Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 82
Heitir bitar í janúar
82 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009
ADRIANO
FLAMENGO
n Eitt sinn allra besti framherji
heims tapaði baráttunni fyrir
djammguðinum svo um mun-
ar. Adriarno státar af mjög góðu
markaskori hvar sem hann hefur
spilað og einnig með landsliðinu.
Hann hefur verið að leika með
Flamengo í heimalandinu en gert
mönnum það ljóst víðs vegar um
heiminn að hann er klár í Evrópu-
boltann aftur. Roma, AC Milan og
West Ham eru öll sögð fylgjast náið
með þessum gífurlega sterka og
hæfileikaríka framherja. Geri hann
bara eins og félagi sinn Ronaldin-
ho, djammi bara á fimmtudögum,
ætti hann að eiga framtíð fyrir sér
hvar sem er.
DIEGO FORLAN
ATLETICO MADRID
n Félagi Forlan í framlínunni hjá Atletico, Sergio
Aguero, er líklega heitari biti en hann er mjög
traustur sínu liði og ætlar að vera hjá því út tíma-
bilið. Forlan hefur lítið verið í því að gefa þannig
yfirlýsingar og staða Atletico í deildinni í ár
lofar ekki góðu. Afar ólíklegt er að það komist
í meistaradeildina, hvað þá Evrópukeppni.
Forlan hefur raðað inn mörkun-
um á Spáni og hefur David
Moyes, knattspyrnustjóri Ev-
erton, fylgst náið með Úr-
úgvæanum. Honum
gekki ekki svo vel á
Englandi síð-
ast en það
var þá.
NANI
MANCHESTER
UNITED
n Potúgalinn helskorni hefur lítið
sem ekkert gert á Old Trafford. Sir
Alex Ferguson hefur sagt að hann
ætli ekki að selja Nani í janúar en
það væri svo sem ekki í fyrsta skipt-
ið sem Skotinn segði eitt og gerði
annað. Ítölsk lið hafa borið víurnar í
strákinn, þá sérstaklega spútniklið
meistaradeildarinnar í ár, Fiorent-
ina. Þá hafa öll stóru liðin í Portúgal
áhuga á að fá hann. Þau aftur á móti
hafa ekki efni á honum. Þar yrði lík-
lega um lánssamning að ræða en Sir
Alex Ferguson tekur það vart í mál.
Sjálfur vill Nani vera áfram á Old
Trafford en hann þarf þá að fara að
gera miklu, miklu betur.
Leikmannamarkaðurinn opnar
í janúar með öllum þeim sögu-
sögnum sem honum fylgja. Lið-
in keppast ætíð um að styrkja
sig fyrir seinni hluta tímabilsins
og alltaf er fylgst með feitustu
bitunum. Nokkrir afar góðir
leikmenn gætu mögulega fært
sig um set í byrjun næsta árs.
KLAAS-JAN
HUNTELAAR
AC MILAN
n Markaskorarinn ógurlegi hefur vart sést frá því
hann skipti frá Ajax til Real Madrid í janúar. Hann
staldraði stutt við í Madríd og flutti sig til yfir til
annars stórliðs, AC Milan, í sumar. Þar hefur hann
einnig gert lítið annað en að verma tréverkið
og er orðinn pirraður á því. Pato, Marco Borri-
ello og Filipo Inzaghi eru allir á undan honum í
goggunarröðinni. Mjög líklegt er að hann fari frá
Milan í janúar og gæti verið að hann fari heim til
Hollands. Ekki þó aftur til Ajax, heldur til Steve
McLaren og hans manna í FC Twente en þar er
verið að byggja upp sterkt lið fyrir framtíðina.
LUCA TONI
FC BAYERN
n Ítalinn hávaxni mun kveðja þýsku risana í janúar. Það
er nokkuð ljóst. Hann var stór hluti af liðinu sem endur-
heimti þýska meistaratitilinn og hefur staðið sig vel hjá
FC Bayern en nýráðinn þjálfari liðsins, Louis van Gaal,
hefur engan áhuga á að nota hann. Sérstaklega ekki
eftir að þeim félögunum lenti saman um daginn. Mörg
stórlið í Evrópu eru á eftir framherjanum en talið er að
Jose Mourinho hjá Inter sé hvað áhugasamastur um að
klófesta Toni.
EIÐUR SMÁRI
AS MONACO
n Besti knattspyrnumaður Íslands hefur ekkert
getað hjá Mónakó og var hreinlega tekinn út úr
hópnum í vikunni fyrir slaka frammistöðu. Eitt-
hvað sem hefur aldrei gerst á hans ferli. Hvort það
er einfaldlega franski boltinn sem hann ekki getur
er erfitt að segja til um. Það vita þó allir hvaða
hæfileikum Eiður býr yfir og ættu
mörg ensk lið að hugsa sér
gott til glóðarinnar í
maí. Á Englandi er þó
ekkert skattaskjól og
þarf Eiður að borga
niður gamlar
syndir. Það gæti
spilað inn í.
LUIS SUAREZ
AJAX
n Einn allra heitasti bitinn á markaðinum í dag.
Suarez er svoleiðis að raða inn mörkunum með
Ajax í Hollandi. Liðinu gengur þó ekki nægi-
lega vel, er í þriðja sæti, heilum ellefu stigum á
eftir forystusauðunum í FC Twente. Mörg lið
eru á höttunum á eftir Suarez, meðal annars
Manchester United og Chelsea. Það verður erfitt
fyrir strákinn að neita stórliðunum í janúar komi
kallið þar sem hollenski meistaratitiilinn virðist
úr augsýn enn eitt árið.
RUUD VAN NISTELROOY
REAL MADRID
n Það er enginn í heiminum betri að sparka boltanum inn í markið heldur en Ruud van Nistelrooy.
Markaskorari sem er fyrir löngu búinn að sanna gildi sitt. Markakóngur í þremur löndum. Hann hefur
verið mikið meiddur að undanförnu en er óðum að jafna sig. Nistelrooy á sér vart viðreisnar von hjá
Real Madrid og er leynt og ljóst að vonast til þess að komast frá félaginu í janúar. Liverpool og Arsenal
hafa bæði borið víurnar í hann, Wenger hefur þó sagt hann útbrunninn og gamlan. Það er allvega ljóst
að það lið sem fær Nistelrooy mun skora mörk. Það er margsannað.