Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
EKKERT TÚRISTAGOS
„Í rauninni er þetta ekkert stórgos.
En þetta er meira öskugos en við
höfum séð síðustu áratugina, sem
segir nú kannski ekki mikið, því
flest gos sem við höfum séð hafa
verið hraungos og hafa ekki fram-
leitt neina ösku. Það sem er því nýtt
í þessu er að þetta er stórgos að því
leyti að nú eru miklu fleiri flugvél-
ar í loftinu en nokkru sinni áður.
Og nú verða Norður-Evrópumenn
varir við þetta í fyrsta sinn í langan
tíma. Þetta er hins vegar algengara
við Kyrrahafið en eldfjöllin þar, í In-
dónesíu, Alaska og Suður-Ameríku,
eru duglegri við að búa til ösku en
íslensku eldfjöllin og öskugos miklu
tíðari,“ segir Páll Einarsson, jarðeðl-
isfræðingur hjá Jarðvísindastofn-
un Háskóla Íslands. „Flest það sem
gerist í eldgosum sést á mælitækj-
um. Við sjáum þetta best í tölvunni
hér á stofnuninni. Í dag [fimmtu-
dag] höfum við fylgst með gosóró-
anum en það er besta mælitækið til
að sjá aflið í gosinu. Í morgun urð-
um við vör við frekar vaxandi gang
í gosinu.“
Ekkert stórgos
Páll segir ekki gott að segja til um
hversu lengi öskufallið muni vara
og hvenær flugumferð gæti komist í
eðlilegt horf. „Sú aska sem komin er
upp í andrúmsloftið verður þar um
einhvern tíma áfram og rignir nið-
ur. Það fer alveg eftir veðri hvert hún
ratar. En eldfjallið býr líka til stöðugt
meira af ösku sem mun einnig ber-
ast með veðri og vindum. Og um
það getum við ekkert sagt, hversu
lengi öskufallið heldur áfram með
þessum hætti,“ segir Páll. Hann seg-
ir að eldgosið í Eyjafjallajökli sé ekki
stórt í sögulegum skilningi. Á hitt
beri þó að líta að langt sé liðið síð-
an öskugos varð í Norður-Evrópu og
íbúar á því svæði því óvanir slíkum
atburðum.
Mjór strókur
En hversu lengi mun öskufall-
ið standa? „Gosið getur geng-
ið skrykkjótt fyrir sig. Svo fer þetta
eftir því hversu mikill ís er til taks.
Hann gengur náttúrulega smátt og
smátt til þurrðar eftir því sem meira
bráðnar. Það gæti því farið þannig
að gígurinn í Eyjafjallajökli verði
íslaus og þá minnkar öskufram-
leiðslan, þó að gosið verði að öðru
leyti óbreytt. Þetta fer eftir mörg-
um þáttum og auðvitað mjög eftir
veðri og því hvernig vindáttin snýr.
Strókurinn sem stendur núna yfir
er tiltölulega mjór og stendur mjög
eindregið í eina átt. Við gætum líka
fengið öskuna yfir okkur hér á suð-
vesturhorninu og þá lægi flug niðri í
Keflavík. Öskufall hér gæti haft tals-
verð áhrif. Ef við segjum sem svo að
vindurinn stæði núna í öfuga átt, þá
fengjum við öskuna yfir okkur. Það
er ekki ákjósanleg staða,“ segir Páll
og bendir á að hugsanlega gæti fólk
með öndunarfærasjúkdóma verið í
hættu þá.
Kvikusprengingar búa til ösku
Hvernig verður aska til? „Það get-
ur gerst á tvo vegu, það sem nú er
að gerast í Eyjafjallajökli er líklega
vegna sprenginganna sem verða
þegar kvikan kemst í snertingu við
ís og vatn. Þá springur kvikan og
sundrast. Í staðinn fyrir að renna
sem hraun kemur hún sem fín aska.
Hins vegar verða stundum öskugos
þegar mikið gas kemur upp með
kvikunni og hún springur af sjálfri
sér. Þá er kvikan seig, það fer eftir
berggerðinni. Sumar bergtegund-
ir eru seigar og miklu sprengivirk-
ari en aðrar. Kvikan er miklu seig-
ari í eldfjöllum við Kyrrahafið og
því verða öskugosin þar,“ segir Páll.
Hann segir hugsanlegt að gosið í
Eyjafjallajökli sé svokallað gúlagos
og að aska verði einnig til af þeirra
völdum.
Göt í ísnum
Aðspurður hversu þykk íshellan yfir
eldstöðinni í Eyjafjallajökli sé seg-
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur hjá
Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, seg-
ir að gosið í Eyjafjallajökli sé hugsanlega
gúlagos. Frægasta gosið af þeirri gerð var
sprengigosið í Mount St. Helens í Banda-
ríkjunum árið 1980. Páll segist ekki geta
sagt til um hversu lengi gosið muni standa
né hvenær hættan af frekari jökulhlaup-
um og öskufalli verði liðin hjá.
n Hvað er í öskunni?
„Askan er að mestu leyti berggler,
svartar gleragnir. Kvikan sundrast
við áhrif frá vatninu og verður
að smáum kornum. Fínustu
kornin berast lengst með veðri
og vindum,“ segir Páll Einarsson
jarðeðlisfræðingur.
n Áhrif gosösku á heilsufar
Askan er samsett úr fínum ögnum
og stærri ögnum. Vindátt og
aðrar aðstæður ráða því hvar
askan fellur. Askan úr Eyjafjallajökli inniheldur flúor sem getur haft bæði bráð- og
langvinn eituráhrif á grasbítandi dýr. Gosaska getur einnig haft áhrif á fólk en
helstu einkenni eru frá:
Öndunarfærum:
n Nefrennsli og erting í nefi
n Særindi í hálsi og hósti
n Fólk sem þjáist af lungnasjúkdómum, t.d. astma, getur fengið berkjubólgu sem
varir í marga daga og lýsir sér í hósta, uppgangi og öndunarerfiðleikum
Augum:
n Gosaska getur ert augu einkum ef augnlinsur eru notaðar. Helstu einkenni eru:
n Tilfinning um aðskotahlut
n Augnsærindi, kláði, blóðhlaupin augu
n Útferð og tárarennsli
n Skrámur á sjónhimnu
n Bráð augnbólga, ljósfælni
Ráðleggingar til fólks þar sem öskufalls gætir:
n Nota öndunarfæragrímur utanhúss. Æskilegt að nota hlífðarföt.
n Séu öndunarfæragrímur ekki tiltækar má nota vasaklút eða annan klæðnað
sem heldur stærri ögnum frá
n Ráðlagt að nota hlífðargleraugu
n Börn og fullorðnir með öndunarfærasjúkdóma haldi sig innanhúss
Heimild: Sóttvarnalæknir og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Áhrif öskufalls
Eldgosið úr geimnum
Gosið í Eyjafjallajökli hefur
haft áhrif á líf milljóna manna
á norðurhveli jarðar. MYND NASA