Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 64
64 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 HELGARBLAÐ
Beach Boys var ein af merkari hljómsveitum sjöunda áratugarins og þróaðist með tímanum úr dæmi-
gerðri unglingahljómsveit í brautryðjanda popptónlistarinnar. Forsprakki sveitarinnar, Brian Wilson,
féll fyrir Rubber Soul Bítlanna, sem síðar féllu fyrir Pet Sounds Beach Boys.
GÓÐIR STRAUMAR
Lengi hefur tíðkast að bera hin-
ar ýmsu hljómsveitir saman við
fjórmenningana frá Liverpool,
The Beatles, og oftar en ekki hef-
ur hljómsveitin The Rolling Stones
verið nefnd til sögunnar í því sam-
hengi. Reyndar var þessum tveimur
hljómsveitum gjarna stillt upp sem
svörnum andstæðingum og keppi-
nautum en því fór fjarri og voru
meðlimir sveitanna í raun hinir
bestu vinir. En nóg um það.
Á áttunda áratugnum skaust
skosk hljómsveit upp í himinhvolf
frægðarinnar, í það minnsta í Evr-
ópu. Þegar þar var komið sögu
heyrðu Bítlarnir sögunni til sem
hljómsveit, en voru þó enn ákveð-
in mælistika í heimi popptónlistar
og hefur þar ekki orðið mikil breyt-
ing á. Skoska hljómsveitin sem
um ræðir hét The Bay City Rollers,
fimm ungir menn íklæddir köfl-
óttum fatnaði og með þykkbotna
skó á fótum líkt og þá þótti flott.
Þýsk unglingablöð
Í þá daga biðu unglingar spenntir
eftir nýjustu popp/unglingablöð-
unum sem voru, merkilegt nokk,
mörg hver þýsk og má nefna Bravo
og Pop sem dæmi. Mér er til efs að
íslenskir unglingar hafi verið flug-
læsir á þýskt mál, ég var það ekki,
en engu að síður voru þessi blöð
„lesin“ sundur og saman.
Í blöðunum var sumt skiljan-
legra en annað þrátt fyrir óskiljan-
lega þýsku og í þeim var oft að finna
vinsældakosningu á milli hljóm-
sveita, val um besta hljóðfæraleik-
arann hvern á sínu sviði og þar fram
eftir götunum. Að sjálfsögðu var efnt
til keppni á milli Bítlanna og Bay City
Rollers, en síðarnefnda sveitin hafði
átt tvö eða þrjú vinsæl lög, Maana og
Bye Bye Baby voru tvö þeirra ef ég
man rétt. Nú muna aðeins nokkr-
ar risaeðlur eftir Bay City Rollers og
flest það sem sveitin sendi frá sér er
fallið í gleymskunnar dá.
Baðstrandarstrákarnir
Sem fyrr segir hefur The Rolling
Stones notið þess heiðurs að vera
oftast borin saman við Bítlana, en
þó er vert að kíkja nánar á aðra
hljómsveit sem var samtíða Bítlun-
um; The Beach Boys. Í fljótu bragði
minnist ég þess ekki að Baðstrand-
arstrákarnir hafi þótt þess um-
komnir að vera valdir í vinsælda- og
hæfileikakosningum í þýsku ung-
lingablöðunum, en minnið kann að
svíkja mig hvað það varðar. Allt að
einu.
Baðstrandarstrákarnir gáfu út
sína fyrstu plötu Surfin’ Safari í októ-
berbyrjun 1962, tæpum sex mánuð-
um áður en Bítlarnir gáfu út Please
Please Me. Báðar plötur fylgdu því
lögmáli sem gilti í poppinu og voru
breiðskífur sem byggðust á tveim-
ur eða þremur smellum sem höfðu
sannað gildi sitt fyrir á tveggja laga
plötum. Annað efni var meira til
uppfyllingar, tökulög og gamlir
standardar. Þess má þó til gamans
geta að önnur plata Bítlanna, With
the Beatles, var gefin út án þess að
nokkurt lag plötunnar hefði verið
gefið út á tveggja laga plötu.
Vinaleg samkeppni
Með hverri nýrri hljómplötu þrosk-
uðust og þróuðust hljómsveitirn-
ar og 1964 gáfu Bítlarnir út A Hard
Day’s Night og voru öll lög plöt-
unnar eftir John Lennon og Paul
McCartney. Árið eftir gaf The Beach
Boys út sína áttundu breiðskífu,
The Beach Boys Today, og óhætt
að segja að á þeirri plötu hafi ver-
ið tvær hliðar í þeirra orða fyllstu
merkingu.
Fyrri hlið plötunnar innihélt
fjörug, létt popplög sem náðu mikl-
um vinsældum, en önnur hliðin
markaði upphaf þess sem koma
skyldi í tónlistarsköpun Brians Wil-
son, óformlegs leiðtoga sveitarinn-
ar. Á annarri hliðinni kveður við
nýjan tón, dekkri, þrunginn meiri
merkingu en fyrri verk sveitarinnar.
Þótt mikilvægi plötunnar hafi farið
fram hjá mörgum var hún eins kon-
ar vendipunktur hjá hljómsveitinni
og Brian Wilson persónulega, og
vísbending um það sem í vændum
var. Ekki er fráleitt að ætla að plat-
an hafi einnig varðað upphaf vina-
legrar samkeppni á milli Bítlanna
og Baðstrandarstrákanna.
Svara með Rubber Soul
Í árslok 1965 gáfu Bítlarnir úr plöt-
una Rubber Soul, sem er oft tal-
in til bestu hljómplatna sögunn-
ar, og átti sú plata, vel að merkja
bandaríska útgáfan, eftir að hafa
afdrifarík áhrif á Brian Wilson. Öll
lög voru eftir meðlimi hljómsveit-
arinnar og Harrison kynnti til sög-
unnar sítar sem hann spilaði á í lagi
Lennons, Norwegian Wood (This
Bird Has Flown) og fössbassi Pauls
í lagi Harri son Think for Yourself
var einnig nýjung. Einnig voru blik-
ur á lofti um að einfaldir textar um
hvolpaást heyrðu sögunni til hjá
fjórmenningunum frá Liverpool.
Engum blöðum er um það að
fletta að plata Beach Boys, Pet
Sounds, er afleiðing bandarísku
Rubber Soul, enda staðfesti Brian
Wilson það berum orðum: „Það
var eins og allt tilheyrði hvert öðru.
Rubber Soul var safn laga ... sem
einhvern veginn féllu saman eins
og engin plata hafði gert áður, og ég
varð mjög hrifinn. Ég sagði: „Þetta
er málið. Ég verð að gera stórkost-
lega plötu.““ Með Rubber Soul
höfðu Bítlarnir óafvitandi undirbú-
ið jarðveginn fyrir Pet Sounds, plötu
sem, líkt og Rubber Soul, er talin til
bestu hljómplatna sögunnar.
Þegar þar var komið sögu var
Brian Wilson hættur að ferðast með
hljómsveitinni til að geta einbeitt
sér að tónlistarsmíð. Á Pet Sounds
óf hann saman fjölda raddlaga,
splæsti við hljóðeffektum og óhefð-
bundnum hljóðfærum.
McCartney og Pet Sounds
Á sínum tíma seldist Pet Sounds
ekki vel en áhrif hennar hafa aldrei
verið dregin í efa. Paul McCart-
ney hefur ítrekað sagt plötuna vera
eina af sínum uppáhaldsplötum
og Bítlarnir sögðu hana hafa verið
mikinn áhrifavald.
George Martin, sem hefur oft
verið kallaður fimmti Bítillinn, gekk
svo langt að segja að SPLHCB hefði
aldrei orðið til ef ekki hefði verið
fyrir Pet Sounds, og ef hann þyrfti
að velja lifandi snilling innan popp-
sögunnar veldi hann Brian Wilson.
Það væri að bera í bakkafullan
lækinn að fjalla um SPLHCB hér,
en það má segja að með útgáfu
þeirrar plötu hafi lokast hringurinn
sem hófst með áhrifum plötunnar
Rubber Soul á Pet Sounds sem síð-
an hafði áhrif á SPLHCB.
Sem dæmi um þá alúð sem Bri-
an Wilson lagði í Pet Sounds og þá
fullkomnun sem hann vildi ná má
nefna að samkvæmt Wikipedia
komu um sextíu hljóðfæraleikarar
við sögu við gerð hennar, auk sex
meðlima Beach Boys.
Heilsubrestur og sundurlyndi
Þegar líða tók að lokum sjöunda
áratugarins fór að bera á heilsu-
bresti hjá Brian Wilson og svo fór
að platan Smile, sem fylgja átti í fót-
spor Pet Sounds, leit aldrei dagsins
ljós. Lögin af henni voru sett á hin-
ar ýmsu plötur sem Beach Boys gaf
út næstu árin, en eitt þeirra, Good
Vib rations, var gefið út á tveggja
laga plötu og nýtur mikillar virðing-
ar í tónlistarheiminum enn þann
dag í dag.
Með hverri plötu Beach Boys
fór minna fyrir áhrifum Brians
Wilson og plöturnar seldust verr.
Á sama tíma einkenndist sam-
starf Bítlanna af sundurlyndi, sem
best kom í ljós á Hvíta albúminu
svonefnda, einu plötu sveitarinn-
ar sem bar nafn hljómsveitarinn-
ar sem plötuheiti, og sennilega sú
sem síst skyldi.
Árið 1970 heyrði The Beatles
formlega sögunni til og þar með
þeim skapandi straumum sem
ríktu á milli Bítlanna og Beach Boys
og hafði getið af sér tvær merkustu
hljómplötur poppsögunnar.
kolbeinn@dv.is
Bandaríska útgáfa Rubber
Soul „Þetta er málið. Ég verð að
gera stórkostlega plötu,“ sagði
Wilson eftir að hafa heyrt plötuna.
Pet Sounds Varð til vegna áhrifa
Rubber Soul á Brian Wilson.