Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Side 11
Barist um fjórða sæti
Baráttunni um fjórða sætið má einn-
ig gefa gaum. Þar takast á Ragnar Sær
Ragnarsson og Kristján Guðmunds-
son en einnig Áslaug Friðriksdóttir og
Hildur Sverrisdóttir. Þær tilheyra báð-
ar sama hópi eða armi innan flokks-
ins. Hildur býður sig nú fram í fyrsta
skipti og gefur kost á sér í fjórða til
fimmta sæti. Hún er mágkona Illuga
Gunnarssonar alþingismanns. Áslaug
er dóttir Friðriks Sophussonar og hef-
ur undanfarin ár verið í varaborgar-
fulltrúahópi Sjálfstæðisflokksins.
Viðmælendur DV innan borgar-
stjórnarflokksins fyrir helgina áttu
erfitt með að átta sig á styrkleika ein-
stakra frambjóðenda auk þess sem
erfitt hefur reynst að beina athygli fjöl-
miðla að framboðsmálum fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í vor.
Auk Hönnu Birnu reikna þó flestir
með að Júlíusi Vífli, Þorbjörgu Helgu
og Kjartani takist að tryggja sér ör-
ugg sæti. Meiri óvissa ríkir um Geir
Sveinsson og Gísla Martein sem með-
al annars hefur þurft að svara fyrir
borgarstjórnarstörf sín samhliða námi
erlendis. Þar með gæti baráttan um
fimmta til áttunda sæti orðið tvísýn,
en Sjálfstæðisflokkurinn er nú með 7
kjörna fulltrúa af 15 í borgarstjórn. Í
þann slag gætu blandast Geir Sveins-
son, Áslaug Friðriksdóttir, Hildur
Sverrisdóttir, Gísli Martein Baldurs-
son, Marta Guðjónsdóttir og Jórunn
Frímannsdóttir auk einhverra sem
bjóða sig fram í sæti neðar á listanum.
FRÉTTIR 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 11
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200
www.velfang.is • velfang@velfang.is
Fr
um
Nýtt og traust umboð
fyrir á Íslandi
varahlutir
þjónusta
verkstæði
vélar
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
ÚTSALA - ÚTSALA
ÚTS
ALA
Sérverslun veiðimannsins - Laugarveg 178 - Sími: 551 6770 - www.vesturrost.is
Vesturröst
Skotveiðimenn - Stangveiðimenn
MEÐ UPP UNDIR
MILLJÓN Á MÁNUÐI
Hart er barist um annað sæti fram-
boðslista Sjáflstæðisflokksins í
Reykjavík, en prófkjör flokksins fer
fram á morgun, laugardag.
Aðeins 18 tilkynntu um framboð
áður en framboðsfrestur rann út um
miðjan desember síðastliðinn, eða
sex færri en fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar 2006.
Enginn frambjóðandi áræddi
að bjóða sig fram í fyrsta sætið gegn
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, núver-
andi borgarstjóra. Staða hennar þykir
sterk eins og lesa mátti úr niðurstöð-
um könnunar í desember síðastlið-
inum. Þá reyndust tveir af hverjum
þremur borgarbúum ánægðir eða
frekar ánægðir með störf hennar.
Öðru máli gegnir um annað sæti
á lista flokksins. Þar keppa fjórir nú-
verandi borgarfulltrúar, þau Júlíus
Vífill Ingvarsson. Kjartan Magnús-
son, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og
Gísli Marteinn Baldursson. Öll til-
heyra þau svonefndum sexmenn-
ingahópi sem lýsti óánægju með störf
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, þáver-
andi borgarstjóra, í REI-málinu svo-
nefnda en þeirri óánægju var komið
á framfæri við Geir H. Haarde, þáver-
andi formann Sjálfstæðisflokksins og
forsætisráðherra, á árinu 2007 þegar
REI-málið fór hátt í fjölmiðlum.
Mál manna nú er að rétt hafi verið
að stíga á bremsurnar í REI-málinu og
rjúfa á þau tengsl við kaupsýslumenn
sem vildu eignast ítök í orkulindum
og orkuvinnslu. Á móti kemur að ekki
hefur gróið um heilt milli Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar og stuðningsmanna
hans annars vegar og sexmenning-
anna hins vegar. Vilhjálmur hefur nú
dregið sig í hlé en tengdasonur hans,
Geir Sveinsson fyrrverandi hand-
boltakappi, etur nú kappi við Júlí-
us Vífil, Kjartan, Þorbjörgu Helgu og
Gísla Martein um annað sætið.
Hugsað til framtíðar
Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvers
vegna slagurinn sé svo harður um
annað sætið á sama tíma og frjáls fjár-
stuðningur við einstaka frambjóð-
endur sætir meiri gagnrýni en áður
og þeir hafa úr minna að moða í próf-
kjöri.
Ein skýringin er sú að keppend-
urnir um annað sætið meti það svo
að Hanna Birna kunni fyrr en seinna
að flytjast af vettvangi borgarmálanna
inn á svið landsmálastjórnmálanna.
Það er að sínu leyti byggt á vanga-
veltum um að Bjarna Benedikts-
syni, núverandi formanni Sjálfstæð-
isflokksins, hafi ekki tekist að treysta
valdastöðu sína í flokknum og margt
sé honum mótdrægt, svo sem eins
og viðskipti hans og ættmenna hans
við eigendur Milestone og Sjóvár. Því
kunni svo að fara að Bjarni víki um
leið og Hanna Birna hæfist til meiri
metorða innan flokksforystunnar.
Þótt ekkert verði um þetta fullyrt
er eins víst að hugboð um breyting-
ar innan flokksforystunnar á næstu
misserum dragi ekki úr baráttuvilja
þeirra sem slást nú um annað sætið í
borgarstjórn. Þannig skynji þeir bar-
áttuna um annað sætið sem mögu-
lega baráttu um leiðtogasætið í ná-
lægri framtíð.
Mikil óvissa
Litlar vísendingar er að hafa um stöð-
una nú aðrar en þá könnun sem DV
birti um áramótin um traust sem bor-
ið er til núverandi borgarfulltrúa. Þar
bar hæst mikill stuðningur við Hönnu
Birnu en slakt gengi Gísla Marteins og
Jórunnar Frímannsdóttur, sem býð-
ur sig fram í þriðja sæti ásamt Mörtu
Guðjónsdóttur, formanni Varðar.
HÖRÐ BARÁTTA
UM ANNAÐ SÆTI
Um helgina ræðst hverjir skipa það sem kalla má örugg sæti
borgarstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins. Nokkur óvissa rík-
ir um stöðu þeirra sem bítast um annað sætið.
Borgarstjórinn. Engum datt í hug
að bjóða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
birginn enda er staða hennar sterk
samkvæmt niðurstöðum kannana.
n Hanna Birna Kristjánsdóttir 1. sæti
n Gísli Marteinn Baldursson 2. sæti
n Kjartan Magnússon 2. sæti
n Júlíus Vífill Ingvarsson 2. sæti
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 2. sæti
n Geir Sveinsson 2. sæti
n Jórunn Frímannsdóttir 3. sæti
n Marta Guðjónsdóttir 3. sæti
n Áslaug Friðriksdóttir 4. sæti
n Kristján Guðmundsson 4. sæti
n Ragnar Sær Ragnarsson 4. sæti
n Hildur Sverrisdóttir 4. - 5. sæti
n Þorkell Ragnarsson 5. sæti
n Elínbjörg Magnúsdóttir 5. sæti
n Björn Gíslason 5. sæti
n Benedikt Ingi Tómasson 5. sæti
n Emil Örn Kristjánsson 6. sæti
n Jónann Páll Símonarson 7.- 8. sæti
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins:
Þannig skynji þeir baráttuna
um annað sætið sem
mögulega baráttu um
leiðtogasætið í nálægri
framtíð.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is