Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Síða 66
66 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 VERÖLD
LÉTUST EFTIR ÁRÁSIR VÉLMENNA Verksmiðjustarfsmað-
ur hjá bílaverkstæðum Ford í Bandaríkjunum, Robert Williams að nafni, var fyrsti
maður sögunnar sem drepinn var af vélmenni. Vélmennið sem hannað var til að ná
í parta úr geymslu vann mun hægar en upphaflega var haldið. Williams lést sam-
stundis þegar vélmennið rak „handlegg“ sinn í höfuð hans í janúar árið 1979. Tveim-
ur árum síðar lést Kenji Urada af sömu völdum en hann var viðgerðarmaður í orku-
verinu í Kawasaki í Japan. Hinn 37 ára gamli Urada gerði við vélmenni en gleymdi
að slökkva á því á meðan. Vélmennið hreyfði skyndilega vökvastýrðan vélhand-
legginn og ýtti viðgerðarmaðurinn ofan í járnkvörn þar sem hann kramdist og lést.
UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON, helgihrafn@dv.is
Í friði fyrir skuldum, útrásarvíkingum og vondum útlendingum:
Margir óttast að land-flótta Íslendingum muni fjölga mikið á næstu misserum.
Íbúum á Íslandi fækkar í fyrsta
skipti í yfir hundrað ár. Íslending-
um fækkaði síðast árið 1889, en
þá voru fólksflutningar til Vestur-
heims í algleymingi. Margir flytja
til Norðurlandanna og annarra
Evrópuríkja en sumir jafnvel til
Kanada og Bandaríkjanna eins og
forðum. En vilji landflótta lands-
menn ekki búa í samfélagi annarra
þjóða, þar sem annað tungumál er
talað og menningin er frábrugð-
in, er annar möguleiki í stöðunni.
Íslendingar gætu stofnað Íslend-
inganýlendur á eyðieyjum.
Við lok nítjándu aldarinn-
ar ákváðu þúsundir landsmanna
að yfirgefa Fróna, flestir fyrir fullt
og allt, og fluttu til nýrra lendna í
Norður-Ameríku. Þeir flýðu fátækt
og óblíða náttúru.
Fólkið stofnaði Íslendinganý-
lendur vestra, orti ljóð og gaf út
tímarit á íslensku og hélt í lengstu
lög áfram að tala saman á tungu-
málinu okkar. Nú, rúmri öld síð-
ar, er Íslendingasamfélagið horfið
inn í öldu þjóðahafsins í Banda-
ríkjunum og Kanada, eins og
eðlilegt er. Úr fjölbreyttri blöndu
þjóðanna urðu til ný samfélög í
Ameríku.
Tvær flugur í einu höggi
Algengast er að landflótta Íslend-
ingar nútímans flytji til hinna
Norðurlandanna. Flestir fara til
Noregs en margir til Danmerkur
og Svíþjóðar. Íslendingar eru fljótir
að aðlagast lífsháttum frænda okk-
ar og sækja því þangað.
Ef einhverjum landflótta Ís-
lendingum hugnast hins vegar
ekki að afkomendur þeirra hverfi
inn í aðrar þjóðir þegar fram í sæk-
ir og verði Norðmenn, Danir eða
Svíar, má fara leið Íslendinganý-
lendunnar. Þar gætu þeir Íslend-
ingar búið sem vilja lifa í friði fyrir
erlendum áhrifum og flýja skulda-
halann um leið. Sem sagt, tvær
flugur í einu höggi.
Eyðieyjur bestar
Heppilegustu staðirnir fyrir Ís-
lendinganýlendu eru einangrað-
ar, óbyggðar eyjar í ballarhöfum.
Hægt væri að koma upp nokkr-
um nýlendum á sama tíma víða
um höfin, sem myndu vaxa og
dafna. Landnemarnir tækju með
sér kindur og nokkrar trillur til
að veiða í soðið. Íslendingarnir á
þessum stöðum myndu orna sér í
kotinu við lestur Passíusálmanna
og Arnaldar Indriðasonar og setja
Sálina, Björgvin Halldórsson og
Mannakorn á fóninn. En hvaða
eyjar væru heppilegastar?
ÍSLENDINGANÝLENDURfr tíðarinnar
EKKI ÓLÍKT ÍSLANDI
Kergueleneyjar eru fýsilegar
fyrir Íslendinganýlendu.
ÍSLENDINGANÝLENDA
NEÐANJARÐAR
Óblíðar veðuraðstæður
og nálægðin við Rússland
neyða Íslendingana ofan
í jörðina á Severnaya
Zemlya-eyjum.
KERGUELENEYJAR HENTUGAR
Svalt loftslag, rigning, eldfjöll.
Hljómar kunnuglega?
Paradís villikattanna
n Kergueleneyjar á Suður-Indlandshafi eru einn afskekktasti eyjaklasi heims og liggja um
5.000 kílómetra suðaustur af Afríku 2.000 kílómetra norður af Suðurskautinu. Veðráttan
á eyjunum er nokkuð óblíð en árið um kring er annaðhvort rigning eða snjókoma flesta
daga. Sterkir vindar blása úr vestri. Á móti kemur að straumar úr Indlandshafi bera hlýja
strauma og nóg er af fugli og fiski. Þær eru rúmlega tíu sinnum minni að flatarmáli en Ís-
land. Af þessu má sjá að eyjarnar eru fullkomnar fyrir Íslendinganýlendu. Einn hængur er
þó á: Eyjarnar tilheyra Frakklandi og eru 50-100 franskir
vísindamenn á eyjunum yfir sumartímann. Íslending-
arnir þyrftu einfaldlega að fela sig fyrir þeim eða gera
samkomulag við þá. Frakkland er í um 13.000 kílómetra
fjarlægð svo auðvelt væri að halda nýlendunni leyndri.
Helstu íbúar eyjanna eru villikettir. Á 19. öld voru hval-
veiðiskip tíðir gestir á Kerguelen og kettirnir eru afkom-
endur skipskatta sem ákváðu að fara frá borði og nema
land. Kettirnir, sem telja mörg þúsund, eru allir svartir
og hvítir. Hér gætu nokkur þúsund Íslendingar dvalið.
Ískaldar rússneskar eyjar
n Severnaya Zemlya-eyjar á Karahafi
norður af Rússlandi eru sá eyjaklasi
heimsins er menn urðu síðast varir við.
Það var ekki fyrr en árið 1913 að eyjarnar
voru uppgötvaðar. Þær eru býsna stórar,
samtals um einn fimmti af flatarmáli Ís-
lands. Hér gætu margir hafst við, ef þeir
stæðu saman. Ekki er víst að Rússum
myndi lítast vel á veru Íslendinganna á eyjunum, en það væri hægt
að fela sig fyrir þeim. Eyjarnar eru þaktar jöklum og umkringdar ís-
hafi, svo best væri að Íslendinganýlendan yrði byggð neðanjarðar.
Heimsins afskekktasta eyja
n Bouveteyja er örsmá
eldfjallaeyja í Suður-Atl-
antshafi og er heimsins
afskekktasta eyja. Hún
er í eigu Norðmanna en
norskir heimskautafarar
eignuðu Noregi eyjuna
árið 1927. Helsti gallinn
er að eyjan er agnarlítil
og að mestu hulin jökli.
Ekki er því mikið af
landsins gæðum sem
íslenskir landnemar
gætu nýtt sér. En það
gerist sárasjaldan að
menn ferðist til eyjar-
innar svo Íslendingarn-
ir væru að minnsta
kosti látnir í friði í ný-
lendunni sinni.
LENGSTA
TÓNVERKIÐ
n Tónverkið As Slow as Possible eftir
bandaríska tónskáldið John Cage er
lengsta tónverk sögunnar. Orgelverkið
hefur verið í flutningi í St. Burchardikirkju
í Halberstadt í Þýskalandi síðan árið 2001.
Það mun taka 639 ár að flytja tónverkið
og verður flutningnum lokið árið 2640.
Verkið er ekki sérstaklega fjörugt en árið
2003 heyrðist fyrsti hljómurinn leikinn.
Árið 2004 var svo nýr tónn sleginn.
Nótunum er haldið niðri á löngum
tímabilum með lóðum á hinu sérsmíðaða
orgeli sem notað er við flutninginn.
HELVÍTI Í
HOLUNNI
n Dýpsta borhola heims er á
Kólaskaga í Rússlandi. Sovétmenn
hófu árið 1970 að bora í holuna með
Uralmash-15000 ofurbornum. Náðu
vísindamenn niður á 12 kílómetra
dýpi árið 1989. Borað var í gegnum
þriðjung jarðskorpunnar, en hún
er talin vera um 35 kílómetra djúp.
Grjótið sem borinn flutti af botninum
upp á yfirborðið er talið vera um 2,7
milljarða ára gamalt. Hola þessi komst
í fréttirnar í Bandaríkjunum árið 1989
þegar óhugnarleg hljóðupptaka var
leikin á útvarpsstöð. Á upptökunni
heyrðust síendurtekin óp, öskur
og væl og sögðu þáttastjórnendur
að þetta væri hljóð úr helvíti. Áttu
rússneskir vísindamenn að hafa
komið hljóðupptökutæki fyrir í
botni borholunnar þar sem hljóðin
hefðu verið tekin upp. Á endanum
viðurkenndu útvarpsmennirnir að
þetta væri lygasaga og að Rússar
hefðu ekki fundið helvíti í holunni.
168 VITLEYSUR Í
ARMAGEDDON
n Kvikmyndin Armageddon frá 1998 er
notuð sem kennslugagn hjá NASA. Það
kemur þó ekki til að góðu því í myndinni
koma fyrir klaufalegar vísindalegar
rangfærslur. Upprennandi geimförum er
gert að finna eins margar villur og þeir
geta. Hingað til hafa 168 rangfærslur
fundist. Bruce Willis lenti með geimskutlu
á loftsteini. Það er ekki hægt, segja
kúristarnir hjá NASA. Og þó að það væri
hægt, væri ekki hægt að láta skutluna
yfirgefa lofsteininn. Í Armageddon heyr-
ist hljóð í geimnum. Það er ekki hægt.
Það ríkir þögn í geimnum, segja menn
hjá NASA. Aðdáendum myndarinnar er
flestum alveg sama um þetta. Hver þarf
á vísindum að halda þegar Bruce Willis er
annars vegar?