Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
Samkvæmt heimildum DV var ein
af ástæðunum fyrir stofnun eign-
arhaldsfélagsins Vafnings í febrúar
2008, og kaupum þess á eignum dótt-
urfélaga Sjóvár, sú að eignarhaldsfé-
lagið Þáttur International fékk veðkall
vegna láns frá fjárfestingarbankanum
Morgan Stanley. Eignirnar sem keypt-
ar voru eru lúxusturninn í Makaó og
breski fjárfestingarsjóðurinn KCAJ.
Þáttur tók lánið frá Morgan Stanley
á fyrri hluta árs 2007 til að fjármagna
kaupin á hlutabréfum í Glitni og var
félagið í raun stofnað gagngert til þess,
samkvæmt heimildum DV. Veðið fyrir
láninu frá Morgan Stanley var í bréf-
um félagsins í Glitni. Eigendur Þáttar,
þeir Karl og Steingrímur Wernerssyn-
ir og Einar og Benedikt Sveinssynir,
stóðu þá frammi fyrir því að þurfa að
endurgreiða lánið eða missa bréfin
sín í Glitni.
Til þess að geta fengið lánafyrir-
greiðslu frá Glitni til að standa í skil-
um við Morgan Stanley þurftu eig-
endur Þáttar International að koma
sér upp eignum sem hægt væri að
veðsetja fyrir láninu. Í þessu augna-
miði var eignarhaldsfélagið Vafning-
ur búið til. Vafningur átti þá bæði fjár-
festingarverkefnið í Makaó sem og
breska fjárfestingarsjóðinn en geng-
ið var frá þeim viðskiptum sama dag
og Bjarni Benediktsson veðsetur
hlutabréf félagsins hjá Glitni, þann 8.
febrúar 2008.
Þetta stemmir við frásögn Bjarna
sjálfs sem sagði í viðtali við DV í síð-
ustu viku: „Menn eru að endurfjár-
magna lán og það er það sem er aðal-
ástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í
Vafningi,“ sagði Bjarni.
Áttu mörg félög saman
Vafningur var einungis eitt af fjöl-
mörgum félögum sem Wernerssyn-
ir og Sveinssynir áttu saman. Annað
félag var BNT, móðurfélag olíurisans
N1, en Máttur er hluthafi í félaginu.
Milestone átti að minnsta kosti einn
stjórnarmann í BNT þegar Bjarni
Benediktsson var stjórnarformaður
þess en það var Óskar Garðarsson,
starfsmaður Milestone, sem einn-
ig sat í stjórn KCAJ og fleiri félögum
tengdum Milestone.
Sömuleiðis áttu þeir Werners- og
Sveinssynir saman hið áðurnefnda
félag Þátt International, en það var
í gegnum sömu eignarhaldsfélög -
SJ2, Skeggja og Mátt - og héldu utan
um eign þeirra á fasteignaverkefninu
í Makaó og KCAJ. Þáttur Internation-
al hélt utan um hlutabréfaeign þeirra
bræðra í Glitni en félagið átti um 7
prósenta hlut í bankanum. Í heild-
ina eru þetta því allmörg félög sem
þeir Werners- og Sveinssynir komu
að saman, að minnsta kosti: BNT, N1,
Vafningur, Máttur, Þáttur Internation-
al og Skeggi.
Vafningur flæktur
í Svartháfsmálið
Lánið til Vafnings sem notað var til
að endurgreiða Morgan Stanley kom
svo frá eignarhaldsfélaginu Svart-
háfi, félagi í eigu föður Karls og
Steingríms Wernerssona, sem
stofnað var gagngert til að
leppa lán frá Glitni og til fé-
laga í eigu þeirra og Sveins-
sona. Ástæðan fyrir stofnun
Svartháfs er sú að félög í
eigu Karls og Steingríms
voru búin að fá svo
mikið lánað frá Glitni
að ekki mátti lána
þeim meira vegna
reglna FME um þak
á lánveitingum frá
fjármálafyrirtækj-
um til einstakra aðila.
Á eina stjórnarfundinum sem vit-
að er til að haldinn hafi verið í Svart-
háfi var ákveðið að sækja um tæplega
200 milljóna evra lán frá Glitni, eða
sem nemur rúmum 35 milljörð-
um króna á núverandi gengi.
50 milljónir evra af láninu
frá Svartháfi runnu beint
til Vafnings sem þá gat
notað lánið til að endur-
greiða hluta láns Þáttar
International hjá Morgan
Stanley. Það var þetta
lán sem Bjarni Bene-
diktsson var að tryggja
þegar hann veðsetti
hlutabréf BNT, Hróm-
undar og Hafsilfurs hjá
Glitni í febrúar í fyrra.
Bjarni vildi hins veg-
ar ekki að ræða um það í
síðustu viku fyr-
ir hverju hann hefði veðsett bréfin í
Vafningi: „Ég ætla bara ekkert að tjá
mig um það,“ sagði hann.
Endurgreiðsla á lánum til
Morgan Stanley
Meginhlutinn af
eftirstöðv-
um láns-
ins til
Svart-
háfs,
135 milljónir evra, runnu svo til eign-
arhaldsfélagsins Racon Holding en
þeir fjármunir voru notaðir til að end-
urgreiða lán sem stofnað hafði verið
til við Morgan Stanley vegna kaupa
Mile stone á sænska fjármálafyrirtæk-
inu Invik & Co sem síðar var endur-
skírt Moderna. Veðkall hafði sömu-
leiðis borist til Racon frá Morgan
Stanley vegna þessa láns.
Þannig má sjá að
Svartháfur
þjónaði
því
VEÐSETNING BJARNA TIL AÐ
BJARGA GLITNISBRÉFUNUM
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Eignarhaldsfélag Benedikts og Einars
Sveinssona og Wernerssona keypti í
breska fjárfestingarsjóðnum KCAJ um
sumarið 2007. Í febrúar 2008 keypti annað
félag í þeirra eigu, Vafningur, afganginn
af hlutafé KCAJ með láni frá Sjóvá. Sama
dag veðsetti Bjarni hlutabréf félagsins.
Tilgangurinn með stofnun Vafnings var
að búa til veðhæfi til að fá lán frá Glitni til
að greiða niður lán við fjárfestingarbank-
ann Morgan Stanley sem notað hafði verið
til að kaupa hlutabréf í Glitni.
„Menn eru að endur-
fjármagna lán og það er
það sem er aðalástæðan
fyrir þátttöku þessara
félaga í Vafningi.“
Svartháfur viðriðinn
Vafning Eignarhalds-
félagið Svartháfur er
tengdur Vafningsmálinu
þar sem tilgangur
Vafnings var meðal annars
að standa í skilum við fjár-
festingarbankann Morgan
Stanley. Svartháfur veitti
Vafningi lán til þess og var
það Bjarni Benediktsson,
núverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins, sem
veðsetti hlutabréfin í
félaginu vegna þess láns.
Skrifuðu upp á kaup á KCAJ
Bræðurnir Benedikt og Einar Sveinssynir
skrifuðu upp á hlutafjáraukningu á fundi
fjárfestingarfélagsins Máttar í fyrra þar
sem ákveðið var að kaupa 12,1 prósent
hlut í breska fjárfestingarsjóðnum
KCAJ. Hálfu ári síðar bætti Vafningur við
sig 82 prósenta hlut og Bjarni, sonur
Benedikts, veðsetti bréfin í félaginu.