Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR Launauppbót til formanna stjórnar- andstöðuflokka sem nemur helmingi af þingfararkaupi, mánaðarlaunum þingmanna, er það eina sem stendur eftir af eftirlaunalögunum umdeildu sem Alþingi samþykkti skömmu fyrir jól árið 2003. Alls hafa átta formenn stjórnarandstöðuflokkanna fengið slíka launauppbót á gildistíma lag- anna en aðeins einn hefur hafnað þeim svo vitað sé. Kristinn H. Gunnarsson, fyrrver- andi þingmaður, reið fram á ritvöll- inn í vikunni og lýsti þar þeim vilja sínum að afnema launauppbótina, sem í dag nemur 260 þúsund krón- um á mánuði. „Þegar eftirlaunalög- um var breytt fyrir sex árum, svo sem frægt er, var kaup flokksformanna hækkað og er 150% af þingfarar- kaupi. Þessi kauphækkun stend- ur enn, þótt öllu öðru í breytingun- um umdeildu hafi verið kollvarpað og meira til,“ skrifaði Kristinn í að- sendri grein í Morgunblaðinu og hélt áfram: „Ekkert hefur sést til breyt- ingartillagna um þessi tvö atriði í starfskjörum formanna stjórnmála- flokkanna sem sitja á Alþingi og eru ekki ráðherrar. Líklega eru flokksfor- mennirnir sammála um það á fund- um sínum að hrófla ekki við þessum kjörum sínum. Eiga formennirnir að vera áfram stikkfrí? Hvað segja Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson? Vilja þeir vera á sér- kjörum á Alþingi?“ Umdeildar greiðslur Launauppbót formanna hefur alla tíð verið umdeild. Rökin sem flutn- ingsmenn tillögunnar beittu voru þau að með þessu væri verið að jafna aðstöðumun þeirra formanna sem væru í ríkisstjórn annars vegar og þeirra formanna sem væru í stjórn- arandstöðu hins vegar. Með öðrum orðum fól breytingin í sér að minni munur var á launum formanna inn- an og utan ríkisstjórnar. Fyrrverandi ráðherra sem DV ræddi við fyrir nokkru sagði að for- mennska í stjórnmálaflokki væri mikið starf og tiltók Steingrím J. Sig- fússon, formann Vinstri-grænna sem dæmi. Þannig hefði stjórnar- andstæðingurinn Steingrímur J. unnið mjög mikið og engu minna en ráðherrar. Samt hefði hann verið á lægri launum en formenn sem væru jafnframt ráðherrar og hefði lengst af ekki haft neinn aðstoðarmann, líkt og ráðherrar hafa. Einn flokksformaður sem situr á þingi en er ekki ráðherra hefur hafn- að formannsálaginu. Það er Margrét Tryggvadóttir, formaður Hreyfingar- innar. „Það er heilmikil vinna fólgin í því að vera formaður stjórnmálaflokks en sú vinna er ekki unnin fyrir Al- þingi heldur stjórnmálasamtökin og því er ekki eðlilegt að þingið og þar með þjóðin greiði fyrir þau störf,“ segir Margrét. Stendur eitt eftir Nú þegar sex ár eru liðin frá sam- þykkt eftirlaunalaganna á Alþingi, og tengdra mála, er launauppbót flokksformanna það eina sem enn lifir. Bættur eftirlaunaréttur ráð- herra og þingmanna hefur verið af- numinn og lögum um lífeyri þeirra breytt til samræmis við lífeyri rík- isstarfsmanna. Sömu sögu er að segja af ákvæði sem gerði ráðherr- um kleift að hefja töku eftirlauna fyrr en áður. Ákvæði um að hækka álag á laun þingmanna vegna nefndafor- mennsku og starfa sem varaforseti Alþingis náði aldrei lengra en í frum- varpið þar sem þingið hafnaði því fyrir samþykkt laganna. Öll með aðstoðarmann Allir formennirnir hafa ráðið sér að- stoðarmann. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, réð Sigurð Kára Kristjánsson í starfið. Sigurður Kári var þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í tæp sex ár en féll af þingi í kosningunum síðasta vor. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, réð Benedikt Sigurðsson sem aðstoð- armann sinn. Benedikt var áður fréttamaður Sjónvarps og talsmað- ur Kaupþings. Margrét Tryggvadótt- ir, formaður Hreyfingarinnar, réð Þórð Björn Sigurðsson sem aðstoð- armann sinn en í starfsauglýsingu var tekið fram að aðstoðarmaður- inn skyldi vinna fyrir allan þingflokk Hreyfingarinnar. Þórður Björn var áður formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Kristinn furðar sig á því, í grein sinni, að formenn stjórnmálaflokk- anna hafi aðstoðarmenn. „Fyrr á ár- inu var afnumin heimild sem lands- byggðarþingmenn höfðu nýlega fengið til þess að ráða aðstoðarmann í þriðjungsstöðu. En enn stendur heimild sem formenn stjórnmála- flokka, sem ekki eru ráðherrar, fengu á sama tíma til þess að ráða aðstoð- armann í fullt starf. Eru aðstoðar- menn flokksformanna mikilvæg- ir en aðstoðarmenn alþingismanna óþarfir?“ Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri-grænna Uppbót frá 1. janúar 2004 til 1. febrúar 2009.# Guðjón Arnar Kristjánsson Formaður Frjálslynda flokksins Uppbót frá 1. janúar 2004 til 1. maí 2009* Össur Skarphéðinsson Formaður Samfylkingarinnar Uppbót frá 1. janúar 2004 til 23. maí 2005+ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Formaður Samfylkingarinnar Uppbót frá 1. ágúst 2005 til 24. maí 2007# Guðni Ágústsson Formaður Framsóknarflokksins Uppbót frá 23. maí 2007 til 17. nóvem- ber 2008* Valgerður Sverrisdóttir Formaður Framsóknarflokksins Uppbót frá 17. nóvember til 18. janúar 2009* Bjarni Benediktsson Formaður Sjálfstæðisflokksins Uppbót frá 29. mars 2009 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Formaður Framsóknarflokksins Uppbót frá 25. apríl 2009 BÓNUS FORMANNA Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, vill hafa þriðjung mánaðarlaunanna af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Bjarna Benediktssyni. Hann er andvígur launagreiðslum frá Alþingi vegna formennsku í stjórnmálaflokkum. Einn formaður hefur hafnað launauppbótinni. VILL SÉRKJÖRIN BURT „Sú vinna er ekki unn- in fyrir Alþingi heldur stjórnmálasamtökin og því er ekki eðlilegt að þingið og þar með þjóðin greiði fyrir þau störf.“ Þegar eftirlaunalögin umdeildu voru samþykkt 2003 fengu formenn stjórnmálaflokka sem sátu á þingi en ekki í ríkisstjórn 50 prósenta launa- hækkun í formi álags á þingfarar- kaup. Breytingin hefur einkum í för með sér að draga úr launamun ráð- herra og formanna stjórnarand- stöðuflokka. Þessi hafa notið góðs af breytingunni. * Dagsetning miðast við starfslok á þingi, en við bætist réttur til biðlauna í hálft ár. + Össur tapaði formannskjöri í Samfylkingunni fyrir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. # Varð ráðherra og fór því á ráðherralaun í stað formannsuppbótar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.