Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 22. janúar 2010
ÞAÐ SEM ÞÚ
VISSIR EKKI um strákana okkar
Landsliðsmenn Íslands í handbolta hafa margt sagt, gert og brallað í
gegnum tíðina. Á bak við þekkt andlit keppninsmannanna sem þjóðin
elskar er ýmislegt sem ekki allir vita. Hér á eftir fylgja nokkrar sögur
og skemmtilegar staðreyndir um strákana okkar. Með fyrirvara um
ýkjur viðmælenda fylgja hér upplýsingar um strákana, byggðar á
gömlum viðtölum við þá og mæður þeirra, viðtölum við vini þeirra,
samherja, andstæðinga, fjölskyldumeðlimi og aðra sérfræðinga.
GUÐJÓN VALUR
SIGURÐSSON
n Eftirlætismaturinn hans er ný ýsa, kartöflur og rúgbrauð, læri, hakk
og spaghettí.
n Var ekkert smá stórt barn – fæddist ríflega 20 merkur og 57 cm.
n Sérgrein hans utan handboltans er þrif á baðherbergjum.
n Rúllar sig á ganginum á hótelinu í Austurríki með svokallaðri band-
vefslosunarrúllu. Er það aðallega til þess að sýna sig á nærbuxunum
enda er Guðjón vel vaxinn og líkamsfitan ekki nema 2%.
SNORRI STEINN
GUÐJÓNSSON
n Gott jarðsamband Snorra fær hann frá móður sinni, Karen
Christensen.
n Borðaði einkum morgunkorn á morgnana þegar hann var yngri.
n Var markahæsti maður Shell-mótsins í fótbolta í Eyjum.
n Er sagður dýrka lyktina af handboltum.
RÓBERT
GUNNARSSON
n Borðaði yfirleitt „Fylkismáltíðina“ fyrir leiki og mót þegar hann
var yngri. Hún samanstendur af kornflexi, ristuðu brauði með osti,
appelsínusafa og lýsi.
n Hann er mikill sælkeri en á sex ára afmælisdegi sínum borðaði hann
upp úr rjómaskálinni með bestu lyst.
n Eitt helsta áhugamál Róberts er tíska.
n Róbert var góður markvörður í fótbolta og varði mark KVA eitt
sumarið.
n Gerir „óviðeigandi“ teygjur fyrir leiki inni í klefa. Nakinn!
ÁSGEIR ÖRN
HALLGRÍMSSON
n Kærasta Ásgeirs er flugfreyja.
n Keppti mikið í frjálsum þegar hann var yngri. Hann hljóp 60
metrana á Gogga Galvaska-mótinu í Mosfellsbæ á 9,50 sekúndum
árið 1995 (11 ára). Hann varð síðastur í því hlaupi.
n Hann vann þó spjótkastkeppnina á Framhaldsskólamótinu árið
2002 með kasti upp á 44,98 metra.
n Varð annar í sínum flokki í 10 kílómetra hlaupinu í Reykjavíkurmar-
aþoninu árið 1997. Þá aðeins 13 ára gamall.
ALEXANDER
PETERSSON
n Uppáhaldsleikmaður Alexanders var alltaf Ólafur Stefánsson.
n Á sínum yngri árum var hann í glæpagengi í Lettlandi.
n Ver tíma sínum á kvöldin í að skrifa barnabók á íslensku.
ÓLAFUR
GUÐMUNDSSON
n Ekkert fer meira í taugarnar á honum en fólk með plástra eða
sjúkraumbúðir.
n Ólafur og Aron urðu saman Partille-cup-meistarar í fjórða flokki sem er
eitt allra sterkasta unglingamót heims. Árið áður duttu þeir út í átta liða
úrslitum og þegar þeir horfðu á úrslitaleikinn sögðu þeir hvor við annan
að þeir ætluðu að vinna mótið árið eftir. Undirbúningur hófst nánast
strax eftir að þeir komu heim og ári seinna hömpuðu þeir titlinum.
VIGNIR
SVAVARSSON
n Er að byggja upp sitt eigið stúdíó og ætlar að leggja fyrir sig tónlist-
ina eftir handboltaferilinn.
n Var í sambandi við Önnu Rakel.
n Var skytta í yngri flokkum Hauka.
n Er góður vinur fréttamannsins Andra Ólafssonar á Stöð 2.