Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 HELGARBLAÐ
Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1951,
kennsluprófi í íslensku og Íslandssögu
1955, cand.mag.-prófi í íslenskum
fræðum frá HÍ 1964 og prófi í uppeld-
is- og kennslufræðum frá HÍ 1973.
Jón var kennari við gagnfræða-
skólastig í Reykjavík og Kópavogi flest
ár frá 1955-66, var kennari við MH
1966-76 og skólameistari Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja 1976 til ársloka 1984.
Hann var ritstjóri Iðnsögu Íslendinga
á árunum 1985-1996.
Jón kenndi síðan á námskeiðum
hjá Mími - Tómstundaskólanum og
Endurmenntunarstofnun Háskóla Ís-
lands í mörg ár, hélt fjölda námskeiða
og fyrirlestra um íslenskar fornsög-
ur og stóð fyrir fjölmörgum ferðum á
söguslóðir fornsagna bæði hérlendis
og erlendis. Hann átti því mikinn þátt í
að endurvekja og viðhalda almennum
áhuga á íslenskum fornritum.
Jón var formaður ÍFRN 1951-52,
Mímis, félags stúdenta í íslenskum
fræðum 1954, Félags róttækra stúd-
enta og var fulltrúi þess í stúdenta-
ráði HÍ 1954-55, var ritari Taflfélags
Reykjavíkur um skeið, starfsmaður
Æskulýðsfylkingarinnar og Samein-
ingarflokks alþýðu - Sósíalistaflokks-
ins 1955-56, forseti Æskulýðsfylking-
arinnar 1956-58, formaður Félags
gagnfræðaskólakennara í Kópavogi
1960-61, sat í miðstjórn Sósíalista-
flokksins 1962-64, var formaður Félags
háskólamenntaðra kennara 1966-67, í
stjórn Félags íslenskra fræða 1967-69,
í landsprófsnefnd 1968-73, formaður
Félags menntaskólakennara 1976-77,
og ritari Sambands iðnfræðsluskóla og
fulltrúi þess í iðnfræðsluráði 1980-82.
Jón samdi og gaf út námsefni í ís-
lensku og sögu, handbækur og ljóða-
bók og skrifaði fjölda blaðagreina um
skák, íþróttir, stjórnmál og skólamál.
Viðtalsbók Guðrúnar Guðlaugs-
dóttur við Jón, Sá á skjöld hvítan, kom
út 2009.
Jón var fyrsti heiðursfélagi Skóla-
meistarafélags Íslands, 1979, fékk
verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á
degi íslenskrar tungu 2002, var Paul
Harris-félagi í Rótaryklúbbi Breiðholts
1993 og var sæmdur riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu 1994 fyr-
ir fræðslustörf og þátt í að endurvekja
almennan áhuga á íslenskum fornrit-
um. Jón fékk heiðursverðlaun við af-
hendingu Samfélagsverðlauna Frétta-
blaðsins 2010.
Fjölskylda
Jón kvæntist 26.11.1966 Guðrúnu Erlu
Björgvinsdóttur, f. 1.11. 1943 kennara
og fyrrv. aðstoðarskólastjóra Engja-
skóla í Reykjavík, dóttur Ástu Mar-
grétar Guðlaugsdóttur húsmóður og
Björgvins K. Grímssonar, fyrrv. for-
stjóra heildverslunarinnar H.A. Tul-
inius. Þau eru bæði látin.
Sonur Jóns og Guðrúnar er Böðvar
Jónsson framkvæmdastjóri Bygginga-
félags námsmanna og formaður bæj-
arráðs í Reykjanesbæ, f. 31.7. 1968.
Sambýliskona Böðvars er Jóna Hrefna
Bergsteinsdóttir. Börn Böðvars frá
fyrra hjónabandi eru Jón, f. 15.4 1993
og Ása, f. 31.3 1998.
Dætur Jóns fyrir hjónaband eru
Sigríður, f. 2.5.1963, kennari og rekstr-
arfræðingur. Synir hennar eru Jón
Halldór, f. 27.10. 1982 og á hann einn
son, og Sigmar, f. 18.5. 1987; Ásthild-
ur, f. 6.10. 1966, tækniteiknari. Börn
hennar eru Hermann Þór, f. 27.6 1988
og Kristrún Ósk, f. 12.2 1994.
Sonur Guðrúnar og fóstursonur
Jóns er Björgvin Jónsson, f. 17.3.1964,
hrl. og alþjóðlegur skákmeistari en
kona hans er Sigríður Dóra Magnús-
dóttir, f. 13.5. 1959, yfirlæknir og er
dóttir þeirra Margrét Erla, f. 23.4 1993.
Alsystkini Jóns: Vilhelmína Sigríð-
ur, f. 13.6.1932, d. 29.6.2007, húsmóð-
ir; Valborg Soffía, f. 18.8. 1933, leik-
skólakennari; Bjarni, f. 13.11.1934,
trésmíðameistari; Böðvar, f. 23.6.
1936, trésmíðameistari; Sigmundur, f.
29.9.1937, lögfræðingur.
Hálfsystur Jóns, samfeðra, eru
tviburarnir Alberta Guðrún, f. 19.6.
1942, húsmóðir, og Guðný Þóra, hár-
greiðslumeistari.
Foreldrar Jóns voru Böðvar Steph-
ensen Bjarnason, f. 1.10. 1904, d.
27.10. 1986, húsasmíðameistari í
Reykjavík, og k.h., Ragnhildur Dag-
björt Jónsdóttir, f. 31.3. 1904, d. 23.7.
1993, húsmóðir.
Ætt
Böðvar var sonur Bjarna, b. í Gerði
Jónssonar, b. í Stórubýlu Jónssonar,
og Guðríðar Jónsdóttur, b. á Eystra-
Miðfelli Einarssonar, í Skipanesi Ein-
arssonar. Móðir Jóns Einarssonar var
Hallfríður Þorleifsdóttir, b. í Belgs-
holtskoti Símonarsonar, b. á Þyrli Þor-
leifssonar, b. á Þorláksstóðum i Kjós
Jónssonar.
Móðir Símonar var Guðrún Eyj-
ólfsdóttir, b. á Ferstiklu Hallgrímsson-
ar, pr. og sálmaskálds Péturssonar og
Guðríðar Símonardóttur.
Móðir Böðvars húsasmíðameist-
ara var Sigríður Jónsdóttir Ólafsson-
ar, b. í Galtarvík. Móðir Sigríðar var
Sesselja Þórðardóttir, systir Bjarna,
b. á Reykhólum, afa Jóns Leifs tón-
skálds, Regínu Þórðardóttur leik-
konu og Ágústs Böðvarssonar, for-
stöðumanns Landmælinga Íslands,
en bróðir Ágústs var Bjarni Böðvars-
son hljómsveitarstjóri, faðir Ragnars
Bjarnasonar söngvara. Bjarni var auk
þess langafi Péturs Friðriks myndlist-
armanns og Björns Thoroddsen gít-
arleikara. Þá var Sesselja systir Gísla,
langafa Klemensar Jónssonar leik-
stjóra. Sesselja var dóttir Þórðar, b. í
Belgsholti í Melasveit Steinþórssonar,
og Halldóru Börðvarsdóttur, b. á Hofs-
stöðum í Hálsasveit Sigurðssonar og
Þuríðar Bjarnadóttur.
Ragnhildur var dóttir Jóns Veld-
ing, b. á Rein Kristjánssonar Velding,
sjómanns í Hafnarfirði Friðrikssonar
Velding, sjómanns í Hafnarfirði Frið-
rikssonar Velding, sjómanns í Hafn-
arfirði, bróður Önnu Katrínar, lang-
ömmu Árna, föður Matthíasar Á.
Mathiesen, fyrrv. fjármálaráðherra,
föður Árna, fyrrv. fjármálaráðherra.
Anna Katrín var einnig amma Fred-
riku, ömmu Haraldar Á. Sigurðsson-
ar leikara, og amma Jóhönnu, lang-
ömmu Ragnheiðar Ástu Pétursdóttur
útvarpsþular, móður Eyþórs Gunn-
arssonar tónlistarmanns. Friðrik var
sonur Kristjáns Velding, steinsmiðs og
beykis í Hafnarfirði og ættföður Veld-
ingættarinnar. Móðir Jóns var Krist-
ín Þórðardóttir, vinnumanns á Vorsa-
bæ á Skeiðum Jónssonar, og Þórdísar,
systur Aldísar, langömmu Manfreðs
Vilhjálmssonar arkitekts. Bróðir Þór-
dísar var Þorsteinn, langafi Þorgerð-
ar Ingólfsdóttur söngstjóra. Þórdís var
dóttir Þorsteins b. á Brúnavallakoti
Jörundssonar, b. og smiðs á Laug Ill-
ugasonar, Skálholtssmiðs Jónssonar.
Móðir Ragnhildar var Soffia Jóns-
dóttir, útvegsb. í Vík á Akranesi, bróð-
ur Sigurðar, afa Sigurdórs Sigurdórs-
sonar blaðamanns. Jón var sonur
Sigurðar, b. á Bakka á Kjalarnesi Páls-
sonar. Móðir Sigurðar var Solveig Sig-
urðardóttir, systir Magnúsar, langafa
Guðrúnar, móður Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, föður Björns,
fyrrv. ráðherra og Valgerðar alþm., en
bróðir Bjarna var Sveinn, afi Bjarna
Benediktssonar, alþm. og formanns
Sjálfstæðisflokksins. Annar bróðir
Solveigar var Árni, langafi Sæmundar,
afa Sighvats Björgvinssonar, forstöðu-
manns Þróunarsammvinnustofnun-
ar Íslands. Móðir Soffíu var Sigríður,
systir Jóns, langafa Matthíasar Ingi-
bergssonar, lyfsala í Kópavogi. Sigríð-
ur var dóttir Ólafs b. á Litlu-Fellsöxl í
Skilamannahreppi Magnússonar, b. í
Dagverðarnesi í Skorradal Björnsson-
ar, b. og smiðs á Hóli í Lundarreykja-
dal Sæmundssonar. Móðir Ólafs var
Sigríður Ólafsdóttir, b. á Snartarstöð-
um Hermannssonar, bróður Bjarna
á Vatnshorni, langafa Guðbjarna,
föður Sigmundar, fyrrv. háskólarekt-
ors. Móðir Sigríðar var Þóra Kapras-
íusdóttir, b. á Snartarstöðum Gísla-
sonar. Móðir Kaprasíusar var Þóra
Kaprasíusdóttir, systir Ingibjargar,
langömmu Kaprasíusar, langafa Ás-
laugar, móður Geirs Hallgrímssonar
forsætisráðherra. Móðir Sigríðar Ól-
afsdóttur var Halldóra Jónsdóttir, b. í
Tungufelli Sigurðssonar, og Sesselju
Gunnlaugsdóttur, listasmiðs í Voga-
tungu Einarssonar. Móðir Sesselju
var Guðlaug Þórðardóttir, dóttir syst-
ur Sveinbjörns á Hvítárvöllum, föður
Þórðar dómsstjóra, föður Sveinbjarn-
ar Sveinbjörnssonar tónskálds.
Útför Jóns fer fram frá Hallgríms-
kirkju mánudaginn 12.4. kl. 13.00.
SKÓLAMEISTARI OG SKÁLD
f. 10.4. 1919, d. 9.11. 1983
Jóhann fæddist á Siglufirði. Hann
lauk MA-prófi í ensku og málvís-
indum við University of Californ-
ia í Berkley og stundaði þar fram-
haldsnám.
Jóhann var lektor við HÍ 1948-
50, kennari og bókavörður við
The Fiske Icelandic Collect-
ion við Cornell University í New
York 1952-59, og skólameistari
Menntaskólans á Laugarvatni
1960-70.
Jóhann samdi ritin Biblio-
graphy of the Eddas, og Sagas of
Icelanders, bjó til prentunar stóru
ensk-íslensku orðabók Arnar og
Örlygs og sendi frá sér ljóðabæk-
urnar Ferilorð og Hlymrek á sex-
tugu.
Jóhann var virtur kennari og
skólameistari, agaður fræðimað-
ur og yfirvegað skáld. Vinur Jó-
hanns og skólabróðir, Kristján
Karlsson, segir hann hafa verið
frábæran bókmenntarýni en tek-
ið málvísindin fram yfir í námi
sínu og átt erfitt með að velja.
Um val þeirra orti Jóhann eftir-
farandi til Kristjáns:
Það er vitleysa, sem ég vona
þig aldrei dreymi
að ég virði ekki það sem skeður
i þínum heimi,
þó margt sem gerist þar gangi
nú þannig til
að það gengur í berhögg við
allt sem ég veit og skil
og í mínum heimi er það yfir-
leitt alls ekki til
sem ég ekki skil.
Jóhann kvæntist Lucy Wins-
ton Hannesson en börn þeirra
eru Wincie, fyrrv. formaður HÍK
og Sigurður skáld.
Bróðir Jóhanns var Þorsteinn
óperusöngvari, faðir Páls sem var
á sínum tíma útvarpsstjóri Bylgj-
unnar og síðan auglýsingastjóri
DV en hefur starfað mikið við al-
mannatengsl á síðari árum.
Systir Jóhanns var Hallfríður,
móðir Páls Árdal, heimspekipróf-
essors í Kanada sem hefur verið í
hópi virtustu sérfræðinga og túlk-
enda á heimspekiverkum Davids
Hume.
Jóhann var sonur Hannes-
ar Jónassonar, bóksala á Siglu-
firði, og Kristínar, systur Þórdísar,
ömmu Benedikts Árnasonar leik-
stjóra. Kristín var dóttir Þorsteins,
b. á Stóru-Hámundarstöðum á
Árskógsströnd, bróður Snjólaug-
ar, móður Jóhanns Sigurjónsson-
ar skálds, og móðir Snjólaugar,
ömmu Magnúsar Magnússonar,
dagskrárgerðarmanns hjá BBC.
MINNING
Jón Böðvarsson
FYRRV. SKÓLAMEISTARI OG FYRRV. RITSTJÓRI IÐNSÖGU ÍSLENDINGA
MERKIR
ÍSLENDINGAR
Í raun má segja að Jón Bö hafi verið
maður andstæðna. Hann var í senn
byltingarsinni og íhaldsmaður og
það sem
merkilegast
er – tókst
vel að sam-
eina þær
andstæð-
ur. Grjót-
harður
prinsipp-
nagli
en samt
stöðugt að
umbylta og
breyta. Fyrir barðinu á þeim eig-
inleikum urðu flest þau félög sem
hann tengdist, skólar þeir sem
hann starfaði við og um síðir skóla-
kerfið í heild sinni. Hann lét til sín
taka – markaði spor – reisti bauta-
steina og þá stóra. Meginvopn hans
í þeirri baráttu var tvímælalaust
hinn einstæði sannfæringarkraftur.
Jón gat sannfært nánast hvern sem
var um hvað sem var. Og hópurinn
trúði einatt, lét sér segjast og fylgdi
meistara sínum. Gilti þá einu hvort
um var að ræða nemendur í fram-
haldsskóla, skákfólk, Rotaryfélaga,
fólk á námskeiðum. Hann seiddi
hlustendur sína með sér með inn-
lifun sinni og sannfæringu. Jafn-
vel þó hann hefði ekki alltaf á réttu
að standa – gerðist sjaldan en varð
þeim mun skemmtilegra.
Í landsprófi bannaði hann okk-
ur að nota kúlupenna „af því tikk-
ið í pennunum“ truflaði hann. Og
komst upp með það. Í menntaskóla
rak hann okkur, uppreisnargjarna
´68 kynslóð úr skóm. Og komst upp
með það. Á kennarafundi gat hann
meinað fólki að taka til máls „af því
ég veit hvað þú ætlar að segja“. Og
komst upp með það. Færði Njálu
og aðrar sögur forfeðranna til slíks
lífs að fornkappar stukku fullskap-
aðir inn í vitund þjóðarinnar að
nýju. Breytti, bætti og sótti fram alla
tíð. Skilur eftir skarð en líka stóra
bautasteina. Verður sárt saknað en
gleymist aldrei.
EFTIRMÆLI
Í minningu Jóns Böðvarssonar
EFTIR HJÁLMAR ÁRNASON FYRRVERANDI NEMANDA OG SAMSTARFSMANN
Fæddur 2.5. 1930 - dáinn 4.4. 2010
Jóhann S.
Hannesson