Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 34
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is
Jón M. Jónsson
FYRRV. BÓNDI Í HVÍTANESI Í VESTUR-LANDEYJUM
Jón fæddist í Miðkoti í Vestur-Land-
eyjum í Rangárvallasýslu og ólst þar
upp í foreldrahúsum við öll almenn
sveitastörf. Hann flutti með foreldr-
um sínum að Hvítanesi í V-Land-
eyjum árið 1937, sem þá var eyði-
býli, en þeir feðgar byggðu það upp
næstu árin.
Jón tók svo við búi foreldra sinna
árið 1946 og bjó með blandaðan bú-
skap til ársins 1986. Með búskapn-
um stundaði Jón smíðar vítt og
breitt um sveitir.
Jón var virkur í ýmsum félags-
málum, tók m.a. þátt í ungmennafé-
lagsstarfi, sveitarstjórnarmálum og
kórastarfi en söngur var, og er enn,
stór þáttur í lífi hans.
Jón býr enn í Hvítanesi með eig-
inkonu sinni og er mjög virkur í
starfi eldri borgara í sýslunni.
Fjölskylda
Jón kvæntist 13.11. 1943 Ástu Helga-
dóttur, f. 26.5.1920, húsfreyju. Hún
er dóttir Helga Pálssonar frá Ey I, í
Vestur-Landeyjum og k.h., Margrét-
ar Árnadóttur, frá Lágafelli í Austur-
Landeyjum.
Börn Jóns og Ástu eru Elín, f. 3.12.
1944, maki Sigurður Sigmundsson;
Margrét Helga, f. 9.11. 1945, maki
Ingimundur G. Vilhjálmsson; Vil-
borg Alda, f. 9.11. 1949; Barbára f.
22.8. 1951, maki Örn Hlíðdal; Sig-
rún Margrét, f. 14.5. 1958, maki Árni
Þorgilsson.
Barnabörn Jóns og Ástu eru nítj-
án talsins og barnabarnabörn eru
nú orðin tuttugu og sex talsins.
Systur Jóns eru allar látnar en
þær voru: Anna Ágústa, Ingibjörg,
Salvör Sumarrós og María.
Foreldrar Jóns voru Jón Tómas-
son frá Arnarhóli og Elín Ísaksdóttir
frá Miðkoti.
90 ÁRA SL. MIÐVIKUDAG 70 ÁRA Á SUNNUDAG
Örn Guðmundsson
FYRRV. SKÓLASTJÓRI LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS
Örn fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann stundaði nám við versl-
unarskóla í London 1957-62 og lærði
auk þess geðhjúkrun í London í eitt
ár. Þá lauk hann danskennaraprófi frá
Dansskóla Hermanns Ragnars Stef-
ánssonar 1964.
Örn stundaði síðar MA-nám við
University of Leeds frá 2006 og lauk
þar prófum 2007. Hann hóf síðan
leiðsögunám haustið 2008 og lauk því
vorið 2009.
Örn tók þátt í flestum söngleikj-
um og ballettuppfærslum í Þjóðleik-
húsinu á árunum 1969-73, var í hluta-
starfi sem framkvæmdastjóri Íslenska
dansflokksins frá stofnun 1973-77 og
var fastráðinn framkvæmdastjóri og
dansari við flokkinn 1977-89.
Örn stofnaði heildverslunina Lenu
1986 og starfrækti hana til 1990, varð
héraðslistamaður á Álandseyjum og
búsettur þar 1990-97 en þar starf-
aði hann við danskennslu og kynn-
ingu á listdansi og samkvæmisdansi.
Auk þess stofnsetti hann dansskóla á
Álandseyjum sem hann stýrði til 1997
en skólinn er nú ríkisrekinn.
Er Örn kom aftur til Íslands 1997
varð hann skólastjóri Listdansskóla
Íslands og gegndi því starfi til 2006.
Hann hefur verið leiðsögumaður hér
á landi frá 2009.
Örn var ritari Danskennnarasam-
bands Íslands í tvö ár, formaður Fé-
lags íslenskra listdansara í sex ár, sat
í stjórn Bandalags íslenskra lista-
manna, í stjórn Danskennarasam-
bands Íslands, sat í norrænu dans-
og leiklistarnefndinni, NORDSCEN,
1986-90, fyrst sem fulltrúi Íslands,
síðan sem fulltrúi Álandseyja og loks
aftur sem fulltrúi Íslands,var fulltrúi
dansmenntunar á Íslandi í ELIA, Eur-
opean Leaqeu of the Art, 1999-2006
og sat í stjórn ELIA fyrir hönd Norður-
landanna 2004-2006.
Fjölskylda
Örn kvæntist þann 18.9. 1965 Petru
Gísladóttur, f. 15.9. 1944, hárgreiðslu-
meistara og danskennara. Foreldr-
ar hennar voru Gísli Guðmundsson
vörubílstjóri og Guðrún Sumarliða-
dóttir húsmóðir sem eru látin.
Dætur Arnar og Petru eru Hild-
ur, f. 16.5. 1966, sjúkraliði í Reykja-
vík en maður hennar er Árni Gunnar
Sveinsson húsasmíðameistari og eiga
þau þrjú börn; Rut, f. 12.5. 1974, versl-
unarmaður hjá Útilífi, búsett í Reykja-
vík og á hún tvö börn.
Systur Arnar eru Guðrún, f. 9.3.
1945, búsett í Bandaríkjunum, gift
Georg Petersen, og eiga þau einn
son; Svava, f. 10.6. 1950, húsmóðir í
Reykjavík og á hún tvö börn en sam-
býlismaður hennar er Jón Jónsson;
Erla, f. 31.1. 1959, starfar á lögfræði-
skrifstofu, gift Hlöðveri Ólafssyni og
eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Arnar eru Guðmundur
Nikulásson, f. 24.6. 1919, d. 20.7. 1994,
lengst af starfsmaður Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, og Margrét Ingimundar-
dóttir, f. 8.8. 1921, húsmóðir í Reykja-
vík.
Ætt
Guðmundur er sonur Nikulásar,
línumanns í Reykjavík Pálssonar, tré-
smiðs á Eyrarbakka og í Reykjavík
Jónssonar, b. á Sámsstöðum Hall-
dórssonar, b. í Vatnsdal Pálssonar,
b. á Uxahrygg Arnbjörnssonar, b. á
Uxahrygg Ögmundssonar. Móðir
Páls Jónssonar var Guðrún Jónsdótt-
ir, hreppstjóra í Flagveltu Ingvars-
sonar, á Stóru-Völlum Magnússon-
ar, í Þjórsárholti Einarssonar. Móðir
Guðrúnar var Þórunn Jónsdóttir, b. í
Holti á Landi Bjarnasonar, ættföður
Víkingslækjarættar Halldórssonar.
Móðir Nikulásar Pálssonar var Fides
Guðmundsdóttir, b. á Vilborgarstöð-
um í Vestmannaeyjum Ólafssonar, í
Dölum í Vestmannaeyjum Jónsson-
ar, í Forsæti í Landeyjum Ólafssonar,
á Ytrihóli í Landeyjum,Ormssonar,
á Stóra-Moshvoli Jónssonar. Móðir
Guðmundar Nikulássonar var Guð-
rún Guðmundsdóttir, b. á Glóru á
Kjalarnesi Guðmundssonar, b. á Ár-
velli á Kjalarnesi Guðmundsson-
ar, b. í Hvammi í Kjós Jónssonar, b.
á Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd
Þorlákssonar. Móðir Guðmund-
ar á Glóru var Guðný Jónsdóttir frá
Reynivöllum.
Margrét, móðir Arnar, er dótt-
ir Ingimundar Jónssonar, bílstjóra í
Reykjavík, og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur.
Valur fæddist að Strýtu við Hamarsfjörð en ólst upp
að Merki við Hamarsfjörð. Hann stundaði barna- og
unglingaskólanám á Djúpavogi en flutti suður 1952.
Valur starfaði á Keflavíkurflugvelli til 1955 en flutti
í Garðinn 1956 og stundaði þar öll almenn störf til
lands og sjávar, m.a. hjá Gauksstöðum hf., Hrað-
frystihúsi Gerðabáta hf. og Fiskverkun Karls Njáls-
sonar. Hann starfaði við mötuneyti varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli frá 1980 til 2003.
Valur sat í stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags
Gerðahrepps (Verkalýðs- og sjómannafélags Suður-
nesja) í nokkur ár og var formaður björgunarsveitar-
innar í Garði (nú Ægir).
Fjölskylda
Valur kvæntist 25.12. 1956 Jóhönnu Andreu Markús-
dóttur, f. 18.8. 1935, húsmóður og verkakonu. Hún er
dóttir Markúsar Guðmundssonar og Þórunnar Ingi-
mundardóttur í Bjargarsteini í Garði sem bæði eru lát-
in.
Börn Vals og Jóhönnu Andreu eru Þórunn Ólöf, f.
14.9. 1956, búsett í Keflavík; Kristinn Ingi, f. 25.8. 1958,
búsettur í Garði; Markús
Karl, f. 17.8. 1962, búsettur
í Ytri-Njarðvík; Guðni Stef-
án, f. 27.12. 1965, búsettur
í Garði; Daníel Þór, f. 28.2.
1973, búsettur í Reykjavík.
Systkini Vals eru Sigurður
Vilhelm, f. 31.12. 1936, bóndi á Skarði í Breiðdal í Suð-
ur-Múlasýslu, kvæntur Ásdísi Gísladóttur og eiga þau
tvo syni; Gerður Kristín, f. 3.5. 1941, búsett í Hafnarfirði,
var gift Kristjáni B. Sigurðssyni sem er látinn og eign-
uðust þau sjö börn en sex þeirra eru á lífi; Sigurbjörg, f.
6.10. 1942, búsett í Hafnarfirði, var gift Guðmundi S. Ill-
ugasyni sem er látinn og eru börn þeirra fimm; Svandís,
f. 23.9. 1948, búsett á Djúpavogi, gift Baldri Gunnlaugs-
syni og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Vals voru Kristinn Jóhannsson, f. 3.8.
1904, d. 11.10. 1990, bóndi og verkamaður, og Guðný
Sigurborg Sigurðardóttir, f. 1.3. 1906, d. 31.8. 1976,
húsmóðir.
Valur og Jóhanna halda sameiginlega upp á af-
mæli sín á afmælisdegi hennar, þann 18.8. n.k.
KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
75 ÁRA Á SUNNUDAG
Valur Kristinsson
MATSVEINN Í GARÐINUM
Sveinn Teitur Svanþórsson
SÖLUMAÐUR HJÁ BYKO
Sveinn fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp, í Breiðholtinu og
Árbænum. Hann var í
Árbæjarskóla og stund-
aði nám við Iðnskólann
í Reykjavík og við Fjöl-
brautaskólann í Breið-
holti.
Sveinn vann við
garðyrkju hjá Háskóla
Íslands á sumrim með
skóla en hóf störf hjá BYKO 1997 og
hefur starfað þar síðan við timbur-
söluna.
Sveinn æfði og keppti í knatt-
spyrnu með Fylki sem barn og ungl-
ingur, með öllum aldursflokkum fé-
lagsins, og lék nokkra
leiki með meistara-
flokki.
Fjölskylda
Bræður Sveins eru Þor-
björn Svanþórsson, f.
3.8. 1977, yfirþjónn hjá
Fiskifélaginu, búsettur í
Reykjavík; Bjarki Dagur
Svanþórsson, f. 10.11.
1990, nemi við MH.
Foreldrar Sveins eru Svanþór
Þorbjörnsson, f. 22.10. 1957, mál-
arameistari og fyrrv. framkvæmda-
stjóri, búsettur í Kópavogi, og Halla
Sveinsdóttir, f. 10.9. 1959, d. 12.2.
2003, verslunarmaður.
30 ÁRA Á FÖSTUDAG
Sigrún Eyþórsdóttir
STARFSMAÐUR VIÐ HITT HÚSIÐ
Sigrún fæddist í
Reykjavík en ólst
upp í New York til
sjö ára aldurs og síð-
an í Reykjavík. Hún
var Fossvogsskóla
og Réttarholtsskóla,
lauk stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum í
Reykjavík og lauk BA-
prófi í útivistarfræðum
við La Trobe Univer-
sity í Ástralíu árið 2006.
Sigrún hefur hefur starfað hjá
Íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur sl. fjórtán ár, á félagsmiðstöð-
um, við leikjanámskeið og í leik og
starfi með þroskahömluðum ein-
staklingum. Hún starfar við Sér-
sveitina hjá Hinu húsinu.
Sigrún starfaði í björgunar-
sveitinni Ársæli á unglingsár-
unum og hefur stundað ýmsar
íþróttagreinar, s.s. handbolta og
knattspyrnu, með ýmsum aldurs-
hópum Víkings á æsku- og ungl-
ingsárunum en hef-
ur í seinni tíð sérhæft
sig í klettaklifri og ka-
jakróðri. Þá má geta
þess að Sigrún var í
Argentínu í október sl.
að taka þátt í íslenska
Wipe-out þættinum.
Fjölskylda
Maki Sigrúnar er Hild-
ur Rut Björnsdóttir, f.
29.6. 1981, MA-nemi í
þýðingarfræði við HÍ.
Systkini Sigrúnar eru Sigríður
Eyþórsdóttir, f. 28.2. 1968, iðjuþjálfi
í Reykjavík; Ólafur Hrannar Eyþórs-
son, f. 24.4. 1971, húsasmíðameist-
ari; Ragnar Eyþórsson, f. 26.10.
1978, kvikmyndagerðarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Sigrúnar eru Ey-
þór Ólafsson, f. 29.6. 1946, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og Anna
Eiður Ragnarsdóttir, f. 19.10. 1948,
grunnskólakennari.
30 ÁRA Á LAUGARDAG
34 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 ÆTTFRÆÐI