Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR Hetja ársins 2009 Hetja ársins hjá DV verður nú valin í annað sinn. Lesendur eru beðnir umað senda nafn eða nöfn þeirra sem þeim finnst verðugir þess að bera nafnbótina Hetja ársins 2009 fyrir eitthvað sem viðkomandi afrekuðu á árinu sem nú er senn á enda. Allir Íslendingar og þeir sem búa hér á landi koma til greina í valinu og er öllum frjálst að senda inn tilnefningar. Ef viðkomandi hefur ekki komist í fréttirnar fyrir afrek sitt verður að fylgja með lýsing á því hvers konar hetjudáð hann/hún drýgði á árinu. Ritstjórn DV velur hetjuna og tekur þar mið af innsendum tilnefningum, án þess þó að vera bundin af því að velja hetjuna úr hópi tilnefndra. Sendu tillögu á hetjaarsins@dv.is Tilnefningar sendist á netfangið hetjaarsins@dv.is eða á Birtíngur útgáfufélag, Lynghálsi 5, 110 Rvk, merkt „Hetja ársins“. Skilafrestur er til miðnættis 21. desember. Niðurstaða kosningarinnar verður kunngjörð í kringum áramótin. Fjölmargir af þeim einstaklingum sem lýst hafa kröfum í þrotabú eign- arhaldsfélagsins Milestone keyptu skuldabréf og víxla Milestone af eignastýringardeild Glitnis. Almennt er um að ræða kröfur um upphæðir sem nema nokkrum milljónum og allt upp í 30 milljónir króna. Eigend- ur Milestone, Karl og Steingrímur Wernerssynir, voru stórir hluthafar í Glitni í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt International. Starfsmenn eignastýringardeild- arinnar keyptu skuldabréfin og víxl- ana fyrir hönd viðskiptavinanna, enda er það svo að tilgangur eigna- stýringar er að ávaxta fjármuni við- skiptavinanna. Viðskiptavinirnir þurftu því almennt ekki að gefa leyfi sitt fyrir kaupunum á bréfunum í Milestone. Samkvæmt heimildum DV fjárfesti eignastýringardeildin aðallega í bréfum Milestone fyrir hönd viðskiptavinanna um haustið 2007 og síðar. Þá var Milestone komið í nokkra rekstrarerfiðleika og þurfti að verða sér út um fjármagn, meðal annars til að standa skil á erlendum lánum. Það var meðal annars í þeim tilgangi sem eignarhaldsfélagið Svartháfur var notað til að leppa milljarðalán- veitingu frá Glitni til Milestone í árs- byrjun 2008. Reiður viðskiptavinur Einn af þeim einstaklingum sem lýst hafa kröfu í þrotabú Milestone segist vera svo reiður út í starfsmenn eigna- stýringardeildarinnar að hann geti eiginlega ekki rætt um málið. „Ég get eiginlega ekki talað um þetta því ég verð svo reiður. Ég get ekki talað um þetta án þess að fá flog. Ég er hrika- lega reiður út í þá,“ segir viðskipta- vinurinn fyrrverandi. Hann segist ekki hafa fengið að vita að starfsmenn eignastýringar- innar hefðu keypt skuldabréf Mile- stone fyrir sig fyrr en nokkrum mánuðum eftir að þeir gerðu það. Viðskiptavinurinn tapaði á annan tug milljóna fyrir vikið. Aðspurður hvenær eignastýringin hafi fjárfest í skuldabréfinu segir viðskiptavinur- inn að hann geti ekkert sagt til um það þar sem eignastýringin hafi séð um viðskiptin. „Ég veit ekki hvenær þetta var og ég get ekki svarað þér... Það hvarflaði ekki að mér að ég ætti eitthvað í Milestone,“ segir viðskipta- vinurinn fyrrverandi. Viðskiptavinurinn segist að- spurður ekki hafa fengið neinar skýr- ingar á því frá eignastýringunni af hverju skuldabréf Milestone hafi ver- ið keypt fyrir hans hönd. „Skýring- ar? Allir sem ég talaði við þarna eru hættir... Ég er reiður út í þá af því að þetta átti ekki að geta gerst. Þetta er alveg rosalegt... En þetta er líka svo- lítið klikk hjá fólki eins og mér sem fylgist ekki betur með. Maður treystir sínum banka og eignastýringin segir manni hvað maður á að gera. En svo plata þeir mann bara. Ég veitti þeim þetta umboð og þá getur maður væntanlega engum um kennt nema sjálfum sér,“ segir viðskiptavinur- inn fyrrverandi sem undirstrikar að hann hafi einungis viljað að fjárfest yrði fyrir sig á öruggan hátt. Annar viðskiptavinur, sem ger- ir nærri 10 milljóna kröfu, segist vera fúll út í eignastýringuna því hann hafi beðið um að fjárfest yrði á öruggan hátt en ekki áhættusam- an. „Ég treysti bankanum bara fyr- ir þessu, eignastýringunni það er að segja,“ segir viðskiptavinurinn sem segist vera fúll út í bankann vegna fjárfestingarinnar. Hann segir að starfsmenn eignastýringarinnar hafi hugsanlega átt að vita það á þessum tíma að kaup á bréfum í Milestone væru ekki örugg fjárfesting. Bað en var ekki sinnt Enn annar viðskiptavinur sem DV hefur rætt við segist hafa beðið eignastýringuna um að selja víxil- inn úr eignasafni sínu. Hann segir að eignastýringin hafi haft umboð til að fjárfesta fyrir hann og að víxillinn í Milestone hafi verið keyptur án hans vitneskju. Hann komst svo að því nokkrum mánuðum síðar að keypt hefðu verið bréf í Milestone fyrir á þriðja tug milljóna króna. Þegar viðskiptavinurinn fyrrver- andi bað um að víxillinn yrði seld- ur á haustmánuðum 2007 fékk hann síðar þau svör að enginn kaupandi hefði fundist að víxlinum. Hann sat því uppi með hann fram að hruni ís- lenska bankakerfisins í fyrrahaust og töpuðust peningarnir. Athygli vekur að vextirnir á víxli mannsins voru tæp 17 prósent en vextirnir í peningamarkaðssjóðum Glitnis, til að mynda Sjóði 9, voru 15,5 prósent. Munurinn á vöxtunum var því ekki mikill en áhættan af víx- il- og skuldabréfaviðskiptunum var margfalt meiri enda tapaði það öll- um þeim fjármunum sem notaðir Fyrrverandi viðskiptavinir eignastýringar Glitnis eru reiðir starfsmönnum bankans vegna fjárfestinga í Milestone. Nokkrir viðskiptavinir töpuðu tugum milljóna af sparnaði sínum. Viðskiptavinir segjast ekki hafa vitað að fjárfest hefði verið fyrir þá í Milestone fyrr en löngu síðar. Milestone var komið í rekstrarerf- iðleika þegar fjárfestingarnar áttu sér stað. Yfirmaður hjá Milestone hefur unnið náið með starfsmanni eignastýringarinnar. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is „ÉG ER HRIKALEGA REIÐUR ÚT Í ÞÁ“ Óánægja með fjárfestingu í Milestone Nokkrir af fyrrverandi viðskiptavinum eignastýringar Glitnis, sem lýst hafa kröfum í þrotabú Milestone, eru reiðir út í starfsmenn eignastýringar bankans fyrir að hafa fjárfest fyrir þeirra hönd í víxlum og skuldabréf- um Milestone. Eigendur Milestone, Karl og Steingrímur Wernerssynir, voru stórir hluthafar í Glitni í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt International. „Ég veit ekki hvenær þetta var og ég get ekki svarað þér... Það hvarflaði ekki að mér að ég ætti eitthvað í Milestone.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.