notað til að standa við skuldbindingar sem Milestone stofnaði til fyrir hönd dótturfélags síns.
Leppurinn SvartháfurÁ þessum tíma, í ársbyrjun 2008, er líklegt að Morgan Stanley hafi ver-ið orðinn órólegur um að lán Rac-on fengist ekki greitt og að þeir hafi ekki viljað endurnýja lánasamning-inn. Ástæðan kann meðal annars að hafa verið sú að þá þegar voru blikur á lofti um að mikil lægð væri yfirvofandi í íslensku efnahags-lífi og má áætla að Morgan Stan-ley hafi því kippt að sér höndum. Milestone hefur því hugsanlega átt í erfiðleikum með að standa í
skilum við Morgan Stanley, önnur fjármálafyrirtæki hafa ekki viljað lána þeim og því hafi þeir orðið að verða sér úti um lán með einhverj-um hætti. Heimildir DV renna því stoð-um undir þá kenningu að eini til-gangurinn með stofnun Svartháfs hafi verið að leppa lánveitingu frá Glitni, sem síðar rann til félaga Wernerssona sjálfra. Ástæðan fyr-ir Svartháfssnúningnum var sú að félög í beinni eigu þeirra bræðra máttu ekki fá meira lánað hjá Glitni samkvæmt reglum sem Fjármála-eftirlitið hefur sett um hámarks-lánveitingar til einstakra aðila. Ástæðan fyrir þessum reglum er til að lágmarka áhættu bankans: Ekki er heppilegt fyrir banka að eiga of miklar útistandandi skuldir við einstaka fyrirtækjasamstæðunnar. Ekki er vitað hver það var innan Glitnis sem tók ákvörðunina um að veita Svartháfi þetta lán en líkt og gildir í fjármálafyrirtækjum með svo háar lánveitingar en lána- og áhættunefndir fjármálafyrirtækja taka yfirleitt ákvarðanir um svo háar lánveitingar.
IngI F. VILhjáLMSSonblaðamaður skrifar ingi@dv.is
LEPPUR BORGAÐI
SKULD MILESTONE2 miðvikudagur 14. október 2009 fréttir
Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af45 milljarða króna skuld eignarhalds-félagsins Svartháfs við bankann, sam-kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á hendur Svartháfi nam 45 milljörðumkróna í sumar en samkvæmt heimild-um DV var hún gerð upp í lok sum-ars. Líklegast er að krafan hafi veriðgerð upp með miklum afföllum fyrir bankann.Skuld Svartháfs er meðal ann-ars tilkomin vegna þess að félagið,sem er í eigu Werners Rasmusson, föður Karls og Steingríms Werners-sona, fyrrverandi eigenda eignar-haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna til að lána eignarhaldsfélagi í eigu bræðranna fyrir skuld við fjárfest-ingabankann J.P. Morgan.Svartháfur hét áður ELL 150 ogGleypnir og var stofnað af ErlendiGíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá lögmannsstofunni Logos í janúarárið 2008, samkvæmt stofnskjölum
félagsins. Svartháfur er skráður til heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og flest önnur eignarhaldsfélög þeirra bræðra, en lögheimili þess var skráðí Jötunssölum 2, heimili Werners föð-ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegarlögheimilið var fært á Suðurla nds-brautina. Svartháfur hefur ekki skilaðársreikningi fyrir árið 2008.Nafnabreytingar í ársbyrjunÍ febrúar 2008 voru Werner Rassmus-son og kona hans Kristín Sigurðar-dóttir kjörin í stjórn og varastjórn félagsins. Nafni félagsins var á sama tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur.Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um breytinguna á stjórninni er hins veg-ar strikað yfir nafnið Gleypnir með penna og nafnið Svartháfur sett í staðinn, eins og félagið hafi átt að heita Gleypnir en að svo hafi því ver-ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóriMilestone, Jóhannes Sigurðsson, skrifaði undir ásamt Werner Rasm-usson. Tengsl Svartháfs og Milestone
eru því nokkur þó eigendurnir hafiekki verið þeir sömu.45 milljarða skuld Svartháfs stend-ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarðakróna skuld sem Milestone skilur eft-ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggjafélaga og dótturfélaga þeirra við Glitninema því nærri 90 milljörðum króna.Heildarskuldir Milestone nematæpum 80 milljörðum króna og var gert ráð fyrir því í nauðasamningumfélagsins, sem hefur verið hafnað, að kröfuhafarnir fengju um 6 prósent upp í kröfur sínar en eignir félags-ins voru einungis metnar á um fimmmilljarða. Því má reikna með að feðg-arnir, Werner, Steingrímur og Karl, eigi ekki til þær upphæðir persónu-lega sem til þarf til að greiða skuldirSvartháfs, enda er ekki vitað til þessað einhver þeirra sé í persónulegumábyrgðum vegna skuldanna.Greiddu niður lán til J.P. MorganSkuldir Svartháfs við Glitni eru með-al annars tilkomnar vegna þess aðskömmu eftir að félagið tók uppnafnið Svartháfur í febrúar í fyrratók félagið lán frá Glitni upp á um 20milljarða króna til að greiða lán Rac-on Holdings II, sem eignarhaldsfélagKarls og Steingríms, Milestone, réð í gegnum annað eignarhaldsfélag sitt,Þátt, við fjárfestingarbankann J.P.Morgan. Lán Racon hjá J.P. Morgan vartilkomið út af kaupum Racon á fé-lagi sem hét Innvik, sem síðar varendurskírt Moderna Finance AB. Á þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-ar orðinn órólegur um að lán Racon fengist ekki greitt og vildu ekki end-urnýja lánasamninginn þegar hann gjaldféll, ástæðan var meðal annarsað þá þegar voru blikur á lofti í ís-lensku efnahagslífi og kippti bank-inn því að sér höndum með því aðneita að endurnýja lánasamninginn.Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem varí eigu Kristins Björnssonar og Magn- úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-iðleikum í árslok 2007 og eru þeir fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-ir marka upphaf íslenska efnahags- hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-on, Karl og Steingrímur, að finna aðrar leiðir til að greiða J.P. Morganlánið.
WernerssonaKarl WernerssonGLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA SKULDIR WERNERSMANNA
HvAÐ ER SvARTHáFUR?Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félagsí eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra,og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hverniguppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða BlackDogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi,meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafniðgefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum.Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverjuSvartháfsnafnið var valið fyrir félagið.Eitt af mörgum ELL-félögumSvartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflegahafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum.Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er ímeirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihlutaí Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Existaen kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt áliðnum árum.Werner hefur áður komið við söguWerner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra.Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Youngum Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarfmeðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Wernerkom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar. Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum.
stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og SteingrímsWernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna semekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernerssonvill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp.
heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfurer skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voruhöfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta.
Tíu prestaþeir sendu Kabiskupi Íþeir skorum landsins.með þBjörnssySelfossi. Tséra Gstuðninákærumun ungra sókupinn handi í afái að sog því hefurfram til þút á mohann að isdegi sínaftur á móti að Bsátta við sérafinna honum getur reynstnema með samþykkier beðið átektaprestsins verða.
UPPREISN GEGN BISKUPI
„Jafnt og þast, það evert að strsegir Karl SigurðssoVinnumálastofnun. Há að heldur minna vinnuleysi í síðast var.Hjá Vinnið nóg að gera undanur aukning hefur veUndanfarna dagastaklingar sskrá hjá stonú er svo kán þúsund ei14.909 eintAðspurður segsig þessa dagareiknar þó með brnæstunni. „Þ
Karlar streyma inn á skrárnar
Lánuðu ekki til venslaðra aðilaÁstæðan fyrir því að Svartháfur fékklánið frá Glitni var sú að á þessum tíma voru eigendur Milestone, þeirKarl og Steingrímur, og félög í beinni og óbeinni eigu þeirra búnir að full-nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni,að sögn heimildarmanns DV sem þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-gríms. Bræðurnir voru hluthafar í Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara í kringum þetta lánaði Glitnir þessu félagi [Innskot blaðamanns: Svart-háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði þessa peninga svo til Racon HoldingsII og voru þeir notaðir til að greiða upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnirgreiddi því í raun upp skuldina við J.P.Morgan en fór þennan hring til þess. Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs við Glitni,“ segir heimildarmaður DV en ekki er vitað að svo stöddu hvern-ig hinir milljarðarnir bættust ofan á þessa tuttugu. Heimildarmaður DV segir að þettahafi þótt vera í lagi vegna þess að í lagalegum skilningi hafi félagið í eigu Werners, Svartháfur, ekki verið skil-greint sem venslaður aðili við Karl og Steingrím. Félag í eigu föður Karls ogSteingríms gat því fengið lánið þó svoað félög í þeirra eigu gætu það ekki útaf hinum fullnýttu lánaheimildum.Karl tjáir sig ekkiKarl Wernersson vill aðspurður og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-manns ekki ræða um málefni Svart-háfs í samtali við DV. Því var lögð spurning fyrir hann í SMS-skeyti þarsem hann var spurður hvað hefði orð-ið um 45 milljarða skuld Svartháfs. Hann var spurður hvernig hefði ver-ið gengið frá þessari skuld og hversvegna. Svar Karls við þessari fyrir-spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náðiekki aftur sambandi við Karl eftirþetta.Ekki náðist í bróður Karls, Stein-grím, né í föður hans, Werner Rasmus-son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo stöddu liggur því ekki almennilegafyrir hvernig skuldin við Glitni var gerð upp.ekki rætt í gögnumum MilestoneEkkert er rætt um málefni Svartháfs ogláns félagsins hjá Glitni í gögnum umMilestone sem greint hefur verið fráí fjölmiðlum, endurskoðendaskýrsluErnst & Young og skýrslu umsjónar-manns nauðasamninga félagsins, Jó-hannesar Alberts Sævarssonar. Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-efni Svartháfs tengjast ekki beintmálefnum Milestone af áðurnefnd-um ástæðum, jafnvel þó að pening-arnir sem Svartháfur fékk að láni hjáGlitni hafi verið notaðir til að lána fé-lagi í eigu Milestone-manna svo þaðgæti staðið í skilum við erlent fjár-málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né endurskoðendurnir höfðu aðgang aðbókhaldi Racon Holdings II, félags-ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því ekki rannsakað lánveitingarnar til og frá Svartháfi.Samkvæmt heimildum DV veltukröfuhafar Milestone hins vegar mik-ið fyrir sér himinháum lánveitingumfrá Glitni til félagsins áður en nauða-samningum Milestone var hafnað ogfélagið var tekið til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt aðmálefni Svartháfs muni koma við sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfumMilestone og kunna lánaviðskipti fé-lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona FélagiðSvartháfur er skráð á Werner Rasmusson,föður Karls og Steingríms. Félagið virðisthafa verið stofnað gagngert til að takavið láni frá Glitni upp á 20 milljarða sembræðurnir gátu ekki tekið.
14. október 2009
Allt ákveðið í einu Samkvæmt heimildum DV var ákveðið á hluthafafundi Svartháfs að sækja um lán og endurlána það strax aftur til dótturfélaga Milestone. Faðir Karls Wernerssonar, annars eiganda Milestone, var eigandi Svartháfs.„L
ánið frá Glitni sem rann inn í Svartháf var því notað til að standa við skuld-bindingar sem Milestone stofnaði til fyrir hönd dóttur-félags síns.”
Bjarna Benediktssonar
IngI F. VIlhjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Um svipað leyti, í lok
febrúar 2008, lánaði
Sjóvá Vafningi 10 millj-
arða króna með víkj-
andi láni.“
DV 30. nóvember Werner Rasmus
son
leppaði lán fyrir syni sína gegnum
Svartháf. 45 milljarða skuld félagsin
s við
Glitni verður líklega afskrifuð.
fréttir
9. desember 2009 miðvikudag
ur 3
Ætluðu sér að selja fljótlega
Upphaflega ástæðan fyrir fjár
fest-
ingu Sjóvár í Makaó var sú að f
élag-
ið reiknaði með því að fasteigna
verð
í Makaó myndi hækka gríðarle
ga á
árunum 2006 til 2010. Til að m
ynda
hækkaði fasteignaverð í héra
ðinu
um 35 prósent að meðaltali á á
rinu
2007. Reiknað var með áframh
ald-
andi hækkun næstu árin þar á
eftir
enda hefur borgin verið kölluð
hin
asíska Las Vegas. Sjóvá ætlaði sé
r svo
að selja lúxusturninn með næ
rri 8
milljarða króna hagnaði, miðað
við
gengi krónunnar í febrúar 2008,
áður
en framkvæmdunum myndi ljú
ka -
kaupverðið var 110 milljónir Ba
nda-
ríkjadala en söluverðið átti að
vera
185 milljónir.
Væntanlega hefur Sjóvá vilja
ð
dreifa áhættunni af fjárfestingun
ni á
fyrstu mánuðum ársins 2008 o
g því
búið Vafning til með þátttöku
BNT,
Hafsilfurs og Hrómundar. Auk
þess
er ekki ólíklegt að yfirvofandi þr
eng-
ingar á fjármálamarkaði hafi át
t þar
hlut að máli.
Fjárfesting félaganna þriggja
í
Makaó-verkefninu hefur jafnf
ramt
verið áhættulítil enda voru l
ánin
inn í Vafning veitt af Sjóvá, sem
var
í eigu Wernersbræðra, og af G
litni,
en bræðurnir og Einar og Ben
edikt
Sveinssynir voru sömuleiðis hlu
thaf-
ar í bankanum í gegnum Þátt I
nter-
national sem þeir áttu sömul
eiðis
ásamt Karli og Steingrími.
Benedikt man ekki eftir
viðskiptunum
DV náði ekki tali af Bjarna B
ene-
diktssyni á þriðjudaginn, til að s
pyrja
hann út í viðskipti Vafnings, þrát
t fyr-
ir ítrekaðar tilraunir. Skilin voru
eftir
skilaboð til Bjarna á talhólfi han
s og
hjá aðstoðarmanni
formannsins, Sig-
urði Kára Kristj-
ánssyni.
Benedikt
Sveinsson, fað-
ir Bjarna, sagð-
ist aðspurður
hafa dregið sig
út úr fjárfest-
ingum og
ekki muna
eftir þess-
um við-
skiptum
Vafnings
með fast-
eigna-
verkefn-
ið í Makaó.
Hann gat
því ekki greint
frá því hvernig viðskipt-
in gengu. Heimildir DV herm
a að
Benedikt hafi ekki komið miki
ð að
viðskiptunum, jafnvel þótt félag
hans
hafi verið óbeinn hluthafi í Vafn
ingi,
enda var Bjarni sonur hans með
um-
boðið til að ráðstafa hlutabréfum
fé-
lagsins í Vafningi.
Sömuleiðis voru skilin eftir skil
a-
boð til Einars Sveinssonar en h
ann
hafði ekki haft samband við DV
þeg-
ar blaðið fór í prentun í gær.
Þess skal að lokum getið að Vafn
-
ingur ehf. er ekki til í dag nema
sem
kennitala því nafni félagsins h
efur
verið breytt í Földungur ehf.
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Svein
s-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
Asíska Las Vegas Makaó er
annað af tveimur kínverskum
sjálfstjórnarhéruðum. Hitt
er Hong Kong sem er í
nágrenni Makaó. Héraðið
hefur verið kallað hin asíska
Las Vegas og er ört vaxandi
ferðamannastaður þar sem
sterkefnað fólk kemur til að
njóta lífsins í vellystingum,
meðal annars með því að
spila fjárhættuspil.
Fjárfestu í Makaó Bjarni Benedikt
s-
son og faðir hans og föðurbróðir ke
yptu
fasteignaverkefni Sjóvár af dótturfé
lagi
þess fyrir rúma 5 milljarða króna í
febrúar 2008. Þeir áttu fasteignaver
kefnið
í gegnum félagið Vafning og afland
sfélag á
Bresku Jómfrúareyjum.
Eignarhald á turninum
í Makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
SJ Properties MacauOneCentral
HoldCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments Limited
á Bresku Jómfrúareyjum - 100 pró
sent
Turninn í Makaó
Fjórir bræður Vafningur var að me
stu
leyti í eigu þeirra Wernersbræðra
og Einars og Benedikts Sveinssona.
Tryggingafélagið Sjóvá seldi fasteig
na-
verkefnið í Makaó til félagsins Vafnin
gs
sem var í eigu dótturfélags Sjóvár o
g
félaga í eigu Engeyjarbræðranna
Einars og Benedikts Sveinssona.
Sjóvá, sem var í eigu Karls og
Steingríms Wernerssona, lánaði
Vafningi 10 milljarða króna um
þetta leyti.
14 föstudagur 11. desember 2009
fréttir
„Ég hef aldrei komið nálægt neinni ákvörðun um að taka þátt í fast-eignaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð-isflokksins og fyrrverandi stjórnar-formaður BNT og N1, um aðkomu sína að eignarhaldsfélaginu Vafn-ingi sem meðal annars fjárfesti í fast-eignaverkefni Sjóvár í Makaó í byrjun febrúar í fyrra fyrir rúma fimm millj-arða króna. BNT og félögin Hafsilfur og Hrómundur, sem eru í eigu föður og föðurbróður Bjarna, voru hluthaf-ar í félaginu, líkt og greint var frá í DV á miðvikudaginn, og fékk Bjarni um-boð til að veðsetja hlutabréf þeirra allra í félaginu sama dag og Vafning-ur keypti fasteignaverkefnið.
Bjarni vissi hins vegar vel að fé-lögin væru hluthafar í Vafningi þrátt fyrir að hann neiti því að hafa vitað að félagið hafi keypt fasteignaverk-efni Sjóvár. Hann segir að Vafningur hafi ekki einungis verið stofnaður til að halda utan um fasteignaverkefnið heldur til að endurfjármagna lán fyr-ir hluthafa þess. Að sögn Bjarna var ekki langur aðdragandi að stofnun Vafnings og var það ekki forgangs-mál að ganga frá því að BNT gerðist hluthafi í Vafningi.
Formaðurinn segir jafnframt að áhætta félaganna þriggja af fjárfest-ingunni í Vafningi hafi verið lítil þar
sem þau hafi ekki lagt fram eigin-fjárframlög og að félagið hafi verið fjármagnað með lánsfé. Hluthafar Vafnings hefðu þó getað grætt millj-arða ef fjárfestingin hefði gengið eft-ir. Svo varð hins vegar ekki og í kjöl-far efnahagshrunsins varð ljóst að fasteignaverkefnið í Makaó myndi skila miklu tapi, meðal annars vegna falls eignarhaldsfélagsins Milestone sem átti Sjóvá. Íslenska ríkið þurfti, í kjölfar hrunsins, að bjarga Sjóvá frá gjaldþroti með 12 milljarða eig-infjárframlagi. Sjóvá var síðan losað út úr fasteignaverkefninu í sumar og varð tapið af fjárfestingunni í Makaó á fjórða milljarð króna fyrir félagið. Þegar ráðist var í fjárfestinguna hefði Vafningur hins vegar getað grætt vel á henni.
Bjarni kom því að því að ákveða þátttöku BNT, og hugsanlega einn-ig hinna félaganna tveggja, í Vafn-ingi og virðist hafa verið fullkomlega meðvitaður um tilgang félagsins þó svo að hann hafni því að hafa haft eitthvað að segja um fjárfestingar fé-lagsins í Makaó.
Bjarni: Bræðurnir ekki á
landinu
Aðspurður af hverju hann hafi feng-ið umboð frá félögunum þremur sem voru í eigu fjölskyldu hans – BNT, Hrómundi og Hafsilfri – til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama dag og félagið keypti turninn í Mak-aó segir Bjarni: „Nei, ég vissi ekkert af því á hvaða tímapunkti þessar eign-
ir fluttust inn í Vafning,“ segir Bjarni sem samkvæmt þessu vissi ekki að á sama tíma og hann fékk umboðið var félag, sem var að hluta til í eigu ætt-ingja hans sem og félags sem hann var stjórnarformaður og hluthafi í, að festa kaup á fasteignaverkefni í Makaó fyrir rúma fimm milljarða króna. Daginn áður en Vafningurinn keypti fasteignaverkefnið í Makaó seldi Milestone eignarhaldsfélaginu Mætti 12,1 prósents hluta í Vafningi fyrir rúmar 60 þúsund krónur og var Bjarni einn af þeim sem gat skrifað undir samninginn fyrir hönd Máttar.„Þeir [Benedikt og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyr-ir sína hönd að skrifa undir ákveð-inn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hlutabréfin sín í félag-inu... Þetta var veðsamningur sem gerður var við bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu,“ segir Bjarni en BNT, Hrómundur og Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, og föður-bróður hans, Einars. „Þegar eigend-ur þessara hlutabréfa í Vafningi óska
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
HÖFÐU ENGU AÐ TAPA
Bjarni Benediktsson
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
one Central í makaó
Kaup Vafnings á eignarhaldsfélaginu sem hélt utan um háhýsið í fasteignaverk-efninu One Central í Makaó gengu í gegn í febrúar 2008. Félagið hafði áður verið að fullu leyti í eigu dótturfélags Sjóvár en komst við eigendaskiptin í eigu annars dótturfélags tryggingafélagsins og eignarhaldsfélaga sem tengjast Engeyjar-frændunum: Einari, Benedikt og Bjarna.Kaupverðið var rúmir 5 milljarðar króna en turninn á að vera 41 hæð með tæp-lega 70 íbúðum. Íbúar háhýsisins áttu að hafa aðgang að 5 hæða hárri íþrótta- og tómstundamiðstöð með 50 metra sundlaug, spa, fullkomnum líkamsræktarsal og ýmsum íþróttavöllum.
Hugmyndin hjá Sjóvá og síðar Vafningi var að eiga háhýsið í skamman tíma og selja það síðan með hagnaði upp á rúmlega 8 milljarða króna þar sem áætlað var að fasteignaverð í héraðinu myndi rjúka upp. Eigendur byggingarinnar gátu því grætt mikla fjármuni ef það hefði gengið sem skyldi.
svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds-félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners-bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna.
Eignarhald á turninum
í makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
sj Properties macauoneCentral holdCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments limited á Bresku jómfrúareyjum - 100 prósent
Turninn í makaó
„Menn eru að endurfjármagna
lán og það er það sem er aðal-
ástæðan fyrir þátttöku þessara
félaga í Vafningi.“
Bjarni veðsetti Vafning Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk umboð frá
BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréf þeirra í eignarhaldsfélagi sem meðal annars keypti
lúxusturn í Makaó sama dag og umboðin eru dagsett. Umboðin þrjú sjást hér á myndunum.
fréttir 11. desember 2009 föstudagur 15
eftir því við mig að ég sjái um að veð-setja hlutabréf þeirra í félaginu fyrir þeirra hönd þá geri ég ekkert annað en það og tek engar aðrar ákvarðanir um neitt annað... Þeir gátu ekki farið í bankann þennan dag til að veðsetja bréfin sín í Vafningi. Það var bara verið að ganga frá endurfjármögnun lána í bankanum og það þurfti bara að gerast þennan dag... Ég myndi líka vilja fullyrða við þig að eigend-ur Hafsilfurs [Benedikt faðir Bjarna, innsk. blaðamanns] - ég skal ekki segja með hann Einar því ég hef ekki rætt þetta við hann - hafa aldrei tekið ákvörðun um að kaupa eða veðsetja nokkuð varðandi eignir í Makaó. Þú verður að ræða þetta mál við stjórn-armennina í Vafningi. Ég hef aldrei setið þar í stjórn og ekki komið ná-lægt málinu,“ segir Bjarni sem bætir því við aðspurður að hann ætli ekki að tjá sig um það fyrir hverju hluta-bréfin í Vafningi hafi verið veðsett. „Ég ætla bara ekkert að tjá mig um það.“
Hugsanlegt er hins vegar að þetta hafi verið gert sem veð á móti tæp-lega 5 milljarða króna láni frá Glitni inn í eignarhaldsfélagið Svartháf, sem var í eigu föður Karls og Stein-gríms Wernerssona, sem síðan var endurlánað strax aftur til Vafnings á fyrstu mánuðum 2008. Eini tilgang-ur Svartháfs var að vera leppur fyr-ir frekari lánveitingar frá Glitni til þeirra Wernerssona. Vafningur fékk enn fremur 10 milljarða króna víkj-andi lán frá Sjóvá síðar í febrúar. Ljóst er að kaup Vafnings á lúxusturninum voru fjármögnuð með einhverju af þessum lánveitingum.
Turninn innlegg
Wernersbræðra
Aðspurður af hverju BNT, Hafsilfur og Hrómundur hafi þá tekið ákvörð-un um að kaupa turninn í Makaó í gegnum Vafning segir Bjarni að þeir hafi ekki gert það: „Það er stjórn Vafnings sem hefur gert það,“ segir Bjarni. Þegar Bjarni er spurður hvort þeir hafi ekki komið að ákvörðuninni um það að kaupa turninn því þeir hafi verið stórir hluthafar í Vafningi segir Bjarni: „Ég sat aldrei í stjórn þar... Vafningur snýst um meira en það að fara með eignarhald á þessum turni. Þetta eru eignir sem Werners-bræður leggja inn í félagið sín meg-in frá og þær koma okkur bara ekk-ert við,“ segir Bjarni en blaðamaður segir þá við hann að auðvitað komi þessar eignir þeim við þar sem þeir hafi verið hluthafar í Vafningi sem keypti turninn í Makaó. Bjarni virðist þó vera á annarri skoðun.
Stjórnarmenn Vafnings, sem síð-ar var endurskírður Földungur, voru hins vegar starfsmenn Milestone, þeir Guðmundur Ólason og Jóhann-es Sigurðsson, og virðast þeir því hafa tekið ákvarðanir fyrir hönd fé-lagsins sem byggðu á vilja eigenda Milestone, þeirra Karls og Steingríms Wernerssona, sem samtals réðu yfir meirihluta í Vafningi þó eignarhlut-ir Engeyjarmannanna væru stórir. Þetta skýrir þó ekki af hverju félög-in þrjú í kringum Bjarna, Einar og Benedikt ákváðu að taka þátt í félag-inu til að byrja með.
Snerist um endurfjármögnun lána
Aðspurður af hverju BNT, Hafsilf-ur og Hrómundur hafi ákveðið að taka þátt í Vafningi og hvort hann hafi komið að þeirri ákvörðun seg-ist Bjarni ekki hafa gert það: „Það er ekki hægt að segja að þetta sé ákvörðun sem hafi átt sér neinn sér-stakan aðdraganda. Þetta er mál sem var inni á borði hjá forstjóranum [hjá BNT eða N1, innsk. blaðamanns] og þetta er meira frágangsmál en nokk-
uð annað,“ segir Bjarni. Aðspurður hvort hann hafi þá komið að því að ákveða það fyrir hönd BNT að gerast hluthafi í Vafningi segir Bjarni: „Ég skýst aldrei undan ábyrgð á því sem ég skrifa undir fyrir hönd þess félags sem ég sit í stjórn fyrir,“ segir Bjarni sem undirstrikar að þetta þýði þó ekki að hann hafi haft vitneskju um að Vafningur væri að kaupa turninn í Makaó. Bjarni virðist þó hafa kvittað upp á þátttöku BNT í Vafningi sem stjórnarformaður félagsins.
Þegar blaðamaður segir við Bjarna að hann hafi ekki neina trú á því að Vafningur hafi ákveðið að kaupa turninn í Makaó án vitundar Bjarna og hluthafa félaganna þriggja segir hann: „Þú hefur ekki heildaryf-irsýn yfir það sem menn eru að gera á þessum tíma. Menn eru að end-urfjármagna lán og það er það sem er aðalástæðan fyrir þátttöku þess-ara félaga í Vafningi. En ég tók aldrei ákvörðun um að félagið tæki þátt í fjárfestingunum í Makaó. Mér var ekki kunnugt um að Vafningur væri að fara að taka yfir þessar fjárfesting-ar í Makaó,“ segir Bjarni.
Það sem Bjarni vísar líklega til með þessum orðum er að í ársbyrj-un stóðu ýmis íslensk eignarhalds-félög eins og FL Group og Milestone frammi fyrir því að þurfa að endur-fjármagna lán sem tekin höfðu verið hjá erlendum fjármálafyrirtækjum. Vegna væntanlegrar lægðar á fjár-málamörkuðum og sökum þess að þá þegar voru blikur á lofti í íslensku efnahagslífi kipptu erlend fjármála-fyrirtæki að sér höndum og neituðu að endurnýja lánasamninga við ís-lensk félög.
Þetta gerðist til að mynda með Milestone sem þurfti að endurfjár-magna lán hjá fjárfestingarbank-anum Morgan Stanley í ársbyrjun 2008. Vegna þess að Milestone gat ekki fengið meira að láni frá Glitni var búið til félag sem hét Svartháf-ur og var í eigu föður eigenda Miles-tone. Þetta félag endurlánaði féð frá Glitni strax til félags í eigu Milestone sem gat þar með greitt af láninu. Og Svartháfur lánaði Vafningi sömuleið-is.
Hugsanlegt er, þegar litið er til orða Bjarna, að ástæðan fyrir stofn-un Vafnings hafi verið tengd ein-hverjum slíkum snúningi af hálfu Milestone og jafnvel N1-manna.
Bjarni óbeinn hluthafi í
Vafningi
Aðspurður hvort hann hafi ekki sjálf-ur átt hlutabréf í BNT á þessum tíma segir Bjarni: „Jú, en það er langt síð-an... Ekki eftir þennan tíma. Ég seldi þennan eignarhluta minn í BNT á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008, í síð-
asta lagi í mars 2008. En þetta hefur ekkert með hlutabréfin mín í BNT að gera,“ segir Bjarni sem var því sam-kvæmt þessu hluthafi í BNT þegar Vafningur keypti fasteignaverkefnið í Makaó. „En hvað kemur mér það við þó BNT eigi lítinn hlut í þessu fé-lagi?“ segir Bjarni sem var, eins og áður segir, stjórnarformaður í BNT og N1 þegar Vafningur keypti fast-eignaverkefnið í Makaó.
Bjarni: Ekkert eiginfjárframlagBjarni segir að hlutabréfaeign sín í BNT hafi ekki haft neitt með fast-eignaverkefnið í Makaó að gera. „Hversu mikið heldur þú að BNT hafi sett inn í þetta félag af eignum sínum? Hefur þú einhverja hugmynd um það?“ segir Bjarni. „Ætli þessi viðskipti hafi því haft einhver áhrif á verðmæti þess eignarhlutar sem ég átti í BNT á þeim tíma?“
Hann segir að mikilvægt sé að halda því til haga að félögin hafi ekki endilega verið að kaupa sig inn í Vafning: „Þú segir að þeir hafi ver-ið að kaupa sig inn í þetta? Hvern-ig keyptu þeir sig inn í þetta? Með hvaða eiginfjárframlagi? Hverjir eru að hætta einhverju til?“ segir Bjarni. Blaðamaður segir við Bjarna að hann átti sig á því að ólíklegt sé að þeir hafi lagt eitthvert eigið fé fram í viðskiptunum: „Það er ólíklegt að þið hafið lagt eitthvað fram í þessum við-skiptum,“ segir blaðamaður en svar Bjarna við þeirri fullyrðingu er „ein-mitt“. Blaðamaður segir við Bjarna að það sé augljóst að viðskipti Vafnings hafi verið fjármögnuð að langmestu leyti með lánum frá Glitni, Sjóvá og Svartháfi. „Já, en það allt saman er eitthvað sem ég var bara aldrei neitt inni í,“ segir Bjarni en jafnframt er ljóst að hluthafar Vafnings hefðu get-að grætt fúlgur fjár á turninum ef við-skiptin hefðu gengið sem skyldi - þá hefðu þeir fengið mikið fyrir lítið.
Bjarni segist ekki vita hversu miklu BNT, Hafsilfur og Hrómund-ur hafi tapað á viðskiptunum í Vafn-ingi en samkvæmt því sem segir hér að framan getur það ekki hafa ver-ið mjög mikið þó ábyrgð félaganna á fasteignaverkefni Vafnings sé aug-ljóslega töluverð, hvort sem þeir vissu af því eða ekki, þar sem þeir áttu stóran hlut í því.
Stóra spurningin sem stendur eftir varðandi aðkomu Bjarna Bene-diktssonar að fasteignaverkefninu í Makaó er hversu mikið hann vissi um það. Bjarni segist ekki hafa vitað að Vafningur hefði fjárfest í Makaó fyrr en nokkrum mánuðum eftir að það átti sér stað, þrátt fyrir að hann hafi verið stjórnformaður í hluthafa félagsins og að hann hafi veðsett hlutabréf þess.
Vafningur til að endurfjármagna lán Bjarni segir að tilgangurinn með stofnun Vafnings hafi meðal annars verið að endurfjármagna lán og að hann hafi ekki vitað að félagið hefði keypt háhýsi á Makaó fyrir fimm milljarða króna sama dag og hann veðsetti hlutabréf í því.
Sérlega glæsilegir
úr satin og blúndu
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178, 105 Rvk
sími 551-3366 www.misty.is
Teg. Emma - “Push up” í B,C,D
skálum á kr. 6.885
Teg. Emma - “Push up” í
D,DD,E,F,FF skálum á kr. 6.885,-
Teg.Emma
Teg. Emma
Opið virka daga kl. 10-18
lau 12.des kl. 10-16
lau 19.des kl. 10-18
Þorláksmessa kl. 10-20
days30
OXYTARM
OXYTARM
30 days
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman
120 töflu skammtur
Betri apótekin og Maður lifandi
www.sologheilsa.is.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM Í boði
eru 60-150 töflu skammtar
&
DETOX
2 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
Íslenskir úrsmiðir eru komnir í hár
saman. Ástæðan er nýtt aldamóta-
úr Michelsen-feðganna sem kynnt
hefur verið, meðal annars á press-
an.is, sem alíslensk hönnun en sam-
keppnisaðilarnir vísa því á bug.
Í byrjun mánaðarins settu feðg-
arnir aldamótaúrið á markað og hafa
lagt í talsverða kynningu undanfarið
á úrunum glæsilegu. Úrið var hann-
að í tilefni af aldarafmæli fyrirtæk-
isins. Feðgarnir eru sagðir eiga all-
an heiðurinn af úrunum sem eru
mekanísk og því þarf ekki að skipta
um rafhlöður í þeim. Útlit þeirra er
óneitanlega glæsilegt en það skyggir
á að til eru svissnesk úr sem eru afar
lík, bæði úrið sjálft og umbúðirnar.
Aðrir úrsmiðir eru æfir yfir markaðs-
herferð Michelsen-feðganna og telja
feðgana selja úrin undir fölskum for-
merkjum.
Ekki íslensk
Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmiður
segir íslensku úrin nákvæmlega þau
sömu og erlend úr svissneskra fram-
leiðenda. Hann telur að ekki aðeins
sé hönnun úranna stolin heldur
einnig auglýsingaherferð fyrirtækis-
ins. „Þetta er svo lélegt að það hálfa
væri nóg. Í raun eru þetta ekkert
annað en vörusvik því þetta er alls
ekki ný íslensk lína. Það er greinilegt
að þeir hafa beðið erlendu framleið-
endurna að setja nafnið sitt á skíf-
una. Eina íslenska framlagið í þess-
ari vinnu virðist vera að verðmerkja
úrin, ég get ekki séð annað. Þetta
er ekki íslensk hönnun og þetta eru
ekki íslensk úr,“ segir Gilbert.
Óskar Óskarsson úrsmíðameist-
ari tekur í sama streng og segir ljóst
að hér séu ekki íslensk úr á ferðinni.
Hann gefur lítið fyrir vinnubrögð
fyrrum meistara síns í úrsmíði. „Mér
finnst þetta nú ekki íslensk hönn-
un. Það lítur út fyrir að þeirra nafn
hafi einfaldlega verið sett á erlenda
hönnun og það er ekki mikið ís-
lenskt, að mínu mati. Þetta er svip-
að því og ég myndi flytja inn erlenda
bifreið og setja síðan bara skjald-
armerkið á hana og kalla hana ís-
lenska. Þetta eru vinnubrögð sem ég
myndi ekki viðhafa,“ segir Óskar.
Stolnar fjaðrir
Axel Eiríksson, formaður Úrsmiða-
félags Íslands, segir fjölda óánægðra
félagsmanna og úraáhugamanna
hafa kvartað til félagsins. Honum
finnst dapurt að úrin séu kynnt sem
íslensk hönnun. „Mér sýnist sem svo
að bent hafi verið á önnur úr sem séu
sláandi lík þessum. Við úrsmiðir höf-
um vissulega í gegnum árin selt úr
með nöfnunum okkar á en þá höfum
við ekki getað eignað okkur hönnun-
ina. En í þessu tilviki virðast þeir aug-
lýsa úrin sem sína hönnun og það lít-
ur út fyrir að vera ekki rétt. Ef maður
selur úr sem eru til annars staðar
sem sína hönnun þá er það ekkert
annað en hugverkastuldur. Slíkt lít
ég alvarlegum augum og mér finnst
það frekar dapurt ef menn skreyta sig
með stolnum fjöðrum. Það hjálpar
greininni ekki neitt,“ segir Axel.
Róbert Michelsen er undrandi
yfir gagnrýninni og útilokar alfarið
að hönnunin sé stolin að utan heldur
sé hún unnin í samstarfi við erlenda
framleiðendur. Hann segist ekki hafa
séð þessa nýju línu samstarfsaðilans
sem líkist þeirra eigin. „Gagnrýnin
kemur mér mjög á óvart. Að vissu
leyti er þetta okkar íslenska hönnun
en ekki að öllu leyti. Þannig segjum
við að úrið sé byggt á okkar hönn-
un. Ég hef hins vegar ekki séð þetta
úr þeirra sem telst líkt okkar, það
hlýtur að vera glæný lína því ég hef
hvergi séð neitt líkt þessu. Við erum
alls ekki að herma eftir neinum held-
ur unnum við úrið í samráði,“ segir
Róbert.
Truflar ekki
Aðspurður segir Gilbert mikla
óánægju að finna innan úrsmiða-
stéttarinnar. Hann telur allt eins
líklegt að hann leiti til samkeppn-
isyfirvalda vegna málsins. „Það er
ömurlegt að hlusta á þeirra mark-
aðssetningu um íslenska hönnun.
Aðrir úrsmiðir hrista hreinlega haus-
inn. Mælirinn hjá mér fylltist eigin-
lega þegar ég sá nákvæmlega eins
auglýsingar og okkar. Þetta er sláandi
líkt. Ég er alls ekki sáttur. Sjálfur hef
ég lagt gríðarlega vinnu í það undan-
farin ár að hanna eigin línu og leggja
stórfé, fleiri milljónir, í markaðssetn-
ingu. Vinnubrögð þeirra eru léleg og
hallærislegt að þeir séu að monta sig
af þessum úrum. Satt að segja finnst
mér þeir ekki geta gert svona lagað,“
segir Gilbert.
Róbert ítrekar að hann kann-
ist ekki við úr sem líti svipað út og
nýja afmælisúrið. „Þessi umræða
hefur algjörlega farið fram hjá mér
og nú þarf ég að finna mynd af
þessu úri sem telst líkt okkar. Þó að
útlitið kunni að vera svipað þá er
þetta ekki sama úrið og þetta trufl-
ar okkur ekkert. Við kynnum ekki
úrið okkar sem íslenskt heldur að
það sé byggt á íslenskri hönnun.
Við viljum vera heiðarlegir,“ segir
Róbert.
ÚRSMIÐIR Í STRÍÐI
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Afmælisúrið Á fullveldisdaginn var afmælisúrið frumsýnt hjá Michelsen-feðgum.
Nokkuð líkt Hér má sjá úr frá svissneska úraframleiðandanum August Raymond.
Gilbert á góðri stundu Gilbert
er óhress með markaðssetningu á
úrum frá Michelsen. Hér er hann
með Leikstjóranum Eli Roth.
„Þetta er ekki íslensk
hönnun og þetta eru
ekki íslensk úr.“