Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Blaðsíða 56
n Fréttamaðurinn Haukur Holm
er að byrja með fastan fréttatíma
á útvarpsstöðinni Kananum frá og
með 1. mars, en Haukur er bundinn
365 fram að þeim tíma. Nýja starfið
leggst vel í Hauk sem segir að stefn-
an sé að byrja smátt og byggja svo
smám saman ofan á það. Áætlað
sé að efna til samstarfs við frétta-
stofur með tímanum. Aðspurður
um hvaða stefnu fréttir á Kanan-
um muni taka, segir Haukur: „Við
verðum ábyrg og alvarleg svo það sé
hægt að trúa okkur, en
við ætlum að reyna
að vera lifandi og
ekki þunglamaleg.“
Til að byrja með
verður fréttatími
á Kananum á
klukkustund-
arfresti frá
klukkan sjö
á morgnana
til hádegis.
Frétta-Haukur á
Kanann!
FRÉTTASKOT 512 70 70
DV BORGAR 2.500 KRÓNUR FYRIR FRÉTTASKOT SEM LEIÐIR TIL FRÉTTAR. FYRIR FRÉTTASKOT SEM VERÐUR
AÐALFRÉTT Á FORSÍÐU GREIÐAST 25.000 KRÓNUR. FYRIR BESTA FRÉTTASKOT VIKUNNAR GREIÐAST ALLT
AÐ 50.000 KRÓNUR. ALLS ERU GREIDDAR 100.000 KRÓNUR FYRIR BESTA FRÉTTASKOT HVERS MÁNAÐAR.
Legsteinar seljast nú eins og heitar
lummur þegar íslensk steinskurðar-
fyrirtæki auglýsa útsölur á legstein-
um. Það færist í aukana að fyrirtækin
auglýsi útsölu á þessum árstíma en
þannig má til dæmis finna góð tilboð
hjá S. Helgasyni og Granítsmiðjunni.
Stefán Ari Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri S. Helgason, segir
reynslu fyrirtækisins af legsteinaút-
sölum góða og ljóst er að Íslendingar
nýti sér góð tilboð. „Við höfum verið
með útstölu á legsteinum undanfar-
in fimm ár og ég sé að flest fyrirtæk-
in eru farin að gera þetta. Legsteinar
eru vara eins og önnur vara og þeir
fara á útsölu líka. Þar setjum við leg-
steina sem hafa selst hægar hjá okk-
ur og gefum afslátt af þeim,“ segir
Stefán.
„Fólk kemur mikið til okkar á
útsölum og þá seljast legsteinarn-
ir meira. Ættingjar eru gjarnan að
kaupa legsteina eftir á og því gríp-
ur fólk tækifærið þegar legsteinarnir
bjóðast á góðum kjörum. Viðskiptin
taka alltaf kipp hjá okkur á útsölunni
og hún hefur reynst vel þannig að við
höldum þessu áfram.“
trausti@dv.is
HAUKUR Á
KANANN
Afsláttur
50%
KERTALUKTIR
Útsöluverð frá 2.250 kr.
F
A
B
R
I
K
A
N
Gerum hús að heimili
RIVIERA MAISON | SIA | SERAX | SÖDAHL | UMBRA | SEMPRE | ETHNICRAFT | BECARA | IITTALA | BRÖSTE | HOUSE DOCTOR
Tekk Company – Sími 564 4400 – www.tekk.is Holtagarðar
Opið: Laugardag 10-17
Sunnudag 13-17
Kringlan
Opið: Laugardag 10-18
Sunnudag 13-18
LEðURSófI PISA
Útsöluverð 107.400 kr.
BASTSTóLL m. SESSU
Útsöluverð 19.800 kr.
PúðAvER
40x40 og 60x60cm
Nokkrir litir
Útsöluverð frá 1.080 kr
ÚtsAlA!
EIKARSKENKUR
Útsöluverð 111.000 kr.
Afsláttur
40%
Afslát
tur40%
Afsláttur
40%
Afsláttur
40%
Íslendingar nýta sér góð tilboð á legsteinum þessa dagana:
LEGSTEINAR RJÚKA ÚT Á ÚTSÖLU
n Þeir sem geta og þeir sem ekki
geta, spila fússball. Svo virðist alla-
vega vera í höfuðstöðvum Knatt-
spyrnusambands Íslands en þar á
bæ hafa menn verið að leika sér í
fússball, eða fótboltaspili, síðustu
vikur. Á endanum voru það markas-
stjórinn, Ómar Smárason, og mót-
stjórinn, Birkir Sveinsson, sem léku
til úrslita eftir langa undankeppni.
Fór það svo að markaðsstjórinn
hafði sigur, 10-9, og hélt
þannig uppi heiðri
Eyjamanna. Geta
KSÍ-menn slakað að-
eins á þessa dagana
enda lognið á undan
storminum í gangi.
Með hverjum
degi styttist
í deildar-
bikarinn
sem mark-
ar upphaf
nýs knatt-
spyrnu-
tímabils.
MARKAÐSSTJÓRINN
MEISTARI
n Lára Ómarsdóttir fréttamaður
lenti í því á dögunum að fá bráðaof-
næmiskast með þeim afleiðingum
að hún var flutt í skyndi á spítala.
Á spítalanum fékk Lára góðan lyfja-
skammt í æð til að fá líkamann í
rétt jafnvægi aftur. Hún þurfti þó
ekki að dvelja lengi því hún fékk að
fara heim sama dag en það var bara
til að fara heim að hvíla sig. Hún
var heima hjá sér í þrjá heila daga
og var samkvæmt heimildum ekki
mjög hrifin af því að vera frá vinnu
svo lengi. Engar skýringar hafa
fengist hvers vegna og
hvaðan bráðaofnæmið
kom en slíkt getur verið
lífshættulegt ef ekki er
brugðist rétt við. Hún
er nú komin á fullt aft-
ur í neytendafrétt-
ir sem hún starfar
við hjá RÚV en
hefur samkvæmt
heimildum ekki
alveg náð sér af
fullu.
FÉKK BRÁÐA-
OFNÆMISKAST
Nóg að gera Á legsteinaútsölunum er
nóg að gera og færst hefur í aukana að
fyrirtækin auglýsi útsölur.