Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Síða 4
SANDKORN
n Bæjarfulltrúinn og frétta-
maðurinn fyrrverandi Rósa
Guðbjartsdóttir stefnir á
fyrsta sætið hjá Sjálfstæðis-
flokknum í Hafnarfirði fyrir
kosningarnar í vor. Rósa er
einkum
kunn af
óeigin-
gjörnu
starfi í þágu
krabba-
meins-
sjúkra
barna og
síðan sem
bæjarfull-
trúi undanfarin ár. En fyrsta
sætið er þó ekki í hendi því
þangað leitar hugur Svavars
Valdimarssonar, fyrrverandi
bankamanns og eins eigenda
Fítons, sem ætlar ekki að gefa
henni eftir sætið átakalaust.
Það má því búast við fjörugri
baráttu í Firðinum.
n Það má búast við hörkubar-
áttu Flateyringa við að halda
elliheimili sínu í þorpinu.
Mikill hugur er í íbúum vegna
þeirrar
ákvörðun-
ar að loka
stofnuninni
í sparnað-
arskyni og
flytja vist-
mennina
hreppa-
flutning-
um í burtu.
Allir íbúarnir hafa skrifað upp
á mótmælaskjal. Forsvars-
menn söfnunarinnar fóru svo
til Reykjavíkur á fimmtudag
og afhentu undirskriftalist-
ann í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Spurning hvort undir-
skriftalisti með nöfnum allra
Flateyringa hafi sama vægi í
ráðuneytinu og undirskrifta-
listi fjórðungs kjósenda hafði
á forsetann í Icesave-málinu.
Nú hefur fólkinu bæst sá liðs-
auki að Lýður Árnason, kvik-
myndaframleiðandi og læknir,
ætlar að taka slaginn um elli-
heimilið líka.
n Um næstu helgi verður
frumsýnd heimildarmynd-
in Maybe I should have sem
Gunnar Sigurðsson leikstýr-
ir og fer raunar með aðal-
hlutverkið
í. Rætt er
við fjölda
manns í
myndinni
bæði á Ís-
landi og
erlendis,
þar á meðal
á Tortóla.
Aðstandendur myndarinnar
vildu fá Björgvin G. Sigurðs-
son, fyrrverandi viðskiptaráð-
herra, til að segja frá reynslu
sinni. Mun hann hafa tekið vel
í það mál en síðan hætti hann
að svara í síma og er greini-
lega á flótta frá eigin fortíð.
n Margir hafa reyndar sam-
úð með Björgvin G. Sigurðs-
syni sem tókst á hendur að
vera viðskiptaráðherra án
þess að hafa til þess nauðsyn-
legan grunn. Þá er þekkt að
Davíð Oddsson, þáverandi
seðlankastjóri, hélt Björgvini
markvisst
fyrir utan
málin í að-
draganda
hrunsins.
Ráðherr-
ann var því
í svarta-
þoku þegar
hrunið varð
þótt hann fengi það nöturlega
hlutskipti að mæta á blaða-
mannafundi með Geir H.
Haarde, þáverandi forsætis-
ráðherra, og reyna þar að tala
upp ástandið.
4 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 FRÉTTIR
Kúlulánakóngurinn Guðni Níels
Aðalsteinsson er búinn að færa
glæsieign sína í Hafnarfirði yfir á
tengdaföður sinn, Gunnar Hjalta-
lín endurskoðanda. Þá er glæsibif-
reið heimilisins skráð á eiginkon-
una.
Guðni Níels er fyrrverandi
framkvæmdastjóri fjárstýringar
hjá Kaupþingi og var hann á lista
þeirra starfsmanna sem fengu
kúlulán hjá bankanum til að kaupa
bréf í honum. Sjálfur fékk hann
fjögur hundruð og sautján milljón-
ir króna í lán sumarið 2006 og sam-
kvæmt heimildum DV var hann
í persónulegum ábyrgðum fyrir
kúluláninu. Ábyrgð æðstu stjórn-
enda bankans var síðar felld niður
og gera má ráð fyrir að Guðni Níels
hafi verið í þeim hópi. Um tíma sat
hann í skilanefnd bankans er Fjár-
málaeftirlitið fór fram á að hann
tæki pokann sinn og úr því varð.
Vond samviska
Hjónin eru skráð með lögheimili
annars staðar en samkvæmt heim-
ildum DV býr Guðni Níels með fjöl-
skyldu sinni að Skógarási 11 í Hafn-
arfirði og var húseignin glæsilega
skráð á þau hjónin, Guðna Níels og
Ragnheiði Hjaltalín, um miðjan júlí
2007. Í byrjun október 2008, þegar
bankahrunið varð hér á landi, dró
hann sig út úr eignarhaldinu og af-
skráði nafn sitt af eigninni þannig
að konan var þá ein skráð. Því var
svo breytt í fyrra þegar hann færði
villuna yfir á tengdapabba. Þá er
nýleg glæsibifreið heimilisins, MB-
glæsijeppi, skráð á Ragnheiði.
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt
við viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands, segir ljóst að Guðni Ní-
els beiti blekkingum til að koma
eignum sínum undan. Hann tel-
ur þennan gjörning í stíl við önnur
vinnubrögð kúlulánakónga Kaup-
þings. „Ég vona að endurskoðand-
inn hafi ekki hjálpað þarna til. Öll
þessi kúlulán bankans voru náttúr-
lega blekking og þessi eignafærsla
er í takti við það dæmi. Það er al-
veg greinilegt að maðurinn hefur
ekki góða samvisku og er þarna að
reyna að koma eignum sínum und-
an. Hann er að viðurkenna með
þessu að hann hafi vonda sam-
visku, annars væri hann ekki að
þessu,“ segir Vilhjálmur.
Lítur ekki vel út
Stefán Einar Stefánsson, við-
skiptasiðfræðingur hjá Háskólan-
um í Reykjavík, segist enga samúð
hafa með mönnum sem ekki taka
ábyrgð á gjörðum sínum. Í þessu
tilviki segir hann ljóst að Guðni Ní-
els sé að koma eignum sínum und-
an. „Það er auðvitað mjög vafa-
samt að menn komi svona undan
eignum sínum sem talið er víst að
ættu að ganga upp í þær ábyrgð-
ir sem viðkomandi er í. Í þessu til-
viki er ljóst að viðkomandi er að
koma eignum sínum undan og ég
hefði talið að hann ætti einfaldlega
að taka afleiðingum gjörða sinna,“
segir Stefán Einar.
„Það er fjöldi fólks að verða
gjaldþrota og tekur þannig sína
ábyrgð. Þessi maður tók áhættu til
að reyna að græða stórfé og fyrir
mitt leyti er þetta mjög vafasamt,
að eignir séu færðar undan. Út frá
viðskiptalegum og siðfræðilegum
sjónarmiðum lítur þetta alls ekki
vel út. Það hlýtur að vera hægt að
rifta svonalöguðu og þeir sem eiga
kröfur á manninn hljóta að kanna
það.“
Í samtali við DV sagði Gunn-
ar tengdafaðir Guðna að eðlilegar
skýringar lægju að baki en vísaði
á hjónin til að svara. Við vinnslu
fréttarinnar náðist hvorki í Guðna
Níels né Ragnheiði til að bera hana
undir þau en þau eru hvergi skráð
með símanúmer. Blaðamaður kom
við í Skógarási 11 í Hafnarfirði en
þar vakti athygli að hvorki dyrasími
né póstkassi voru merktir neinum
nöfnum. Engu að síður var jeppa-
bifreið þeirra hjóna í hlaðinu.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi og kúlulánahafi, Guðni Níels
Aðalsteinsson, hefur fært húseign fjölskyldunnar yfir á tengdaföður sinn. Við-
skiptafræðingar hjá Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur segja ljóst að verið
sé að koma eignum undan með vafasömum hætti.
KÚLULÁNÞEGI
FLUTTI VILLU Á
TENGDAFÖÐUR
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
n 18. júlí 2007 Guðni Níels
Aðalsteinsson afskráð, Ragnheiður
H. Hjaltalín skráning.
n 03.október 2008 Guðni Níels
Aðalsteinsson afskráð, Ragnheiður
H. Hjaltalín skráning.
n 23. janúar 2009 Ragnheiður H.
Hjaltalín afskráð, Gunnar Hjaltalín
skráning.
EIGENDASKIPTI
Á SKÓGARÁSI 11
Flott eign Hjónin Gunnar Níels og
Ragnheiður hafa fært glæsivillu sína
yfir á föður hennar, Gunnar Hjaltalín
endurskoðanda. MYND RAKEL ÓSK
Kúlalána-
kóngur
Gunnar Níels
fékk 417 millj-
ónir að láni frá
Kaupþingi og
var síðar vísað
úr skilanefnd
bankans.