Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Side 62
62 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 HELGARBLAÐ
Þegar hinn ungi og hæfileikaríki Robert Downey Jr. kom fyrst fram á sjónar-sviðið í Hollywood töldu flestir að fátt gæti hindrað að frægðarsól hans risi
hátt. Leikarinn þótti velja hlutverk sín af kost-
gæfni og hafði greinilega auga fyrir bitastæð-
um og fjölbreyttum hlutverkum. Þeir voru því
margir sem veðjuðu á að honum myndi ganga
vel en það fækkaði í aðdáendahópnum þegar
leikarinn missti stjórn á lífi sínu vegna áfeng-
issýki og fíkniefnaneyslu. Þrátt fyrir erfiðleika,
langan tíma á bak við lás og slá og dvöl á hinum
og þessum meðferðarheimilum tókst Robert
að halda sér í fremstu víglínu. Hann hefur nú
tekið á sig rögg og þykir einn eftirsóknarverð-
asti leikarinn í Hollywood.
FÍKNIN TEKUR YFIR
Robert Downey Jr. fæddist í New York 4. apr-
íl 1965 inn í fjölskyldu af blönduðum uppruna.
Í föðurlegg er hann frá Írlandi og af rússnesk-
um gyðingum en móðir hans á ættir að rekja til
þýskra gyðinga og til Skotlands. Faðir hans, Ro-
bert Downey Sr., var og er óháður kvikmynda-
gerðarmaður og ferðaðist fjölskyldan mikið
vegna starfs hans. Þegar Robert var fimm ára
kom hann fyrst fram í kvikmynd föður síns,
Pound, þar sem hann lék hvolp en fór eftir það
að taka að sér lítil hlutverk í myndum pabba
gamla. Þegar hann var tíu ára bjó fjölskyldan
í London og Robert lagði stund á klassískan
ballett. Ári síðar, þegar Róbert var 11 ára, skildu
foreldrar hans og hann fluttist aftur til Banda-
ríkjanna.
Robert vissi snemma hvernig hann vildi
verja ævinni og hætti í skóla 17 ára og fluttist
til New York í von um að slá í gegn sem leik-
ari. Meðfram harkinu starfaði hann á veitinga-
stöðum, í skóbúð og sem „lifandi listaverk“ á
hinum fræga klúbbi Area í Soho. Fyrsta stóra
hlutverkið fékk hann árið 1983 þegar hann lék
í kvikmyndinni Baby It’s You en myndin fékk
litla sem enga athygli. Þegar hann var tvítug-
ur datt hann heldur betur í lukkupottinn þegar
honum bauðst að vera einn af fimm fastráðn-
um leikurum í hinum sívinsælu þáttum Satur-
day Night Live.
Eftir það fór hann að fá bitastæðari hlutverk
og árið 1987 nældi hann í hlutverk í myndinni
The Pick-Up Artist og lék kókaínfíkilinn Julian
Wells í myndinni Less Than Zero. Það hlutverk
endurspeglaði ískyggilega þá leið sem leikar-
inn fetaði í sínu persónulega lífi en Robert hef-
ur haldið því fram í viðtali að fíknin sé föður
hans að kenna þar sem hann gaf honum fyrstu
jónuna þegar hann var aðeins átta ára gamall.
INN OG ÚT ÚR FANGELSI
Robert vakti heimsathygli með frammistöðu
sinni í myndunum Chances Are árið 1989,
Soapdish 1992, Short Cuts og Richard III og
fór í kjölfarið að geta valið úr bitastæðari hlut-
verkum. Þrátt fyrir það valdi hann ekki alltaf
aðalhlutverk en einhverra hluta vegna urðu
þessir minni karakterar á endanum þeir minn-
isstæðustu eins og leikur hans í mynd Olivers
Stone, Natural Born Killers, og endurgerðinni á
Chaplin sannar. Fyrir þá síðarnefndu fékk leik-
arinn tilnefningu til Óskarsverðlauna og Gold-
en Globe-verðlauna og vann til BAFTA-verð-
launa.
Með verðlaunin á bakinu var Robert stað-
ráðinn í að segja skilið við sinn gamla lífsstíl og
einbeita sér af fullum krafti að leiklistinni og
gróf fötin sem hann hafði klæðst sem dópist-
inn Wells á táknrænan hátt í garðinum sínum
og fór upp frá því að ganga í gömlu „vintage“-
fötunum sem hann fékk að eiga úr Chaplin í
von um að þau myndu hjálpa honum að feta
réttu brautina.
Ferillinn virtist á hraðri uppleið en Bakkus
vildi ekki sleppa takinu. Árið 1996 hafði Robert
farið í þrjár áfengismeðferðir og setið inni fyrir
fíkniefnamisferli, akstur undir áhrifum áfeng-
is og lyfja sem og ólöglega byssueign. Sá dagur
rann upp að hann virtist hafa náð botninum en
þá fannst leikarinn meðvitundarlaus í barna-
rúmi á heimili nágranna síns. Sjálfur sagðist
hann hafa tekið inn of stóran skammt af ró-
andi lyfjum og einfaldlega farið húsavillt. Í það
skiptið fór lögreglan með hann beinustu leið á
meðferðarheimili. Allt kom fyrir ekki og stuttu
síðar var Robert handtekinn á ný og aftur lá leið
hans í meðferð. Stoppið þar var ekki langt því
hann lét sig fljótlega hverfa og braut þar með
skilorð. Næstu mánuði var leikarinn inn og út
úr fangelsi og meðferðum.
LAUS ÚR FANGELSI TIL AÐ LEIKA
Leikstjóri kvikmyndarinnar Two Girls and a
Guy vildi ólmur fá Robert til að leika aðalhlut-
verk myndarinnar og notaði sambönd sín svo
leikaranum yrði sleppt úr fangelsi til að taka
þátt í myndinni gegn því að mæta daglega í
lyfjapróf. Frelsunin olli miklu fjaðrafoki, reiði
og fjölmiðlafári og ekki skánaði umfjöllunin
þegar Robert reyndist ekki traustsins verður.
Innan skamms var hann aftur kominn á bak
við lás og slá og lenti í það skiptið í slagsmálum
við annan fanga og varð að leita sér læknisað-
stoðar vegna skurðar sem hann hlaut í andliti.
Á einhvern ótrúlegan hátt tókst honum
að halda frægðarsól sinni á lofti í gegnum öll
vandræðin þótt nafn hans vekti ekki lengur
jafn mikla athygli og áður. Næstu myndir voru
One Night Stand og Gingerbread Man en hlut-
ur Roberts þótti bjarga þeirri mynd frá glötun.
Þar að auki lék hann í kvikmynd föður síns sem
nefnist Hugo Pool. Árið 1999 var stórt fyrir Ro-
bert Downey Jr. en það ár komu út þrjár mynd-
ir með honum, Friends and Lovers, Bowfinger
og In Dreams. Í þeirri síðastnefndu vakti hann
verðskuldaða athygli sem síðhærði og geðveiki
barnamorðinginn Vivian Thomson. Gagnrýn-
endur héldu ekki vatni yfir frammistöðu hans
og þótti Robert hafa toppað sig með þeirri
mynd.
VALDI SJÓNVARPIÐ
Robert var á góðu róli í nokkra mánuði en árið
1999 féll hann aftur og var handtekinn og var
nú dæmdur til tólf mánaða fangelsisvistar. Við
uppkvaðninguna sagði dómarinn að leikarinn
hefði fengið næg tækifæri svo nú væri komið að
skuldadögum. Seinna sagði Robert að dvölin í
fangelsinu hefði bjargað lífi hans en fangelsis-
dvölin varð til þess að hann missti meðal ann-
ars af hlutverki í grínmyndinni Sweethearts þar
sem hann átti að leika á móti Juliu Roberts og
Billy Cristal. Dómurinn varð einnig til þess að
Robert gat ekki tekið að sér hlutverk í Hamlet
sem vinur hans, Mel Gibson, setti á svið. Árið
2000 kom þó út myndin Wonder Boys og skart-
aði hún Robert Downey Jr. í einu aðalhlutverka
en eftir þá mynd ákvað leikarinn að snúa sér að
sjónvarpinu.
Sú ákvörðun reyndist sú rétta og átti Robert
flott „kommbakk“ með þátttöku sinni í hinum
vinsælu Ally McBeal-þáttum. Þar lék hann lög-
fræðing og kærasta karakters Calistu Flockhart
og fékk fyrir vikið Golden Globe-verðlaun. En
Robert átti erfitt með að segja skilið við fyrri
lífsstíl svo framleiðandi Ally McBeal, David E.
Kelley, rak hann eftir að leikarinn hafði verið
handtekinn enn einu sinni með dóp og vopn
á sér.
SLÆR Í GEGN SEM IRON MAN
Árið 2002 náði Robert loksins tökum á fíkn
Leikarinn Robert Downey Jr. var lengi vel þekktasti óþekktarormurinn í Hollywood. Leikarinn barðist
við alvarlega áfengis- og eiturlyfjafíkn og rankaði einu sinni við sér uppi í barnarúmi í ókunnugu húsi.
Robert Downey Jr. hefur eytt stórum hluta lífs síns á bak við lás og slá en sambönd hans í Hollywood hafa
hjálpað honum að sleppa við dóma við lítinn fögnuð almennings. Þrátt fyrir erfiðleika hefur leikaranum
tekist að halda leikferli sínum gangandi en í dag er hann laus undan fíkniefnadjöflinum. Eftir kvikmynd-
ina Iron Man hefur frægðarsól hans aldrei skinið skærar.
Hæfileikaríkur
ÓÞEKKTARORMUR
Saman í sjö ár Robert Downey Jr. var í
sambandi með leikkonunni Söruh Jess-
icu Parker í sjö ár á níunda áratugnum.
Alkóhólisti Myndin er tekin af leikaranum þar
sem hann yfirgefur AA-fund.
Ástin í lífi hans Leikarinn bað Susan
á þrítugsafmælisdegi hennar en Susan
framleiddi kvikmyndina Gothika þar
sem Robert lék á móti Halle Berry.