Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Síða 41
LÍFSSTÍLL 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 41 SARAH JESSICA PARKER Í STÍLISERINGAR Kjaftasögur þess efnis að tískudrottningin og aðalleik- kona Sex and The City, Sarah Jessica Parker, sé að taka að sér að vera listrænn stjórnandi bandarísku tískukeðjunn- ar Halston eru í fullum gangi. Í fyrstu var talið að ungfrú Parker væri nýtt andlit auglýsingaherferðar þeirra en nú eru uppi getgátur um að hún muni setjast í stílistastólinn. Ein jólin bauð hann landsmönnum að kaupa sér syndaaflausn en fyrir þessi jól gaf hann út tískubók. Listaverkabókin sem komin er í verslanir inniheldur hugmynda- fræði „Beauty Swift“-kynslóðarinn- ar eins og hann kallar hana og heim- ildarljósmyndir frá Beauty Camp Weekend, en sá gjörningur fór fram í júlí á Nýlistasafninu undir hand- leiðslu Snorra. Snorri fékk til liðs við sig þær Önnu Sóleyju Viðarsdóttur og Dag- nýju Berglindi Gísladóttur til að mynda hina „heilögu þrenningu“ og saman segjast þau vilja bæta og fegra heiminn. Auk þess fékk hann með sér vini sína til að taka þátt í vinnslu bókarinnar. Þar má nefna Spessa, sem á ljósmyndir í bókinni ásamt kápumynd, og Kristján Karls- son, sem myndskreytti bókina. Árni Már Erlingsson, sem einnig á myndir í bókinni, sá um uppsetningu. „Fjármálakreppan og fallið stóra, sem heimurinn og íslenska þjóðin varð fyrir, gefur kærkomið tækifæri til að viðurkenna tilveru „Beauty Swift“,“ segir Snorri. „Efnislegu gild- in okkar tróðu okkur niður í svaðið og andlegu gildin munu reisa okk- ur við. Kreppan mikla skall á í þeim tilgangi að stöðva óhóflegt neyslu- mynstur í nútímasamfélögum eins og á Íslandi.“ Snorri segir fallegasta og ham- ingjuríkasta tímabil jarðarbúa vera fram undan og lýsir bók sinni sem hnyttinni, kaldhæðinni og þaul- hugsaðri ádeilu á árið 2007 og til- gangur bókarinnar sé einhvers kon- ar vakning fyrir okkur. Sama hvaða skoðanir fólk hefur á verkum Snorra er eitt víst að athygli vekja þau. Í kringum Snorra Ásmundsson listamann er aldrei lognmolla VILL BÆTA OG FEGRA HEIMINN UMSJÓN: HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR NAOMI NEITAR BRITAIN´S NEXT TOP MODEL Tískurisinn Roberto Cavalli valdi núverandi kærustu George Clooney til þess að sitja fyrir í nýjustu herferð sinni. Hún heitir Elisabetta Canalis og situr hún fyrir í undirfötunum einum saman. Myndirnar tóku Mert Alas og Marcus Piggot. KÆRASTA CLOON- EYS SJÓÐHEIT Breska ofurfyrirsætan Naomi Campbell ku hafa átt í samningsvið- ræðum við framleiðendur Britain´s Next Top model um að vera dómari í þáttunum. Mun hún hafa hætt við þar sem hún vildi ekki skuldbinda sig í of langan tíma. Það þykir mörgum án efa leitt, því gaman hefði verið að sjá dívuna segja nýliðunum til syndanna. LESBÍSK OFURFYR- IRSÆTA KVÆNIST Á meðan tískuheimurinn bíður spenntur eftir fregnum af brúðkaupi Marc Jacobs hefur frétt af ástum annars samkynhneigðs pars vakið mikla athygli. Ofurfyrirsætan ástralska, Catherine McNeil er sögð trúlofuð annarri ástralskri stjörnu að nafni Ruby Rose, sem hefur getið sér gott orð í heimalandinu sem kynnir á MTV en byrjaði feril sinn í fyrirsætukeppni og lenti í öðru sæti á meðan ástin hennar núverandi bar sigur úr býtum. SPARITÍSKA Kápan Kápa bókar- innar er skrautleg. Þríeykið Saman uppi í rúmi. Gott getur verið að spara með því til dæmis að kaupa sumarfatnað og sundföt um miðjan vetur eða vetrarföt yfir hásumartímann. Bestu kaup mín á síðasta ári voru þegar við vinkonurnar sátum í sólbaði fyrir utan Thorvalds- en-kaffihúsið í júlí og slysuðumst inn í Gyllta köttinn, sem selur að miklu leyti notuð föt. Tilgangur innlitsins var að splæsa í svaka kúl sólgleraugu til að verjast sterkri sumarsólinni en end- aði með því að við fórum út með sinn pelsinn hvor á hálfvirði. Það er líka mjög sniðugt að kíkja inn í svokallaðar Outlet-búðir sem selja oft háklassa vörumerki fyrir mjög lítinn pening. Ef hönnunin er góð og klassísk fer hún heldur ekki úr tísku. Það sem heppilegra er, er sú staðreynd að mínimalisminn verður í hávegum hafður í ár. Þá er alltaf hægt að kíkja inn í ódýrari verslanir og kaupa fylgihluti, eins og hatta, nælur, hálsfestar og trefla, sem poppa upp sígildan og einfaldan fatnað. Varast skal að kaupa fatnað sem þarf að fara með í hreinsun, það get- ur kostað skildinginn. Svo er um að gera að vinkonuhópurinn fari í gegn- um fataskápinn sinn og haldi saman fatamarkað eða skiptist á fötum. Föt- in sem þú ert komin með leiða á gætu verið gulls ígildi hjá vinkonunum og öfugt. Fatamarkaður Rauða krossins og Kolaportið hafa aukið vinsældir sínar gríðarlega á síðustu misserum og það er aldrei að vita hvaða gersemar þar er að finna. Ef maður er duglegur að leita og gefur sér tíma, gæti vel verið að gamall Lanvin-jakki hefði slysast þangað inn og seljist nú fyrir klink! Eins er um að gera að læra að redda sér á saumavélinni því þá getur maður breytt fötum, lagfært og leik- ið sér. Í kreppu gegnum aldirnar hefur orðatiltækið „neyðin kennir naktri konu að spinna“ átt vel við og því er nú um að gera að nota hugmynda- flugið og láta til sín taka. Kreppan og tískan eru ekkert sérlega smart par. Flest erum við án efa komin með upp í kok af krepputali og það skiljanlega. Hins vegar er það ljóst að þegar umfram krónum til að eyða í tískufatnað fækkar er gott að vera séð og sniðug í fatainnkaupunum. Fullkomnar gallabuxur Það sem allar konur þurfa að eiga Aðsniðinn jakki Fer seint úr tísku Töff fylgihlutir Þurfa ekki að kosta aleiguna Klassíski rykfrakkinn Er að slá í gegn um þessar mundir Fallegur pels Er frábær fjárfesting Hvít skyrta Er nauðsynleg hverri athafna- konu Marilyn Mon- roe Þekkti litla svarta kjólinn vel Svart, aðsniðið pils Er sérstaklega klæðilegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.