Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
1. Hvers vegna er stutt milli hláturs og gráts?
Sérfræðingar standa á gati en benda þó á að hlátur og grátur verði við svipaðar aðstæður. „Bæði þessi
viðbrögð, hlátur og grátur, eiga sér stað við tilfinningalega örvun, áhrifin eru langvarandi og það er
ekki svo auðvelt að slökkva á þessum tilfinningum sem brjótast fram,“ segir sálfræðingurinn Robert
R. Provine, höfundur bókarinnar Laughter: A Scientific Investigation. „Við tengjum grát við sorg en tár
geta brotist fram við hinar ýmsu kringumstæður; við sársauka, sorg og í sumum tilvikum mikla gleði.
Það er erfitt að útskýra þetta en svona höfum við einfaldlega þróast,“ segir augnlæknirinn Lee Duffner í
Miami. Á það ber einnig að líta að hlátur og grátur er ástand sem losar um spennu. Fólki, sem hlær eða
grætur, líður þess vegna oftar en ekki betur á eftir.
2. Hvers vegna grætur maður
þegar maður sker lauk?
„Rokgjarnar olíur sem gefa lauknum einkennandi
bragð hafa í sér stofn lífrænna sameinda sem eru
þekktar sem amínósýrubrennisteinsoxíð. Ef þú
skerð, flysjar eða stappar lauk, leysir laukvefurinn
lífhvata (ensím) sem nefnast allínasar sem breyta
þessum lífrænu sameindum í sýrur með brenni-
steini. Þær umbreytast strax í syn-propanethial-
S-oxíð sem gufar upp og framkallar tár,“ að því er
segir á Vísindavefnum. „Myndun þess nær hámarki
eftir 30 sekúndur frá því að laukurinn er skorinn
og henni lýkur eftir 5 mínútur eða svo,“ segir þar
enn fremur. Góð ráð til að minnka táraflóðið eru til
dæmis að hita laukinn fyrst eða skera hann undir
rennandi vatni.
3. Hvers vegna
brakar í fingrum?
Sumir venja sig á það að láta braka í fingrum sínum, ökklum eða öðrum liðamótum. En hvers vegna
brakar? Á Vísindavefnum segir að þegar við látum braka í liðnum séum við að færa hann úr eðlilegri
stöðu og teygja á liðpokanum. Við það aukist rúmmál hans og þrýstingur minnki. „Í liðvökvanum er
uppleyst gas, meðal annars koltvísýringur. Þegar þrýstingurinn minnkar losnar gasið úr vökvanum og
myndar loftbólur sem fylla upp í holrúmið sem skapaðist við aukið rúmmál liðpokans. Þegar liðurinn
gengur í samt lag aftur vex þrýstingurinn og loftbólurnar falla saman. Talið er að hljóðið sem heyrist
þegar við látum smella í liðum myndist þegar gasið losnar úr vökvanum og/eða þegar holrúmin falla
saman.“
4. Hvers vegna fær maður gæsahúð?
Fólk fær gæsahúð þegar því er kalt eða þegar það upplifir sterkar tilfinningar, til dæmis hræðslu. En
hvað gerist? „Þegar kalt er í veðri reynir líkaminn að tapa sem minnstum varma. Ein leið er að láta
líkamshárin rísa því þannig skapast einangrun. Þetta viðbragð kemur sér vel fyrir loðin dýr en gagnast
okkur mönnunum lítið,“ segir á Vísindavefnum. Þar segir einnig að þetta viðbragð gegni mikilvægu
hlutverki hjá loðnum spendýrum. Hárin á ketti rísa þegar hann er hræddur. Þannig sýnist hann stærri
en ella og ólíklegra er að á hann verði ráðist.
5. Hvað er fjörfiskur?
Fjörfiskur kallast það ástand þegar augnlokið titrar án þess að nokkuð fáist við ráðið. Ástæðan eru
endurteknir ósjálfráðir samdrættir í augnlokinu, sem geta staðið yfir í nokkra klukkutíma og allt upp
í nokkra daga. Á Vísindavefnum segir að lítið sé vitað um uppruna fjörfisks. Í flestum tilvikum megi
rekja ástæðuna til þreytu, álags og andlegs álags. Ekki sé til nein meðferð við fjörfiski en stundum
geti hjálpað að leggja kaldan bakstur á augnlokið ef kippirnir verða óþægilegir. Fjörfiskur er sagður
alveg hættulaus. Til séu sjúkdómar sem lýsi sér með kippum í vöðvum í kringum augun en þeir séu
sjaldgæfir.
6. Hvers vegna er
manni alltaf kalt?
Undirstúka heilans stjórnar líkamshita fólks. Hún
stjórnar því að líkaminn losar hita í heitu umhverfi
en heldur í hitann þegar það er kalt. Járnskortur
getur valdið því að fólki er iðulega kalt. Hár
blóðþrýstingur, inntaka lyfja og fleiri ástæður
geta reyndar einnig leitt til þess að okkur verður
kalt. Latur skjaldkirtill leiðir af sér hæg efnaskipti
sem getur þýtt að líkaminn heldur hita ekki
nægjanlega vel. Þá getur neysla tóbaks þrengt
blóðrásarkerfið sem getur meðal annars leitt til
kulda á höndum og fótum.
7. Eru eyrun alltaf að vaxa?
Já, sjáanlegur hluti eyrnanna vex alla ævi.
Hlutfallslega eru eyrun stærst þegar við fæðumst.
Þau stækka hratt fram að 10 ára aldri en þá hægir á
vextinum. Bresk rannsókn leiddi í ljós að frá 10 ára
aldri stækka eyrun að jafnaði um 0,22 millimetra á
ári. Aðrar rannsóknir benda til að eyrnasnepillinn
lengist og stækki eftir því sem árin líða en karlar
hafa stærri eyrnasnepla en konur. Hins vegar vaxa
eyrnagöngin ekki, en þau eru mótuð af brjóski og
svo beinabyggingu þegar innar er komið.
8. Fæðast öll börn án frekna?
Börn geta vitanlega fæðst með fæðingarbletti.
Það er hins vegar rétt að engin börn fæðast með
freknur, sem húðin framleiðir (með miklu litarefni)
sem viðbrögð við því þegar sólin skín á húðina.
Ungum börnum, með viðkvæma húð, sem eru
mikið úti í sólinni er hættara við að fá húðkrabba-
mein seinna á lífsleiðinni. „Freknur sem rauðhærð
börn fá gjarnan í andlitið eru ekki fallegar, þær
eru merki um sólarskaða,“ segir húðsjúkdóma-
fræðingurinn Robin Ashinoff. „Börn og fullorðnir,
sem hættir við að fá freknur, ættu að fara í skoðun
reglulega og nota sterka sólarvörn,“ segir Robin.
9. Hvað er náladofi?
Við fáum stundum náladofa ef við höfum verið
lengi í óheppilegri stellingu. „Það sem gerist er að
við þrýsting hætta taugarnar að geta flutt tauga-
boð og sé um skyntaugar að ræða fær maður dofa
eða náladofa en ef hreyfitaugar eiga í hlut verða
viðkomandi vöðvar máttlausir. Flestir taugastofnar
á útlimum eru blandaðir og innihalda bæði skyn-
taugar og hreyfitaugar,“ segir á Vísindavefnum en
þessi óþægindi hverfa yfirleitt á nokkrum mínútum
eftir að breytt hefur verið um stellingu.
10. Hvað er sinadráttur?
Sinadráttur, eða kröftugur samdráttur í vöðva,
getur verið afar sársaukafullur. Algengt er að
sinadráttur verði til dæmis í kálfa í svefni eða eftir
mikla vinnu eða áreynslu. Vökvatap eykur hættu á
sinadrætti, sem er algengur hjá íþróttamönnum.
Besta ráðið við sinadrætti er að teygja á viðkom-
andi vöðva, varlega en ákveðið og þá hverfa óþæg-
indin fljótt, að því er fram kemur á Vísindavefnum.
Nudd eða heitt bað getur einnig verið gott. Til að
koma í veg fyrir sinadrátt er mikilvægt að forðast
vökvatap, teygja reglulega fyrir og eftir æfingar
og gæta þess að ofreyna sig ekki. Leitið læknis ef
sinadráttur verður viðvarandi vandamál.
10UNDUR MANNSLÍKAMANS
DV tók saman tíu líkamleg einkenni eða
viðbrögð sem hendir okkur flest í daglegu lífi.
Byggt á greininni The Odd Body Explained eftir Ben Cramer
og svörum á Vísindavefnum.
baldur@dv.is