Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 68
SVÖRTU EKKJURNAR Helen Golay og Olga Rutterschmidt
voru ekki venjulegir glæpamenn. Þær voru komnar á efri ár þegar þær
frömdu glæpi sína og fengu viðurnefnið „Svörtu ekkjurnar“. Fórnarlömb
þeirra voru útigangar í Los Angeles sem voru myrtir svo hægt væri að inn-
heimta tryggingafé. Morðin sem þær frömdu voru kaldrifjuð og fórnarlömbin
með öllu varnarlaus. Þær frömdu aðeins tvö morð. Fyrra morðið frömdu þær árið
1999 og hið seinna árið 2005. Vegna þess hve langur tími leið frá fyrra morði til hins síðara má segja að
hrein tilviljun hafi ráðið því að upp um þær komst. Lesið um Svörtu ekkjurnar í næsta helgarblaði DV.
Morðingi með mörg nöfn
Þó nokkrir raðmorðingjar hafa notið þess vafasama heiðurs að vera líkt við hinn alræmda Jack the Ripper,
Kobba kviðristu, og enn öðrum var á sínum tíma ekki aðeins líkt við Kobba kviðristu heldur að auki grun-
aðir um að vera hann.
Pólski raðmorðinginn Seweryn
Antonowicz Klosowski, betur
þekktur sem George Chapman, var
einn þeirra sem yfirvöld grunuðu
um að vera kviðristan alræmda.
Hvað olli þeim grun er erfitt að
henda reiður á því það eina sem
þeir áttu sameiginlegt var að þeir
stunduðu myrkraverk sín á sama
tímabili og á svipuðum slóðum.
Jack the Ripper skildi við sín fórn-
arlömb sundurrist, en Chapman
notaði eitur.
Aðstoðarmaður skurðlæknis
Seweryn Antonowicz Klosowski
fæddist 14. desember 1865 í pólska
þorpinu Nagórna. Samkvæmt skír-
teini sem fannst í persónulegum
eigum hans eftir að hann var hand-
tekinn gerðist Seweryn lærlingur
héraðsskurðlæknis í Zwolen þeg-
ar hann var fimmtán ára. Á meðal
þess sem Seweryn aðstoðaði við
var að setja iglur á sjúklinga við
blóðtöku.
Síðar fór hann á námskeið í
almennum skurðlækningum á
Praga-sjúkrahúsinu í Varsjá, en
námskeiðið var stutt, frá októ-
ber 1885 til janúar 1886, og að því
loknu gerðist hann aðstoðarmað-
ur skurðlæknis í Varsjá til desem-
ber 1886.
Seweryn Antonowicz Klos-
owski yfirgaf Pólland, en ekki er al-
veg ljóst hvenær hann kom til Eng-
lands en samkvæmt vitnaleiðslum
síðar má ætla að það hafi verið ein-
hvern tímann á árunum 1887 eða
1888.
Hársnyrtir og rakari
Eftir að Seweryn kom til Lund-
úna tók hann upp nafnið Ludwig
Schloski og fékk vinnu á rakara-
stofum en þess var skammt að bíða
að hann opnaði sína eigin stofu.
Þrátt fyrir að hafa skilið eftir eigin-
konu í Póllandi kvæntist Schloski
Lucy Baderski, og átti ekki von á
að sögur um ótryggð hans bærust
eiginkonu hans í Póllandi til eyrna.
Raunin varð önnur og lögleg
eiginkona hans kom til Lundúna
og reyndi árangurslaust að velta
Lucy úr sessi. Hún lýsti sig sigraða
þegar Lucy og Schloski eignuðust
son í september 1890.
Sonur Lucy og Schloski dó
úr lungnabólgu í mars 1891 og
skömmu síðar fluttu þau búferlum
til New York í Bandaríkjunum. Þar
fékk Ludwig Schloski starf á rak-
arastofu í New Jersey, en þess var
skammt að bíða að ofbeldishneigð
og ótryggð hans settu svip sinn á
hjónabandið.
Mörgum árum síðar vitnaði
Lucy um ofbeldið sem hann beitti
hana og að hann hefði viðurkennt
fyrir henni að hann hefði ætlað að
afhöfða hana.
Snýr aftur heim til Englands
Lucy var eðlilega brugðið og fór
austur um haf, heim til Englands,
þunguð af öðru barni hennar og
Schloskis. Schloski snéri heim fjór-
um mánuðum síðar og tóku þau
upp skamvinna sambúð en síðan
skildi leiðir.
Á haustmánuðum 1893 hitti
Schloski Annie Chapman á hár-
snyrtistofu í Suður-Tottenham þar
sem hann var aðstoðarmaður. Þau
bjuggu saman í um ár en þá fór
Schloski að gefa öðrum konum
hýrt auga að nýju og kornið sem
fyllti mælinn var þegar hann kom
með konu á heimili þeirra og skyldi
hún búa með þeim. Nokkrum vik-
um síðar yfirgaf Annie heimilið,
þunguð, en Schloski tók upp eftir-
nafn hennar og kallaði sig George
Chapman. Tilgangur hans var ef-
laust að fjarlægjast hinn flókna
vef ástarævintýra sem var í kjölfari
hans, en innst inni var hann sami
gamli Seweryn Antonowicz Klos-
owski.
Velgengni og barsmíðar
George Chapman átti þó nokkurn
fjölda ástkvenna sem gjarna þótt-
ust vera eiginkonur hans. Chap-
man eitraði fyrir að minnsta kosti
þremur þeirra með þeim afleiðing-
um að þær dóu.
Einhvern tímann eftir 1895
hóf Chapman störf á rakarastofu
á Church Lane nr. 7 og skömmu
síðar kynntist hann Mary Spink,
áfengissjúklingi sem hafði verið yf-
irgefin af eiginmanni sínum sem
að auki hafði tekið barn þeirra.
Mary Spink og Chapman léku
eiginmann og eiginkonu og hún
skráði hann erfingja að 500 ster-
lingspundum sem hún átti í hand-
raðanum. Chapman tók á leigu
rakarastofu en reksturinn gekk
ekki sem skyldi. Hann færði sig því
um set og opnaði stofu á arðvæn-
legri stað og „tónlistar-rakstur“
hans varð nánast goðsagnakennd-
ur; hann rakaði viðskiptavini á
meðan Mary skemmti þeim með
píanóleik.
Um skeið nutu „hjónin“ um-
talsverðra tekna, en farsæll rekstur
stofunnar birtist í andstæðu sinni
innan veggja heimilisins þar sem
Mary varð fórnarlamb hrottalegra
barsmíða af hálfu Chapmans.
Chapman kaupir eitur
Í apríl 1897 keypti Chapman eina
únsu af uppsöluvínsteini, hvítu,
lyktarlausu og nánast bragðlausu
efni sen leysist auðveldlega upp
í vatni. Um áhrif þess var lítið vit-
að á seinni hluta nítjándu aldar,
en sé það gefið í stórum skömmt-
um veldur það uppsölum, en í litl-
um skömmtum og rétt tímasettum
veldur það hægum og sársauka-
fullum dauðdaga.
„Tónlistar-rakstur“ Chapmans
missti brátt aðdráttarafl og hann
fékk vinnu sem framkvæmdastjóri
vertshússins Prince of Wales við
City Road við Bartholomew-torg.
Á sama tíma fór Mary að þjást
af heiftarlegum kviðverkjum og
ógleði sem drógu hana til dauða
á jóladag 1897, og var dánarorsök
úrskurðuð tæring.
Samkvæmt vitnisburði síðar
stóð hann yfir líki Mary og sagði:
„Polly, Polly, segðu eitthvað.“ Síð-
an fór hann inn í annað herbergi
og grét og fór síðan niður og opn-
aði krána.
Elizabeth Waymark, ein þeirra
sem hjúkraði Mary, sagði að lík
hennar hefði verið eins „beina-
grind“.
Bessie Taylor
George Chapman var ekki sorgbit-
inn lengi og réð hann Bessie Taylor,
sem hafði reynslu af kráarrekstri,
til starfa. Áður en langt um leið
blómstraði samband með þeim og
stofnað var til nýs gervihjónabands
og Bessie tók við hlutverki Lucy og
þeirri barsmíð sem Lucy hafði tek-
ið við.
Að sögn vinkonu Bessie, Eliza-
beth Painter, hótaði Chapman
Bessie eitt sinn með skammbyssu
auk þess sem hann barði hana og
henti í hana hlutum. Fljótlega fór
Bessie að finna fyrir svipuðum ein-
kennum og Lucy og til að forðast
athygli hætti Chapman á Prince
of Wales og fór að vinna á Grapes-
kránni í Bishop‘s Stortford í Hert-
fordskíri.
Bessie gekkst undir aðgerð en
heilsu hennar hrakaði jafnt og þétt
og þau fluttu aftur til Lundúna.
Bessie Taylor lést á Valentín-
usardag, 14. febrúar 1901, og var
banamein hennar úrskurðað „ör-
mögnun vegna uppkasta og niður-
gangs“.
Dauði frúar Chapman III
Brátt fann Chapman sér þriðju
„eiginkonuna“, Maud Marsh sem
var ráðin á krána Monument Ta-
vern þar sem Chapman vann. En
eftir einungis eitt ár var Chap-
man orðinn leiður á Maud og
snéri athygli sinni að Florence
Rayner. Florence Rayner neitaði
að flytja með honum til Banda-
ríkjanna og benti honum á að
hann „ætti konu á neðri hæð-
inni“. Chapman smellti fingrum
og sagði: „Huh, ég geri svona,
og hún hættir að vera frú Chap-
man.“
Chapman hafði sama háttinn
á gagnvart Maud og hinum „eig-
inkonum“ sínum og barði hana
látlaust.
Þegar Maud, merkilegt nokk,
fór að þjást af sama krankleika og
Bessie og Lucy gætti Chapman
þess að sjá um lyfjagjöf sjálfur
og vakti það grunsemdir móð-
ur Maud. Hún kallaði til ann-
an lækni til að rannsaka Maud
og skaut Chapman svo miklum
skelk í bringu að hann gaf Maud
gríðarstóran skammt af eitri sem
dró hana til dauða næsta dag, 22.
október 1902.
Klosowski, Schloski,
Chapman handtekinn
Læknirinn neitaði að gefa út
dánarvottorð án þess að líkið
yrði rannsakað. Við líkskoðun-
ina fundust leifar uppsöluvín-
steins í maga, lifur, nýrum og
heila Maud, og Chapman var
handtekinn og þá kom í ljós að
Seweryn Antonowicz Klos owski,
Ludwig Schloski og George
Chapman voru einn og sami
maðurinn.
Lík hinna „eiginkvenna“
Chapmans voru grafin upp og
líkt og í líki Maud fundust leifar
eiturs í líffærum þeirra.
Seweryn Antonowicz Klos-
owski, George Chapman, var
hengdur í Wandsworth-fangelsi
7. apríl 1903.
UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON, kolbeinn@dv.is
68 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 SAKAMÁL
Seweryn Antonowicz Klosowski Var grunaður um að vera Kobbi kviðrista.
Síðasta „eiginkona“ Chapmans
„Huh, ég geri svona, og hún hættir að
vera frú Chapman,“ sagði Chapman
um hana.