Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 96
n „Þetta var nú meira bullið. Það er
ömurlegt að þurfa að svara þessu.
Það er bara góð vinátta okkar á milli
og ég elska hann ekkert meira en
Margréti,“ segir Birgitta Jónsdótt-
ir alþingismaður og hlær dátt. Í hin-
um vinsæla dálki Heyrt í tímarit-
inu Séð og Heyrt er greint frá því
að heitt sé á milli Birgittu og Þórs
Saari, þingmanna
Hreyfingarinnar,
og jafnvel sé talað
um ást á Alþingi
í því sambandi.
„Það er svo mik-
ið um að vera
núna hér í söl-
um Alþing-
is að maður
nennir
varla að
svara
svona,“
segir
Birg-
itta.
Ekki rauð jól hjá RÚV!
FRÉTTASKOT 512 70 70
DV BORGAR 2.500 KRÓNUR FYRIR FRÉTTASKOT SEM LEIÐIR TIL FRÉTTAR. FYRIR FRÉTTASKOT SEM VERÐUR
AÐALFRÉTT Á FORSÍÐU GREIÐAST 25.000 KRÓNUR. FYRIR BESTA FRÉTTASKOT VIKUNNAR GREIÐAST ALLT
AÐ 50.000 KRÓNUR. ALLS ERU GREIDDAR 100.000 KRÓNUR FYRIR BESTA FRÉTTASKOT HVERS MÁNAÐAR.
Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, skil-
aði jólagjöf bandaríska sendiráðsins
sem barst á fréttastofu RÚV á dög-
unum. Bandaríska sendiráðið sendi
nokkrar rauðvínsflöskur, stílaðar á
Óðin sjálfan og einstaka fréttamenn.
„Þetta var jólagjöf frá sendiráðinu.
Ég þáði jólakveðjuna með þökkum,
en mér fannst ástæðulaust að þiggja
frá þeim rauðvín. Mér finnst það ekki
viðkunnanlegur siður að senda ein-
staka starfsmönnum vínflöskur,“ segir
Óðinn í samtali við DV.
Aðspurður hvaða fréttamenn hafi
fengið vínflösku frá sendiráðinu svar-
ar hann: „ Satt best að segja fór ég ekki
yfir það. Ekki er ólíklegt að þarna hafi
verið gjafir til þeirra sem hafa verið í
samskiptum við sendiráðið, til dæm-
is þeirra sem eru í erlendum fréttum.
Ég skrifaði þetta ekki niður og vil þess
vegna ekki tilgreina einstök nöfn. Ég
lét einfaldlega skila þessu til baka
með skriflegum þökkum og góðri
jólakveðju til starfsmanna ameríska
sendiráðsins.
Tilgangurinn var ekki að sýna van-
þakklæti eða einhverja efnislega af-
stöðu til gefandans. Mér þykir ein-
faldlega óþarfi og ekki við hæfi að
senda einstaka starfsmönnum frétta-
stofunnar vínflöskur með jólakveðj-
um. Ég býst við að öðrum fjölmiðla-
mönnum hafi líka verið sendar svona
jólagjafir.“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, frétta-
stjóri Stöðvar 2, kannast ekki við að
slík gjöf hafi borist inn á borð til hans.
„Ég myndi ekki þiggja hana, heldur
myndi ég gefa vínið til Mæðrastyrks-
nefndar. Ég hef aldrei mætt í veislur
hjá bandaríska sendiráðinu, ætli þeir
séu ekki hættir að senda mér svona,“
segir Óskar. valgeir@dv.is
ELSKAR EKKI
SAARI
Hreint lostæti
úr íslenskri náttúru...
Fjal la lamb hf . • Röndinni 3 • 670 Kópasker i • Sími 465-2140 • www.f ja l la lamb. is
1•
H
æsta einkun
m
atgæ›ing
a
D
V
Hólsfjalla-
hangikjötið
Hæsta einkun í smökkun DV
2006-2007
Hæsta einkun í smökkun DV
2009
Bandaríska sendiráðið gaf völdum fréttamönnum rauðvínsflösku í jólagjöf:
SKILAÐI RAUÐVÍNI FRÁ SENDIRÁÐI
n Bíókóngurinn Árni Samúelsson
í Sambíóunum stakk sér inn á sér-
staka forsýningu kvikmyndarinn-
ar Bjarnfreðarson þegar myndinni
var rennt í gegn fyrir gagnrýnendur
og fulltrúa fjölmiðla á mánudag-
inn. Árni veit yfirleitt hvað hann
syngur þegar kemur að vinsælum
bíómyndum og sagði viðstöddum
að þarna væri örugglega mynd árs-
ins á ferðinni. Fáum blandast svo
sem hugur um að þessum lokakafla
Nætur-, Dag- og Fangavaktarþátt-
anna sé beðið með eftirvæntingu,
enda hafa vinsældir sjónvarpsþátt-
anna verið með eindæmum. Árni
var svo viss í sinni sök að hann sló
um sig með þekktum
frösum úr þáttunum
eftir að hann hafði
spáð bíómyndinni
velgengni. „Eigum
við að ræða
það eitt-
hvað?“
ÁRNI VEÐJAR
Á BJARNFREÐARSON
n Bóksala fyrir jólin virðist ganga vel
og dæmi um að bækur séu að fara
í þriðju og fjórðu prentun. Þannig
mun ævisaga Vigdísar Finnboga-
dóttur vera á leið í þriðju prentun
og stefnir í að verða langmest selda
ævisaga ársins. Áhugi og kraftur
Vigdísar, sem verður áttræð í apríl, í
jólabókaflóðinu hefur vakið athygli
en hún er auglýst í þremur áritun-
um um helgina. Öllu minna fer fyrir
Arnaldi Indriðasyni sem, líkt og
fyrri ár, heldur sig að mestu til hlés,
sem ekki virðist
koma að sök
því bók hans
Svörtuloft
stefnir í að
verða meðal
mest seldu
bóka hans frá
upphafi.
VIGDÍS Á
FLEYGIFERÐ