Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Page 11
FRÉTTIR 16. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 11
Við vitum hvað konur vilja
Clarins fæst á eftirfrandi sölustöðum Lyfju:
Lágmúla – Laugavegi – Smáralind – Smáratorgi – Garðatorgi
Setbergi – Grindavík – Sauðárkróki – Eskifirði - Selfossi
Föstudag – laugardag og
sunnudag eru Clarins dagar
í Lyfju. 20% afsláttur af
öllum Clarins vörum. Einnig
fylgir falleg sundtaska ef
keyptar eru vörur fyrir
4.000 kr. eða meira.
Langar þig í hraustlegt útlit? Clarins býður
upp á margar gerðir af brúnkukremum.
Delicious Self Tanning Cream inniheldur
einstakt efni unnið úr hreinu kakói sem
ber í sér sumarið sama hvernig viðrar.
Clarins dagar í Lyfju 20% afsláttur
-20%
KREPPA UNGA FÓLKSINS
falt meira en þeir gerðu, gagnvart
krónu, fyrir hrun. Þrátt fyrir marg-
vísleg úrræði stjórnvalda eru vís-
bendingar um að þriðjungur þeirra
sé enn á mörkum þess að ná endum
saman. Skuldsetning vegna bíla-
kaupa gegnir mikilvægu hlutverki
í að skapa þann vanda sem fólk á
við að etja, að því er segir í kynning-
unni.
það sem þau lofuðu að gera. „En þau
hafa gert það sem þau geta gert. Þetta er
kannski ekki í þeirra höndum,“ segir Andri
og Lilja tekur undir það.
Ekki stórvægileg áföll
Arnar Þór Halldórsson,
32 ára stuðningsfullrúi í skóla.
„Ég missti vinnuna sem smiður en fyrir
utan það eru áföllin ekki stórvægileg
fyrir mig persónulega,“ segir Arnar
Þór. Hann er ekki með lán sem íþyngja
honum. Aðspurður
segist hann hafa
fengið aðra vinnu
eftir ár en hafa nýtt
tímann þess á milli
til að stunda nám.
Spurður hvort
margir í kringum
hann séu í vanda
segir Arnar að
það sé ekki
stórvægilegt. „Það er auðvitað alvarlegt
ef 20 prósent heimila eru að missa allt
sitt en ég þekki ekki þessi 20 prósent.
Það er allavega enginn sem ég þekki
að verða gjaldþrota eða eitthvað slíkt,“
segir Arnar. Spurður hvernig hann meti
þá aðstoð sem stjórnvöld hafa lagt fram
segir hann að erfitt sé að vinda ofan
af kerfi sem hafi verið 15 til 20 ár að
byggjast upp. „Þau eru vonandi á réttri
leið en mér finnst ég ekki geta dæmt
ríkisstjórnina,“ segir hann og bætir við að
á meðan vinstri-grænir séu í stjórn hafi
hann í það minnsta ekki þá tilfinningu
að verið sé að hylma yfir eitthvað. „Eins
og sakir standa þá treysti ég þeim best,“
segir Arnar.
Mótmæli við heimili Kristjáns Arasonar og Þorgerðar Katrínar:
Mætti með barnið til dyra
Hópur mótmælenda safnaðist sam-
an fyrir utan heimili hjónanna Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
varaformanns Sjálfstæðisflokksins,
og Kristjáns Arasonar, fyrrum hand-
boltahetju, á fimmtudagskvöld-
ið. Mótmælendur kröfðust þess að
Þorgerður Katrín segði af sér þing-
mennsku vegna skuldamála þeirra
hjóna en einkahlutafélag Kristjáns,
7 hægri ehf., er sagt skulda um 1,7
milljarða króna.
Athygli vakti þegar mómælend-
ur höfðu knúið dyra á heimili þeirra
þá mætti Kristján Arason með barn
sitt til dyra. Vildu mótmælendur af-
henda eiginkonu hans yfirlýsingu
þar sem krafist er að hún segi af sér
þingmennsku. Kristján og Þorgerður
voru ekki heima er mótmælin hófust
fyrir utan heimili þeirra. Barnfóstra
gætti barna þeirra en þau ruku heim
þegar þau fréttu af mótmælunum.
Meðal mótmælenda var Björn
Þorri Viktorsson lögfræðingur sem
stendur fyrir hópmálsókn vegna
gengistryggðra lána. Þorgerður þarf
um helgina að svara fyrir skuldir eig-
inmanns síns á flokksráðsfundi Sjálf-
stæðisflokksins. Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
lýsti því yfir í Kastljósi á miðviku-
dagskvöld að lán sem Þorgerður og
Kristján fengu væru óeðlileg. Þor-
gerður gegndi embætti mennta-
málaráðherra í ríkisstjórn Geirs H.
Haarde þegar bankakerfi Íslands
hrundi í október árið 2008. Kristján
vakti talsverða athygli á fimmtudag
þegar hann lýsti því yfir á Eyjunni að
þau hjónin væru skuldlaus, þótt félag
þeirra, 7 hægri ehf., sé stórskuldugt.
Kristján og barnið Kristján Arason
mætti með barnið til dyra er mótmæl-
endur knúðu dyra.
MYND KRISTINN MAGNÚSSON.