Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 40
UM HELGINA
UPPLESTUR Á JÓLAGLÖGG UNIFEM Hið
árlega jólaglögg UNIFEM á Íslandi verður haldið á afmælisdegi Kvenna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna í dag, föstudaginn, frá klukkan 17 til 19.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir les úr bók sinni Á mannamáli og Páll Valsson
les úr ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur sem hann hefur ritað. Auk þess
mun hljómsveitin Pascal Pinon leika fyrir gesti. Boðið verður upp á
jólaglögg og piparkökur. Allir velkomnir.
JÓLAPAKKARALL
Á laugardaginn stendur Reykjavíkur-
borg fyrir svokölluðu Jólapakkaralli.
Fjörið byrjar klukkan 15.00 á laug-
ardag þegar tveir mjólkurpallbílar
leggja af stað frá Hlemmtorgi ann-
ars vegar og Skólavörðuholti hins
vegar. Á bílana verður safnað jóla-
pökkum handa þeim sem minnst
eiga í vændum. Fjöldi jólasveina og
skemmtikrafta taka þátt í Jólapakka-
rallinu sem gengur þannig fyrir sig
að fólk safnast saman á gangstétt-
um beggja vegna Laugavegar og
Skólavörðustígs með innpakkaðar
gjafir að eigin vali og kastar þeim svo
upp til jólasveinanna um borð, sem
síðan afhenda Mæðratyrksnefnd og
Fjölskylduhjálpinni pakkana í Jóla-
þorpinu síðar um daginn.
SÍÐASTA KVÖLD
KOKTEILPINNA
Helgi Björnsson og hljómsveit-
in hans Kokteilpinnarnir munu
koma fram í síðasta skipti fyr-
ir jól í Þjóðleikhúskjallaran-
um á laugardagskvöld. Helgi og
kokteilpinnarnir hafa í desem-
ber skemmt gestum í Kjall-
aranum öll laugardagskvöld
við frábærar undirtektir en þeir
spila sving og djæf af bestu gerð.
Þeir hverfa aftur til miðrar síð-
ustu aldar og endurvekja gamla
stemningu. „Þetta er alvöru
dansiball af gamla skólanum og
bara gaman. Fólk klæðir sig að-
eins upp á og hefur gaman af,“
segir Helgi sjálfur um kokteilboð-
ið en eflaust má búast við því að
smellurinn hans Ég finn á mér
fái einnig að hljóma þótt hann sé
nýr af nálinni.
ROKK Á
BATTERÍINU
Á laugardaginn verður alvöru rokk-
stemning á Batteríinu þegar Cliff
Clavin, Foreign Monkeys og Jeff
Who? halda tónleika. Flestir ættu að
þekkja Jeff Who? vel enda sent frá
sér fjölmarga smelli svo sem Barf-
ly. Cliff Clavin er þrælöflug rokk-
sveit sem er að leggja lokahönd á
sína fyrstu breiðskífu og Foreign
Monkeys er sveit frá Vestmannaeyj-
um sem sigraði í Músíktilraunum á
sínum tíma. Húsið er opnað klukkan
23.00 og leikar hefjast klukkan 00.00.
Herlegheitin kosta 1.000 krónur.
Tvær eðalhljómsveitir halda tónleika í Iðnó í kvöld:
Heimkomutónleikar múm og Seabear
40 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FÓKUS
„Bókin fjallar um samband mitt og
konunnar minnar. Þetta eru sjálfs-
ævisögulegir textar í níu hlutum og
fjalla lauslega um hvernig kynni tók-
ust með okkur og um tengsl okkar í
fortíðinni. Við ólumst nefnilega upp
við sömu götu í Vesturbænum, á mis-
munandi tímum þó,“ segir Sigurð-
ur Gylfi Magnússon sagnfræðingur
sem sent hefur frá sér bókina Spán-
ar kóngurinn, með undirtitlinum
„ástarsaga“. Hún geymir eins konar
örsögur og eins og Sigurður lýsir er
hann sjálfur og sambýliskona hans,
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir hagfræð-
ingur, í forgrunni sagnanna sem ná
yfir um þriggja ára tímabil sem hefst
í ágúst 2006.
„Ég hitti hana fyrst þegar hún var
nemandi í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands. Þá áttaði ég mig á hvaðan hún
kom en ég kynntist henni ekkert þá
enda lágu leiðir okkar bara saman í
tvö skipti. Svo hitti ég hana tíu árum
síðar, á Gay Pride árið 2006, þegar
hún var nýkomin úr doktorsnámi
í hagfræði í Bandaríkjunum. Sam-
band okkar byrjaði fljótlega upp úr
því.“
Sigurður Gylfi hefur reyndar áður
skrifað bók um samlíf þeirra Tinnu,
og það tvö stykki. Þær bækur voru
hins vegar einungis prentaðar í
tveimur eintökum og fyrir engan til
að lesa nema þau tvö.
Samræða um ástina
„Fyrsta bókin kom út í desember fyr-
ir þremur árum og svo kom önnur
fyrir jólin 2007. Þetta eru í rauninni
eins og bókverk því þetta var bara
fyrir okkur tvö en framleitt eins og
hefðbundnar bækur verða til,“ lýsir
Sigurður. „Þessi þriðja bók er í ein-
hvers konar samræðu við hinar tvær
og fjallar mjög nákvæmlega um okk-
ar samband og hvernig því fleygði
fram með sínum hæðum og lægðum
eins og gengur. Nýja bókin er því úr-
vinnsla á fyrri bókunum tveimur en
ólíkt þeim var hún frá upphafi hugs-
uð fyrir almenning.“
Sigurður segir það fjarstæðu að
herma upp á sig ástsýki fyrir það að
skrifa og gefa svona opinskáa ástar-
játningu út.
„Þú þarft ekki annað en að líta í
kringum þig og sjá hvernig fólk er að
fjalla um ástina og tilfinningalíf sitt
á bloggsíðum, heimasíðum og í fjöl-
mörgum bókum. Þessi bók er ekkert
óvenjuleg að því leyti. Hún fær eng-
an til þess að roðna. Hún er kannski
óvenjuleg vegna þess að ég stíg fram
með okkar persónulega líf og skýri frá
einstökum dráttum þess. Ég held að
bókin sé líka áhugaverð í sambandi
við hvernig líf fólks fléttast oft eftir
sérkennilegum leiðum og hvað það
eru margir ólíkir og jafnvel magnað-
ir þættir sem hafa áhrif á hvernig fólk
lifir lífi sínu. Þetta er einhvers kon-
ar samræða um ástina, hvernig hún
verður til og við hvaða aðstæður hún
kviknar; hvaða merkingu hún í raun
hafi fyrir einstaklinginn.“
Ekki óvenju opinskár
Aðspurður segist Sigurður ekki
óvenju opinskár um tilfinningar sín-
ar með því að gefa Spánar kónginn
út í stað þess að prenta bókina bara
fyrir sig og sambýliskonu sína. Hann
telur að það sé frekar samhengið sem
þetta er sett í sem sé óvenjulegt.
„Þú lest stöðugt sjálfsbókmennta-
verk – sjálfsævisögur, endurminn-
ingarit og samtalsbækur – þar sem
fólk játar á sig allar syndir heims-
ins. Ég hef skrifað um þetta og skipti
sögu 20. aldarinnar í tvö skeið. Ann-
ars vegar það sem ég kalla menningu
vitnisburðarins sem einkenndi fyrri
hluta aldarinnar þar sem sjálfstján-
ingin miðaðist við það að fólk stigi
fram og segði sögu sína sem væri
hluti af hinni pólitísku sögu landsins,
hluti hinnar þjóðernissinnuðu orð-
ræðu. Oft einkenndi þessar bækur
framkvæmdaáhugi fólks – stækkun
túnsins, uppbygging býlisins, fjölgun
bústofnsins og svo framvegis.
Eftir 1980 kemur svo eitthvað sem
við getum kallað menningu játning-
anna þar sem fólk opnar sig og seg-
ir oft farir sínar ekki sléttar. Þetta er
tími AA-samtakanna, 12 spora-pró-
grammanna og sálfræðimeðferð-
anna; tími sálfræðinganna, félags-
ráðgjafanna og sálgreinanna. Heill
her manna hefur þannig atvinnu af
því að draga fram sjálfstjáningu fólks
með einum eða öðrum hætti. Mín
bók verður til í þessu menningarlega
rými sem einkennir menningu játn-
inganna.“
„Auðvitað hikaði ég“
Er þá svo að skilja að þú hafir aldrei
verið hikandi við að gefa bókina út
fyrir almenna lesendur?
„Auðvitað hikaði ég og það meira
en lítið. Auðvitað veltir maður svona
ákvörðun fyrir sér af því að ég áttaði
mig á því að það væri enginn vandi
að negla í mann einmitt með þess-
um hætti, að höfundurinn væri bara
rúmlega fimmtugur ástsjúkur maður
sem hefði þörf fyrir að bera sig opin-
berlega. En þegar allt kemur til alls
þá skiptir slíkt mig bara engu máli.
Og ég held að ef fólk nennir að lesa
og skyggnast eftir efni bókarinnar
þá sé eitthvað annað þarna að finna
sem skiptir meira máli.“
Sigurður Gylfi er sjálfur sérfræð-
ingur í sjálfstjáningu fólks, í því sem
kallað hefur verið sjálfsbókmenntir.
Og hann segir öll sjálfsbókmennta-
verk þjóna tilgangi.
„Fólk er að gefa þessa hluti út,
eða skrifa og halda dagbækur, af því
að það hefur ákveðna þörf fyrir það.
Þetta er oft tilraun til að fóta sig í
heiminum, koma auga á það sem
einstaklingnum er mikilvægt og fjalla
um það á sinn einstaka hátt. Í mínu
tilfelli áttaði ég mig á því þegar ég var
að skrifa fyrstu bókina að ég hafði
komið mér í mjög óvenjulega stöðu.
Ástæðan er sú að ég vinn mikið með
handrit í starfi mínu sem sagnfræð-
ingur, en það eru alltaf persónuleg
handrit annarra. Og þú veist auð-
vitað aldrei nákvæmlega hvað eig-
inlega gerðist í lífi handritahöfunda
af því að þú ert bara með brotabrot
af sögu þeirra fyrir framan þig. En í
þetta skiptið var ég bæði gerandinn
og greinandinn. Ég var því í aðstöðu
til að meta hvernig „maðurinn“ verð-
ur til í texta – í þessu tilfelli ég – í
tengslum við framvindu ástarsam-
bands okkar Tinnu Laufeyjar,“ segir
Sigurður og bætir við að bækurnar
séu byggðar upp á dagbókarskrifum
sínum og bréfaskriftum, tölvuskeyt-
um og SMS-sendingum þeirra Tinnu
Laufeyjar.
Tattú eftir hverja bók
Myndirðu segja að það sem drífi
þig til þess að skrifa þessar bækur
sé bæði hvað þú ert ástfanginn og
áhuginn á þessari fræðilegu nálgun?
„Bæði það og að í gegnum þessa
fræðaáherslu mína og persónulegu
Ein athyglisverðasta og líklega ein sérstakasta bókin sem kemur út fyrir þessi jól er
Spánar kóngurinn eftir Sigurð Gylfa Magnússon sagnfræðing. Höfundurinn sjálfur
er þar í brennidepli en í bókinni er hann afar opinskár í lýsingum á tilfinningum sín-
um og þróun ástarsambands hans við mun yngri konu. Sigurður segir vel hugsanlegt
að bókin valdi velgju hjá einhverjum lesendum. En hann lætur það sig litlu varða.
Er ekki ástsjúkur
Ástartattú Sigurður segir tattúin
einhvers konar yfirlýsingu um varanleika
ástar sinnar til Tinnu Laufeyjar.
Hljómsveitirnar múm og Seabear
hafa verið uppteknar við tónleika-
hald í Evrópu, Norður-Ameríku og
Asíu það sem af er þessu ári. Í kvöld,
föstudagskvöld, halda sveitirnar
sameiginlega tónleika í Reykjavík þar
sem múm fagnar útgáfu breiðskífu
sinnar Sing Along to Songs that You
Don’t Know.
Það er ár og dagur síðan hljóm-
sveitin múm hélt tónleika í Reykjavík.
Ef frá eru talin þau örfáu skipti sem
sveitin hefur komið fram á tónlistar-
hátíðum, og hitað upp á endurkomu
Sykurmolanna, eru þetta fyrstu eig-
inlegu tónleikar hljómsveitarinnar á
landinu í fimm ár.
Í ágúst gaf múm út hljómplöt-
una Sing Along to Songs You Don’t
Know sem fengið hefur sérstaklega
góða dóma og viðtökur víðs vegar um
heiminn. Síðan platan kom út hefur
hljómsveitin verið á hljómleikaferða-
lagi og spilað yfir sjötíu tónleika í
Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu og
kemur til með að slá botninn í heims-
reisuna með tónleikunum í Iðnó.
Af Seabear er það að frétta að ný
plata kemur út snemma á næsta ári
en hennar hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu, eða allt frá því
að frumburður sveitarinnar, The
Ghost That Carried Us Away, kom
út árið 2007. Ný smáskífa, Lion Face
Boy / Cold Summer, var að koma út
hjá Morr Music.
Húsið er opnað klukkan 21. Miða-
verð er 2700 krónur, miðasala á midi.
is.
múm Tónleikarnir verða fyrstu
eiginlegu tónleikar múm hér á landi í
fimm ár.