Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 HELGARBLAÐ
Björn fæddist á Raufarhöfn. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA 1948,
embættisprófi í læknisfræði frá HÍ
1957, kandidatsprófi og öðlaðist al-
mennt lækningaleyfi 1958, varð við-
urkenndur sérfæðingur í heimilis-
lækningum 1974 og viðurkenndur
sérfræðingur í embættislækningum
1974, sótti námskeið við lyflækninga-
deild Hammersmith Hospital, Post-
graduate Medical School of London
1965 og kynnti sér auk þess matvæla-
eftirlit og fleiri þætti heilbrigðiseft-
irlits, fór námsferð til Kanada og
Bandaríkjanna 1973 og ferð til Nor-
egs og Svíþjóðar 1975 til að kynna sér
starfsemi tryggingastofnana.
Björn var héraðslæknir í Flateyr-
arhéraði 1958-64, starfandi lækn-
ir í Reykjavík 1964-65 og 1967-74,
aðstoðarborgarlæknir 1965-66 og
tryggingayfirlæknir 1975-93.
Eftir að Björn lét af störfum sem
tryggingayfirlæknir var hann stað-
gengill heilsugæslulækna víða um
land, s.s. á Kirkjubæjarklaustri 1995,
á Þingeyri 1996-97, á Flateyri 1996, á
Sauðárkróki 1996, á Djúpavogi 1997,
á Ólafsfirði 1998, í Þorlákshöfn 1998
og á Hellu og Hvolsvelli 1999.
Björn var skólalæknir við Kenn-
araháskóla Íslands og Réttar-
holtsskólann í Reykjavík 1966-73,
stundakennari í sýklafræði við Hús-
mæðrakennaraskóla Íslands 1966-
73 og prófdómari í heilsufræði við
Kennaraháskóla Íslands 1967-78.
Björn sat í skólanefnd Flateyrar-
skólahverfis 1962-64, í stjórn útgerð-
arfélagsins Ásborgar hf og Fiskborg-
ar hf á Flateyri 1960-62, var formaður
utanfararstyrkveitinga sjúklinga frá
1975, formaður nefndar um heild-
artillögur varðandi framtíðarfyr-
irkomulag talmeina- og heyrnar-
þjónustu og skipulag heyrnarmála
hérlendis og í samninganefnd Trygg-
ingastofnunar ríkisins og sjúkrasam-
laga um þá þjónustu sem veitt er af
þessum aðilum samkvæmt samning-
um, sat í fulltrúaráði St. Jósefsspítala,
stjórn Landakotsspítala, í Nordiska
nämnden för handikappfrågor frá
1978 og í vinnuhópi sem gerði tillög-
ur um fyrirkomulag og framkvæmd
hjartaskurðlækninga hér á landi og
sat í Læknaráði Íslands, var formaður
lýtalækninganefndar og sat í Slysa-
varnaráði Íslands.
Fjölskylda
Björn kvæntist 6.11. 1949 Sigríði
Sigurjónsdóttur, f. 16.10. 1929, hús-
móður. Foreldrar hennar voru Sig-
urjón Jónsson, f. 6.8. 1907, d. 29.2.
1992, hafnarstarfsmaður í Reykjavík,
og k.h., Elínborg Tómasdóttir, f. 16.9.
1906, d. 9.5. 1995, húsmóðir.
Börn Björns og Sigríðar: Ön-
undur Sigurjón Björnsson, f. 15.7.
1950, sóknarprestur á Breiðabólstað
í Fljótshlíð, var kvæntur Gígju Her-
mannsdóttur íþróttakennara sem
lést 10.12. 2000 en önnur eiginkona
Önundar er Harpa Viðarsdóttir lyfja-
fræðingur og eru börn Önundar Sig-
ríður, f. 6.4. 1969, Eiríkur Sverrir, f.
19.9. 1974, Elínborg Harpa, f. 10.9.
1993, Björn Heimir, f. 5.5. 1996, Við-
ar Gauti, f. 17.9. 1997; Elínborg Jó-
hanna Björnsdóttir, f. 26.2. 1954, d.
11.1. 2006, lögmaður í Reykjavík,
var gift Arnari Haukssyni yfirlækni
og eru börn þeirra Björn Önundur,
f. 6.4. 1980, Sigríður Ösp, f. 4.6. 1983,
Haukur Júlíus, f. 13.12. 1989, og Arn-
ar Vilhjálmur, f. 19.10. 1993; Sigurjón
Björnsson, f. 2.10. 1955, viðskipta-
fræðingur í Reykjavík og eru börn
hans Sigríður, f. 23.12. 1983, Jóhann
Hrafn, f. 24.12. 1997 og Juri Samp-
ieri Björnsson, f. 30.12. 1998; Jó-
hanna Björnsdóttir, f. 5.5. 1960, flug-
freyja í Reykjavík, gift Gísla Gíslasyni
hdl. og eru börn þeirra Birna, f. 17.3.
1980, Inga Hanna, f. 18.6. 1985, Lúð-
vík, f. 3.7. 1992, Sigurjón, f. 11.2. 1996
og Gísli, f. 12.9. 2002; Björn Sveinn
Björnsson, f. 3.6. 1966, fyrrv. sókn-
arprestur á Útskálum, nú í sálfræði-
námi við University of California í
Bandaríkjunum, kvæntur Susönnu
Lind Björnsson hárgreiðslukonu og
eru börn þeirra Hanna Sóley, f. 20.4.
1994, Björn Douglas, f. 29.5. 1996, og
Bríet Elínborg, f. 4.7. 2000; Tómas
Björnsson, f. 5.1. 1969, iðnrekstrar-
fræðingur í Reykjavík en dóttir hans
er Sylvía Guðrún, f. 12.2. 1996.
Björn átti hálfsystkini, samfeðra,
sem eru öll látin. Þau voru Krist ján
Önundarson, f. 1.8. 1901, d. 15.4.
1945, sjómaður og verkamaður á
Raufarhöfn; Lúðvík Önundarson, f.
1.8. 1904, d. 10.3. 1995, sjómaður á
Raufarhöfn; Björn Önundarson, f.
25.7. 1907, d. fyrir 1927; Helga Ön-
undardóttir, f. 15.2. 1910, d. 18.4.
1945, húsmóðir á Raufarhöfn; Rósa
Anna Önundardóttir, f. 23.11. 1911,
d. 22.4. 1945, húsmóðir á Raufar-
höfn; Ólöf Guðrún Önundardóttir, f.
14.2. 1916, d. 19.4. 2002, húsmóðir í
Kópavogi.
Foreldrar Björns voru Önundur
Magnússon, f. 6.6. 1879, d. 2.9. 1945,
bóndi í Kumblavík í Sauðaneshreppi,
síðar verkamaður og sjómaður á
Þórshöfn og Raufarhöfn, og s.k.h., Jó-
hanna Stefánsdóttir, f. 19.12. 1889, d.
14.3. 1977, húsmóðir á Raufarhöfn.
Ætt
Önundur var sonur Magnúsar, b.
á Valþjófsstöðum, Borgum og Skoru-
vík Jónssonar, á Snartarstöðum
Steinmóðssonar, b. í Skoruvík Torfa-
sonar. Móðir Steinmóðar var Þuríður
Ólafsdóttir, b. í Skoruvík Finnboga-
Valur
Gíslason
LEIKARI -
f. 15.1. 1902, d. 13.10. 1990
Valur fæddist í Reykjavík, son-
ur Gísla Helgasonar, kaup-
manns í Reykjavík, og k.h,
Valgerðar Freysteinsdóttur
húsmóður.
Valur kvæntist 8.10. 1938 Lauf-
eyju Árnadóttur, f. 7.6. 1916, d.
6.12. 1996, húsmóður. Foreldr-
ar Laufeyjar voru Árni Eiríks-
son, einn helsti leikari Reykja-
víkur á sinni tíð og kaupmaður
í Reykjavík, og k.h., Vilborg
Runólfsdóttir. Laufey var systir
Gunnars framkvæmdastjóra,
föður Styrmis, fyrrv. Morgun-
blaðsritstjóra.
Sonur Vals og Laufeyjar er Val-
ur, fyrrv. bankastjóri Íslands-
banka. Bróðir Vals leikara var
Garðar Svavar, kaupmaður og
íþróttamaður í Hafnarfirði,
faðir Guðmundar H. Garðars-
sonar, framkvæmdastjóra og
fyrrv. alþm.
Að loknu 4. bekkjar prófi í MR
starfaði Valur hjá Íslandsbanka
hinum eldri 1920-1930 og hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur
1936-1950.
Valur var í röð fremstu leikara
þjóðarinnar um árabil. Honum
var tvisvar veittur silfurlamp-
inn, verðlaun Félags íslenskra
leikdómenda, fyrir besta leik:
Fyrir Harry Brook í Fædd í gær,
1955, og fyrir Föðurinn i sam-
nefndu leikriti Strindbergs,
1958.
Valur lék hjá LR 1926-1949, við
Ríkisútvarpið frá 1930 og var
fastráðinn við Þjóðleikhúsið
frá stofnun þess 1950. Þá þýddi
hann nokkur leikrit, aðallega
fyrir Ríkisútvarpið.
Valur sat í stjórn Leikfélags
Reykjavíkur í níu ár og var for-
maður þess á árunum 1949-
1955. Hann var formaður
Félags íslenskra leikara 1949-
1955 og 1958-1962, sat í stjórn
Bandalags íslenskra lista-
manna 1950-1959 og var lengi
formaður þess, sat í Þjóðleik-
húsráði og í stjórn Norræna
leikararáðsins. Hann var heið-
ursfélagi Leikfélags Reykjavík-
ur, Félags íslenskra leikara og
Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Hann var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálka-
orðu 1953 og stóriddarakrossi
1976.
MINNING
Björn Önundarson
FYRRV. YFIRTRYGGINGALÆKNIR
MERKIR
ÍSLENDINGAR
„Við Björn kynntumst fyrst í há-
skólanum en kynntumst svo betur
þegar ég tók við sem rafveitustjóri á
Vestfjörðum 1959. Þá bjuggum við á
Flateyri, nálægt hvor öðrum í tvö ár,
ég frá 1960-63 og þá var hann hér-
aðslæknir þar. Þar kynntumst við
ákaflega vel og krakkarnir okkar voru
mikið saman á þessum árum. Öll
okkar samskipti voru mjög ánægju-
leg.
Björn var svolítið sérstakur –
hann var ekki allra. Ekki fljóttek-
inn en hann var sannur vinur vina
sinna alla tíð. Hans eiginlega köllun
var að vera læknir. Hann vildi bæta
fólk og gera eitthvað gott fyrir fólk.
Hann fylgdi þessu eftir alla leið og
hafði það mjög sterkt innlegg þegar
hann varð tryggingayfirlæknir. Hann
átti ekki gott með að horfa upp á það
þegar fólk varð undir – hann vildi
alltaf hjálpa,“ segir Egill Skúli og rifjar
upp góða tíma með Birni.
„Hann hafði afskaplega gaman
af því að fá að vita eitthvað um fólk
sem kom til hans og hann hitti. Hann
spurði mikið um ættir og slíkt og var
mjög minnugur á þá hluti. Maður
gafst upp á því að reyna að halda í við
hann, því hann mundi allt svo vel.
Allar tölur mundi hann, símanúm-
er og annað slíkt. Það var alveg hægt
að fletta upp í honum – maður þurfti
ekki neina skrá þegar hann var ná-
lægt. Okkar samskipti voru skemmti-
leg og þægileg.
Við fjölskyldurnar fórum nokkr-
ar ferðir saman til sólarstranda og
það var mjög gaman. Hann var mjög
harður af sér að synda í köldu vatni.
Þó var hann ekki vel syndur. Hann
ólst upp á Raufarhöfn og þar var eng-
in sundlaug á þeim tíma. En hann
naut þess að fara í köld böð erlendis.
Hann forðaðist að vera í sviðsljós-
inu en hann hikaði þó ekki við það
þegar á því þurfti að halda en hann
sóttist ekki eftir því. Góður maður er
fallinn frá.“
Eftirmæli
EGILL SKÚLI INGIBERGSSON, FYRRVERANDI BORGARSTJÓRI
f. 6.4. 1927, d. 10.1. 2010
sonar, b. á Haugsstöðum í Vopna-
firði Steinmóðssonar Árnasonar, pr.
í Vallanesi Þorvarðarsonar. Móðir
Árna var Ingibjörg Árnadóttir, ætt-
föður Burstafellsættar í Vopnafirði
Brandssonar.
Móðir Önundar var Jóhanna Sig-
ríður Jónsdóttir.
Jóhanna, móðir Björns, var systir
Eiríks, vitavarðar og b. á Rifi á Rifs-
tanga, föður Leifs, skólastjóra á Rauf-
arhöfn og yfirkennara í Garðabæ, og
systir Guðmundar, b. á Harðbak á
Melrakkasléttu, afa læknanna Guð-
mundar, Gests og Eiríks Þorgeirs-
sona. Þá var Jóhanna systir Arn-
þrúðar, ömmu Vigdísar Grímsdóttur
rithöfundar. Jóhanna var dóttir Stef-
áns, b. á Skinnalóni Jónssonar, og
Kristínar Guðbjargar Jónsdóttur hús-
freyju.
Útför Björns fer fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
21.1. kl. 11.00.