Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
Rússar eru æfir vegna ákvörðunar
bandarískrar konu að skila sjö ára
gömlum dreng aftur til Rússlands.
Ættleiðing piltsins, Artem Saveliev,
gekk í gegn í september síðastliðin-
um og átti drengurinn sér vonir um
að geta hafið nýtt líf í Bandaríkjun-
um eftir vist á munaðarleysingja-
heimili í Partizansk, afskekktum bæ
í austurhluta Rússlands. Draumur
piltsins varð hinsvegar að martröð
þegar móðir hans, hin 33 ára gamla
Torry Hansen, ákvað að hún vildi
hann ekki lengur. Sendi hún hann
um borð í flugvél til Rússlands með
miða sem á stóð: „Ég vil hann ekki
lengur.“
Sagður ofbeldisfullur
Í bréfi sem Hansen sendi með
drengnum kemur meðal annars
fram að forsvarsmenn munaðar-
leysingjahælisins í Partizansk hafi
logið að henni þegar hún ákvað
að taka drenginn að sér. Hún hafi
fengið þau skilaboð að drengurinn
væri ljúfur sem lamb en þegar á
hólminn var komið hafi hann ver-
ið „ofbeldisfullur“ og „stjórnlaus“.
Það var í september síðastliðnum
sem pilturinn kom til Bandaríkj-
anna en Hansen býr í Tennessee.
Á dögunum fékk hún nóg og ákvað
að senda piltinn aftur til Rússlands.
Var hún búin að ráða ökumann
í Rússlandi til að keyra hann að
menntamálaráðuneyti Rússlands
þar sem forviða starfsmenn tóku á
móti honum á fimmtudaginn í síð-
ustu viku.
Líkamlegir áverkar
Málið þykir hið dularfyllsta enda
segja rússnesk yfirvöld að dreng-
urinn hafi ekki sýnt afbrigðilega
hegðun að neinu leyti síðan hann
kom til Rússlands. Drengurinn
gekkst undir rannsóknir skömmu
eftir komuna til Rússlands og að því
er fram kemur í rússneskum fjöl-
miðlum voru líkamlegir áverkar
sýnilegir á drengnum.
Málið hefur vakið mikla athygli í
Rússlandi og ekki síður Bandaríkj-
unum þar sem yfirvöld rannsaka
nú hvort móðirin hafi gerst sek
um vanrækslu gagnvart drengn-
um. Engin kæra hefur hins vegar
verið gefin út í málinu og að því
er fram kom á blaðamannafundi
vegna málsins í Tennessee fyrr í
vikunni neitar móðirin að tala við
yfirvöld nema kæra verði gefin út.
Vegna þess er lítið vitað um mála-
vexti að öðru leyti en því sem fram
kemur í bréfinu sem móðirin sendi
með drengnum. Á blaðamanna-
fundinum kom þó fram að móð-
irin eigi yfir höfði sér kæru til að
komast til botns í málinu. Hyggjast
yfirvöld rannsaka hvort eitthvað
sé hæft í fullyrðingum rússneskra
lækna um að áverkar hafi fundist
á drengnum og þá hvort einhver
tengdur drengnum hafi veitt hon-
um þá.
Ættleiðingar frystar í bili
Rússnesk yfirvöld líta málið afar
alvarlegum augum og vegna þess
hafa yfirvöld ákveðið að fresta öll-
um fyrirhuguðum ættleiðingum
frá Rússlandi til Bandaríkjanna.
Bandarísk sendinefnd er væntan-
leg til Rússlands til að ræða málið
við þarlend yfirvöld og hafa Rúss-
ar sett fram þá kröfu að nákvæmar
reglugerðir verði settar áður en ætt-
leiðingar til Bandaríkjanna verða
leyfðar að nýju. Hafa rússnesk-
ir þingmenn gengið svo langt að
krefjast þess að alfarið verði tekið
fyrir ættleiðingar til Bandaríkjanna.
Þá hefur forseti Rússlands, Dmitry
Medvedev, lýst því yfir að hann hafi
miklar áhyggjur af hag rússneskra
barna sem ættleidd eru til Banda-
ríkjanna.
SKILAÐI ÆTTLEIDDU
BARNI TIL RÚSSLANDS
Rússnesk yfirvöld hafa ákveðið að fresta öllum ættleiðingum frá Rússlandi til Bandaríkjanna. Ástæðan
er sú að hin 33 ára gamla Torry Hansen ákvað að skila hinum sjö ára gamla Artem Saveliev aftur til
Rússlands en Hansen ættleiddi hann í september. Var pilturinn sendur einsamall í flugvél til Moskvu.
ÆTTLEIDD BÖRN
HAFA LÁTIST Í
BANDARÍKJUNUM
Eins og fram kemur í greininni
um Saveliev óttast Dmitry Med-
vedev Rússlandsforseti um hag
ættleiddra rússneskra barna í
Bandaríkjunum. Þessi ótti virð-
ist ekki vera að ástæðulaus því
frá árinu 1996 hafa að minnsta
kosti fimmtán rússnesk börn lát-
ist vegna barsmíða eftir að hafa
verið ættleidd til Bandaríkjanna.
Þannig lést sjö ára gamall drengur
sem ættleiddur var til fjölskyldu
í Pennsylvaníu 25. ágúst 2009 af
áverkum sínum. Foreldrar hans
voru ákærðir fyrir morð af fyrstu
gráðu. Pilturinn var ættleiddur
til Bandaríkjanna þegar hann
var eins árs. Réttarhöld í málinu
standa enn yfir.
Aftur til Rússlands
Artem var sendur einsamall
um borð í flugvél sem flutti
hann til Rússlands.
Artem með Hansen Torry
Hansen sendi piltinn aftur til
Rússlands þar sem henni þótti
hann ofbeldisfullur.
Ósáttur Dmitry Medvedev hefur áhyggjur af hag rússneskra barna sem ættleidd
eru til Bandaríkjanna.
HOLLYWOOD
FYLGIST MEÐ
Þó að mál Saveliev sé litið afar al-
varlegum augum, bæði af banda-
rískum og rússneskum yfirvöld-
um, hafa kvikmyndafyrirtæki í
Hollywood látið sig málið varða.
Árið 2009 kom út myndin Orphan
og lýsir hún raunum bandarískr-
ar fjölskyldu sem ættleiðir níu ára
gamla stúlku frá rússnesku mun-
aðarleysingjahæli. Í fyrstu leikur
allt í lyndi og stúlkan aðlagast fjöl-
skylduaðstæðum vel. En eftir smá
tíma fer fjölskylda stúlkunnar að
tengja saman hegðun stúlkunnar
og fjölda ótímabærra dauðsfalla
fólks sem tengist fjölskyldunni. Er
stúlkan greinilega ekki öll þar sem
hún er séð.
Til þess sem málið varðar
Ég ættleiddi þetta barn, Artem Sa-
veliev, þann 29. september 2009. Þetta
barn á við andleg veikindi að stríða.
Hann er ofbeldisfullur og er siðblindur.
Það var logið að mér og ég afvegaleidd
af forsvarsmönnum rússneska mun-
aðarleysingjahælisins vegna andlegs
ástands hans og annarra vandamála.
Starfsfólk munaðarleysingjahælisins
vissu klárlega af þeim stóru vandamálum
sem drengurinn glímir við. Samt ákváðu þeir að mistúlka vandamál hans, til
þess eins að koma honum burt.
Eftir að hafa gert mitt besta við barnið þykir mér fyrir því að tilkynna
að vegna öryggis míns, fjölskyldu minnar og vina minna vil ég ekki vera
forráðamaður barnsins lengur. Þar sem hann er rússneskur ríkisborgari skila ég
honum í hendur ykkar og vil að ættleiðingin verði afturkölluð.
Bréfið sem móðirin sendi
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
blaðamaður skrifar: einar@dv.is