Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Qupperneq 29
M
Æ
LI
R
M
EÐ
...
MÖMMU GÓGÓ
Frikki er
kominn
til baka.
CALL OF
DUTY:
MODERN
WARFARE 2
Í einu orði sagt
rosalegur.
STALÍN UNGA
Verðskuldað
verðlaunabók.
BJARNFREÐARSYNI
Öllu tjaldað til í
lokahnykk um
persónurnar í
Vaktaseríunum
og tekst
frábærlega.
AVATAR
Stórmynd
sem fólk
verður að
sjá í bíó.
FLÓTTANUM MIKLA MEÐ
MORÐINGJUNUM
Frábær plata
hljómsveitar í
framþróun.
FÓKUS 15. janúar 2009 FÖSTUDAGUR 29
FÖSTUDAGUR
n Siggi Hlö á Spot
Útvarpsmaðurinn Sigg Hlö sem stýrir
útvarpsþættinum Veistu hver ég var?
verður á Spot í Kópavogi á föstudag.
Aðstandendur staðarins lofa því
að Siggi muni gera allt „crazy“ og
að hann verði hreint „ótrúlegur“.
Miðaverð er 1.200 krónur.
n Trix & Ghozt í Sjallanum
Trix & Ghozt efna til dansveislu á
Sjallanum um helgina. Það er langt
síðan þeir félagar komu saman
og spiluðu. Von er á gleðilegum
træbal-tekk-hús-tónum í bland við
þétta teknótónlist með dass af vókal
og kryddað með grúvi. Það má búast
við hita, svita og dónatónum þannig
að það er þitt að mæta og kynnast
þessu af eigin raun.
n Kokteilbandið á Prikinu
Það er Kokteilbandið sem byrjar
föstudagskvöldið á Prikinu. Róleg
stemming og almenn huggulegheit
fram eftir kvöldi en að því loknu
er það Kokoon sem tekur við. Ekki
er ólíklegt að stemmingin verði
hreinlega yfirþyrmandi fram eftir
nóttu og það er skylda að sveifla
ljósakrónunum.
n Umbúðalaust í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs frumsýnir leik-
ritið Umbúðalaust. Ellefu persónur.
Ellefu hindranir. Óteljandi möguleik-
ar. Óræðar persónur á óljósum stað
eru knúnar til að taka málin í sínar
hendur þegar óvænt atvik gerist. Er
sá sem síðast hlær kannski sá sem
náði ekki brandaranum? Nánar á
kopleik.is.
LAUGARDAGUR
n GusGus á Selfossi
GusGus spilar í Hvíta húsinu á
Selfossi í fyrsta skipti laugardaginn
16. janúar. Hljómsveitin hefur gert
það gott undanfarin ár bæði heima
og erlendis og hefur fyllt flesta stærri
skemmtistaði landsins á síðustu
misserum. Þá átti hljómsveitin eitt
af vinsælli lögum á landinu á árinu
2009, Add this song, sem toppaði
flesta vinsældalista.
n Óli ofur á Nasa
Plötusnúðurinn Óli ofur sér um
stemminguna á Nasa á laugardaginn.
Það orðspor sem hann hefur innan
íslensku danstónlistarsenunnar er
síst óverðskuldað. Hæfileika hans við
plötusnúninga þekkja flestir, en ekki
allir vita að hann er einnig sérlega fær
hljóð- og ljósamaður. Til hans leita
flestir skipuleggjendur dansviðburða
hérlendis þegar þá vantar afburðaljós
og -hljóð fyrir kvöldið.
n Háskólasprellhelgi á Sjallanum
Háksólasprellhelginni lýkur á Sjallan-
um á laugardag. Þar hittast nemend-
ur úr flestum háskólum landsins til
að sletta úr klaufunum við magnaða
partítónlist N3 plötusnúða á síðasta
snúningi ásamt furðufuglinum Sigga
Gunnars. 20 ára aldurstakmark. 1000
krónur í forsölu og 1500 við dyr.
n Hunang á Spot
Hljómsveitin Hunang leikur á Spot
á laugardaginn og enn og aftur lofa
aðstandendur staðarins því að allt
verði „crazy“ á staðnum. Já, hreint út
sagt brjálæðislegt. Hunangsmenn
eru með hlutina á hreinu og hafa
verið að gera allt „crazy“ í Kópavogin-
um undanfarið.
Hvað er að
GERAST?
um. Umbi spyr til dæmis á einum stað:
„Á þá bara að hafa skáldlegt hugarflug
í staðinn fyrir réttlæti?“ Þegar farið er
að glíma við þessa spurningu í sam-
hengi verksins af fullri alvöru þá held
ég að hún geti valdið meiri straum-
hvörfum í sýn manna á lífið og til-
veruna en 10.000 prófkjörsfundir.“
Hinn þrískipti Halldór
Í fyrsta hluta bókarinnar fjallar Hauk-
ur um viðtökusögu bóka Halldórs sem
um ræðir. Þar kemur meðal annars
fram að ólíkar myndir manna af skáld-
inu hafi áhrif á viðtökur bókanna og
gildir það raunar um allar bækur Hall-
dórs þegar líður á ferilinn og að menn
endurskoði þessar hugmyndir sínar
ekki þrátt fyrir ný verk hans.
„Það eru í raun þrjár myndir af
Halldóri sem ég skoða. Í fyrsta lagi
þjóðskáldið, í öðru lagi stjórnmála-
maðurinn og svo bókmenntamaður-
inn. Ég bý til rammana og flokka dóm-
ana en ég forðast að búa til úr þessu
skotgrafir eins og þá að Morgunblaðið
sé alltaf á einhverri línu frá Sjálfstæð-
isflokknum eða að Árni Bergmann sé
alltaf að skoða Halldór og verkin hans
sem vinstrimaður af því að Árni skrifar
í Þjóðviljann. Í raun læt ég lesendum
bókarinnar eftir að draga þessar álykt-
anir, ef þeir kæra sig um það.
Sumir ritdómaranna voru afkvæmi
aldamótakynslóðarinnar með inn-
blásnar hugmyndir um íslenskt sjálf-
stæði og ungmennafélagsanda, aðr-
ir eru ungir róttæklingar með miklar
og sterkar stjórnmálaskoðanir, og enn
aðrir eru útlærðir bókmenntafræð-
ingar sem koma til landsins með nýj-
ar kenningar sem þeir beita á bækur
Halldórs. Þetta eru því mjög ólík sjón-
arhorn en langflestir dómaranna eru
með ótrúlega mikla þekkingu bæði á
verkum Halldórs og ferli hans og mér
var mikið í mun að draga fram hversu
lífleg og skemmtileg bókmenntaum-
ræðan var á þessum tíma.“
Tónverk í textaformi
Í viðtali við Matthías Johannessen í
Morgunblaðinu árið 1970 kveðst Hall-
dór mikið hafa hugsað um hvernig rétt
sé að segja sögu til að fá lesendur til
að hugsa sjálfa. Þetta finnst Hauki al-
gert grundvallaratriði í verkunum sem
hann er með undir í bók sinni og á
þessu síðasta skeiði á ferli Nóbelsverð-
launaskáldsins. Ein af leiðunum sem
Halldór notar til þess að ná fram þessu
markmiði sínu er að nota frásagnar-
lögmál sem lesendur þekkja, að sögn
Hauks.
„Halldór nýtir sér glæpasagna-
formið í Kristnihaldinu en líka Drakúla
eins og Bjarni Bjarnason rithöfund-
ur hefur bent á. Í Guðsgjafaþulu tekur
hann mið af kvikmyndum og ástarsög-
um, en það sem er svolítið sérstakt við
Innansveitarkroniku er að menn fóru
fljótlega að tala um að hún væri eins og
hljómkviða úr orðum. Menn sóttu lík-
ingar til tónlistar og ég fór því að kanna
hvort menn hefðu gert tilraunir til að
greina bókmenntatexta með hliðsjón
af tónlist,“ segir Haukur sem fann slíka
greiningu eftir Umberto Eco þar sem
hann greinir sjónarhornaskipti í skáld-
sögunni Sylvie eftir Gérard de Nerval.
Haukur hefur teoríu Eco til hlið-
sjónar greiningu sinni á Innansveit-
arkroniku. Í þeirri mjög svo athyglis-
verðu nálgun sinni á sögunni komst
Haukur að því að Halldór lætur skipt-
ast á milli radda í verkinu með afar
markvissum hætti þannig að stundum
er eins og það tali ein rödd og stundum
er eins og það tali kór.
„Það sem er svo skemmtilegt við
bókmenntir og til dæmis þessa rit-
dóma er að menn lýsa einhverjum
hugmyndum eða tilfinningum sem
texti vekur. Og stundum eru menn
furðu samhljóma. Það er ákveðinn
samhljómur í dómunum um Innan-
sveitarkroniku þót það sé mjög erfitt
að sýna fram á með röklegum hætti
hvers vegna textinn minnir á tónverk.
Mér fannst skemmtilegt að taka upp
þráðinn þar sem gagnrýnendurnir
sleppa honum og sjá hvort maður gæti
fært rök fyrir því að það sé eitthvað
til staðar í textanum sem tilfinningar
þeirra byggðu á og reyna þá að skýra
hvað það var í textanum sem gerði að
verkum að þeir gripu til þessa orðalags
frekar en einhvers annars.“
Enn óvíst hvort Auður
sé höfundurinn
Að lokum kveðst Haukur vilja minn-
ast á grein eftir Björn Þór Vilhjálms-
son bókmenntafræðing sem birtist
nýverið í tímaritinu Skírni þar sem
Björn fjallar um Guðsgjafaþulu. „Mér
þótti gaman að sjá hversu mikill sam-
hljómur er með athugunum mínum
og grein Björns. Ég held líka að sumu
leyti að Guðsgjafaþula sé verk sem tali
skemmtilega við okkar samtíma. Ég
held að mjög margt í þessari bók geti
höfðað afskaplega sterkt til ungs fólks.
Það er mjög margt sem er ofarlega í
baugi í kvikmyndum og bókmenntum
nú sem er til staðar í bókinni.“
Ætli tími Guðsgjafaþulu sé kom-
inn? „Ég get náttúrlega ekki svarað því
öðruvísi en játandi,“ segir Haukur. „En
ég held að það myndi koma mörgum á
óvart þegar þeir lesa bókina hvað það
er mikið í henni, hvað hún er í raun-
inni framúrstefnuleg eða síung.”
Spurður hvort niðurstaða hans
sé að Auður Laxness hafi ekki skrifað
þessar síðustu skáldsögur Halldórs
segir Haukur kíminn að niðurstað-
an gefi kannski tilefni til frekari rann-
sókna út frá þeirri kenningu.
kristjanh@dv.is
Haukur Ingvarsson „Ég hef
stundum reynt að skýra þetta með
því að segja að sögumaður Guðs-
gjafaþulu eigi í svipuðu sambandi
við Íslandsbersa og Sæmi rokk átti
við Bobby Fischer.“