Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Page 32
hlið hans, og minnist aftur á þenn-
an nýja kafla sem hann er að fara að
skrifa í lífssögu sína. Nú er það fjöl-
skyldan sem verður ofan á. „Ég seldi
nú mótorhjólið mitt fyrir hana og
keypti fataskáp,“ segir hann og þau
hlæja bæði. „Nú snýst þetta bara um
fjölskylduna. Mótorhjólin og sport-
bílarnir voru í síðasta kafla lífsins. Nú
er ég bara með tvo ljótari bíla og svo
vespuna.“
Hann heldur áfram: „Öll þessi ár
að keyra þessa blæjubíla gerði líf-
ið í leiðinlegum bæ í Þýskalandi
skemmtilegra. Ég er bara þannig
týpa að mér finnst svona hlutir svo
skemmtilegir. Ég hef líka átt önn-
ur mótorhjól sem ég fór á fjöll með
og svo var ég að keyra á bílasýning-
ar og stússast í hinu og þessu. Þetta
var bara mitt áhugamál á meðan ég
var ekki með námið eða fyrirtækið.
En nú er það bara tuttugu og sjö ára,
punktur, eins og ég var að tala um.
Þetta er að baki eins og Lemgo-ævin-
týrið,“ segir Logi.
KONAN HAFÐI EKKI
MIKIÐ ÁLIT Á LOGA
Það var í byrjun síðasta árs sem Logi
fann ástina í lífi sínu, körfuknatt-
leikskonuna gullfallegu úr Kefla-
vík Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttur.
Hún fer aðeins hjá sér þegar Logi á að
lýsa þeirra fyrstu kynnum. „Hún átti
frumkvæðið með því að hafa sam-
band við mig. Við hittumst svo og fór-
um á stefnumót og áður en ég vissi af
var hún flutt út til mín,“ segir Logi og
og hlær. „Ást við fyrstu sýn eða ekki,
við erum allavega mjög hamingju-
söm. Eins og við erum nú ólíkar týp-
ur, hún svona hlédræg og ég eins og
ég er. Hún er með athyglissýki svona
upp á einn á meðan ég er tía.“
Ingibjörg lítur á Loga þegar hún er
spurð um álit sitt á honum. „Ég hafði
einu sinni ekkert rosalega mikið álit
á honum. Eins og fólk heldur oft að
hann sé öðruvísi en hann er, þá að
hann sé algjör hálfviti og töffari. Það
er líka sá frontur sem hann er með,“
segir hún og Logi grípur inn í: „En svo
er ég bara gull af manni,“ og Ingibjörg
tekur hjartanlega undir: „Já, gull af
manni.“
Logi grípur aftur orðið og vill tjá
sig um þessa ímynd sem fylgir hon-
um. „Mér finnst gaman að gera eitt-
hvað flott, klæða mig flott og gera
eitthvað skemmtilegt. En ég kem eins
fram við alla, hvort sem þeir heita Ól-
afur Stefánsson eða Ólafur Ragnar
Grímsson. Ég tala eins við börn og
fullorðna. Ég er bara ég sjálfur, alltaf.“
ATHYGLIN STUNDUM
TRUFLANDI
Það var skemmtiritið Séð og Heyrt
sem fyrst greindi frá því að Logi og
Ingibjörg væru byrjuð saman. Vík-
urfréttir náðu svo papparassa-mynd-
um af þeim á körfuboltaleik í Keflavík
sem DV birti. „Mér fannst það ekkert
æðislegt,“ svarar Ingibjörg hreinskil-
in þegar hún er spurð út í umfjöll-
unina. „Mér fannst það bara fynd-
ið,“ segir Logi. „Þetta náttúrulega
vakti athygli, við að rúnta á Hummer
í Keflavík. Það er líka það sem fólk
hefur svo gaman af. Maður er opin-
ber persóna að spila fyrir landsliðið
og svona, fólk vill vita hvað maður er
að gera. Hversu oft hef ég ekki lent í
því að einn af 5.000 vinum mínum á
Facebook heilsar mér úti á götu? Oft
kannast ég ekkert meira við viðkom-
andi en andlitið af Facebook,“ segir
hann.
Logi nýtur allrar þeirra athygli
sem hann fær og reynir að gefa eins
mikið af sér og hann getur. „Fólk vill
vita aðeins hvað er að gerast á bak
við tjöldin og hvernig það sé að búa
þarna úti. Bara almenn og skiljanleg
forvitni,“ segir hann en mun hann
lokast eitthvað meira nú þegar barn-
ið kemur og fjölskyldan tekur á sig
mynd? „Nei, ég mun ekkert breyta
minni persónu og ég er búinn að
segja Ingibjörgu það. Henni fannst til
dæmis ekkert sérstakt að koma í Séð
og Heyrt og svona en svoleiðis fréttir
skipta mig engu máli.“
FACEBOOK-SÍÐA FYRIR BARNIÐ
Logi er líka afskaplega vinsæll á Face-
book. Hann er með eins marga vini
og hægt er, fimm þúsund, og annar
eins fjöldi er á biðlista ef svo má að
orði komast. Logi er afar duglegur
að birta myndir af sér og Ingibjörgu
32 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2010 HELGARBLAÐ
í Þýskalandi. Fer það í taugarnar
á henni? „Stundum,“ svarar hún.
„Sumt á Ísland kannski ekkert að sjá
finnst mér. Ég set ekki svona margar
myndir inn hjá mér og ég á ekki nema
300 vini,“ segir hún og þau hlæja
bæði. Logi segir: „Þetta gengur samt
eins og í sögu hjá okkur,“ og Ingibjörg
tekur heils hugar undir það. „Alveg
eins og í sögu.“ „Ætli þetta endi ekki
með giftingu bráðum,“ segir Logi svo
dularfullur.
Ingibjörg er komin um fjóra mán-
uði á leið með þeirra fyrsta barn. Logi
verður ögn alvarlegri spurður um
stundina þegar hann frétti af því.
„Það var mjög góð tilfinning. Mað-
ur byrjar að hugsa einhvern veginn
öðruvísi samt. Tilfinningin að það sé
líf á leiðinni sem maður hefur búið til
er mjög góð. Ætli ég búi ekki til Face-
book-síðu handa barninu svo þegar
það kemur,“ segir hann og skellihlær.
„Nei, ég er nú ekki alveg snældurugl-
aður!“
VERÐUR ÍSLANDI AÐ
GAGNI HEILL HEILSU
Það var ekki hægt að skilja við Loga
án þess að spyrja út í Evrópumót-
ið sem skellur von bráðar á í Aust-
urríki. Með hverjum deginum sem
nær dregur verða væntingar land-
ans meiri eins og venjan er. Logi var
þó í miklu limbói hvað varðaði þátt-
töku á mótinu. Hann var meiddur
en á síðustu stundu var ákveðið að
hann myndi fara með til Austurríkis.
„Þetta er samt mjög mikilvægt fyrir
mig. EM er gluggi til að sýna sig upp
á nýjan samning einhvers staðar, í
rauninni,“ segir Logi sem veit vel af
pressunni frá þjóðinni en sjálfur er
hann nokkuð bjartsýnn.
„Auðvitað er pressa á liðinu að ná
árangri en mér finnst uppbyggingin
á liðinu þannig að við getum unn-
ið svona keppni. Ég er búinn að vera
með þá tilfinningu síðan á HM 2007.
Þá fór mér að finnast að við gætum
unnið svona mót. Allir leikmennirn-
ir komnir í sterk lið og það hefur ver-
ið mikill stígandi í þessu. En það má
ekki gleyma að Evrópumótið er jafn-
sterkt og Ólympíuleikar, hver leikur
er alvöru,“ segir hann.
Talið barst svo í bláendann að
þjálfaranum, Guðmundi Guð-
mundssyni, sem Logi lofar upp í
hástert. „Gummi er svo fáránlega
góður þjálfari. Ég er ekki viss
um að nokkur annar maður
gæti gert það sem hann er að
gera með okkur. Svo líka að vera
með liðið á Ólympíuleikunum
2004, ganga illa og vera rekinn
eða hvernig sem það var. Koma
svo aftur á næstu Ólympíuleika
og taka silfrið. Það er svo mik-
ið „feis“. Hann vonar náttúru-
lega að ég verði með. Ég klár-
lega hjálpa liðinu ef ég er heill.
Ég hjálpa þeim ekki ef ég er bara
hálfur maður. Þá er betra að
senda einhvern annan út,“ seg-
ir Logi Geirsson, silfurdrengur
og verðandi faðir.
tomas@dv.is
Ég ætlaði að verða
betri en pabbi í
handbolta og það er
enn á stefnuskránni.
YFIRGEFUR DRAUMALIÐIÐ Logi vildi
alltaf spila með Lemgo og það tókst. Nú
hverfur hann á braut í sumar.
PAPPARÖSSUÐ Fyrst fréttist af Loga
og Ingibjörgu í byrjun árs í Keflavík. Það
var þá ungur drengur sem náði af þeim
ljósmynd. Ingibjörgu fannst fréttaflutn-
ingurinn ekkert skemmtilegur.
ENGUM LÍKUR Logi er alltaf
gelaður og vel til fara. Algjör
töffari og alltaf í góðu skapi.
MYND KRISTINN MAGNÚSSON