Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2009, Page 53
JÓLABLAÐ 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 53
Hreindýrakjöt er sá hátíðarmatur sem inniheldur fæstar hitaeiningar. Ef hollusta matvæla er mæld í hita-
einingum má segja að það sé hollasta stórsteik sem völ er á. Kalkúnn, hrefnukjöt og rjúpur fylgja fast á eftir
en þessi matvæli innihalda jafnframt ákaflega lítið magn fitu. DV tók saman næringarinnihald í algengum
hátíðarmat. Hafið þó í huga að jólin eru aðeins einu sinni á ári og borðið það sem ykkur finnst best.
Hreindýrið
ER HOLLAST
Hreindýrakjötið er eitt magrasta
kjöt sem völ er á og inniheldur jafn-
framt fæstar hitaeiningar, sam-
kvæmt samanburði DV á næring-
arinnihaldi algengs hátíðarmatar.
Hreindýrakjöt er ákaflega prótein-
rík fæða en í 100 grömmum af hráu
kjöti eru 22 grömm af próteini.
Upplýsingarnar eru fengnar úr IS-
GEM, gagnagrunni Matís.
Minnst fita í hrefnukjöti
Fast á hæla hreindýrsins fylgir
kalkúnakjöt, hrefnukjöt og rjúpur
en hitaeiningarnar í 100 grömm-
um eru á bilinu 106 til 111 talsins.
Magn próteins í þessum fæðuteg-
undum er á bilinu 22 til 25 grömm,
mest í hrefnukjöti.
Ofantaldar fæðutegundir skera
sig jafnframt úr þegar kemur að fitu-
innihaldi. Hrefnukjötið er magr ast,
inniheldur aðeins 0,9 grömm af fitu
í hverjum 100 grömmum. en rjúp-
ur, hreindýr og kalkún inniheld-
ur rétt um 2 grömm. Engar mett-
aðar fitusýrur eru í hrefnukjöti en
0,6 grömm eru í rjúpum og litlu
meira í kalkún og hreindýri. Vart
þarf að taka fram að með rjómalag-
aðri sósu eða feitu meðlæti er auð-
velt að gera magra máltíð feita eða
óholla.
Svínakjötið feitast
Það svínakjöt sem er algengast á
jólaborðum Íslendinga er líklega
hamborgarhryggur. Í 100 grömm-
um af kjöti eru 217 hitaeiningar,
litlu fleiri en í svínabóg sem inni-
heldur 216 hitaeiningar. Í hryggn-
um eru auk þess 2,5 grömm af
salti í hverjum 100 grömmum af
hráu kjöti, en allar upplýsingarn-
ar eiga við hrátt kjöt. Í 100 grömm-
um af hamborgarhrygg eru auk
þess nærri 17 grömm af fitu. Þar af
eru mettaðar fitusýrur 6,9 grömm
en því meira sem er af ómettuð-
um fitusýrum, því mýkri verður
fitan. Mettuð fita er yfirleitt hörð
við stofuhita og þykir óhollari en
ómettuð.
Enginn af þeim jólamat sem
DV kannaði innihélt meiri fitu en
hamborgarhryggurinn. Lambalæri
inniheldur 14,1 gramm, hangikjöt
10 grömm og villt gæs 7,1 gramm í
hverjum hundrað af kjöti.
Saltið mest í hangikjöti
Flestum heilsuhraustum eistakling-
um er óhætt að leyfa sér að borða
fitu- eða saltmikinn mat endrum
og eins, eins og næringarfræðing-
ar hafa bent á. Þó er ágætt að vera
meðvitaður um það sem maður læt-
ur ofan í sig, ekki síst í ljósi þess að
útköll sjúkraflutningamanna eru
sjaldan fleiri en á hátíðardögum,
þegar fólk belgir sig gjarnan út af
söltum eða feitum mat.
Eins og sjá má í meðfylgjandi
töflu er það aðeins hamborgar-
hryggur og hangikjöt sem inniheld-
ur salt, hangikjötið 3,7 grömm en
hamborgarhryggurinn 2,5 grömm
í hverjum 100 grömmum af kjöti.
Saltmagn í öðrum matvælum er
óverulegt, eða á bilinu 0,1 til 0,2
grömm í hverjum hundrað grömm-
um. Þó kjötið sé í grunninn ósalt-
að ber að hafa í huga að flestir salta
eða krydda matinn eftir smekk.
baldur@dv.is
Næring í hátíðarmat (í 100 g)
Tegund Hitaeiningar Prótein (g) Steinefni (g) Salt (g) Vatn (g) Fita (g) Mettuð fita(g)
Hreindýr 106 22,0 0,9 Ósaltað* 74,0 2,0 0,9
Kalkúnn 107 21,9 1,0 Ósaltað 75,5 2,2 0,8
Hrefna 108 25,0 1,0 Ósaltað 73,1 0,9 0,0
Rjúpa 111 23,3 1,4 Ósaltað 73,0 2,0 0,6
Nautalundir 134 20,0 1,1 Ósaltað 73,0 6,0 2,8
Gæs 155 22,8 1,1 Ósaltað 69,0 7,1 2,5
Hangikjöt 165 18,8 4,6 3,7 66,4 10,0 4,2
Lambalæri 200 18,5 1,0 Ósaltað 66,5 14,1 6,0
Svínabógur 216 18,0 1,0 Ósaltað 66,1 16,0 6,4
Hamborgarhr. 217 16,6 3,5 2,5 62,6 16,8 6,9
*HRÁTT KJÖTIÐ ER ÓSALTAÐ EN FÓLK SALTAR GJARNAN MATINN VIÐ ELDUN.
Hreindýrið er hollt og gott Hrein-
dýrakjöt er hitaeiningasnauðasta kjöt
sem völ er á. MYND: TORBJÖRN ARVIDSON
Lambið klikkar ekki Í 100
grömmum af lambalæri eru um
14 grömm af fitu og um 200
hitaeiningar.
Gæsabring-
ur Kjöt af
villtm dýrum
er allajafna
fitusnautt og
próteinríkt.
Rjúpan er vinsæl
Rjúpnakjöt er ákaflega
magurt og próteinríkt