Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 NAFN OG ALDUR? „Guðrún Dögg Rúnarsdóttir, 18 ára.“ ATVINNA? „Starfsmaður í The Body Shop.“ HJÚSKAPARSTAÐA? „Í sambandi við Björn Bergmann.“ FJÖLDI BARNA? „0.“ HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR? „Já, ég hef alltaf átt gæludýr. Mamma er sjúk í kis- ur þannig að ég á þrjá ketti og einn hund í augna- blikinu.“ HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST? „Eric Clapton-tónleika í London með pabba mín- um.“ HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN? „Nei.“ HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU? „All Saints-leðurjakkinn minn, ótrúlega þægi- legur og passar við flest allt.“ HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN? „Nei, get nú ekki sagt það, hef samt oft breytt um mataræði og reynt að borða hollari mat.“ HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆLUM? „Nei.“ TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF? „Já, klárlega. Það hlýtur að vera annað líf eftir þetta.“ HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ HAFA HALDIÐ UPP Á? „Baby got back með Sir Mix-a-lot.“ HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR? „Held mikið upp á Closer með Kings of Leon þessa dagana.“ TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA? „Að fara til Noregs að hitta Björn.“ HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFTUR OG AF HVERJU? „White Chicks, hlæ endalaust að þessari mynd og Forgetting Sarah Marshall.“ AFREK VIKUNNAR? „Byrjuð aftur í hollu mataræði og ræktinni eftir jólasukkið.“ HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR? „Já, geri það meira að segja reglulega, bara snilld.“ SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI? „Nei, en ég lærði samt á píanó og fiðlu þegar ég var yngri.“ VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPU- SAMBANDIÐ? „Ég er ekki viss um að það myndi leysa peningavandamál okkar Íslendinga en ég geri mér samt grein fyrir því að krónan er vandamál í dag.“ HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU? „Að vera hamingjusamur.“ HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MYNDIR ÞÚ VILJA HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ? „Ef ég myndi vilja hella einhvern fullan og fara á trúnó, þá væri það allavega ekki ráðamaður.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYND- IR ÞÚ HELST VILJA HITTA OG AF HVERJU? „Audrey Hepburn. Hún var bara svo flott kona sem naut mikillar velgengni.“ HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ? „Ekki nýlega, en var alltaf að semja ljóð til mömmu og pabba þegar ég var yngri.“ NÝLEGT PRAKKARASTRIK? „Ég er alltaf þæg.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST? „Engum sem ég veit um.“ ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA? „Það er alltaf jafnleiðinlegt að segja þetta en nei, ég hef bara enga leynda hæfileika.“ Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI? „Nei.“ HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN? „Paradísarlaut, gullfallegur staður í Borgarfirði.“ HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ AÐ SOFA? „Segi góða nótt við Láru og set á mig handáburð.“ HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI? „Vera bjartsýn og þolinmóð, nýta kraftinn í okkur sjálfum og hugmyndaflugið til að skapa verð- mæti.“ asdisbjorg@dv.is Guðrún Dögg Rúnarsdóttir, fegurðardrottning Íslands, er nýkomin heim frá Afríku þar sem hún keppti um titilinn ungfrú heimur. Hún segist þæg stelpa sem telur hamingjuna það mikilvægasta í lífinu. ER ALLTAF ÞÆGUmboðs- og söluaðiliBirkiaska ehf.sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkilauf – VERKIN TALA Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 www.velfang.is • velfang@velfang.is Fr um Nýtt og traust umboð fyrir á Íslandi varahlutir þjónusta verkstæði vélar Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur NICOLAI Véla- og hjólastillingar Tímareimar - Viðgerðir BIFREIÐASTILLINGAR Faxafeni 12 Sími 588-2455

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.