Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 22. janúar 2010
NAFN OG ALDUR?
„Kristófer Eðvarðsson, 22 ára.“
ATVINNA?
„Ég vinn við tónlistina mína og er með hljómsveitina
Nögl.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Ógiftur. Engin kærasta eins og er.“
FJÖLDI BARNA?
„0.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Ég átti einu sinni fugl sem ég nefndi Edda í höfuðið á
föður mínum og líka hamstur sem ég kallaði Rex.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Ég og Naglameðlimir skelltum okkur á Blink 182
tónleika í sumar í New Jersey eftir túrinn okkar á Flór-
ída.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Já, þegar ég var ungur og vitlaus og var enn að
hlaupa af mér hornin.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Svarta hettupeysan mín. Ég nota hana mikið og
finnst hún bara svo kúl.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Nei. Ég hef aldrei þurft á því að halda en ég stunda
ræktina.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆLUM?
„Já, bara þegar maður var í grunnskóla og fannst vera
svínað á sig.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Já, klárlega.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ HAFA
HALDIÐ UPP Á?
„Ég kann ekki að skammast mín.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Drive in Saturday með David Bowie, klárlega.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Að spila næst.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFTUR?
(AF HVERJU?)
„Almost Heroes. Maður getur hlegið endalaust að
henni.“
AFREK VIKUNNAR?
„Komast í úrslit í Global battle of the bands.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Nei, en ég les stjörnuspána nokkuð oft.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Já, á gítar, trommur og bassa og svo fikta ég við
píanóið öðru hverju.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Ekki enn þá alla vega.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Að hjálpa þeim sem minna mega sín, það gefur líf-
inu gildi.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Engan, myndi ég segja. Ég drekk ekki og finnst glatað
að vera á trúnó á fylliríum.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST VILJA
HITTA OG AF HVERJU?
„Tom Delong. Það væri gaman að reyna að suða í
honum að semja eitt lag með mér. Ég er nokkuð viss
um að það yrði mega hittari.“
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ?
„Ég hef samið fullt af textum, ef það telst með.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Ég faldi lyklana hans Baldurs, bassaleikara í Nögl,
þegar við stoppuðum í einni sjoppu á leiðinni til Eg-
ilsstaða. Lét alla leita um allt og þóttist ekkert vita, var
meira að segja að leita út um allt sjálfur.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING LÍKIST ÞÚ MEST?
„Ég get látið mig líta út eins og Ívar Guðmunds.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Ég er frábær pókerspilari. Strákarnir kalla mig
„Skills“.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
„NEI!“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Allir staðir þar sem ég kem fram á tónleikum.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA?
„Hugleiða og biðja.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Guð og heilbrigð skynsemi.“
Kristófer Eðvarðsson er einn meðlima í hljómsveitinni Nögl
sem keppir til úrslita í keppninni Global battle of the bands
á skemmtistaðnum Sódómu á föstudagskvöld.
HÆFILEIKARÍKUR
PRAKKARI
Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft
og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir
upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best.
Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem
fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr
líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox).
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð,
auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af
birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger.
BETULIC - BIRKILAUF
www.birkiaska.is
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Símar: 578 3030 og 8 240 240
Pípulagningaþjónusta
Góð þjónusta og vönduð vinnubrögð
www.faglagnir.is
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
DETOX