Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 45
HELGARBLAÐ KOMIÐ ÚT SNILLDARJÓLAGJÖF HLEÐSLUTÆKI 12V 3,6A 12V 0,8A 15% jólaafsláttur af tveimur mest seldu tækjunum SNILLDARJÓLAGJÖF HLE KI 12V 3,6A 12V 0,8A 15% jólaafsláttur af tveimur mest seldu tækjunum S I JÓLAGJÖF HL TÆ I 12V 3,6A 12V 0,8A 15% jólaafsláttur af tveimur mest seldu tækjunum SNILLDARJÓLAGJÖF HLEÐSLUTÆKI 12V 3,6A 12V 0,8A 15% jólaafsláttur af tveimur mest seldu tækjunum15% jólaafsláttur af þessum 3 gerðum. 12V 4A days30 OXYTARM OXYTARM 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman 120 töflu skammtur Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar & DETOX & Ragnar Bragason - leikstjóri Dömpað rétt fyrir jól „Ætli ég hafi ekki verið 14 ára og ég var í gagnfræðiskólanum í Mosfellsbæ. Ég átti kærustu, í mjög stuttan tíma, sem ég talaði aldrei við. Ég keypti handa henni jólagjöf - Best of Depeche Mode. Síðan fékk ég þau skilaboð daginn eftir að ég hafði keypt jólagjöfina að hún óskaði ekki eftir frekara samneyti við mig. Þetta var svona unglingaást, sem stjórnað var af vinum og kunningjum. En ég var búinn að tilkynna foreldrum mínum að ég hefði keypt jólagjöf handa kærustunni og ég setti því diskinn í pakka og gaf sjálfum mér. Ég gat ekki sagt þeim að mér hefði verið sagt upp rétt fyrir jól þannig ég gaf sjálfum mér Depeche Mode frá henni. Síðan hef ég ekki getað hlustað á þeirra tóna.“ Þórhallur Þórhallsson - leikari og grínisti Jólasokkar og klósettpappír „Einu sinni gaf ég vini mínum sokka, svona algjöra krakkasokka. Þannig var mál með vexti að eitt sinn misstum við af því að komast í Ríkið því hann fann ekki réttu sokkana. Ég sagði honum að fara bara í þeim sem hann var í en hann sagði þá vinnusokkana og tók það ekki í mál. Því ákvað ég að gefa honum þessa fínu sokka þannig hann myndi ekki missa af fleiri jafnmikilvægum hlutum. Sama ár brá hann nú líka á leik og gaf mér klósett- pappír. Honum fannst ég fara of oft á klósettið heima hjá sér og sagðist ekki hafa efni á öllum þessum pappír. Við vorum svona að stríða hvor öðrum þetta árið.“ LEÐURBUXUR, JÓLASOKKAR UTANLANDSFERÐ Í DÓNAHULSTRI Jóhanna Vigdís Arnardóttir - söng- og leikkona Alveg eins skyrtur „Við systur mín gáfum einu sinni hvor annarri nákvæm- lega eins skyrtur. Það var ekkert planað eða neitt. Við vorum saman þegar við opnuðum pakkana. Ég opnaði á undan pakkann minn og var fljót að finna pakkann hennar undir trénu. Þetta var mjög fyndið. Við höfum greinilega svipaðan smekk.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.