Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
Tiger Woods hefur ekki margt til að
gleðast yfir þessa dagana, en þrátt
fyrir hneykslið sem nú umlykur hann
er ekki vert að horfa fram hjá þeim
sigrum sem hann státar af eftir tíu
ára tímabil sem einn fremsti íþrótta-
maður heims.
Tiger Woods hefur unnið sextíu
og fjögur mót, þeirra á meðal tólf
stórmót. Hann hefur hampað verð-
launagrip í öllum heimsálfum og er
í fjórða sæti yfir bestu kylfinga sög-
unnar.
Með þetta að leiðarljósi var
Woods kjörinn íþróttamaður ára-
tugarins af meðlimum The Associ-
ated Press-fréttaveitunnar, og var við
kjörið horft til frammistöðu Woods á
íþróttavellinum en ekki afreka hans á
rúmbríkinni.
56 af 142
Tiger Woods hlaut fimmtíu og sex
atkvæði af eitt hundrað fjörutíu og
tveimur sem ritstjórnir bandarískra
dagblaða, sem aðild eiga að AP,
greiddu. Meira en helmingi atkvæða
var skilað inn eftir 27. nóvember, en
kvöld þess dags varðaði upphafið að
skammargöngu Woods.
Hjólreiðakappinn Lance Arm-
strong varð í öðru sæti með 33 at-
kvæði og tennisleikarinn Roger Fed-
erer hreppti þriðja sætið með tuttugu
og fimm atkvæði og koma þeir ekki
meira við sögu hér.
Tiger Woods, sem hefur ekki sést
á almannafæri síðan hann lenti í
óhappinu við heimili sitt í lok nóv-
ember, hefur, þegar þetta er skrifað,
ekki tjáð sig um viðurkenninguna.
Vinir í raun
Þeir eru fleiri sem ekki hyggjast snúa
baki við Woods. Dúbaí, í Samein-
uðu arabísku furstadæmunum, hef-
ur verið í fréttum undanfarið vegna
erfiðleika í efnahagslífinu, en sam-
kvæmt frétt AP hyggjast viðskiptafé-
lagar Tigers Woods þar í landi ekki
varpa fyrir róða áformum um gerð
golfvallar sem bæri nafn Woods,
þrátt fyrir erfiðleika furstadæmisins
og þann skugga sem nú hvílir yfir
Woods.
Fyrirtækið sem stendur að baki
„The Tiger Woods Dubai“-verkefn-
inu, sem snýr bæði að fasteignum og
gerð golfvallar, sendi frá sér tilkynn-
ingu á miðvikudaginn þar sem sagði
að það ætlaði að standa við þá skuld-
bindingu að klára fyrsta golfvöllinn
sem Tiger Woods hefur hannað sjálf-
ur.
Fyrirtækið er hluti af Dubai Hold-
ing-samsteypunni sem er í eigu em-
írsins Mohammeds bin Rashid Al
Maktoum.
Sjálfur sagði Tiger Woods, í viðtali
við AP í júní, að verkefnið væri ekki í
hans höndum.
Ástkona til fimm ára
Á vefsíðu New York Post er vitnað í
„vel staðsettan“ heimildarmann sem
sagði að Tiger Woods óttaðist að Elin
Nordegren, eiginkona hans, myndi
skilja við hann og fylla líf hans eymd
með því að flytja til Svíþjóðar með
börn þeirra tvö.
„Hann sér allt hrynja í kringum
sig. Ferilinn, fjölskylduna,“ er haft
eftir áðurnefndum heimildarmanni.
Eins og það sé ekki nóg þá sagði
sami heimildarmaður að Woods ótt-
aðist að tvær ást-
konur til viðbót-
ar, að minnsta
kosti, gæfu sig
fram. Ótti Tig-
ers Woods var
ekki ástæðulaus
því, samkvæmt
frétt NYP, líkt
og samkvæmt
beiðni var
hulunni svipt
af einni ást-
konu til við-
bótar, þeirri
fjórtándu
samkvæmt
fréttinni, og
var þar komin
„Theresa Rog-
ers, barmmik-
il, ljóshærð, 48
ára móðir og
fitnessfrík frá
Wellington,
Flórída“. Sam-
kvæmt fréttinni er Theresa elsta ást-
kona Tigers bæði með tilliti til aldurs
og lengdar ástarsambands þeirra.
Þau hafa átt í „heitu sambandi“ um
fimm ára skeið, um allt
land, bæði áður og eftir
að Tiger og Elin gengu í
hjónaband.
Stefnir á skilnað
Elin Nordegren mun sam-
kvæmt nýjustu tíðindum
hafa sett sig í samband
við háttskrifaðan skilnað-
arlögfræðing og hyggst tryggja sér
hálfan milljarð af auði Woods vegna
ítrekaðra hjúskaparbrota hans.
Í tímaritinu People er vitnað
í heimildarmann, náinn Elinu,
sem er ómyrkur í máli hvað varð-
ar fyrirætlanir hennar. „Hún ætl-
ar að yfirgefa Tiger [...] Hún hefur
gert upp hug sinn. Þetta er eng-
in spurning – hann mun aldrei
breytast,“ sagði heimildarmað-
urinn.
Enn einn heimildarmaður
nákominn Elinu, sagði frétta-
stofu MSNBC að Elin myndi
upplýsa og opinbera skilnað
hjónanna eftir jólin. „Fyrirgefn-
ing er ekki handan við hornið,“
sagði heimildarmaðurinn.
Líkist föður sínum
Hegðun Tigers hefur ekki kom-
ið Dinu Parr, kærustu Tigers
Woods úr menntaskóla, á óvart
og sagði hún í viðtali við E! News að
hann fetaði einfaldlega í fótspor föð-
ur síns. „Hann hringdi vælandi og
sagði: „Pabbi er með annarri konu,“
og var um megn að segja meir,“ sagði
Parr að Tiger hefði gert á sínum
yngri árum. „Honum var svo mikið
niðri fyrir og ég reyndi bara að vera
til staðar fyrir hann og hlusta,“ sagði
Dina Parr.
Ef eitthvað er að marka frásögn
vinar Rachel Uchitel, sem fyrst var
nefnd til sögunnar sem ástkona Tig-
ers, er hann ekki eins illa haldinn og
af er látið. „Tiger hefur sent henni
SMS-skilaboð og reynt að finna tíma
svo þau gætu hist aftur. Hann er ekki
einu sinni sleginn! [...] Rachel sagði
að hann hefði sagt sér að hann ætl-
aði að skilja við konuna sína henn-
ar vegna, að hann þarfnaðist þess að
vera hjá henni [Rachel],“ sagði vinur
Rachel.
Ólíkar áherskur
Ef litið er fram hjá orðsendingum
sem Tiger Woods hefur sett á vef-
síðu sína hefur hvorki sést né heyrst
til hans frá því í lok nóvember. Hann
hefur á vefsíðu sinni lýst yfir iðrun
og lofað bót og betrun. Hann hefur
tilkynnt að hann hyggist taka frí frá
golfiðkun til að sinna fjölskyldumál-
um.
Ef fréttir af skilnaðaráformum El-
inar eru réttar, og hún flytur til Sví-
þjóðar, til Fåglaro-eyjar þar sem hún
hefur fest kaup á húsi, fyrir fullt og
allt með börn þeirra tvö þá er víst
að Tiger fær nægan tíma til að íhuga
gjörðir sínar og velta fyrir sér afleið-
ingum þeirra.
Ef honum verður um megn að
gera það í einrúmi þá er mögulegt,
samkvæmt síðustu talningu, að fjór-
tán kvenmenn séu reiðubúnir að
lána honum öxl að gráta við.
Í lífi Tigers Woods skiptast á skin og
skúrir. Hann var kjörinn íþróttamaður
áratugarins af AP, golfvöllur með hans
nafni verður gerður í Dúbaí, ástkonur
hans eru fjórtán samkvæmt síðustu taln-
ingu og konan hans hyggur á skilnað.
WOODS FÆR
VIÐURKENNINGU
„Hann hringdi vælandi
og sagði: „Pabbi er með
annarri konu,“ og var
um megn að segja meir,“
sagði Parr að Tiger hefði
gert á sínum yngri árum.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Stúrinn á svip Íþróttamaður
ársins hjá AP. MYND AFP
Fåglaro í Svíþjóð Mögulegt
framtíðarheimili Elinar Nordegren,
eiginkonu Tigers. MYND AFP
Holly Sampson Klámmynda-
leikkonur, kokteilgengilbeinur
og nektardansarar eru á meðal
ástkvenna kylfingsins.
MYND SPLASH NEWS
Joslyn James Ástkonur
Tigers sem hafa gefið sig fram
eru nú fjórtán talsins.
MYND JOSLYNJAMESXXX.COM