Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Qupperneq 64

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Qupperneq 64
n Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera útrásarvíking- ur á Nýja-Íslandi. Áður hafa borist fregnir um að Sigurjóni Þ. Árna- syni Icesave-skapara hafi verið hent út úr veitingasal Perlunnar við lófa- tak annarra gesta og Pálmi Har- aldsson, sem oftast er kenndur við Fons, sagði í viðtali við DV að hann gæti ekki lengur fengið sér tíu dropa á kaffihúsum borgarinnar. Nú hefur annar Bakkavararbróðirinn fengið að kenna á svipuðu. Vitni að því þegar öðrum bræðranna var vísað á dyr í tískuverslun á Laugavegin- um hafði samband við DV og sagði frá atburðinum. Vitn- ið vissi þó ekki um hvorn bróðurinn var að ræða enda birtast þeir oftast saman á myndum með yfir- skriftinni: „Lýður og Ágúst Guðmunds- synir.“ Humar og hýðingar! FRÉTTASKOT 512 70 70 DV BORGAR 2.500 KRÓNUR FYRIR FRÉTTASKOT SEM LEIÐIR TIL FRÉTTAR. FYRIR FRÉTTASKOT SEM VERÐUR AÐALFRÉTT Á FORSÍÐU GREIÐAST 25.000 KRÓNUR. FYRIR BESTA FRÉTTASKOT VIKUNNAR GREIÐAST ALLT AÐ 50.000 KRÓNUR. ALLS ERU GREIDDAR 100.000 KRÓNUR FYRIR BESTA FRÉTTASKOT HVERS MÁNAÐAR. „Þetta er vísir að því sem koma skal, ha!“ segir Kjartan Halldórsson oftar en ekki kallaður Sægreifinn, en hann rekur verslunina og veitingastaðinn Sægreifann í Geirsgötu. Kjartan hef- ur smíðað lítinn gapastokk sem hann segir sýnishorn af því sem er ætlað út- rásarvíkingum, ráðherrum og öðrum ráðamönnum sem „sigldu þjóðinni hálfa leið til helvítis“, eins og hann orð- ar það sjálfur. „Þetta er frumsmíð en við vorum að spá í að smíða stóran stokk svo ein- ir átta til tíu gosar gætu verið í honum í einu, ha!“ Gapastokkur er aldagam- alt pyntingartæki sem var vinsælt á miðöldum þar sem höndum og höfði er komið fyrir í tréstokk. „Ég myndi svo vilja ráða hýðingarmeistara til að hýða þetta lið. Það er nóg af tuskulók- um, ráðamönnum og ráðherrum sem þarf að hýða, ha!“ Kjartan segist meira að segja vera búinn að finna út hver væri tilvalinn hýðingarmeistari. „Það er dóninn hann Eiríkur Stefánsson sem rífur kjaft á Útvarpi Sögu og fleiri stöðum.“ Kjartan segir „skítapakkið“ ekki eiga neitt betra skilið en myndarlega hýðingu. „Ekki bara útrásarvíkingarnir heldur líka allt stjórnmálafólkið. Bæði í þeirri óstjórn sem nú er og í þeirri sem á undan var. Þá er ég að tala um Ingibjörgu Sólrúnu, Geir H. Haarde og hvað hann nú heitir þarna banka- málaráðherrann.“ asgeir@dv.is HENT ÚT ÚR VERSLUN Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 / Strandgata 25 • Akureyri • sími 456 1185 • www.tonastodin.is Kjartan Halldórsson sægreifi smíðar gapastokk: VILL HÝÐA ÁBYRGÐARFÓLK HJÁLPARÞURFI RÁÐHERRA n Á næstunni mun Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ráða til sín þriðja aðstoðarmanninn. Nýr upplýsingafulltrúi tekur við störf- um hjá ráðuneytinu eftir að Elías J. Guðjónsson, fyrrverandi upplýs- ingafulltrúi fjármálaráðuneytis- ins, færði sig yfir til Katrínar Jak- obsdóttur menntamálaráðherra. Næsti aðstoðarmaður Steingríms kemur í stað Indriða H. Þorláks- sonar. Indriði hættir þó ekki störfum fyrir fjármálaráðherra því hann mun glíma við sérstök verkefni og er fastlega búist við að þau verði á sviði skattamála. PERSÓNULEGT BRÉF n Samskipti Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra við undirmann sinn, Steingrím Ara Arason for- stjóra Sjúkratrygginga Íslands, hafa vakið athygli. Ef rýnt er í bréf ráð- herrans, þar sem Álfheiður tilkynnir forstjóranum áform um áminningu, má sjá að það er ritað í nokkuð per- sónulegri stíl en álitsgjafar DV telja almennt tíðkast í bréfum ráðherra. Þannig noti heilbrigðisráðherrann persónufornafnið „ég“ í stað þess að tala um sig sem ráðherra en al- menn regla ráðuneytanna gerir fáð fyrir að nota ekki fyrstu persónu fornöfn í bréfaskriftum. Að mati álitsgjafa sem DV leitaði til er bréfið ekki skrifað í sömu hófstillingu og ætl- ast er til af ráð- herrum, held- ur er það í persónuleg- um stíl. Kjartan sægreifi Með sýnishorn af gapastokknum góða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.