Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 4
GRAÐFOLARÆKT ÓLAFS BER ÁVÖXT SANDKORN n Eiður Guðnason sendiherra situr ekki hjá í samfélagsum- ræðunni. Hann skrifaði grein í Fréttablaðið um rangláta skipt- ingu Lóttópeninga sem renna aðeins til íþróttahreyf- ingarinnar. Þá mætti hann í Bítið á Bylgjunni og tókst þar á við Ólaf Rafnsson, forseta ÍSÍ. Gagnrýni Eiðs snýr að því að hreyfingin kaupi leikmenn að utan. Þá talaði hann um vínveit- ingar hreyfingarinnar við lítinn fögnuð Ólafs sem krafði hann um röksemdir. n Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans, er brattur eftir að endurfjármögn- un er lokið. Banki hans er sá ill- ræmdasti á landinu eftir ruglið með Icesave sem kostar þjóðar- búið formúu. Svo er að sjá sem sjálfstraust bankastjórans, sem smaug úr bankaráðinu í starfið, hafi snaraukist. Sjálfum sér til upphafningar splæsti hann í heilsíðuauglýsingar í blöðum með sínu eigin ávarpi. Athyglis- þörfin er augljós. Vonir standa til að skipt verði um bankastjóra í haust. n Katrín Júlíusdóttir iðnað- arráðherra er í hálfgerðum bobba vegna Verne Holding sem hyggst reisa gagnaver á Reykjanesi. Útrásarvík- ingurinn Björgólfur Thor Björ- gólfsson fer með stóran eignarhluta í félaginu í gegnum félag sitt, Nova tor. Skærasta stjarna Kast- ljóssins, Helgi Seljan, gekk á ráðherrann í þætti sínum með þá spurningu hvort eðlilegt væri að semja við einn af höfundum Icesave. Katrín varð vandræða- leg en sagðist síðan hafa orð annarra hluthafa fyrir því að hlutur Björg ólfs myndi minnka. 4 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR Þrír graðfolar í eigu auðmannsins Ól- afs Ólafssonar, sem oftast er kenndur við Samskip, komust á verðlaunapall á nýlegri ungfolasýningu. Hestarnir eru allir ungir að árum en útlit er fyr- ir að þeir eigi framtíðina fyrir sér. Ungfolasýningin var haldin snemma í desember í Söðulsholti, Eyja- og Miklaholtshreppi, þar sem á þriðja tug graðfola öttu kappi hver við annan. Veitt voru verðlaun fyrir hest í efsta sæti í hverjum aldurflokki og svo stigahæstu hrossin í heildina. Af hrossunum sem komust í sæti á verðlaunapalli, eiga Ólafur og eigin- kona hans, Ingibjörg Kristjánsdótt- ir, þrjá unga og efnilega graðfola. Folarnir heita Egill, Hylur og Skalla- grímur og koma allir frá sveitasetri fjölskyldunnar að Miðhrauni. Myndarlegt stóð Einar Ólafsson, eigandi Hestamið- stöðvarinnar Söðulsholts, í Eyja- og Miklaholtshreppi, staðfestir að folar Ólafs hafi komið vel út úr ungfola- sýningunni á dögunum. Hann seg- ir folana koma úr rækt auðmanns- ins. „Já, það passar að Ólafur á orðið marga glæsilega graðfola. Í gegnum árin hefur hann verið að rækta fola og nú er það að skila árangri. Þetta eru því ekki keyptir folar en safnið er ágætt. Það er séð um hestana fyrir þau,“ segir Einar. Hestastóð fjölskyldu Ólafs telur á þriðja tug dýra þar sem meðal ann- ars er að finna efnilegu graðfolana þrjá. Þar að auki á fjölskyldan nokkra reiðhesta og nærri tug folaldsmera. Undan merunum eiga hjónin nokk- ur ótamin folöld, þar af nokkra grað- fola, samkvæmt upplýsingum frá Ingibjörgu og samanlagt eru dýrin á þriðja tug. Hún segir öll hrossin á úti- gangi og að nágranni sjái um þau. Skiptast á Eyjólfur Gísli Garðarsson sér um dag- lega umhirðu hestastóðs hjónanna og treystir sér ekki til að slá heildar- tölu á fjölda hesta í stóðinu. Hann fór með efnilegu folana þrjá á sýn- inguna og hefði viljað betri árangur. „Ætli þetta séu ekki einir fimm fol- ar þarna núna sem eru efnilegir. Svo sjáum við það betur eftir tamningu því þetta eru bara litlir folar í dag. Þar fyrir utan eru þau með reiðhesta sem ég sé um en það eru fleiri líka sem sjá um hrossin. Við skiptumst á með þetta,“ segir Eyjólfur Gísli. „Að svo stöddu eru ekki endilega mikil verðmæti í folunum því þeir eru ungir en í folum geta legið mik- il verðmæti. Ég fór með folana á sýn- inguna en var auðvitað ekki nógu ánægður því ég vildi vinna allt. Þrír þeirra frá Miðhrauni lentu í efstu sætum og það er ágætlega af sér vik- ið.“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Auðmaðurinn Ólafur Ólafsson, oftast kenndur við Samskip, á myndarlegt hrossa- stóð á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi. Meðal þeirra eru ungir og efnilegir folar sem komust nokkrir á verðlaunapall á hrossasýningu á dögunum. Myndarlegt Miðhraun Ólafur og Ingibjörg eiga fallegt sveitasetur þar sem hugsað er um hesta þeirra. Efnilegur foli Skallagrímur frá Miðhrauni lenti í öðru sæti af tveggja vetra folum. Hann er undan Sæ frá Bakkakoti og Fjöður frá Bjarnanesi. Verðlaunafolar á sýningunni Veturgamlir folar 1. Ábóti frá Söðulsholti, rauðhöttóttur blesóttur M: Sunna frá Akri F: Álfur frá Selfossi Eig. Söðulsholt ehf. 2. Hylur frá Miðhrauni, rauðskjóttur M: Fjöður frá Bjarnarnesi F: Álfur frá Selfossi. Eig. Ólafur Ólafsson. 3. Glasi frá Söðulsholti Móálóttur glaseygður M: Blæja frá Svignaskarði F: Hrymur frá Hofi Eig. Söðulsholt ehf. Tveggja vetra folar 1. Dynkur frá Borgarlandi Fífilbleikur M: Freydís frá Borgarlandi F: Dynur frá Hvammi Eig. Ásta Sigurðardóttir og Kolbrún Grétarsdóttir. 2. Skallagrímur frá Miðhrauni rauður M: Fjöður frá Bjarnanesi F: Sær frá Bakkakoti Eig. Ólafur Ólafsson. 3. Egill frá Miðhrauni, rauður M: Spá frá Hafsteins- stöðum F: Þóroddur frá Þóroddsstöðum Eig. Ólafur Ólafsson. HEIMILD: WWW.SODULSHOLT.IS Kleppsvegi 48 | 104 Reykjavík Sími: 698 6738 | lp-verk.is LP-verk ehf sérhæfir sig í viðhaldi á fasteignum úti sem inni. Flísalagnir - Múrviðgerðir lekaviðgerðir - steypuviðgerðir trésmíðavinna - málningavinna blikksmíði - pípulagnir eða raflagnir Dómsmálaráðuneytið samþykkti 10. desember framsalsbeiðni brasilískra yfirvalda í máli Hosmanys Ramos. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Héraðsdóms Reykjavíkur. Enginn framsalssamningur er á milli Íslands og Brasilíu. Hosmany Ramos er eft- irlýstur af brasilískum yfirvöldum fyrir mannrán. Komið hefur fram að þótt enginn samningur sé á milli ríkj- anna fari jafnvel svo að Ramos verði sendur til Frakklands, en talið er að það hafi verið fyrsta Schengenland- ið sem brasilíski læknirinn kom til á ferð sinni til Íslands. Í samtali við DV segir Ramos að honum finnist mál sitt þróast á skrýt- inn hátt. „Íslensk stjórnvöld hegða sér eins og varðhundur fyrir brasilísk stjórnvöld. Ég hef engan glæp fram- ið hér og engan dóm fengið. Samt er mér haldið föngnum hér. Mannrétt- indi mín hafa ekki verið virt á marg- an hátt. Þið eruð skandínavísk þjóð og hér mætti ætla að mannréttindi væru virt. Ég veit ekki hvort um bak- tjaldamakk sé að ræða. Kannski ætla þeir að skipta á mér og Íslendingun- um þremur sem eru í haldi í Brasilíu.“ „Ég kom hingað frá Noregi. Ekki Frakklandi. Margir sem hafa verið í sömu stöðu og ég, komu hingað frá Noregi og voru sendir þangað aftur. Ég á son í Noregi og barnabarn,“ seg- ir Ramos og skilur ekki hvers vegna hann ætti að vera sendur til Frakk- lands. Hosmany Ramos segir að ef mál- ið haldi áfram að þróast honum í óhag muni hann mótmæla. „Í næstu viku fer ég fyrir dómarann aftur og ég ætla að vera hreinskilinn við hann: Ef réttindi mín verða ekki virt í samræmi við mannréttindasátt- mála, ætla ég í hungurverkfall. Það er eina leiðin til þess að mótmæla ákvörðuninni. Lögmaðurinn minn hér, sem er ungur og greindur mað- ur, segist ekki skilja hvernig á máli mínu er tekið. Rök hans hafi ekki verið tekin gild.“ helgihrafn@dv.is Ósáttur við úrskurðinn Ramos ætlar að beita óyndisúrræðum til að mótmæla úrskurðinum. Framsal brasilíska fangans í Hegningarhúsinu samþykkt: Ramos í hungurverkfall ÁRÉTTING Vegna bragðkönnunar DV á hamborgarhryggjum, sem birtist í síðasta blaði, skal áréttað að hryggurinn sem keyptur var í Fjarðarkaupum var innpakkað- ur FK-hamborgarhryggur. Í kjöt- borðinu fæst hins vegar Fjarð- arkaupshamborgarhryggurinn, sem framleiddur er af Kjöthús- inu. Hann var því miður ekki með í könnuninni að þessu sinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.