Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 78
78 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009
NAFN OG ALDUR?
„Ólafur Arnalds, 23 ára.“
ATVINNA?
„Að semja og spila tónlist. Samt aðallega að svara
tölvupósti frá umboðsmönnum og eiga símtöl við
ýmsa aðila.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Ég er bara svona þefa-, smella-, bless-gaur.“
FJÖLDI BARNA?
„Enginn.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Já, ég átti hamstur sem hét Pattólfur, hann dó. Svo
átti ég þrjá froska. Einn stóran og tvo litla og stóri
var alltaf að misþyrma litlu froskunum kynferðis-
lega. Það var ekki gaman að horfa upp á það eða
hlusta ... Hverjum hefði dottið það í hug að froskar
stynji?“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Kimono og Bloodgroup á Sódómu Reykjavík, það
var geðveikt.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Nei.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Munda, úlpan mín. Hún er svo hlý og svo lít ég út
eins og geimkúreki í henni, sem er auðvitað geð-
veikt.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Nei, enda kannski ekki mikil þörf á. Ég er 60 kíló.
En ég er í detoxi núna eftir viku af ógeðsmat í hljóð-
verinu.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆL-
UM?
„Nei. Og ætla ekki að gera það fyrr en ég hef ein-
hverja lausn á málunum sem ég veit að virkar.
Nenni ekki að standa þarna og segja bara „nei“ og
hafa svo ekkert betra til málanna að leggja.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Nei, ekki beint. En ég trúi því að dauðinn sé ekki
endalok alls. Orka hverfur aldrei, hún færist bara
til.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ
HAFA HALDIÐ UPP Á?
„Skammast mín ekki fyrir minn tónlistarsmekk.
Setti meira að segja cover-útgáfu sem ég gerði af
Miley Cyrus-lagi á netið.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Who’s got the love - The XX remix.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Tónleikanna minna 22. desember í Salnum.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFTUR?
„Garden State, því hún lætur manni líða yndislega
með lífið.“
AFREK VIKUNNAR?
„Vann um 17 tíma á dag í að mixa næstu plötu
mína. Kláraði næstum því.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Já, það var kjaftæði.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Umm ... já ...“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Nei, get ekki séð tilganginn með því.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Markmiðin sem maður setur sér, vinirnir/fjöl-
skyldan og hamingjan.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Dabba kóng.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST
VILJA HITTA OG AF HVERJU?
„Arvo Part og spjalla um tónlist.“
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ?
„Já, einhvern tíma þegar ég var yngri. Það var drasl.
Ég skrifa samt stundum texta, þeir eru skárri.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Ég er ekki mikill prakkari í mér, man ekki eftir
neinu. Er samt með eitt frábært í undirbúningi.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST?
„Will Smith.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Ég er með óeðlilega liðuga putta, þú vilt ekki sjá það.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
„Sumt, já. Áfengi mætti hins vegar alveg banna, það
eru fá vímuefni hættulegri en áfengi.“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Sumarbústaður fjölskyldunnar við Álftavatn.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA?
„Bursta tennurnar.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Að hætta að horfa á fréttirnar, hætta að benda
fingrum og byrja að hugsa jákvætt.“
Ólafur Arnalds tónlistarmaður sendi nýlega frá sér plötuna
Found Songs. Hann verður með útgáfutónleika í Salnum í
Kópavogi þriðjudaginn 22. desember. Uppáhaldskvikmynd
Ólafs er Garden State og hann sér ekki tilgang í því að Ísland
gangi í Evrópusambandið. Hann vill að landsmenn hætti að
horfa á fréttirnar og fari að hugsa jákvætt.
VISSI EKKI AÐ
FROSKAR GÆTU STUNIÐ
Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft
og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir
upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best.
Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem
fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr
líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox).
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð,
auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af
birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger.
BETULIC - BIRKILAUF
www.birkiaska.is
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 2.h. • Reykjavík
Sími 568 3920 og 897 1715
Borðtennisborð
Fanntófell sérhæfir sig i framleiðslu á borðplötum,
sólbekkjum og matarborðum eftir óskum hvers og eins.
Fanntófell hf | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | S. 587-6688
www.fanntofell.is | fanntofell@fanntofell.is
FANNTÓFELL
borðplötur - sólbekkir
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455