Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 13
FRÉTTIR 9. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 13 2 dálkar = 9,9 *10 nýjar vörur vorbæklingurinn kominn Opið: má-fö. 12-18 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is í bústaðinn - á heimilið smaar@dv. is Steinunn Bernhardsdóttir, konan sem lifði af hrakfarirnar að Fjallabaki á þriðjudag, varð ekki vör við lík vina sinna á leið sinni til byggða. Fólkið var um 2 kílómetra frá skálunum í Hvanngili þegar það yfirgaf bíl sinn. „Hún varð aldrei vör við líkin,“ segir Sveinn Rúnar Kristinsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, aðspurður hvort Steinunn Bern- hardsdóttir, 33 ára kona sem komst lífs af úr hrakförunum að Fjallabaki á þriðjudag, hafi geng- ið fram á lík félaga sinna tveggja, Friðgeirs Fjalars Víðissonar og Kristínar R. Steingrímsdóttur, á leið sinni til byggða. Rannsókn- arlögreglan á Selfossi tók skýrslu af Steinunni á miðvikudagskvöld- ið þar sem þetta kom fram. „Hún var spurð að þessu en hún sá þau ekki. Hún var ein að villast í vit- laustu veðri og þau gengu ekki öll eftir vegarslóðanum sem er þarna þó að þau hafi gengið í sömu átt,“ segir Sveinn. Steinunn fannst á þriðjudag norðan við fjallið Einhyrning. Hún hafði þá gengið um 14 kíló- metra leið frá jepplingnum við Hvanngil. Steinunn fór síðust út úr Honda-jepplingnum sem þau fóru á út úr bænum á páskadag til að skoða eldgosið á Fimmvörðu- hálsi en skildu hann eftir bens- ínlausan um 2 kílómetra sunn- an við Hvanngil. Þau ætluðu að ganga til byggða en Steinunn var sú eina sem komst lífs af. Vont veður var á svæðinu á þriðjudag og mikil snjókoma. DV hefur reynt að ná tali af Steinunni en ekki haft erindi sem erfiði. Tengsl þremenninganna voru þau, samkvæmt Sveini, að þau voru vinir en jepplingurinn er í eigu fyrrverandi sambýlis- manns Kristínar. Ætlaði að ganga til byggða Sveinn segir aðspurður að við skýrslutökuna yfir Steinunni hafi ekki komið fram miklar nýj- ar upplýsingar sem varpað geti frekara ljósi á málið. „Þau keyrðu bara í vitlausa átt. Þau höfðu los- að bílinn úr festu og eftir að hafa talað við okkur keyrðu þau bara í vitlausa átt. Þetta er bottomlænið: Þau bara villtust,“ segir Sveinn en fólkið talaði við lögregluna þeg- ar bíll þeirra festist og afþakkaði aðstoð hennar þegar því tókst að losa bílinn af sjálfsdáðum. Þá taldi lögreglan að fólkið væri komið á beinu brautina en annað kom svo á daginn og keyrði fólkið lengra inn á hálendið. Þegar bíllinn varð bensínlaus um tvo kílómetra frá Hvanngili ákváðu þau að maðurinn, Frið- geir, myndi reyna að ganga til byggða til að leita hjálpar, en Kristín og Steinunn urðu eftir í bílnum. „Maðurinn fór fyrstur út úr bílnum til að leita hjálpar. Svo fór önnur konan út og sú þriðja, þessi sem lifði af, fór síðust út. Þau gengu öll í sömu átt og ætl- uðu að ganga til byggða,“ segir Sveinn. Bíða niðurstöðu úr krufningu Sveinn segir að málið teljist nokk- urn veginn upplýst, engir laus- ir endar séu í því en að beðið sé eftir niðurstöðu úr réttarkrufn- ingu á Friðgeiri og Kristínu. „Nei, það eru engir lausir endar í þessu. Við erum bara að bíða eftir nið- urstöðu úr réttarkrufningu til að komast að því hver dánarorsök- in var,“ segir Sveinn en nánast ör- uggt má telja að fólkið hafi dáið úr kulda. Hann segir málið liggja nokk- uð ljóst fyrir: „Þau voru bara föst uppi á fjöllum í vondu veðri og þá kom upp panikk. Einn fór út að leita að aðstoð en hinir héldu sig í bílnum í ákveðinn tíma. Svo gáfust þær upp á biðinni og fóru út sjálfar,“ segir Sveinn. Sveinn segir að fólkið hafi tek- ið ákvörðun í skyndi um að fara að skoða gosið á Fimmvörðuhálsi á mánudaginn. Stutt frá Hvanngili Reynslumikill fjallamaður sem DV ræddi við um þennan sorg- lega atburð segir að eitt hið sorglegasta við málið sé að fólk- ið hafi einungis verið um tvo kílómetra frá skálum Ferðafé- lags Íslands í Hvanngili þegar það skildi við bíl sinn: „Það nöt- urlegasta í þessu máli er hversu stutt fólkið var frá Hvanngili,“ segir fjallamaðurinn og bæt- ir því við að fólkið hefði getað komist í skjól í skálunum ef það hefði áttað sig á því hvar það var. Sveinn segir hins vegar að fólkið hafi verið illa útbúið og ekki verið með almennilegt kort af svæðinu auk þess sem það hafi ekki vitað hvar það var þegar það skildi við bílinn. Þremenningarnir hafi því ein- faldlega ekki vitað að skálarnir í Hvanngili hafi verið tiltölulega skammt undan. Þess vegna hafi fólkið ekki frekar haldið í norð- ur í átt að skálunum. Sveinn segist ekki gera ráð fyrir því að rætt verði aftur við Steinunni vegna málsins. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is VARÐ EKKI VÖR VIÐ HIN LÁTNU Nöturlegt Fjallagarpur sem DV ræddi við segir að nöturlegasta staðreyndin við málið sé að fólkið hafi einungis verið um tvo kílómetra sunnan við skálana í Hvanngili þegar bíll þeirra varð bensínlaus. Myndin sýnir einn af skálum Ferðafélags Íslands í Hvanngili. Gosið á Fimmvörðuhálsi Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að gosstöðvunum en lögregla hefur orðið að vísa mörgum frá vegna lélegs búnaðar. MYND AFP Það nöturleg-asta í þessu máli er hversu stutt fólkið var frá Hvann- gili.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.