Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Side 24
„Þetta er það sem mér liggur á hjarta gagnvart Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni og öðrum mönnum sem ollu hruninu,“ segir Berg- lind Bjarnadóttir, skrifstofukona í Reykjanesbæ, sem ákvað að senda opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar, athafnamanns og fjárfestis, og gagnrýnir hann harðlega fyrir að hafa skaðað hana og börnin henn- ar. Hún hafi tapað um hálfri milljón á því að fjárfesta í Sjóði 9 hjá Glitni þar sem Jón Ásgeir var aðaleigandi. Fyrst hafi hún sett bréfið inn á Fac- ebook fyrir vini og vandamenn en fengið gríðarleg viðbrögð. Fólk hafi síðan hvatt hana til þess að birta bréfið opinberlega. Hún hafi ekki haft uppi á netfangi Jóns Ásgeirs en hefði sent honum póstinn ef svo hefði verið. Varð fyrir atvinnuskerðingu Berglind hefur orðið fyrir atvinnu- missi í kjölfar hrunsins og segir að allar neysluvörur hafi hækkað í kjölfarið. Fyrir hrun hafi hún unn- ið þrjú störf en þarf í dag að láta sér nægja 40 prósenta skrifstofustarf hjá flutningafyrirtæki. „Ég myndi með glöðu geði þiggja fullt starf en er sátt við að hafa enn eitthvað að gera,“ segir hún. Margir séu í verri málum en hún í Reykjanesbæ þar sem atvinnuleysi er nærri 15 pró- sent um þessar mundir. Berglind vonast til þess að fólk bregðist vel við skrifum hennar. Þetta séu hennar aðstæður í dag. Líklega sé stór hluti þjóðarinnar sammála viðhorfi hennar. Flestir hafi feng- ið algjörlega nóg af svokölluðum útrásarvíkingum sem ollu banka- hruninu með glæfralegum rekstri á Glitni, Kaupþingi og Landsbank- anum. „Er einhver annar sem get- ur gert þetta betur?“ segir Berglind aðspurð hvort hún sé sátt við að- gerðir núverandi ríkisstjórnar fyr- ir heimili landsins. Það hafi ver- ið aðrir en þau sem hafi brugðist heimilunum með því að koma ekki í veg fyrir hrunið í október 2008. 24 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR Hefur þú, elskulegur Jón Ásgeir, einhverja hugmynd um hvað þú hefur gert mér og mínum börnum? Ég skrifa meirihlutann af hrakn- ingum mínum á þig og jú á Lárus Welding líka, Hannes Smára, Björgólfsfeðga og hvað þeir heita nú allir þessir apakettir sem stóðu að hruni ís- lensku þjóðarinnar. ANNAS SIGMUNDSSON blaðamaður skrifar: as @dv.is Elskulegur Jón Ásgeir:  Ég heiti Berglind Bjarnadóttir, þú þekkir mig ekki neitt og ég ekki þig sem betur fer, ef minnið er ekki að svíkja mig þá afgreiddi ég þig einu sinni í Fríhöfninni þegar ég vann þar fyrir mörgum árum það var á þeim tíma sem þú flaugst á meðal almennings, ég vildi óska að ég hefði vitað þá hvaða mann þú hefur að geyma því að ég hefði þá hrækt á þig. Ég átti í Sjóði 9 í Glitni, ég lagði inn á hann 2007 og það meira en milljón, millj- ónina tíndi ég ekki upp af götunni, ó, nei, aldeilis ekki, ég vann fyrir henni og rúmlega það. Ég bjó og bý ein með 2 börn, ég vann þrjár vinnur ásamt því að halda úti heimili og hugsa um börnin auðvitað en það endaði með ósköpum því að ég endaði á að hníga niður og var flutt á spítala. Þetta var 2006. Ég missti heilsuna og hef aldrei fengið hana aftur, ég er líkamlega vanheil sko en þú mátt ekki halda að ég sé andlega vanheil. Ég get ekki sagt að ég hafi tekið þátt í góðærinu, ég keypti ekki flatskjá allavega en ég fór til útlanda 2007 og 2008 og tók bílalán og það 100% erlent! Það er mín þátttaka í góðærinu. En snúum okkur aftur að peningamarkaðs- reikningnum mínum, hvað gerðir þú, elsku- legur Jón Ásgeir, við 458 þúsundin sem ég glataði? Mig sárvantar þennan pening, af hverju? Jú, málið er að ég missti meirihlut- ann af vinnunni minni í kjölfar hrunsins og ég er bara ekki að meika þetta, allt hef- ur hækkað, allur matur, bensín, skattar og svona og ég hef ekki einu sinni lengur efni á að reykja (fari það grábölvað), það hefur margt farið miður hjá mér síðastliðin ár sem ég fer nú ekki að telja upp hérna og er ekki allt þér að kenna en mjög margt samt. Hef- ur þú, elskulegur Jón Ásgeir, einhverja hug- mynd um hvað þú hefur gert mér og mínum börnum? Ég skrifa meirihlutann af hrakn- ingum mínum á þig og jú á Lárus Welding líka, Hannes Smára, Björgólfsfeðga og hvað þeir heita nú allir þessir apakettir sem stóðu að hruni Íslensku þjóðarinnar. Finnst þér, Jón, allt í lagi að hafa leikið þér að peningum annarra með vinum þín- um og fjölskyldu? Geturðu sofið, ég bara spyr!!! Þegar hrunið var 2008 þá hætti ég að versla í Bónus og sagði upp Stöð 2, ég ætlaði sko ekki að láta þig og þína hafa krónu meir, nóg er ég búin að láta þig hafa af peningum. Ég verslaði ekki í Bónus í heilt ár og varð svo að játa mig sigraða fyrir því að í Bónus væri ódýrast að versla en mér líður svo illa að labba inn í þessa skítabúllu, ég er marg- búin að borga fyrir vöruna þar inni, þannig að ég er búin að ákveða að hætta að versla í Bónus...again, ég kýs að svelta frekar, ÞÚ FÆRÐ EKKI KRÓNU MEIR FRÁ MÉR, JÓN ÁSGEIR!! Ég var á tímabili að pæla í að ásaka Sjálf- stæðisflokkinn fyrir hrakninga mína en sá eftir mikla pælingar að það er ekki við Sjálf- stæðisflokkinn að sakast heldur þig, elsku vinur. Tæp hálf milljón eru kannski ekki miklir peningar í þínum augum en ó mæ god hvað það eru miklir peningar í mínum augum, mér þykir það miður að þú hafir stolið af mér þessum peningum, ég meina þekkjumst við? Hef ég gert þér eitthvað? Er einhver séns að þú getir borgað mér þetta til baka?  Það á fullt af fólki um sárt að binda, á ekki fyrir mat og ekki þak yfir höfuðið, það er hellingur af fólki sem glataði miklu miklu miklu meiri pening en ég, fólk sem kannski var búið að safna allt sitt líf og peningarnir bara hurfu á einum degi en þér finnst það sjálfsagt í lagi svo lengi sem þú hafir ofan í þig og á og gott betur en það, þú stalst frá fjölda fólks, Jón, og þú gengur ennþá laus sem er sorglegt og þar sem þér er skítsama þá sannar þú siðblindu þína og veruleikafirringu!! Já, og ekki gleyma græðginni, þú ert gráðugur, siðblindur og veruleikafirrtur og svoleiðis fólk á heima á stofnun en nei þú hefur það gott í út- löndum bara að tjilla með frúnni og svo- leiðis. Ég er ekki dramadrottning og kvarta sjaldan og ég geri mér fulla grein fyrir að ég er alls ekki í verstu stöðunni, ég hef þak yfir höfuðið og rétt hef fyrir mat, ég þurfti reyndar að fara með börnin til tannsa í gær og vá *svitn* ég þarf örugglega að selja mig fyrir kostnaðinum, viltu kaupa? Hehe, nei, djók Jón, ég næ samt að fresta því að selja mig fram að mánaðamótum þar sem að ég borgaði tannsa með vísa en það er ekki þinn hausverkur auðvitað, ég get sjálfri mér um kennt að hafa átt börn og að þau séu með tennur! Takk fyrir að nenna að lesa, elskulegur Jón, knús í hús til þín og þinna :-** 13. apríl 2010, virðingarfyllst, Berglind Bjarnadóttir Bréf Berglindar til Jóns Ásgeirs OPIÐ BR F TIL J NS SGEIRS Berglind Bjarnadóttir, skrifstofukona í Reykja- nesbæ, skrifar opið bréf í DV í dag til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Segir hún að hann hafi valdið henni og börnum hennar miklum skaða. Hún hafi tapað nærri 500 hundruð þúsund krón- um á Sjóði 9 hjá Glitni þar sem Jón Ásgeir var aðaleig- andi. Berglind er tveggja barna móðir sem vann þrjú störf fyrir bankahrunið en þarf að láta sér nægja 40 prósenta starf í dag. Ósátt við Jón Ásgeir Berglind Bjarnadóttir, skrifstofukona í Reykja- nesbæ, segir að Jón Ásgeir Jóhann- esson hafi valdið henni og börnum hennar tjóni. Hún hafi tapað nærri 500 þúsund krónum á Sjóði 9 hjá Glitni þar sem Jón Ásgeir var aðaleigandi. Aðalleikandi hrunsins Jón Ásgeir Jóhannesson, athafnamaður og fjárfestir, var einn aðalleikenda íslenska fjármálalífsins sem fór á hliðina í október 2008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.