Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 HELGARBLAÐ
Stjörnur landsins hafa gefið misgóðar gjafir. Sumir eru mikið í platgjöfum,
aðrir í hrekkjunum á meðan enn aðrir hafa aldrei stigið feilspor í gjafavali.
Ásgeir Kolbeinsson
- fjölmiðlamaður
Mikið fyrir
platpakka
„Ég er mjög mikið fyrir það að
búa til platpakka. Ég lærði það af
pabba sem gerði gjarnan þannig
við okkur þegar við vorum börn.
Ég hef notað þetta óspart síðan.
Ég hef þetta samt þannig að þetta
gæti vel verið gjöfin. Set til dæmis
illa lyktandi skó í pakkann ef ég er
að gefa skó. Fel þá hina raunverulegu
gjafaskó einhvers staðar annars staðar.
Ég gaf einu sinni pabba mínum gjafa-
bréf í flug og faldi það inni í DVD-hulstri
sem er ekki við hæfi
barna. Það var nokkuð
flott að sjá svipinn
á honum þegar
hann opnaði
pakkann.“
Egill Gillz
Einarsson
- rithöfundur
Gunnlaugur
í stað Gunnleifur
„Ég gaf mági mínum, Gunnleifi Gunnleifssyni, lyklakippu. Hann er náttúrlega eini
maðurinn á landinu fyrir utan son sinn, Gunnleif, sem heitir Gunnleifur og það var ekki
til lyklakippa sem stóð á Gunnleifur. En ég fann Gunnlaugur. Þannig að ég gaf honum
hana. Fannst það vera næst nafninu hans. Það fanst engum þetta fyndið þegar hann
opnaði pakkann - nema mér. Ég lá einn í krampa en landsliðsmarkverðinum stökk ekki
bros.“
Steindi Jr. - grínisti
Leðurbuxur
handa pabba
„Ég gef almennt ógeðslega lélegar gjafir. Einu
sinni á Þorláksmessu var ég búinn að fá mér
aðeins og fór að finna til gjafir. Það var búið
að vera rosalega mikið að gera og ég hafði
dregið jólagjafakaupin svakalega. Ég fann því
einhverjar gamlar leðurbuxur og bíómynd með
Shaquille O´Neil og gaf pabba mínum. Það fengu
svo allir eitthvað svipað þetta árið. Pabba leið
alveg ömurlega með þetta. Þetta var bara gert í
einhverju stressi og ég var búinn að fá mér og
svona. Ég fékk nú ekki mikið
á móti, nema aðallega
skammir.“
LEÐURBUXUR, JÓLASOKKAR
UTANLANDSFERÐ Í DÓNAHULSTRI
Geir Ólafsson - söngvari
Hálsfestin
klikkaði
„Minnisstæðust er gjöf sem ég gaf einu sinni. Það var hálsfesti
- sú fyrsta sem ég keypti handa þáverandi kærustunni.
Ég man eftir því svona vel því þegar hún
opnaði pakkann og sá öskjuna varð hún
svona himinlifandi. En svo þegar hún
opnaði öskjuna þá var hálsfestin
ekkert í. Þá sagði pabbi hennar: „Ég
vissi að það væri ekkert að marka
þennan dreng.“
Ég átti samt ábyrgðarskírteinið
þannig að þetta komst
alveg til skila – svona á
endanum.“
Kolbrún Björnsdóttir - útvarpskona
Gefur ekki
skrítnar gjafir
„Ég bara gef ekki skrítnar gjafir. Kannski hefur
einhver fengið algjört sjokk yfir gjöf frá mér
en það var ekki meiningin. Ég reyni oftast að
halda smástandard í gjöfunum. Ekki að ég
hafi nokkuð á móti fyndnum gjöfum, þvert
á móti, enda er ég mikill húmoristi og ekki
þessi leiðinlega týpa. Eitt sinn fékk ég samt
sjálf harðfisk í jólagjöf en ég er mikill aðdáandi
hans. Svo varð ég einu sinni mjög vandræðaleg
þegar ég fékk bókina Stelpnafræðarann í jólagöf.
Svona bók sem fjallaði um allt fyrir stelpur,
kynlíf og svona. Þótt það hafi verið afskaplega
vinsæl jólagjöf það árið fannst mér þetta
mjög vandræðalegt og ég faldi hana fyrir
mömmu og pabba. Ég bara man alls ekki
hver gaf mér hana.“