Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 80

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 80
80 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 Besti knattspyrnumaður þjóðar- innar, Eiður Smári Guðjohnsen, hefur átt erfitt uppdráttar und- anfarið, bæði knattspyrnulega og fjárhagslega. Stuðningsmenn Mónakó í Frakklandi héldu að þá væri að dreyma þegar Eiður var keyptur til liðsins í sumar og bundu þeir miklar væntingar við hann. Það sama gerði þjálfari liðs- ins, Guy Lacombe, en Eiður hefur svo sannarlega ekki staðið undir þeim væntingum. Líklega í fyrsta skiptið á ferlinum var Eiði kippt út úr leikmannahópi liðsins fyrir ekk- ert nema skelfilega frammistöðu að undanförnu. Eitt hefur þó ætíð einkennt Eið Smára. Hann getur risið upp úr hvaða öldudal sem er. Nýjustu slúðurfregnir herma þó að Eiður sé tilbúinn að fara aftur til Englands þar sem hann lék sinn langbesta bolta á sínum tíma. Ömurlegar einkunnir Eiður Smári hefur langt frá því hrifið fréttamenn tveggja stærstu íþróttablaðanna í Frakklandi, France Football og L´Equipe. Þrátt fyrir mikinn uppgang Mónakóliðs- ins í september og október fékk Eið- ur Smári aldrei hærri einkunn en fjóra af tíu fyrir sína frammistöðu. Hann fékk svo sína alverstu ein- kunn um síðustu helgi þegar bæði blöðin gáfu honum tvo af tíu fyrir leikinn gegn Lille sem tapaðist, 4-0. Þessar einkunnir endurspegla alveg frammistöðu hans að mörgu leyti. Eiður hefur spilað sjö leiki og komið inn á í þeim áttunda í upp- bótartíma. Hann hefur leikið alla leikina sem framherji en ekki enn skorað mark. Hann hefur heldur ekki gefið eina stoðsendingu sem hefur nú oft verið hans aðalsmerki. Það sem meira er hefur Eiður ekki náð skoti að marki í sex af þessum átta leikjum. Nokkuð borðleggj- andi hversu hrikaleg tölfræði það er fyrir framherja. Mónakóliðið er á hraðri niður- leið í frönsku úrvalsdeildinni. Það hefur tapað þremur leikjum í röð og aðeins innbyrt eitt stig í síðustu fimm leikjum. Fyrir aðeins tveim- ur mánuðum var liðið í öðru sæti deildarinnar en er nú komið niður í það tólfta. Síðasta sigurhrina liðs- ins var í október, án Eiðs sem var meiddur, en Mónakó vann þá þrjá leiki í röð en hefur síðan ekki unnið leik þegar Eiður hefur verið í byrj- unarliðinu. Fimmtán af tuttugu og tveimur stigum liðsins á tímabilinu hafa innbyrst án Eiðs Smára. Ein af kaupum sumarsins Mikið var fylgst með félagaskipta- sögu Eiðs Smára í sumar, eða sög- unni sem aldrei varð. Beðið var og beðið eftir að hann yfirgaf Barce- lona en það var ekki fyrr en á loka- pretti félagaskiptagluggans að hann samdi óvænt við Mónakó. Stórt knattspyrnutímarit gerði upp félagskiptagluggann í sumar og fór þar fögrum orðum um Eið. Var sagt að Eiður gæti auðveldlega orðið ein af kaupum sumarsins þar sem hann kostaði ekki meira en tvær milljónir evra. Sérstaklega þegar lið í ensku úrvalsdeildinni væru að kaupa meðalmenn á fúlgur fjár. „Það eru óvænt kaup Mónako á Eiði Smára Guðjohnsen fyrir skitn- ar 2 milljónir evra sem gætu reynst besta fjárfestingin. Já, 2 milljónir evra, það er ekki mikill peningur fyrir leikmann af hans gæðaflokki þegar litið er til þess að Wolves keypti Kevin Doyle fyrir 6,5 millj- ónir punda. Ekki er annað hægt að ætla en að allir hafi hreinlega lát- ið þennan framherja fara fram hjá sér. Eiður er gríðarlega reynslu- mikill eftir að hafa leikið með Bolt- on og Chelsea á Englandi,“ var skrifað um Eið Smára. Trúðu ekki að Eiður væri kominn Á opinberri spjallsíðu Mónakó má finna afar athyglisverðan póst. Hann er settur inn þegar liðið gekk frá kaupunum á Eiði Smára en þar er fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn kynntur til leiks. Er þar talið upp hvað hann hefur gert, hvar hann hefur leikið og svo framvegis. Þar kemur einnig fram að viðurnefni hans eru annað hvort Iceman (Ís- maðurinn) eða Le Viking (Víking- urinn). Þeir fyrstu sem svara póstinum voru hæstánægðir með kaupin á Eiði enda ekki á hverjum degi sem Mónakó kaupir leikmann frá Evr- ópumeisturum Barcelona. Nokkr- ir stuðningsmannanna sem skrifa trúa því varla að Eiður hafi skrifað undir við Mónakó enda liðið verið í mikilli meðalmennsku undanfar- in ár og keypt meira og minna það sem fellur af trjánum hjá öðrum liðum. Þráðurinn er nú orðnar ríf- lega fjörutíu og fimm blaðsíður og fylgir svolítið sögu Eiðs hjá Món- akó. Fyrst um sinn eru menn afar ánægðir með frammistöðu hans þó fótboltablöðin væru á öðru máli. Þegar flett er lengra og lengra má lesa fleiri og fleiri óánægju- pósta og eru nú margir farnir að skrifa að Eiður Smári sé einfald- lega flopp. „Le Viking stendur ekki undir væntingum,“ skrifar einn. Þó er athyglisvert að ekki eru allir jafnóánægðir með Eið. Þvert á móti. Þrátt fyrir dapra frammi- stöðu hans eru þó nokkrir sem halda því fram að Mónakó spili betur með hann í liðinu þar sem sendingageta hans sé betri en hjá nokkrum öðrum í liðinu. Telja margir sterkasta lið Mónakó inni- halda Eið ásamt Kóreumanninum Park í framlínunni. Ná þar saman hinn tekníski Eiður á móti eljusemi Parks. Áður stigið upp Þótt Eiður Smári sé í miklum öldu- dal þessa dagana er eitt alveg vit- að, skrifað og skjalfest. Hann get- ur risið upp úr lægstu lægðum og komið sér aftur upp í hæstu hæð- ir. Það skipti engu máli hvaða stór- stjörnur voru keyptar til Chelsea, alltaf hristi ljóshærði Íslendingur- inn þær af sér og sannaði gildi sitt í liðinu og hélt lengi vel byrjunar- liðsstöðu. Það var engum smá pen- ingum eytt í Englandsmeistara- titil Chelsea tímabilið 2004/2005, keyptir menn frá öllum heims- hornum á gífurlegar upphæðir. Kaupverðið á Eiði Smára bliknaði í samanburði við margar stórstjörn- urnar en Eiður átti gífurlegan þátt í titlinum, skoraði mikið af mörkum og gaf annað eins af stoðsending- um. Sama var uppi á teningnum hjá Barcelona. Vissulega fór það illa undir lokin og spilaði hann vart leik síðustu mánuðina á síð- Eiður Smári Guðjohnsen á ekki sjö dag- ana sæla hjá Mónakó í Frakklandi. Þessi hæfileikaríki knattspyrnumaður sem er markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi hefur enn ekki skorað mark fyrir sitt nýja lið og fær ætíð skelfilegar einkunnir fyrir frammistöðu sína. Hann var nú síðast tekinn út úr leikmanna- hópi liðsins í miðri viku. Stuðningsmenn Mónakó trúðu vart sínum eigin augum þegar Eiður var keyptur en ekki eru allir jafnánægðir nú. LE VIKING STENDUR EKKI UNDIR VÆNTINGUM TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Átt erfitt Eiður Smári hefur átt afar erfitt uppdráttar undanfarið, bæði hvað varðar knattspyrnuna og pen- ingamálin. MYND HILLI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.