Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Síða 14
Konan á upplýsingamiðstöðinni í
Richmond-hverfinu í útjarðri Lund-
únaborgar kannaðist ekkert við
Greenlink Walk-götuna í auðmann-
anýlendunni Kew Riverside þegar
blaðamann DV bara að garði á mið-
vikudaginn. Kew Riverside er stærsta
nýlenda íslenskra auðmanna í Lund-
únum. Hvergi í borginni búa eins
margir Íslendingar tengdir útrásinni
alræmdu á eins litlu svæði í þessari
borg.
Meðal íbúa lúxusheimilanna á
Kew Riverside-svæðinu, sem er af-
girt og vaktað af öryggisvörðum
allan sólarhringinn, eru Ármann
Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri
Kaupþingsbankans Singer og Fried-
lander, Gunnar Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Baugs í Bretlandi, og
Linda Stefánsdóttir, fyrrverandi eig-
inkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Fyrst og fremst hafði DV áhuga
á að líta á heimkynni Ármanns og
Gunnars. Ármann rekur ráðgjafar-
fyrirtæki í London í dag ásamt öðr-
um fyrrverandi Kaupþingsmanni
en Gunnar er stjórnarformaður
leikfangaverslunarinnar Hamleys
sem var áður í eigu Baugs. Húsið
sem Gunnar býr í er í eigu Bjarna
Ármannssonar en það var hluti af
starfslokasamningi hans við Glitni
árið 2007 að hann leigði Baugi hús-
ið til 10 ára.
Vissi ekkert
Þrátt fyrir að blaðamaður DV full-
yrti að svæðið væri í Richmond fann
konan á upplýsingamiðstöðinni
engar upplýsingar um Greenlink-
götuna, þar sem þeir Ármann og
Gunnar búa hlið við hlið steinsnar
frá Thames-ánni, í kortabókum sín-
um um Richmond. Ekkert bólaði á
Greenlink, alveg eins og blaðamað-
ur DV hafði gripið í tómt þegar hann
reyndi að nota GPS-tæki sitt til að
leiðsegja sér að svæðinu.
Greenlink-gatan kom svo ekki í
leitirnar fyrr en eftir að
starfs-
maður upplýsingamiðstöðvarinnar
hafði „gúgglað“ götuheitið og fann
það á nýlegu korti af Richmond í
tölvunni sinni. Kew Riverside-hverf-
ið er svo nýlegt að það kemur ekki
fyrir á kortum upplýsingamiðstöðv-
arinnar.
Greenlink í stað ruslahauga
Þegar konan á upplýsingamiðstöð-
inni bar kortin tvö saman komst hún
svo að því að þar sem Kew Riverside
og Greenlink-gatan standa voru áður
ruslahaugar. „Refuse dump“ stóð á
kortinu hennar á nákvæmlega sama
stað og stóð „Greenlink“ á nýja kort-
inu. Starfsmaðurinn hafði orð á því
að ekki væri því skrítið að hann hefði
ekki fundið svæðið í fyrstu tilraun.
Við nánari athugun á nágrenni
Kew Riverside kom reyndar í ljós að
ekki var skrítið að ruslahaugarnir
hefðu áður staðið á þessu svæði þar
sem einhver snjall og gírugur fjárfest-
ir hafði nú líklega byggt þessar sálar-
lausu húsaþyrpingar sem blaðamað-
ur átti síðar eftir að berja augum.
Að Kew Riverside liggja nefnilega
verksmiðja sem endurvinnur rusl –
einhvers konar Sorpa þeirra Breta
– verksmiðja sem tekur við skólp-
inu frá húsunum í Richmond og svo
Hammersmith-kirkjugarðurinn með
tilheyrandi brennsluofni.
Auðmannanýlendu þessari,
þar sem húsin kosta í kringum
2 milljónir punda eða um 400
milljónir og útlagar úr íslenska
fjármálaheiminum draga
fram lúxuslíf sitt í skugga
efnahagshrunsins, var því
plantað ofan á svæði þar
sem mannlegur úrgangur í
víðum skilningi er geymd-
ur og endurunninn. Þangað
flykkjast Íslendingarnir sem
stjórn-
uðu
út-
rásinni til að fá að vera í friði frá um-
heiminum á afviknum, öruggum og
afgirtum stað þar sem skilti segja
blaðamönnum og öðrum vegfar-
endum að þeir séu ekki velkomnir:
„Gestir skulu tilkynna sig til örygg-
isvarðanna“, stendur skrifað á einu
þeirra við rammgert hliðið. Blaða-
maður stoppar því ekki lengi við hús
Ármanns og Gunnars á Green Link,
enda ljóst að umheimurinn er ekki
sérlega velkominn í þessa lokuðu
paradís.
Viðræður blaðamanns við Íslend-
inga í London benda reyndar til að
mikið hafi verið rætt um það í Bret-
landi á síðustu árum hvort það sé
boðlegt að byggja hús á svæðum þar
sem áður voru ruslahaugar. Lund-
únaborg er þéttbyggð og er sífelldur
skortur á byggingalandi ástæðan fyr-
ir því að í einhverjum tilfellum, líkt
og á Kew Riverside, hefur verið grip-
ið til þess ráðs að ryðja ruslahaugun-
um í burtu og byggja á því mannabú-
staði. Sitt sýnist hverjum í Bretlandi
um að búa á slíku svæði og eru ein
rökin sem nefnd hafa verið gegn því
þau að hugsanlega sé það slæmt fyr-
ir heilsu manna. Íslenskir auðmenn
hafa þó ekki látið þetta stöðva sig í
því fjárfesta í húsunum á svæðinu.
Björgólfur og Hannes
í Notting Hill
Á meðan stærsta Íslendinganýlend-
an er á ruslahaugunum í Richmond
búa margir aðrir íslenskir auðmenn á
víð og dreif um borgina. Ýmsir þeirra
búa reyndar í hverfum sem tvímæla-
laust eru meira heillandi en Rich-
mond-hverfið sem er dálítið eins og
evrópsk útgáfa af búsetuformi sem
tíðkast mjög á Flórída í Bandaríkj-
un um. Verktakar byggja
mörg hús, eða
íbúðir, sem
líta nokk-
urn veginn
eins út
og girða
þau af
með
víggirð-
ingum.
Þau
14 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 FRÉTTIR
ÍSLENSKIR AUÐMENN Í LONDON
Íslensku útrásarvíkingarnir í London búa á misheillandi stöð-
um. Sumir búa í hverfum sem eru með þeim fallegri í heiminum
á meðan aðrir búa á Flórídalegum, afgirtum svæðum þar sem
áður voru öskuhaugar. Blaðamaður DV fór á slóðir útrásarvík-
inganna í London og forvitnaðist um stöðu þeirra.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
eru síðan seld sem lúxusheimili eða
lúxusíbúðir til að vel stæðs fólks sem
telur öryggi sínu betur borgið innan
rammgerðra veggja.
Tveir af þessum mönnum eru
Hannes Smárason, fyrrverandi
stjórnarformaður FL-Group og fjár-
festir og Björgólfur Thor Björgólfs-
son, fjárfestir og fyrrum meirihluta-
eigandi Landsbankans. Báðir búa
þeir í hinu mjög svo fallega og sjar-
merandi Notting Hill-hverfi sem
margir kannast örugglega við úr
samnefndri kvikmynd með Hugh
Grant í aðalhlutverki. Flestir eru
sammála um að fá hverfi í Lundún-
um séu fallegri og það er staðsett í
hjarta borgarinnar.
Björgólfur og Hannes búa
steinsnar hvor frá öðr-
um í Notting Hill – þó
ekki eins nálægt og
Ármann og Gunnar.
Hægt er að ganga
á milli húsanna
þeirra á um hálf-
tíma eða svo.
Þegar blaða-
mann DV bar að
húsi Hannesar var
ekki ljóst hvort ein-
hver var heima eða
ekki. Gljáfægð Range
Rover-bifreið stóð fyrir
framan húsið sem er hið
glæsilegasta, enda
keypti Hannes
það
fyrir meira en 600 milljónir króna
síðastliðið vor, samkvæmt því sem
kom fram í pistli Sigrúnar Davíðs-
dóttur í Speglinum fyrir skömmu.
Sigrún greindi líka frá því að hús-
ið væri skráð á eignarhaldsfélagið
Cod rington, sem er í skattaskjólinu
Guernsey á Ermarsundi, og að ekki
væri hægt að komast yfir upplýsingar
um hver ætti þetta eignarhaldsfélag.
Ekki er vitað við hvað Hannes er
að sýsla í London þessa dagana en
hann hefur látið afar lítið fyrir sér
fara frá hruninu 2008 og ekki veitt
fjölmiðlum viðtal. Hannes hefur
hins vegar sést í fylgd Magnúsar Ár-
manns, sem kenndur er við eignar-
haldsfélagið Imon, sem einnig býr í
Lundúnum. Ekki er vitað til þess
að Hannes hafi verið rann-
sakaður vegna efnahags-
hrunsins en Magnús er
með réttarstöðu grunaðs
manns vegna rannsókn-
ar sérstaks saksóknara á
kaupum Imons á hluta-
bréfum í Landsbankan-
um skömmu fyrir hrun.
Hús Björgólfs er svo
enn dýrara en hús Hann-
esar en Sigrún greindi frá
því að það væri metið á um
1,5 milljarða króna. Björgólfur
hefur átt húsið lengi, frá ár-
inu 2001
Á meðan stærsta Ís-
lendinganýlendan er á
ruslahaugunum í Rich-
mond búa margir aðrir
íslenskir auðmenn á víð
og dreif um borgina.
Big Ben Eitt frægasta tákn
borgarinnar þar sem margir
íslenskir útrásarvíkingar búa.