Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Side 19
þurfi að koma til aukagreiðslna og
er almennt á móti aukasporslum,“
segir hún og bendir á að erfitt sé að
bera saman laun þeirra sem fá fasta-
greiðslu og þeirra sem fá dagvinnu og
yfirvinnu borgaða.
Forðum okkar
smæstu bræðrum
„Ég fæ hana greidda sem fasta
greiðslu og borga skatta af henni eins
og um laun sé að ræða. Svo reyni ég að
halda saman nótum. Ég er ekki flink-
ur við það en ég reyni að halda saman
nótum í þeirri von að endurskoðandi
minn geti fundið út að ég eigi ekki að
borga alla þessa skatta,“ segir Þráinn
Bertelsson, óháði þingmaðurinn, um
starfskostnaðargreiðslurnar. „Ég er
sammála því prinsippi að greiða fasta
upphæð frekar en að greiða eftir nót-
um. Við höfum nýlegt dæmi um það
frá breska þinginu hvað gerist þegar
menn eiga að fara að skila inn kostn-
aðarnótum, eða hvað getur gerst. Það
getur allt saman lent í vitleysu. Ég held
að það sé miklu betra að áætla fast-
an kostnað sem menn þá miði við og
hagi gerðum sínum eftir.“ Þráinn vísar
þarna til mikilla hneykslismála sem
hafa minnkað trú bresks almennings
á þingi sínu eftir að upp komst að mik-
ill fjöldi þingmanna hafði fengið end-
urgreiðslur fyrir útgjöld sem tengdust
starfi þeirra ekki neitt. „Þetta er ákveð-
in regla og ég kann vel við þessa aðferð
að áætla fasta fjárhæð sem gildir fyrir
alla. Mér finnst það vera góð og gegn-
sæ regla sem forðar okkar smæstu
bræðrum frá því að leiðast í freistni
með því að safna saman einhverjum
undarlegum kvittunum.“
FRÉTTIR 15. janúar 2009 FÖSTUDAGUR 19
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra, sem ákvað á síðasta ári
að segja upp aksturssamningum
ríkisstarfsmanna, neitar að tjá sig
um hvort fara eigi sömu leið með
starfskostnaðargreiðslur Alþingis.
Þingmenn fá fastar starfskostn-
aðargreiðslur frá Alþingi, sem
svipar um margt til fastra aksturs-
samninga ríkisstarfsmanna sem
nú hefur verið sagt upp. DV fýsti að
vita hvað Steingrími þætti um að
þær föstu starfskostnaðargreiðsl-
ur, upp á 61.400 krónur á mánuði,
væru líka lagðar af líkt og fastir akst-
urssamningar ríkisstarfsmanna. Þó
að starfskostnaðargreiðslur þing-
manna séu ákveðnar af forsætis-
nefnd Alþingis og heyri ekki undir
framkvæmdavaldið þótti áhugavert
að vita hver afstaða Steingríms væri
til þessa. Ástæður þess eru meðal
annars að hann hefur fyrirskipað
uppsögn aksturssamninga ríkis-
starfsmanna, er formaður annars
stjórnarflokkanna og stendur í
miklum niðurskurði á ríkisútgjöld-
um vegna afleiðinga bankahruns-
ins.
Tjáir sig ekki
„Eins og þú bendir á er þetta mál
sem varðar alfarið Alþingi en ekki
framkvæmdavaldið. Af þeim sök-
um telur fjármálaráðherra ekki
rétt að hafa afskipti eða tjá sig um
hvernig Alþingi hagar þessu,“ svar-
aði Elías Jón Guðjónsson, upplýs-
ingafulltrúi fjármálaráðuneytisins,
beiðni um viðtal við fjármálaráð-
herra um málið. Þegar óskað var
eftir viðtali við Steingrím bað Elías
um að fá skriflega beiðni. Hún var
svohljóðandi: „Mig langar til að ná
tali af Steingrími vegna fréttar sem
ég er að skrifa um starfskostnað-
argreiðslur þingmanna. Þar sem
er búið að segja upp samningum
um aksturspeninga langar mig
að spyrja út í afstöðu hans til þess
hvort ætti að gera það sama með
ferðakostnaðargreiðslur þing-
manna, segja upp föstum greiðsl-
um og greiða bara eftir reikning-
um og/eða akstursbókum. Ég geri
mér grein fyrir að það er Alþingi
en ekki framkvæmdavaldið sem
ræður þessu en langar til að vita
afstöðu Steingríms til þessa út af
uppsögn aksturssamninga ríkis-
starfsmanna.“
Steingrímur ákvað hins vegar að
tjá sig ekki.
Stór hluti kjaranna
Eins og sjá má hér á opnunni eiga
allir þingmenn rétt á föstum starfs-
kostnaðargreiðslum upp á 66.400
krónur á mánuði og mánaðarleg-
um ferðakostnaðargreiðslum upp
á 61.400 krónur. Þær fyrrnefndu
eru skattskyldar en skatturinn get-
ur lækkað gegn framvísun reikn-
inga. Ekki er innheimtur skattur af
síðarnefndu greiðslunum. Að auki
fá þingmenn landsbyggðarkjör-
dæma sem halda tvö heimili fast-
ar greiðslur til að standa straum af
kostnaði við heimilishald sem til er
komið vegna þingsins. Ekki er inn-
heimtur skattur af þeim. Þó gætu
þingmenn þurft að gera grein fyrir
útgjöldum á móti þessum greiðsl-
um þegar kemur að gerð skatt-
skýrslu.
Á launaseðli þingmanns er því
ekki óalgengt að þingfararkaupið
standi aðeins undir 80 prósentum
af föstum greiðslum þingmanns á
höfuðborgarsvæðinu og aðeins 67
prósentum af kjörum þingmanna í
landsbyggðarkjördæmum.
Starfstengdar greiðslur þing-
manna hafa staðið í stað síðustu
ár. Áður voru þær endurskoðaðar
einu sinni á ári til að endurspegla
raunkostnað en síðustu tvö ár hef-
ur verið ákveðið að láta þær standa
óbreyttar í sparnaðarskyni fyrir
þingið. brynjolfur@dv.is
LÆKKAR RÍKISSTARFSMENN
EN ÞEGIR UM ÞINGMENN
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra neitar að tjá sig um hvort hann telji að
fella eigi niður ferðakostnaðargreiðslur þingmanna. Hann hefur hins vegar fyrir-
skipað að föstum aksturssamningum ríkisstarfsmanna verði sagt upp.
Þögull sem gröfin Segir ekki hvort sama eigi að ganga yfir þingmenn og
ríkisstarfsmenn. Missti sjálfur greiðslurnar þegar hann varð ráðherra og fékk bíl
og bílstjóra hjá ráðuneytinu. MYND SIGTRYGGUR ARI
ÓSAMMÁLA UM SPORSLURNAR
Fundað á Alþingi Þingmenn fá fastar greiðslur til að
standa straum af kostnaði sínum. Þeir geta þó í sumum
tilfellum aðeins fengið greitt gegn framvísun reikninga.
MYND SIGTRYGGUR ARI