Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Síða 19
FRÉTTIR 16. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 19
um þetta. Og frá því er skemmst að
segja að hann nánast skalf og nötr-
aði. Hann sagði: „Þú getur ekki gert
mér þetta. Ég get ekki farið þarna
upp og sagt þetta við Davíð.“ „Það er
það sem þú verður að gera“, sagði ég.
Þetta var töluvert langt fundarhlé og
svo fór hann upp og skömmu síðar
heyrðum við þung skref eftir gang-
inum, og Davíð Oddsson gekk út og
kom ekki aftur.“
Örmagna
Davíð Oddsson segir að Geir Haarde
hafi beðið sig um að verða formann
neyðarstjórnarinnar. „Og þá hótaði
Össur Skarphéðinsson stjórnarslit-
um, hann sagðist geta sætt sig við
Jón Sigurðsson sem var mjög hlægi-
legt. Ég sagði þá við forsætisráðherra
að mér væri alveg nákvæmlega sama
um þetta […] enda vorum við að
verða örmagna þarna við vorum svo
þreyttir, en ég sagði við hann að hann
ætti bara að vera formaður sjálfur og
finna svo einhverja menn, ekki vera
að láta Össur hóta sér stjórnarslit-
um. Þetta er náttúrulega ekkert vit
að vera í ríkisstjórn sem að á örlaga-
tíma er að hóta stjórnarslitum út af
hinu og þessu, þetta var tóm vitleysa
allt saman, var orðið það.“
Vildi ekki trufla
Eftir fundarhlé kemur Geir Haarde
aftur inn á fundinn með Davíð. „Svo
kemur hann inn og var þá í öngum
sínum Geir og kannski svona fannst
þetta ósvífið gagnvart mér en hann
er í öngum sínum þarna að menn
ætli að fara út úr stjórninni á versta
tíma. Ég sagði: Blessaður vertu ekki,
láttu hann ekki vera að setja, þennan
pilt setja þig upp að vegg, segðu bara
að þú verðir formaðurinn og það
þurfi ekki að vera að tala um ein-
hverja aðra menn og þá er ég ekkert
að trufla þá mynd, ég get ekki hugs-
að mér að vera að trufla þá mynd í
augnablikinu.“
Úrslitakostir
Össur Skarphéðinsson vildi setja
Geir Haarde úrslitakosti um stjórn-
arsamstarfið. Hann vildi fá Davíð
burt úr Seðlabankanum. „Og það
er svona eftir að við höfum fund á
föstudagsmorgun, nokkrir ráðherr-
ar. Ég hafði talað við Ingibjörgu Sól-
rúnu. Ég taldi sem sagt að við ættum
að setja úrslitakosti, að Davíð færi
eða við færum úr ríkisstjórninni. Á
það hafði formaður Samfylkingar-
innar fallist, fól mér að fara og tala
um það við Geir. Ég kom til Geirs, þá
var hann búinn að tala við hana og
tala hana niður, eins og hann gerði
nokkrum sinnum varðandi þetta til-
tekna atriði.“
Trúnaðarbrestur
Af því sem kemur fram í þeim köfl-
um rannsóknarskýrslunnar þar
sem fjallað er um samskipti Davíðs
Oddssonar við ráðherra og embætt-
ismenn er ljóst að mikill trúnaðar-
brestur hafi verið milli „manna Dav-
íðs“ og ráðherra Samfylkingarinnar.
Í skýrslunni er haft eftir Björgvini
G. Sigurðssyni að skort hafi á þann
„… trúverðugleika og heiðarleika í
samskiptum sem var kannski for-
sendan fyrir því að menn gætu sinnt
sínu hlutverki.“ Bæði hafi verið sam-
skiptaleysi innan ríkisstjórnarinn-
ar og milli lykilstofnana sem hafi
„torveldað mönnum að vinna sína
vinnu“. Andrúmsloftið í ríkisstjórn-
inni hafi verið mjög eitrað. „Það sem
eitraði hana frá fyrsta degi var tor-
tryggnin og andúðin á milli seðla-
bankastjóra og okkar í Samfylking-
unni.“
Pólitísk fortíð
gróf undan trausti
Af framansögðum orðum ráðherr-
anna er ljóst að samstarf ríkisstjórn-
arflokkanna beið verulegan skaða
vegna stöðu Davíðs Oddssonar í
Seðlabankanum. Hann hafði, sem
formaður bankastjórnar Seðlabank-
ans, mikil völd og hans hlutverk,
sem seðlabankastjóri, var að taka
þátt í öllum meiri háttar ákvörðun-
um sem á þessum tíma voru teknar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar-
innar kemur fram að pólitísk for-
tíð Davíðs Oddssonar, þáverandi
seðlabankastjóra, hafi grafið und-
an trausti og ruglað samskipti við
ráðherra og aðra embættismenn í
stjórnkerfinu. Sú staðreynd að Dav-
íð hafi verið oddviti stærsta stjórn-
málaflokks landsins um árabil og
einn fyrirferðarmesti stjórnmála-
maður landsins um langt skeið, auk
þess sem hann hafi átt tryggt bak-
land í embættismannakerfinu, hafi
truflað boðleiðir milli manna. Þetta
sé skýrt dæmi um afleiðingar póli-
tískrar stöðuveitingar.
NÆRVERA DAVÍÐS HAFÐI VOND ÁHRIF
Í skýrslunni er haft eftir Björg-
vini G. Sigurðssyni að
skort hafi á þann „…
trúverðugleika og
heiðarleika í samskipt-
um sem var kannski
forsendan fyrir því að
menn gætu sinnt sínu
hlutverki.“
Vildi Davíð burt Össur Skarphéðinsson
var mjög ósáttur við veru Davíðs
Oddssonar í Seðlabankanum. Hann var
í hringiðu átakanna í Seðlabankanum,
ríkisstjórninni og Ráðherrabústaðnum.
MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
Fyrirferðarmikill Í skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar segir að sú staðreynd
að Davíð hafi verið einn fyrirferðarmesti
stjórnmálamaður landsins um árabil hafi
truflað boðleiðir milli manna þegar hann
gegndi stöðu seðlabankastjóra. Það sé
afleiðing pólitískra stöðuveitinga.
MYND RÓBERT REYNISSON